Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 4. JUNI1982. mmixmmsm hjálst, aháð dagblað Útgófufólag: Frjóls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaður og útgófustjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Framkvœmdastjóri og útgófustjóri: Hörður Einarsson. Ritstjórar: Jónas Kristjónsson og Ellert B. Schram. Aöstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Sœmundur Guövinsson. Auglýsingastjórar: Póll Stefónsson og IngóHur P. Steinsson. Ritstjórn: Síöumúla 12—14. Auglýsingar: Síöumúia 8. Afgreiðsla, óskriftir, smóauglýsingar, skrifstofa: Þverholti 11. Sími 27022. Sími ritstjórnar 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., SkeHunni 10. Áskriftarverð á mánuöi 120 kr. Verö í lausasölu 9 kr. Helgarblað 11 kr. Skrefeftir Aðeins skref er eftir til kjarasamninga. Með „þreifing- um” hefur nánast fundizt grundvöllur fyrir samningum. Verkamannasambandið hindrar, að samið verði strax. Þorsteinn Pálsson og Guðmundur J. Guðmundsson senda hvor öðrum tóninn. Þeir segja nánast hið sama: „Hinn vill alls ekki semja.” Af gamalli reynslu þekkja menn, að lítið kann að liggja að baki stóryrðum, meðan samningalotan stendur yfir. Þessir menn gætu alveg eins samið í dag þess vegna. Þeir gætu líka af þr józku látið koma til verkfalla. Hugmyndir samningamanna virðast miða að um f jög- urra prósenta kauphækkunum Vísitalan verði látin standa og samið til 1. september 1983. Alþýðusambandsmenn höfðu farið fram á þrettán pró- sent og einhverjar flokkatilfærslur. Verkamannasam- bandið breytti kröfugerð sinni í vor og lagði síðan mesta áherzlu á flokkatilfærslur, sem sagt var, að bættu einkum hag hinna lægstlaunuðu. Það er rétt stefna, að hinir lægstlaunuðu fái meira en aðrir. Staðan er ofureinföld. Nú stefnir til samdráttar í framleiðslu. Minna en áður verður til skiptanna. Almenn- ar grunnkaupshækkanir fara beint út í verðlagið og þurrkast þannig út jafnharðan. Hugsanlegt er að breyta launahlutföllum hinum lægstlaunuðu í vil á kostnaö hinna, sem meira hafa, verði að því stefnt. Loðnuveiðar efla þjóðarbúskapinn ekki á þessu ári eins og fyrri árum. Þær hafa stöðvazt. Þorskveiði er lítil, sem veldur ugg. Talað er um, að framleiðsla þjóðarinnar minnki um tvö prósent. I þessari stöðu hafa verkalýðs- samtökin boðað verkföll til að knýja fram kauphækkanir. Verkföllin mundu enn draga úr framleiðslunni og getu þjóöarbúsins til að mæta kauphækkunum. Launþegar hafa yfirleitt áttað sig á stöðunni. Nú hefur komið í ljós mikil tregða til verkfalla. Lítill áhugi er á fleiri krónum, sem jafnharðan gilda minna. Engu að síður er sú staða komin upp, eins og oft áður, að finna verður flöt til samninga, þótt hann þýði ein- hverja aukningu á verðbólgu. Þau f jögur prósent, sem nú er rætt um, skipta ekki sköpum um verðbólguna. Kannski mætti orða það svo, að sloppið yrði fyrir horn með slíkum samningum. Þess er að vænta, að stóryrðakeppni framkvæmda- stjóra Vinnuveitendasambandsins og Verkamannasam- bandsins linni næstu daga. Það ber ekki svo ýkja mikið á milli. Framhaldið yrði síðan mest undir ríkisvaldinu komið. Til lítils er að semja um áframhaldandi verðbótakerfi. Reynsluna þekkir fólk. Það er hverju sinni undir ákvörð- un ríkisstjómar komið, hvort eða hve mikið skorið er af verðbótum þeim, sem um segir í samningum. Á sama hátt er það undir stjómvöldum komið, hvað verður um grunnkaupshækkanir. Stjórnvöld hafa oft eytt meginhluta slíkra hækkana með skerðingu á verðbótum, næst þegar þær ættu að hækka. Að þessu sinni er lítið vitað um, hve lengi kjarasamn- ingar halda. En það er vitað, að verðbólgan eyðir ávinn- ingnum fljótlega, hvort sem samið yrði um fjögur eða þrettán prósent. HaukurHelgason. Útvarp án tímaskyns Vita menn, af hverju það er alltaf létt músík á milli kl. 22.00 og 22.15 í útvarpinu? Það er vegna þess að þrátt fyrir það að útvarpið hafi starfaö í fimmtíu ár undir ríkisforsjá þá eru enn menn í útvarpinu sem kunna ekki á klukku. Þessar fimmtán mínútur að kvöldi hvers dags eru notaöar til þess að leiðrétta skekkjur dagskrárinnar frá því klukkan sjö um kvöldið svo að út- varpinu ljúki á áætluðum tíma. Hliðstæður tónlistarflutningur er fyrir hádegi, eftir hádegi og eftir kaffi. Og hvers vegna er þetta svona eftir fimmtíu ár? Það er skortur á aga I fyrravor vann ég um skeið meö Páli Heiðari Jónssyni að Morgun- póstinum. Þaö var ekki fyrr en þá aö ég gerði mér grein fyrir því hversu nákvæm tímasetning skiptir miklu máli viö útvarpsrekstur. Okkur finnst flestum að það skipti ekki máli hvort einn þátturinn er mínútu lengur en annar. En ef út- varpið fer eina mínútu fram úr áætlun á hverri klukkustund, verður afleiðingin sú aö dagskránni lýkur ekki fyrr en 17 mínútum síðar en ætlað var á. Maður sem vill hlusta á kvöldfréttimar sem eiga að vera 23:45 verðurað bíða þar til kl. 00.02. Páll Heiðar var mjög nákvæmur með að ljúka þættinum á réttum tíma, þ.e. nákvæmlega klukkan 8.10. Og því hefur hann haldið frá upphafi útvarpsstarfa síns.-Þetta þýddi vit- anlega það að viö vorum oft í vanda í miðri útsendingu — veðurstofu og fréttastofu hafði tekist aö fara fram úr áætlun oftar en ekki svo að þátt- urinn byrjaði ekki klukkan 7.25 eins og ákveðið var, heldur klukkan 7.30 og fella varð út efni samkvæmt því. Aldrei varð ég var við þaö að út- varpsráð gerði athugasemd við þessa óstundvísi að morgni dags. Léleg fréttastofa Það er alltaf til nóg af fréttum. Fréttamenn blaða og útvarps svo að ekki sé talað um sjónvarp hafa á hverjum degi úr meiru að moða heldur en þeir komast yfir. En f rétta- matiöermisjafnt. Norski hægri flokkurinn hélt árs- þing sitt um mánaðamótin apríl- maí. Á þessum ársfundi var kosinn nýr varaformaður. Það var ung kona: Camille Sisilje Kulman Five eða Casi Kulman Five eins og hún kýs að kalla sig. Maður skyldi ætla að þegar fréttastofa útvarps og sjón- varps getur ekki haldiö vatni vegna þess hversu konur komast litt á- fram aö þeim þætti fengur í kosningafrétt þessari? Nei, því var ekki að heilsa. Mér vitanlega hefur enginn fjölmiðill á tslandi séð ástæðu tilþess aðgetaþessa. Má veraaðþetta sé ekki stórfrétt. En það er aö minnsta kosti jafnstór frétt og það hvort kona hafi verið kosinn bæjarstjóri í einhverjum smábæ á Norðurlöndum. En ég ætla ekki að fjalla um lélegt fréttamat fréttastofu útvarpsins heldur lélegt tímaskyn. Hlutverk fréttamanns Fréttamenn útvarps verja sig oft með því, þegar þeir eru gagnrýndir fyrir undarlegt tímaskyn, aö þeir vinni undir timapressu. Þessi röksemd er rétt. En mér er spum: Hvaða fréttamaður vinnur ekki undir tímapressu? Hvaða frétta- maöur verðin ekki að skrífa frétt sína í snatri? Og af hverju eiga fréttamenn útvarps að vera undan- þegnir sjálfsaga blaðamanna. Fyrir mörgum ámm var stofnað hér blað sem hét Mynd. Kjallarinn Haraldur Blöndal Margt hjá því blaöi var til fyrir- myndar og á undan sinni samtíð. M.a. mun fréttastjórinn þar hafa á- kveðið fyrirfram hversu löng hver frétt ættiaðvera. Þetta kostaöi vitanlega aga. En blaðiö var takmarkað að stærð og það var nauðsynlegt að koma fréttunum að. Þess vegna voru þær metnar fyrirfram en ekki látið ráðast af því hversu pennaglaður viðkomandi blaðamaður var. Margoft kemur þaö fyrir að ég er að hlusta á frétt. Það er verið að tala við einhvern mann. Málefnið er svo sem ekki neitt en þó er smáfrétt í viðtalinu. Fréttamaðurinn nennir ekki að klippa viðtalið eða skrifa niður það sem nýtilegt var og af- leiðingin er svo sú að hlustendur verða aö bíöa í margar mínútur eftir því að frétt ljúki um að lagðar hafi verið 25 metrar af gangstéttum í Hælisvík. Allt of oft verður maður þess var að fréttamenn láta viðtöl óritskoðuð í fréttatíma. Afleiðingin er svo sú að ómögulegt er að átta sig á lengd fréttatíma og því síður hvort rétt sé aðhlusta á hana. Á ég þar sérstaklega við hin und- arlegu lýsingarorð í upphafi frétta- tímans: Bretar gerðu innrás á Falk- landseyjar.Verðbólga minnkar í Bretlandi. Rætt er við dr. Gunnar Thoroddsen. Mér er spurn: Er það fréttaefni „per se”, að menn skuli ræða við dr. Gunnar? Væri ekki eðlilegra að skýra frá því hvert sé meginfréttaefni viðtalsins við f orsætisráöherrann? Haraldur Blöndal. ^ „Ómögulegt er að átta sig á lengd frétta- tíma og því síður, hvort rétt sé að hlusta á hann,” segir Haraldur Blöndal í grein sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.