Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR 30. JPLÍ1982. ■ 7 Tvær DC-8 þotur Flugleiða I6ru margar ferðír með riffla og skotfæri fyrir Saudi- Boeing 747 þota Cargolux. Slík þota flutti eldsneytisgeyma fyrir orustuþotur f rá tsrael til Argentínu í miðri Falklands- Arabíu. eyjastyrjöldlnni. Einar Ólafsson, f orstjóri Cargolux. iRStKfUf’ manm. Þota Arnarflugs. Ólöglegir vopnaflutningar til Líbýu. Gaddafi Libýuleiðtogi. Flugleiðir, Amarflug, Cargolux og Eimsklp hafa iðl haft vlðsklpti við Libýu siðastUðlð ár. Laxfoss. Flutti vaming merktan Líbýuher í f yrrasumar. Allir í súpunni Þegar hér var komið var ekki laust við að farið væri að fara um marga Is- lendinga. öll helztu samgöngufyrir- tæki landsins á millilandaleiðum höfðu nú veriö bendluö við vopnaflutninga; Flugleiðir, Eimskip og Arnarflug. Auk þess sat Cargolux í súpunni. Flutningar Flugleiðaþotnanna voru opinberlega skjalfestir þar sem sótt hafði verið um leyfi fyrir þeim. Arnar- flug hafði hins vegar ekki sótt um neitt leyf i til hergagnaflugs. I kringum 20. október í fyrra bárust Flugráði ábendingar um að kanna þyrfti vissa flutninga félagsins. Fól Flugráö Loftferðaeftirlitinu að rann- saka málið. Fyrstu niðurstöður þeirrar rann- sóknar bámst Flugráði 3. desember síðastliðinn. 17 desember var máliö svo afgreitt frá ráðinu. Niöurstöður rannsóknar Loftferða- eftirlitsins voru þær að Amarflug hefði farið sex ferðir með vopn frá Frakk- landi til Líbýu. Farmurinn: Eldflaug- ar, sprengjur, rifflar og æfingavopn. Voru ferðirnar famar á tímabilinu frá j úní til október ífyrra. Þar með var upplýst um lögbrot Arnarflugs. Var félaginu veitt áminn- ing. Ekkert hefur hins vegar komið fram sem sannar að Laxfoss hafi flutt vopn í fyrrasumar. Ekki er heldur vitað til þess að stjórnvöld hafi kannað það mál. öll þessi vopnaflutningamál bárast inn í sali Alþingis síðastliðinn vetur. Árni Gunnarsson hóf umræðuna. Cargolux f lækt í Falklandseyjastríöiö Heitasta vopnaflutningamálið verður að teljast það sem Cargolux flæktist í meöan á Falklandseyja- styrjöld Breta og Argentínumanna stóðívor. Að þessu sinni vora íslenzk dagblöð ekki fyrst með fréttina heldur brezka blaðið News of the World. Það birti frétt um máliö 23. maí síðastliðinn. I henni sagði aö DC-8 þota Cargolux heföi þann 7. maí flutt hergögn, hugsanlega Exocet-eldflaugar, frá Suður-Afríkutil Argentínu. Frétt þessi vakti mikla athygli í Lúxemborg og á Islandi. Því hefur einnig verið haldiö fram að brezku leyniþjónustunni hafi fundizt þessar fregnir verðar nánari könnunar og jafnvel aðgeröa. Samkvæmt upplýsingum, sem DV aflaði sér skömmu eftir að frétt brezka blaðsins birtist, virtist sem frásögn brezka blaðsins hefði verið að nokkru leyti ónákvæm og í æsifréttastíl. Sam- kvæmt upplýsingum DV var ekki um að ræða Cargolux heldur dótturfyrir- tæki þess, Air Uraguay. Cargolux átti 49% íAir Uruguay. Einar Olafsson, forstjóri Cargolux, sagði í viðtali við DV um þetta að rétt væri að Air Uraguay hefði flogið frá Montevideo í Uruguay til Suður-Afríku og baka til Argentínu. Hvort sem það var tengt fréttum um vopnaflug til Argentínu eöa ekki þá vildi svo til að rekstri Air Uruguay var hætt aðeins einni viku eftir aö brezka blaðið birti frétt sína. Einn Islendingur mun hafa unnið hjá Air Uraguay. Starfaði sá sem flug- virki. Eldsneytisgeymar fyrir orrustuþotur Argentínumanna 3. júní síöastliðinn skýrði DV frá því að Boeing 747 þota Cargolux hefði hálf- um mánuði áður flogið frá Israel til Perú, meö viðkomu í Evrópu. I farmin- um hefðu verið aukaeldsneytisgeymar fyrir orrustuþotur Argentínumanna, svokallaðir „drop-tanks”. Þeim sleppa orrustuþotur á flugi að notkun lokinni og skipta yfir á aöaleldsneytisgeyma sína. Hefði þessi flutningur farið í gegnum milliliði í Perú. Frétt þessa staðfesti Sigurður Helga- son, forstjóri Flugleiöa og stjórnar- maður Cargolux, mánuði síðar. Sig- urður sagði þá í viðtali við Þjóðvilj- ann: „Það er staðreynd að Cargolux flutti hluti fyrir Argentínumenn sem flokka má undir hergögn. Þessir flutningar vora frá ísrael til Perú, að ég held, og í farmskrám var ekki getið um hvað þarna var raunveralega á ferð. Við vissum því ekkert um þessi hergögn, sem munu hafa verið bensíngeymar fyrir herþotur í langflugi, fyrr en að þessu var fundið af brezkum yfirvöld- um.” I orðum Sigurðar kemur einnig fram að brezk yfirvöld vora farin að hafa af- skipti af Cargolux. Þá haföi ríkisstjóm Lúxemborgar krafið Cargolux skýr- inga vegna gransemda um vopnaflutn- inga fyrir Argentínumenn. Sem kunnugt er samþykkti Efna- hagsbandalagið viðskiptabann á Argentínu meðan á Falklandseyja- styrjöldinni stóð. Grófara brot á slíku banni en hergagnaflutninga er varla hægt að hugsa sér. Cargolux var því komið í verulega klípu. Lúxemborg til- heyrir Efnahagsbandalaginu. Það hefur gengiö fjöllunum hærra að Cargolux hafi skaðazt vegna vopna- flutningaorðsins sem fer af félaginu. Forstjóri f élagsins hefur viöurkennt að Bandaríkjastjórn hafi sett Cargolux stólinn fyrir dyrnar vegna verkefna fyrir Líbýumenn. Forstjórinn hefur hins vegar sagt það kjaftæði frá upp- hafi til enda að félagiö sé aö fara á hausinn vegna vafasamra flutninga. „Mín persónulega skoðim er sú að viö höfum ekkert misst úr okkar aski fyrir vopnabrölt íslenzkra dagblaða um Cargolux,” hefur verið haft eftir for- stjóranumáprenti. Ekkert hefur komið framsem bendir til þess að alíslenzku flugfélögin hafi skaðazt fjárhagslega vegna vopna- flutningastimpils. Fyrirtækin hafa í mesta lagi rýrnaö í áliti heima fy rir. Þá gerir það bara einhver annar Hér í þessari grein hefur verið fariö yfir það helzta sem sagt hefur verið um vopnaflutninga íslenzkra aðila í fréttum blaöa hér á landi síðastliöiö ár. Þeirri spurningu er hins vegar ósvarað hvort siðferðilega sé nokkuð athuga- vert við aö flytja hergögn. Þeirri spurningu verður hver maður að svara fyrirsjálfansig. Sú skoöun hefur heyrzt, meira aö segja innan veggja Alþingis, aö óþarfi sé fyrir Islendinga að vera að reyna að leika engla eöa aö þykjast vera ein- hver fyrirmyndarþjóð. Þá segja ýmsir aö mörkin milli þess að flytja hergögn og að selja fisk í maga hermanna séu ekki sérlega skýr. Og aðsjálfsögðu má ekki setja punktinn án þess að minnast á viðkvæðið: Ef ég geri það ekki þá gerir það bara einhver annar. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.