Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ & VISIR. FÖSTUDAGUR 4. JUNI1982.
9
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Södersetur
tappann
íflöskuna
„Ef mín veröur minnzt í sögunni sem
þess er setti korktappann í brennivins-
flöskuna í Svíþjóð, eins og mér hefur
verið lýst, þá tel ég að ég hafi gert tals-
vert gott fyrir landið,” segir Karin
Söder, félagsmáiaráöherra Svíþjóðar,
er hún svaraði gagnrýni er hún hefur
sætt fyrir ýmsar ráðstafanir sem hún
vill beita til að draga úr áfengisnotkun
í Svíþjóð.
Gagnrýnendur hafa sumir hverjir
haldið því fram að Svíþjóð sé í svo,
ríkum mæli orðiö land boða og banna,
ekki sízt á áfengissviðinu, að þeir séu
aðeins að ýta vandamáli sínu yfir á
aðrar þjóðir. Er þá höföaö til þeirrar
áráttu Svía að bregða sér yfir til
Danmerkur á ærlegt fyllirí og skvetta
þar úr klaufunum. Hafa margir Danir
haldið þvi fram að drukknir Sviar séu
orönir hreinasta plága um helgar i
Kaupmannahöfn og Helsingör.
Wallen-
berg
hlýtur
Frelsis-
verölaun
Raoul Wallenberg, sænski stjómar-
erinderkinn sem bjargaði þúsundum
ungverskra gyðinga frá því að hafna í
útrýmingarbúðum nasista árið 1944,
mun hljóta frelsisverðlaunin svo-
nefndu 28. júní nk. Sjálfur verður
Wallenberg þó ekki viðstaddur enda er
ekki vitað hvort hann er enn á lífi.
Hann var tekinn til fanga af Rússum í
lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
Rússar halda þvi fram aö hann hafi
látizt þar í fangelsi árið 1947 en fjöldi
vitna hefur haldið því fram að hann
hafi verið á lífi löngu eftir það í
sovézkufangelsi.
Fyrrum hæstaréttardómari frá
Svíþjóð, Ingrid Garde Windemar, mun
veita verðlaununum viðtöku.
Bretar hvetja Argentínumenn til að gefast upp:
„VIÐHOFUMNAÐ
TAKMARKIOKKAR"
—segja Argentfnumenn og telja sig hafa unnið pólitfskan sigur |)ótt þeir tapi
orrustunni um Port Stanley
Vamarmálaráðherra Argentínu
sagði í gærkvöldi að hverjar sem
lyktir ormstunnar um Port Stanley
yrðu þá væri ljóst að Argentína hefði
náð grundvallarmarkmiðum sinum.
Hann sagði að Argentína hefði unnið
pólitískan sigur og hefði aukiö á virð-
ingu sina sem þjóð.
Áður haf ði einn af herforingj um í
Argentínuher sagt að Puerto Argen-
tino (Port Stanley) væri vissulega
þýðingarmesta vígi Argentínu-
manna á Malvinaseyjum (Falk-
landseyjum) en ekki siöasta vígL
„Malvinasormstan er aðeins
ormsta og það eru margar orrustur í
styrjöld,” sagði hann.
Argentínska herstjómin sagði að
bardagar hefðu ekki verið miklir á
eyjunum í gær. Enginn argentínskur
hermaður hefði fallið í átökun-
um. Hins vegar hefði verið haldið
uppi árásum á vígi Breta á Kentfjalli
sem gnæfir y fir Port Stanley.
Argentínumenn segjast búast við
að Bretar hefji árás sína á Port
Stanley að næturlagi og biðin væri
Bretum í óhag. Kuldinn léki þá grátt
þar sem þeir gætu ekki skipt um
gegnumblaut klæði sín og ekki eldað
heitan mat.
Brezkar flugvélar létu í gær þús-
undum flugrita rigna yfir aðsetur ar-
gentinsku hersveitanna á Falklands-
eyjum. I flugritunum vom Argen-
, tínumenn hvattir til aö gefast upp.
Texti flugritanna var á spænsku og
þar var foringi argentínska herliðs-
ins hvattur til að bjarga lífi liös-
manna sinna með því aö gefast upp
þar sem við ofurefli væri að etja.
Hvatningin var undirrituö af John
Woodward, yfirmanni brezka her-
iiðsins sem nú situr um Port Stanley.
mmi
Einnig var varpað niöur yfir Port
Stanley miklum fjölda griðabréfa á
ensku og spænsku þar sem argen-
tinskum hermönnum er heitiö aö
komast gegnum víglinu Breta og
hljóta þar fæði og læknismeðferð
semstríðsfangar.
Brezk herþota af Vulcan gerð varð
að nauðlenda í Brasilíu í gær vegna
eldsneytisskorts. Yfirvöld í Brasiliu
segja að vélin fái aö fara úr landi
eftir að hún hafi verið afvopnuð.
Argentínskar heimildir segja aö
vélin hafi verið fullhlaðin sprengjum
á leiö til Falklandseyja.
öryggisráð Sameinuöu þjóðanna
mun í dag koma saman til þess að
fjalla um möguleika á vopnahléi i
Falklandseyjastyrjöldinni. Fullvíst
þykir að Bretar muni greiða atkvæði
gegn tillögu þar að lútandi. Bretar
segja að vopnahlé komi því aðeins til
greina að gulltryggt sé að Argentínu-
menn verði á brott með herlið sitt frá
eyjunum.
Javler Pérez de CuéUar, framkvæmdastjórí Sameinuðu þjóðanna, og Slr
Anthony Parsons, sendiherra Breta hjó Sameinuðu þjóðunum. öryggisráðið
mnn enn í dag fjaúa um Falklandseyjastyrjöldina.
Umsjón:
Gunnlaugur
A. Jónsson
Brjálæðingur gekk berserksgang:
Stakk fjölda barna
á barnaheimili
Geðveikur maður réðst inn á bama-
heimili í Hong Kong í gær með rýting á
lofti. Réðst hahn á bömin sem þar voru
fyrir og linnti ekki látum fyrr en 34
þeirra höfðu særzt og tvö þeirra vom
deyjandi. Að sögn sjónarvotta liktist
barnaheimiliö sláturhúsi eftir þennan
óhugnanlega atburö.
Áður hafði maðurinn, sem er 29 ára
gamall, myrt móður sína og systur. A
leiö sinni frá barnaheimilinu stakk
hann síðan sjö vegfarendur áður en
lögreglunni tókst að stööva hann.
Maðurinn hefur átt við langvarandi
geöræn veikindi að stríða og oftast
dvalið á geðveikrasjúkrahúsi frá 1976.
\
IfÖ
HREINLÆTISTÆKI
Sænsk gæðavara á góðu vcrði.
10 litir — sendum um land allt.
Grciðsluskilmálar
20% út - cftirst. allt aö 6 mán.
JO
MOffl hdByggingavömr hf.
Reykjavíkurveg 64. Hafnarfirði, símJ5Si4ú. y/
BÆTIEFNA MOLD
Mulin mold, blönduð húsdýraáburði
og kalki.
S)Aftb
r O 1
Gl T. JÐMUNDl GÍSLASO JR N
skrúðgarðyrkjumeistari
Afgreiðum og ökum heim öllum
pöntunum. Símar 81553 og 71386