Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Qupperneq 34
42
DAGBLAÐIÐ&VISIR. ÞRIÐJUDAGDR1. JUNI1982.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
RYÐVÖRN sf.
SMIÐSHOFÐA 1. S 30945
BÍLARYÐVÖRN
UNDIRÞVOTTUR
MÓTORÞVOTTUR
RYÐVÖRN
Stærðir: 3,17X3,78 (10X12 fet) m/gleri, kr. 10.850,-
2,55 X 3,78 (8X12 fet) m/gleri, kr. 7.900,-
2,55x3,17 (8xi0fet)m/gleri, kr. 7.100,-
V egghús: 1,91 x 3,78 (6 X12 fet) m/gleri, kr. 6.700,-
Ýmsir fylgihlutir fyrirliggjandi: Hillur, sjálfvirkir gluggaopn-
arar, borð, rakamælar, rafmagnsblásarar o.fl. o.fl.
Sólreitlrnir eru af nýrri gerð, með plastgleri (óbrjótanlegt) og
innbyggðum, sjálfvirkum opnunar- og lokunarbúnaði, sem
vinnur á sólarorkunni.
Stærð 122 X 92 X 38.
Eden garðhúsin eru nú fyrirliggjandi, en við höfum yfir 10 ára
reynslu í þjónustu við ræktunarfólk. Engin gróðurhús hafa náð
sömu útbreiðslu hérlendis. Þau lengja ræktunartímann og
tryggja árangur. Sem fyrr bjóðum við lægsta verð, ásamt frá-
bærri hönnun Eden álgróðurhúsa. Sterkbyggð og traust hús.
Sýningarhús á staðnum
Kynnisbækur sendar ókeypis
KLIF HF.
Grandagaröi 13
Reykjavík — Sími 23300
Popp — Popp — Popp — Popp
Paul McCartney—Tug of War:
PAULUPPA
SITT BEZTA
Paul McCartney hefur frá upp-
lausn Bítlanna fyrir röskum áratug
engan veginn uppfyllt þær vonir sem
við hann voru bundnar, — fyrr en nú.
Meöan Bítlarnir voru og hétu fór
ekkert milli mála að hlutur Pauls
var mikill; hann samdi obbann af
vinsælustu lögum hljómsveitarinn-
ar, var ljóörænn og yfirvegaður laga-
smiður sem gerði engar kórvillur.
Skyndilega þegar hann svo stóð uppi
án félaganna þriggja komu ýmsir
hnökrar uppá yfirborðið; lögin virt-
ust býsna misjöfn og plötur hans
gloppóttar og ósannfærandi.
Því hlýtur að haf a fylgt mikið álag
að hafa þann bakgrunn sem Paul
McCartney mátti búa við í upphafi
síns sólóferils. Sjálfur tók hann þann
pól í hæðina eftir tvær sólóplötur að
stofna hljómsveit og ná á nýjan leik
beinu sambandi við aðdáenduma likt
og Bítlamir gerðu á fyrstu árunum.
Af fyrrverandi bítlum var Paul lang-
virkastur; óþreyttur til feröalaga og
gaf út reiðinnar býsn af lögum,
nokkrum ágætum en flestum mis-
heppnuðum. Á sumum plötunum, til
að mynda „Wild Life” og Wings At
the Speed Of Sound”, var hreinlega
ekki hægt að þekkja hann fyrir sama
mann. Loks leystist Wings uppí
frumeindir sinar og sólóplatan i
fyrra var skref uppá við, — en samt
ótrúlega linkuleg.
Nóg um það. Með „Tug Of War”
höfum viö endurheimt gamla góða
Paul einsog við þekkjum hann þegar
hann var í essinu sínu. Það hefur
löngum verið á vitorði aðdáenda
hans að tónsmíðar vefðust ekkert
fyrir honum, sjálfur hefur hann sagt
að á þremur klukkustundum geti
hann samið hundrað lög. 1 þessu hef-
ur bæði styrkur hans og veikleiki leg-
iö; hann á auðvelt meö aö semja en
erfitt með að greina hismið frá
kjarnanum, einlægt á spretti af ótta
við að missa af einhverju og hefur
kastaö frá sér illa grunduðum afurð-
um. Nú virðist þessi stresstimi lið-
inn, Paul hefur fundið sjálfan sig og
vafalítiö hefur lát John Lennons
skipt sköpum hvað þetta áhrærir.
Hann sér framá að hljómleikaferðir
verða ekki famar framar, hann
verður að sætta sig við að lifa í þeirri
einangrun sem þvi fylgir að vera ein
dáöasta poppstjama heims; eitt
eftirsóttasta skotmark brjálæðinga.
„Tug of War” fjallar mestanpart
um andstæður eins og nafniö,
„Reiptog” gefur auðvitað til kynna.
Paul segist hafa veriö með titilinn i
kollinum löngu áöur en nokkuö ann-
aðvarötil.
Allir bestu kostir Paul koma hér
fram; raunar er vandfundinn veikur
blettur á þessari plötu utan einstaka
texti (en Paul hefur nú aldrei verið
sterkur á því svelli) og margt getur
talist með því bezta sem Paul hefur
gefið út. Og snjallt var hjá honum að
fá blökkumanninn Stevie Wonder
með sér í sjálft lag andstæðnanna:
„Ebony Andlvory”.
Dauði Lennons er honum að sjálf-
sögðu hugleikinn og eitt laganna á
plötunni er sérstakur óður til Lenn-
ons: lagið „Here Today”, — og tvö
önnur lög fjalia óbeint um Lennon:
„Tug Of War” og .JSomebody Who
Cares”. A milli þessara alvörugefnu
laga tekur Paui létta spretti af full-
komnu öryggi, sprellar með Carl
Perkins í laginu „Get It” á eftir-
minnilegan hátt og tekur væna fönk-
sveiflu með Wonder í laginu „Whats
That You’reDoing”.
Það er engin tilviljun að Paul fékk
George Martin fyrrum upptöku-
stjóra Bítlanna með sér í stúdíóiö,
hann þekkti Lennon & McCartney
betur en flestir aðrir, — og stundum
finnst manni einsog þeir séu hér
saman. Bestu lög: öll.
-Gsal
Lexía — Lexía!
Húnvetnskt dreif býlisrokk
Fimm Húnvetningar sem kalia sig
Lexíu gáfu nýverið út breiðskífu sem
einfaldlega ber nafnið Lexía. Margir
hafa eflaust heyrt Lexíu getið enda
hefur hljómsveitin slegið um sig á
sveitaböllum og árshátíðum í þau
rúm þrjú ár sem hún hefur starfað.
Ég hef það fyrir satt að hér sé um að
ræða fyrstu húnvetnsku dansplötuna
og brýtur hún þar með blað í tón-
listarsögu héraðsins!
Lexía skipa þeir Axei Sigurgeirs-
son (trommur), Björgvin
Guömundsson (gítar), Guðmundur
Þór Ásmundsson (hljómborö),
Marinó Björnsson (bassi) og Ragnar
Jörundsson (söngur). Þeir Ragnar
og Marinó eiga lengstan tónlistar-
feril að baki en Ragnar gerði garðinn
m.a. frægan fyrir tæpum tveimur
áratugum (Toxic) en Marinó tróð
upp með Gretti nikkara Björnssyni
um árabil.
Lexía (þ.e. platan) hefur að inni-
haldi 12 lög sem öll eru eftir Marinó
og allir textar nema tveir eru eftir
Arnór nokkurn Benónýsson. Vart er
hægt að segja aö skáldagáfa Arnórs
risti djúpt og textarnir eru hvorki
betri né verri en gengur og gerist.
Innihalda misgáfulegar hugleiðingar
um lífið og tilveruna. Lög Marinós
eru af þeirri tegundinni sem fer inn
um annaö eyrað og út um hitt. Ekk-
ert vesen. Laglínumar eru flestar
hverjar déskoti auðmeltar og keim-
líkar og útsetningar gera litið annaö
en að rugla lögunum saman. Helzt að
hraðinn skipti lögunum í flokka.
Hljóðfæraleikur er hnökralaus
enda engin tilþrif á ferðinni og kunna
Lexíumenn sér hóf á þvi sviði.
Kassagitarinn spilar stórt hlutverk
svo ekki sé talað um sönginn sem
Ragnar fremur áreynslulaust og lið-
lega. Aftur: ekkert vesen. Það sem
helzt stingur í eyrun er hljóðgerfla-
leikur Helga Kristjánssonar sem
mér finnst falla illa að islenzka dreif-
býlisrokkinu.
Lexía ber að skipa í flokka með
hljómsveitum á borð við Steina Spil
og jafnvel Ragga Bjama á köflum.
Þessi séríslenzka tónlist sem ungir
og aldnir skemmta sér við á þorra-
blótum og árshátíðum. En Lexía á
lítiö erindi á plötuspilara heima í
stofu. Enda er platan eflaust ekki
ætluð til slíks brúks.
Að lokum: ég heyrði auglýsingu í
sjónvarpinu frá Lexíu þar sem þeir
sögðu að platan kæmi á óvart. Mig
iangar til að leiðrétta þetta: platan
kemur akkúrat ekkert á óvart. Hún
er alveg eins og við var búizt. Þetta
þarf þó alis ekki aö taka sem nei-
kvæða gagnrýni.
-TT.