Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Síða 32
40
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR1. JONI1982.
Nýlega efndu þessar ungu dömur,
Brynhildur Jakobsdóttir og Ingibjörg
Hilmarsdóttir, til hlutaveltu í Kópa-
vogi til styrktar hjúkrunarbeimili aldr-
aðra. Alls söfnuðust 346,65.
35wr
RAFMAGNS^p H ANDVERKFÆRI
Tilkynningar
GRJOTGRINDUR
Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA
HVAÐ KOSTAR FRAMLUKT í BÍLINN ÞINN?
Hún kostar 1360 kr. í Citroen og það kostar um 900
kr. að bletta húddið eftir grjótkast sumarssins.
GRJÓTGRIND á fólksbíl kostar um 650 kr.
HEFUR ÞÚ EFNI Á AÐ VERA ÁN HENNAR?
Erum sérhæfðir í FIAT og CITROEN viðgerðum!
BIFREIÐA MVERKSTÆÐIÐ
SKEMMUVEGI 4 K0PAV0GI SÍMI 77840 knostós
Lögtök
Eftir kröfu Tollstjórans í Reykjavík og aö undangengnum
úrskuröi verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara á
kostnaö gjaldenda, en ábyrgö ríkissjóðs, að átta dögum liðn-
um frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Söluskatti fyrir jan., febr og mars 1982, svo og söluskatts-
hækkunum, álögðum 23. febr. 1982 - 26. maí 1982; vörugjaldi
af innlendri framleiðslu fyrir jan., febr., og mars 1982; mæla-
gjaldi, gjaldföllnu 11. okt. 1981 og 11. febr. 1982; skemmtana-
skatti ársins 1981 og fyrir jan., febr., mars og apríl 1982.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
26. mai 1982.
Bílasala - sölustarf
Bílasala óskar eftir samvizkusömum sölumanni jjjjl
til starfa sem fyrst. 11111
:::
Uppl. í síma 86477.
?-----
Um helgina ________Um helgina
Mikið magn en gæðin minni
Þar sem ég vareinn af þeim fáu, aö
því er viröist,sem ekki dvöldu í Húsa-
felli yfir hvítasunnuna — en kaus í
þess stað hóglífið hér heima — þá
eyddi ég töluverðu af tíma mínum
fyrir f raman s jónvarpiö.
Er ég leit yfir helgardagskrána
fannst mér hún lofa góðu því efnið
virtist fjölbreytt og á margan hátt
athyglisvert. Nú að afstaöinni helg-
inni verð ég að viðurkenna að von-
brigði mín eru nokkuö mikil.
Vestri sá sem sýndur var á laugar-
dagskvöld og státaði af miklum
stjörnufansi var af lakari tegundinni
og er nánast furöulegt hversu langa
mynd er hægt að gera um akkúrat
ekki neitt. Lausnin sem þama var
notuð var þó einföld. Einmitt sú, að
sýna sömu atburðina aftur og aftur,
aö vísu við ólíkar aðstæður og einnig
voru gerendumir af mismunandi
kynþáttum. Samt sem áður dugði
þessi f jölbreytni skammt því úr varð
mjög léleg og leiðinleg mynd.
Þættirnir um „furður veraldar”
þykja mér vera eitt af furðum þessa
heims, svo undarlegir eru þeir. Eg
bíð reyndar eftir því að sá gamli taki
til athugunar kenningar um að
plánetan okkar sé flöt eftir allt
saman. Annað eins á sér staö í þátt-
um þessum.
Ranglæti þessa heims er mikið.
Eini þátturinn sem ég hafði mjög
gaman af — um síðustu daga Hitlers
— er nú lokið. Mér þótti þeir
skemmtilegir, ágætlega vel gerðir og
trúverðugir, enda tók höfundur
þeirra fram að ekki væri öruggt aö
allt væri sannleikanum samkvæmt
sem í þeim kom fram. En feginn er
ég aö Hitler gamli misreiknaði sig
um framvindu mála eftir stríð —
vonandi verður svo um alla framtíö
— og ekki er ég síður feginn að þessi
ómenni skuli vera horfin af yfirborði
jarðar.
Sunnudagsmyndin Sugarland
Express, með lögreglubíla í aðalhlut-
verkum, fannst mér í alla staði
ómerkileg og er ég þess fullviss aö
gera hefði mátt skemmtilegri kvik-
mynd meö minni fyrirhöfn og til-
kostnaði — jafnvel þó að lögreglu-
bílamir hefðu ekki verið nema tvö
hundruð.
Dagskrá gærkvöldsins bar nokkuð
af hvað gæði snertir. Skemmtiþáttur
Páls Magnússonar var alveg þokka-
legur, prýðileg afþréying og gaman
að sjá andlit sem ekki eru á hverjum
degi í sviðsljósinu þó hæfileikamir
séusízt minni.
Mánudagsleikritið Sannur soldát
þótti mér ágætt. Atburðarásin var að
vísu nokkuð flókin og átti ég fullt í
fangi með að sjá hver væri meö
hverjum og hver ekki með neinum og
sennilega hef ég misskilið allt saman
— vonandi ekki sá eini. Ég sannfærð-
ist fyrir fullt og allt um aö brezki
aðallinn er ekki öfundsverður af iðju-
leysi sínu og ekki virðist allt fengið
með því að dunda sér í póló lífið út í
gegn.
Þó aö ég hafi ekki að fullu verið
sáttur við sjónvarpið um helgina þá
kvarta ég ekki og hafi dagskráin átt
einhvem þátt í því að ég fór ekki í
Húsafell þá þakka ég fyrir það.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson.
Ferðalög
Útivistarferðir
Miðvikudagur 2. júní kl. 20, Áiftanesfjörur,
létt og hressandi kvöldganga. Verð kr. 50, frítt
fyrir börn í fylgd meö fuUorönum.
Sjáumst! ÍJtivist.
Afmæli
75 ára afmæli á í dag, Komelia
Jóhannesdóttir, Framnesvegi 27 hér í
bænum.
Minningarspjöld
Minningarkort
Samtaka sykursjúkra,
Reykjavík
fást á eftirtöldum stöðum:
Reykjavik:
Bókabúð Braga, Lækjargötu, Háaleitis-
apóteki Austurveri, Lyfjabúð Breiðholts,
Arnarbakka.
Kðpavogi:
Bókabúðin Veda, Hamraborg.
Garðabæ:
Bókabúðin Grima, Garðaflöt.
Hafnarfjörður:
Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu.
Mosfellshreppur:
Bókaverzlunin Snerra, Varmá.
Andlát
Halldór Viðar Aðalsteinsson verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík miövikudaginn 2. júní kl. 13.30.
Höskuldur Baldvinsson verkfræðing-
ur, Dalbraut 27, áður Bergstaðastræti
72, lézt miðvikudaginn 26. maí.
Magnús Stefánsson fyrrv. dyravörður
í Stjórnarráðinu, Laugahvoli, Laugar-
ásvegi 75, er andaðist 25. maí sl., verð-
ur jarðsunginn miðvikudaginn 2. júní
kl. 10.30 f .h. frá Fossvogskirkju.
Ölafur Jónsson lögfræðingur, Starmýri
8, verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni miðvikudaginn 2. júní kl. 10.30.
Hjálmar Þorsteinsson frá Hofi á
Kjalarnesi verður jarðsunginn frá
Brautarholtskirkju í dag, 1. júní, kl.
14.00.
Soffía Sigurðardóttir, Austurbrún 21,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju
miövikudaginn 2. júní kl. 15.30.
Vilheimína Halldórsdóttir frá Kára-
stöðum, Kvisthaga 11, er lézt á Landa-
kotsspítala 21. maí, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju í dag, 1. júní, kl.
15.00.
Kron gefur gjafir
í tilefni
afmæiis
I tilefni af því að Kaupfélag Reykjavíkur og
nágrennis verður 45 ára á árinu, var ákveðið
á aðalfundi félagsins, að gefa til Droplaugar-
staða, heimilis aldraðra við Snorrabraut, og
Hjúkrunarheimilis Kópavogs 25 þúsund krón-
ur hvoru til kaupa á búnaði.
Olafur Jónsson, formaður félagsstjórnar
KRON, afhenti gjafirnar. Við þeim tóku f.h.
Hjúkrunarheimilisins í Kópavogi, Asgeir
Jóhannesson, formaður byggingarstjórnar og
Hildur Hálfdánardóttir, framkvæmdastjóri
Hjúkrunarheimilisins. Fyrir hönd Droplaug-
Ólafur Jónsson afhendír Ásgeirf Jóhannes-
syni gjöfína. Með þeim á myndlnni er Gerður
Steinþórsdðtttr.
arstaða tóku við gjöfinni Gerður Steinþórs-
dóttir, formaður félagsmálaráös, Sveinn
Ragnarsson og Sigrún Oskarsdóttir.
Gerður Steinþórsdóttir gat þess, að það
væri nýtt að fyrirtæki utan úr bæ óskaöi eftir
að gefa til slikrar starfsemi sem þessarar. Oft
hefðu þau, sem stæöu fyrir þessum málum í
Reykjavík, rennt öfundaraugum til
Hjúkrunarheimilisins í Kópavogi, sem byggt
hefur verið af frjálsum samtökum, að miklu
leyti fyrir söfnunarfé bæjarbúa og gjafir
félagasamtaka og fyrirtækja, en nú hafi
KRON riðið á vaðiö í Reykjavík.
Þjónustuauglýsingar //
Húsaviðgerðir
Húsráðendur
Tökum að okkur allar nýbyggingar, loftasmíði
og klæðningar, veggjasmíði, klæðningar.,
hurðaísetningar, parketlagnir, hvar sem er á
landinu, stór og smá verk. Sturla Jónsson,
byggingameistari, sími 41529 eftir kl. 17.
Heilsurækt - íþróttir
AI'OLMI SF IJKMISRJRKT
;iM Brauta,':iolti 4, Sími 22224
Ef þú ert meðal þeirra sem lengi hafa ætlað sér í líkams-|
rækt, skalt þú líta inn til okkar, því í Apolló er lang-i
bezta aðstaðan.
ÞÚ NÆRÐ ÁRANGRI í APOLLÓ
Bflaþjónusta
Góð ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
BÍLARYOVÖRNhf
Skeifunni 17°
a 81390