Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 4. JUNI1982.
25
íþróttir
fþróttir
íþróttii
íþróttir
EM-leikur Möltu og Islands á Sikiley:
lOOfráÚtsýn
hvetja landann
íslenzka landsliðið án Ásgeirs og Amórs
Frá Sigmundi Ó. Steinarssyni,
Messina, Sikiley í morgun:
Um 100 Útsýnar-farþegar sem
staddir eru í Cacania á Sikiley eru
væntanlegir hingað til Messina á
morgun til að hvetja íslenzka lands-
liðið í knattspymu í Evrópuleiknum
við Möltu. Leikurinn verður um mið jan
dag á laugardag á ágætum knatt-
spyrauvelli í þessari kunnu hafnar-
borg Sikileyjar. Reiknað er með að á-
horfendur verði mest ítalir. Um átta
tíma sigling er frá Möltu hingað til
Messina, svo Möltubúar verða ekki
margir. Þeir mega ekki leika þennan
leik á heimavelli. Fengu bann vegna
framkomu áhorfenda á leik í heims-
meistarakeppninni í f yrra.
Islenzki landsliðshópurinn kom
hingað um eitt-leytið í nótt eftir um 20
klukkustunda heldur erfiða ferð frá
Islandi, þar sem fyrst var flogið til
Luxemborgar, Frankfurt og Rómar og
síðan til Messina. Strákarnir fengu að
sofa út í morgun en eftir hádegi verður
farið á æfingu og litiö á völlinn í
Messina sem leikið verður á.
Arnór ekki með
Amór Guðjohnsen, bezti maður
íslenzka liðsins í landsleiknum við
England, verður ekki í landsliöinu á
laugardag og er Island því án tveggja
sinna beztu leikmanna, Amórs og Ás-
geirs Sigurvinssonar. Liðbönd tognuðu
hjá Arnóri í enska leiknum og voru
meiðslin það slæm aö hann hélt ekki til
Sikileyjar. I hans stað kom Ámi
Sveinsson, Akranesi, í landsliðshópinn.
Árni var á landsleiknum á Laugar-
dalsvelli og hélt síðan upp á Akranes.
Þar sem hann hef ur ekki síma biðu lög-
reglumenn hans við heimili hans og
tilkynntu Áma að hann ætti að fara
meö landsliðinu til Sikileyjar. Það var
upp úr miðnætti og Árni var fljótur að
HM-lið
Austurríkis
Austurríski liðsstjórinn Georg
Schmidt tilkynnti í gær valið á 22ja
HM-hópi Austurríkis. Margir kunnir
leikmenn eru i liði Austurrikis sem
leikur í 2. riðli með Vestur-Þýzkalandi,
Chile og Alsír. Leikmennirnir eru.
Markverðir: — Friedl Koncilia,
Herbert Feurer og Klaus Linden-
berger.
Varnarmenn: — Berad Krauss,
Herbert Weber, Johann Pregesbauer,
Johann Dihanich, Erich Obermeyer,
Anton Pichler, Gerald Messlender,
Josef Degeorgi og Bruno Pezzey.
Framverðir: — Ernst Baumeister,
Herbert Prohaska, Kurt Jara,
Reinhold Hintermaier og Roland Hatt-
enberger.
Framherjar: — Walter Schachner,
Hans Krankl, Kurt Welzl, Max
Hagmayr og Geraot Jurtin.
-hsim.
pakka niður. Hélt síðan með leigubíl til
Reykjavíkur og náði hinum landsliðs-
mönnunum skömmu áður en haldið
var í ferðina löngu.
Jóhannes Atlason, landsliðsþjálfari,
mun ákveða liðsuppstillingu síðar í
dag í leikinn við Möltu. Enginn í lands-
liðshópnum á við meiðsli aö stríða.
Allir reikna með að Pétur Ormslev,
Diisseldorf, komi í stað Amórs en að
öðru leyti verði ísl. landsliðið skipað
eins og á móti Englendinginum. Það er
Guðmundur Baldursson, öm Öskars-
son, Trausti Haraldsson, Sævar
Jónsson, Marteinn Geirsson, Karl
Þórðarson, Atli Éðvaldsson, Janus
Guðlaugsson, Láms Guömundsson,
Teitur Þórðarson og svo Pétur
Örmslev. Varamenn em Þorsteinn
Bjarnason, Olafur Björnsson, Sigurður
Grétarsson, Árni Sveinsson og Viðar
Halldórsson.
Breitner skegglaus
Eg sá í þýzku blöðunum í Frankfurt
að Paul Breitner, fyrirliði Bayem og
vestur-þýzka HM-liðsins, hefði fengið
Brazzamir
skoruðu 13!
HM-lið Brasiliu var heldur betur í
ham í gær, þegar það lék við
portúgalska 1. deildarliðið Belenenses.
Sigraði með 13—3 eftir 4—2 í hálfleik.
Mörk Brasilíu skoruðu Serginho 4, Zícq
og Careca þrjú hvor, Edvaldo,
Leandro og Dirceu eitt hver. Leik-
me'nn Brasilíu, sem taldir eru sigur-
stranglegastir á HM, sýndu oft snilld-
artakta í Ieiknum enda mótstaða
heldur lítil. -hsím.
Enginníleik-
bann í1.2.eða
3. deild
Aganefnd Knattspyrausambands ts-
lands kom saman til fundar í gær og
fjallaði um kærur sem hafa borizt að
undanförau. Var þar lítið að gera og
fékk enginn leikmaður í 1. 2. eða 3.
deild dóm að þessu sinni. -klp-
Meistaramót
á Selfossi
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum, fyrri hluti, verður haldið á
Selfossi dagana 12. og 13. júní:
Keppnisgreinar:
Karlar: Tugþraut, 4 X 800 m, 10000 m.
Konur: Sjöþraut, 300 m.
Þátttökutilkynningar berist skrif-
stofu HSK, ásamt þátttökugjaldi 10 kr.
fyrir grein, i síðasta lagi mánudaginn
8. júni.
tilboð upp á 150 þúsund mörk frá spíra-
fyrirtæki ef hann rakaði af sér
alskeggið. Breitner tók tilboðinu,
rakaði sig og fékk 150 þúsund mörkin
fyrir. „Það er þess virði að láta vaxa
á sig skegg og fá slíkt tilboð,” sagði
Janus Guðiaugsson, þegar hann las
blöðin. En mikil er breytingin að sjá
Breitnerskegglausan. —SOS/hsím.
Axel Axelsson og Kristbjörg kona hans. Verða þau eitt ár í viðbót í litlu borginni
Minden í Vestur-Þýzkalandi?
Dankensen vill ekki
missa íslendinginn
Ákveðið um helgina hvort Axel verður ár í viðbót hjá Dankersen
Um helgina verður endanlega úr því
skorið hvort handknattleiksmaðurinn
góðkunni, Axel Axelsson, verður á-
fram hjá Dankersen í Vestur-Þýzka-
landl.
Forráðamenn félagsins vilja með
öllum tiltækum ráðum halda í ís-
lendinginn, sem var markahæstur hjá
þeim á keppnistimabilinu í ár. Hafa
þeir boðið Axel mjög góðan samning og
bafa þeir verið að ræða innihald hans
nú í vikunni.
Axel ætlar að gefa endanlegt svar
nú um helgina og ef það verður jákvætt
verður hann trúlega eitt ár í viðbót
hjá Dankersen. -klp-
Sænskt met íhástökki
Sænski strákurinn Patrik Sjöberg,
sem aðeins er 17 ára, setti sl. laugar-
dag nýtt sænskt met í hástökki. Stökk
2,24 m á Stokkhólms-Stadium. Bætti
þar með met Rune Alméns um einn
sentimetra. Það var sett í Helsinki
1974.
Sigurður Svavarsson sést hér i leik með ÍR gegn Fram en með Frömurunum ætlar Hann að leika næsta vetur.
STORSIGUR VIKINGS
á íslandsmótinu í eldri flokki
Vikingar unnu stórsigur á FH i
fyrsta leiknum á íslandsmótinu i
knattspyrnu i eldri flokki, leikmenn
komnir yfir þritugt. Þetta er ný
keppni á vegum KSÍ. Keppt í tveimur
riðlum. í A-riðli eru Víkingur, FH, KR,
Þróttur, IBA, Breiðablik og Haukar. 1
B-riöli eru Fram, Akranes, Keflavík,
Völsungur, Valur og Vestmannaeyjar
eða i allt þrettán lið. Sigurvegarar í
riðlunum mætast svo i úrslitaleik 28. á-
gúst í sumar.
Keppnin i eldri flokknum hófst á
þriðjudag með leik Víkings og FH á
Hæðargarðsvelli við Víkingsheimilið.
Víkings-liðið með kunna kappa í broddi
fylkingar lék oft mjög vel og sigraöi
6—0. Skoraði þrjú mörk í hvorum hálf-
leik. Guðgeir Leifsson skoraði tvö af
mörkum Víkings, Páll Björgvinsson
einnig tvö og þeir Hafliði Pétursson og
Kári Kaaber eitt hvor.
Víkingar eru að vonum mjög
ánægðir með þessi úrslit og hafa
ákveðið að efna til hópferðar þegar
þeir leika á Akureyri 7. ágúst. I kvöld
leika KR og Þróttur í keppninni á KR-
svæðinu.
Sigurður til
liðs við Fram
— í 1. deiMinni í handknattleik næsta vetur
„Það er af persónulegum ástæðum
sem ég fer úr IR,” sagði handknatt-
leiksmaðurinn sterki úr Öt, Sigurður
Svavarsson, í spjalli við DV í gær.
Sigurður hefur sézt á æfingum hjá
Fram að undanförnu og sagðist hann
nú vera búinn að ákveða að ganga úr
ÍR yfir i Fram og leika þar næsta
vetur. Heyrzt hefur að fleiri ÍR-ingar
ætli að fylgja Sigurði yfir til Fram, en
hann vildi hvorki staðfesta það né
neita.
Þjálfari Fram hefur verið ráðinn
Bent Nygaard sem þjálfað hefur ÍR tvö
sl. ár í 2. deildinni og voru leikmcnn ÍR
mjögánægðir meðhannþar. -klp-