Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Page 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 30. JULI1982.
'40
Hún er án efa frægust Hollywood-
kvenna þessa stundina. Allir þeir
draumar, sem hana dreymdi í æsku,
hafa rætzt: Frægö og frami, og meira
en nóg aö bíta og brenna. Þetta er eng-
in önnur en hin fræga leik- og söngkona
frá Brooklyn, Barbra Streisand. Hún
stendur nú á fertugu, og ekki af baki
dottin súgamla.
Tryggðar
vinsældir
I Hollywood er aldrei hikaö við aö
færa upp söngleik meö Barbra. Þótt
gagnrýnendur rakki uppfærsluna niö-
ur í svaðiö, hefur þaö ekkert aö segja. I
staöinn er bara hljómplatan meö lög-
unum seld í milljóna upplagi. Einn af
toppmönnum innan skemmtana-
iönaöarins í HoUywood segir: „Allt og
sumt, sem þarf aögera til að þéna stór-
fúlgur, er að láta hana syngja og taka
af henni nokkrar myndir.”
Maður skyldi ætla, aö nú nyti hún
bara lífsins, í glaumi og gleði. En ööru
nær, hún vinnur jafn mikiö nú þegar
hún stendur á fertugu og þegar hún var
25 ára. Kannski enn betur, því aö ekki
er laust við aö henni þyki tíminn vera
aðhlaupa frásér.
Sumum konum er um og ó að veröa
fertugar. En Barbra er tvíefld, hún
haföi aldrei búizt viö aö ná þó þessum
aldri!
Sem barn var hún þess fullviss, að
hún myndi fara mjög ung á vit feöra
sinna. Faöir hennar dó, þegar hann
var 37 ára gamall og hún sjálf var
sannfærð um aö hún yröi ekki eldri en
þaö.
Þótt Barbra sé einn frægasti
skemmtikraftur í heiminum í dag er
hún ekki ánægö. Nú gerir hún allt, sem
í hennar valdistendurtilaöhúnkomist
á spjöld sögunnar sem viöurkenndur
listamaöur. ,,Hún þráir aö veröa
ódauðleg sem listamaöur,” er haft eft-
ir einum vina hennar.
Barbra hefur alla tíð veriö gagnrýn-
in á sjálfa sig. Hún hefur liðið fyrir þaö
að hafa aldrei tekið stúdentspróf og
þess vegna er hún alltaf á varðbergi
gagnvart „inntellígensíunni”, sem hún
kallar svo og umgengst töluvert.
Rithöfundurinn, John Gregory
Dunne, sem ásamt eiginkonu sinni
skrifaöi handritiö að „A star is bom”
segir frá því, þegar hann bauö Barbra
eitt sinn til k völd veröar:
„Hún sneri sér skyndilega aö mér og
spurði: Heyröu, John, hvaö finnst þér
ummig?”
Eg varö hálfhvumsa við. Hélt
kannski, aö mér hefði misheyrzt, en
hún endurtók spuminguna: Hvaö
finnstþérummig?
Eg hló og sló á léttari strengi. Sagði
aö í mínum sextán ára búskap hefði
konan mín ekki einu sinni spurt þessar-
arspumingar.
Hún horföi bara á mig og þá fyrst
skildist mér, aö þetta haföi ekki verið
neitt grín hjá henni.”
Ný hlið á
Streisand
Nú hefur Barbra tekizt á viö verk-
efni, sem er svo f jarri fyrri verkefnum
hennar og um leiö liöur í aö ná því tak-
marki aö veröa ódauðleg. Hún hefur
ákveðiö aö taka að sér aðalhlutverkið í
kvikmyndinni Yentl, sem er byggö á
sögu Nóbelsverölaunahafans Isaac
Bashevis Singer.
Sagan segir frá pólskri gyðinga-
stúlku á síðustu öld, sem hefur ákveöiö
aö læra til prests til aö kynnast Kóran-
inum. En ljón er í veginum. Hún er
stúlka og því óhugsandi aö hún geti
setzt á skólabekk meö tilvonandi prest-
um. Stúlkan gripur þá til þess ráös aö
dulbúast sem karlmaöur. Þaö leiðir
síöan til þess aö hún giftist annarri
stúlku! FÍókið? En sem sagt Barbra
ætlar aö leika þessa stúlku.
Furstamir í kvikmyndaiðnaðinum
eru ekki eins hrifnir af þessu verkefni
Barbra. Þeir segja söguþráðinn engan
veginn höföa til f ólksins og því dæmt til
aö mistakast. Þaö verða dýr mistök,
því að áætlað verö myndarinnar er um
20 milljónir dollara.
Barbra situr þó fast við sinn keip.
Reyndar em fjórtán ár síðan hún ákvaö
aö hrinda þessu í framkvæmd og þar
til hún loksins f ékk United Artists til aö
gera kvikmyndina. Og hún er þegar
farin til Tékkóslóvakíu til aö undirbúa
myndatökur, en þar verður hluti
myndarinnar tekinn.
En hvers vegna er Yentl svona mikil-
væg í hennar augum?
Vinir hennar segja að lífhræöslan
hafi sitt aö segja. Hún sé svo hrædd um
aö henni takist ekki aö ljúka ætlunar-
verki sínu í þessu lífi. Ekki hafa morð-
hótanir, sem ýmsir stjómmálamenn
og kollegar hennar hafa fengiö, orðið
til aö draga úr þessum ótta. Kunningi
hennar einn, sem var með henni dag-
inn sem John Lennon var myrtur,
sagöi: „Eg hef aldrei séö hana svona
miður sín. Þaö var eins og hún ætti von
áþví að veröa næst.”
Lrfhræðslan
En þessi ótti viö aö deyja var löngu
tilkominn fyrir dauöa Lennons. Þegar
hún fer út á lífiö fer hún meö vinum og
iífvöröum, sem halda vörö um hana.
ööruvísi finnst henni sér ekki óhætt.
Barbra eyðir meiru af sínum tíma
innan rammgeröra veggjá heimila
sinna, en hún á hvorki meira né minna
en þrjú einbýlishús og þau ekki af
minni gerðinni! Hvar sem hún dvelur
hverju sinni hefur hún ætíö vopnaðan
vörð um húsiö.
Fleira hrjáir þó stórstirniö. Hún
hugsar mikiö um heiisu sína og á i stöð-
ugu stríði við aukakílóin. Þegar hún
fer á veitingahús strekkir hún gjaman
band yfir miðjan diskinn og borðar aö-
eins þaö, sem er öörum megin við
bandið! Og þeir sem matreiöa ofan í
hana þurfa sýknt og heilagt að hlusta á
fyrirlestra um heilsu og heilsufæði.
Þegar kílóin fara aö hlaöast utan á
stjömuna, fer hún í megran. þóaöeins
þegar hún er ekki að leika eöa syngja.
Þrátt fyrir stöðugan ótta er hún í
dag í mun meira jafnvægi en á yngri ár-
um sínum. Hjúskapur hennar og Jon
Peters entist lengur en menn áttu von
á. En nú, eftir skilnaðinn, hefur þó
samband þeirra aldrei veriö betra.
Barbra er mjög viljasterk og ákveðin, í
byrjun hjúskaparins lét hún þó Jon
ráða öllu. „Ég naut þess að láta Jon
„Ég hef náð langt og ég skal ná enn lengra.’
Kvlkmyndin „Funny Lady” þóttl fjööur I hatt Barbra. Hér er hún í móttöku bjá Elísabetu Bretadrottningu ásamt
James Caar og nafna hans Stewart.
Barbra með eiglnmannlnum f yrrverandl, Jon Peters.