Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Síða 37
DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞRIÐJUDAGUR1. JUNI1982. 45 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Öllu þarfað stjóma, alttþarfað skipuleggja og sjá tHþass að réttur pappir fari aða berist i róttri stundu — skóiastjórinn Friðrik. Handmenntaskólinn: Fyrir bömin ar ýmiss konar föndur. Hér aru þair Einar og Jói að kljist við aitthvað úrþairri daiid. enda missa tslendingar flestir vitið þá og fá ekki aftur fyrr en í febrúar,” sögðu þeir félagar. I skólanum er gefiö út sérstakt skólablað þar sem greint er frá því helzta sem er að gerast og liggur framundan. Þar eru einnig birt nöfn og myndir af nemendum og þeir eindregiö hvattir til að hafa samband sin á miili. Um sjötíu prósent nemendanna koma utan af landi og eru þeir á öllum aldri, allt frá fimm ára og upp íáttrætt. Nú, þetta var stutt spjall um skólann sem slíkan en þeir félagar eru fleira að aðhafast. „Já, við byrjuðum á því fyrir nokkru að taka upp á myndbönd myndlistarsýningar sem settar hafa verið upp nýlega. Við erum komnir með fimm listamenn á filmu, bæði yfirUt yfir sýningar þeirra og spjall við þá sjálfa. Þetta er fyrst og fremst gert í söfnunarskyni því viö teljum að slíkar myndir komi til með að hafa mikið heimildagildi í framtíð- inni.” Og h vað á að gera viö myndirnar? „Það er alveg óráðið, viö erum Ut- ið famir áð leggja niður fyrir okkur hvemig þeim verður ráðstafað. En möguleikamir eru ótrúlega margir, ekki sízt nú þegar myndbönd eru komin inn á svo mörg heimili og ,þeim fjölgar stööugt.” Eru það þá listamennirnir sjálfir sem biðja ykkur um upptöku? „Nei, við höfum þetta algjörlega í eigin höndum og fömm hægt í sak- imar. Tækjabúnaður okkar er ein- faldur en hefur þó skilað skamm- lausum árangri til þessa. Það hafa margir lýst því yfir að sUk pró- grömm sé aUs ekki hægt að vinna nema fyrir mikla fjármuni og tU dæmis hefur Sjónvarpið algjörlega brugðist á þessu sviði. En við teljum okkur með þessu vera að sanna að þettaséhægt.” En listamennirnir sjálfir, hvemig lízt þeim á þetta? „Mjög vel, þeir hafa verið mjög ánægðir, enda opnar þetta þeim möguleika á að ná til miklu fleira fólks, ef farið verður út í einhvers konar dreifingu. Það em svo margir sem ekki leggja leið sína á mynd- listarsýningar en horfa aftur á móti á hvaðsem er á sjónvarpsskermi.” Við heföuim lað íialdið áfram og spjallaö mun iengur en hér látum við staðar numiö. -JB Haukur skoðar mynd sam nýkomin ar tH baka i póstínum. „Þatta er bara skrambi vel gert," sagði hann og var hinn inægðastí með irangur- inn. Ótrúlega margir sem vilja læra að teikna Er hægt að læra að teikna í gegn- um póstinn eða, með öðrum orðum, er hægt að læra teikningu í gegnum bréfaskóla? Svo sannarlega, segja þeir sem vit hafa á og hér á landi er reyndar starfræktur sérstakur skóU sem sinnir engu ööm, — eða Utlu að minnsta kosti. Það er HandmenntaskóU Islands sem er tU húsa í Veltusundi, eða við HaUærisplanið til nánarí glöggvun- ar. Við litum inn þar fyrir skömmu og hittum að máli þá þrjá menn sem að skólanum standa. Það em þeir Einar Þ. Ásgeirsson, Haukur HaU og Friðrik Friðriksson, Um leið og inn er komið verður fyr- ir pappir, pappír og aftur pappír, enda litiö hægt að teikna nema papp- ír sé fyrir hendi. Fleira er þó þarna kennt en teikning því sérstök nám- skeið em fyrir börn í föndri og brúöu- leikhúsgerð, skutlunámskeiö fyrir aUa aldursflokka, skrautskriftar- námskeið og bútasaumur, svo eitt- hvað sé nefnt. Og með haustinu er meiningin að taka upp kennslu í leðuriðju. „Hvatinn aö stofnun skólans var fyrst og fremst sá aö okkur fannst þessi þáttur vera vanræktur hér. Kerfiö hefur ekki staöið sig í að upp- fylla þá þörf sem fyrir hendi er og fuUorðinsfræðsla er UtU sem engin á þessu sviði. Viðbrögðin hafa verið mjög ánægjuleg og staðfest hversu mikil þörfin er í raun og veru. Nemendur eru nú komnir vel yfir fjögur hundruð er allt er taUð.” En hvaðan fáið þið fyrirmyndina? „Við tökum til viðmiðunar hUð- stæða skóla í Frakklandi, Sviss og Þýzkalandi en auðvitað þarf aUtaf að aðlaga slík prógrömm aðstæðum hverju sinni. Þessir skólar em náttúrlega alUr á hærra plani, em búnir að öðlast rétt tU aö útskrifa nemendur eftir ákveðnum staðU. Við erum ekki komnir svo langt, enda ekkert markmið í sjálfu sér. A meðan nemendurnir em ánægðir er tilganginum náð.” Er hægt að skapa Ustamenn í sUk- umskóla? „Það sem við erum að gera er að kenna ákveðin undirstöðuatriði, Ukt og þegar lestur er kenndur. Fyrst þarf að læra að þekkja stafina, siðan að kveða að og svo kemur lesturinn smátt og smátt. Sömu sögu er að segja um teikningu. Það em ákveðin undirstööuatriöi sem grundvalla svo framhaldið. Margir þekktir Usta- menn hafa viðurkennt að þá vanti meiri kunnáttu í teikningu. Hún er undirstaðan. Við erum i raun að kennastafrófið.” Hvernig mat leggið þið á vinnu nemendanna? „Þaö er fyrst og fremst tæknilegt mat. Við metum vinnu þeirra út frá ákveðnum tæknUegum atriöum en ekki listrænu sjónarmiði, enda væri slíkt aUs ekki hægt. En við gagnrýn- um miskunnarlaust. ’ ’ En er þetta þá jafngóð tilsögn og í venjulegum skólum? , Jlún ætti ekki að vera síðri því hér fer mikiU tími i að skoða vinnu hvers og eins og skrifa tilheyrandi athuga- semdir og leiöbeiningar sem síðan em sendar til baka. Þegar verið er að kenna í stærri hópum er hætt við að hver einstaklingur fái minni athygli og gefst frekar upp. Þarna getur hver og einn unniö í friði heima hjá sér, út af fyrir sig, og lagt eins mikla vinnu í þetta og honum hent- ar.” Hægt er að hefja nám í skólanum um hver mánaðamót og er náminu skipt í annir. „Við lokum að vísu yfir hásumariö og svo aftur i desember

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.