Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Side 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 30. JULI1982. Til mót§ við krabbann Mðá nv niið Þaö er kunnara en frá þurfi að segja aö margbreytni í sjávar- réttum hefur ekki veriö mikil hér á landi. Ef litiö er til þess gífur- lega fjölda sjávardýra sem er aö finna á landgrunni tslands má fullyrða aö einungis litiö brot þeirra hafi veriö nýtt tU þessa. Gamalgrónar heföir og einhæfni í sambandi við matseld þessara fáu tegunda sem á boöstólum hafa verið eru svo annaö mál sem óþarft er aö oröleng ja. En s vo virðist sem einhver f jör- kippur hafi færzt í landsmenn á síðustu árum hvaö nýtingu sjáv- arafuröa snertir. Meö vaxandi kröfum um fjölbreytni í fæðuvali er farið aö nýta hinar ólíklegustu tegundir sjávardýra. Eg segi ólíklegustu, því flestar þeirra voru litnar heldur óhýru auga áöur fyrr, og gott ef almennt rugl fólks um óheilindi og váboöa flestra þessara kvikinda voru ekki orsök þess aö þær voru ekki veiddar. t hallærum nöguöu menn fremur skó sína en aö leggja sér slikan mat til munns! Fjölgun veitingahúsa hefur ekki sízt ýtt undir þessa þróun. Á síðustu árum hefur þaö orðið æ algengara að þau bjóöi viðskipta- mönnum sínum upp á ýmsar sjávarafuröir sem varla eöa ekki hafa áður þekkzt á heimilum fólks. Það hefur svo aukizt aö þessi mathús sérhæfi sig í ríkari mæli í tilbúningi ákveöinna fisk- tegunda. Þannig er ávallt veriö aö sæk ja á nýrri og óþekktari miö í leit aö nýjungum á matseöilinn. Allir vilja bjóöa eitthvaö sérstakt og frábrugöiö því sem aðrir hafa á boöstólum. t þessu tiUiti er krabbinn gott dæmi. Hann þótti á árum áöur hiö mesta ólánsdýr sem angraði trillukarla er þeir héldu í netja- vitjanir. Fáum kom tU hugar að þetta kvikindi ætti síðar eftir að veröa meö dýrustu sjávarréttum sem veitingahúsin bjóöa kúnnum sínum og jafnframt sá vinsæl- asti. -SER. Krabbaveiðaramir Kjartan Kjartansson og Þorvaldur Ólafsson eru frumkvöðlar í nýtingu krabbans frá Reykjavík. Þeir sjást hér um borð í Bjargfugli RE 55, á landstíminu. „Þú rífur bara skelina af hausnum, og étur gumsið innan úr. Svo brýturöu klæmar og sýgur þaö litla sem innan í þeim er að finna. Ef um kvendýr er aö ræöa, þá má ekki gleyma hrognunum. Og þau eru bezt hrá. ” — Þessi orð mælir Kjartan Kjart- ansson, skipstjóri á Bjargfugli RE 55, er við höldum út úr Reykjavíkurhöfn, á leiö á krabbaveiöar. Þau eru svar hans viö spurningu blaðamanns, hvaöa aö- feröum skuli beitt þegar krabbadýr eruinnbyrt. „Og þetta er algjört sælgæti. Þaö máttu vita,” bætir hann viö um leið og hann hagræðir vindlingsstubbnum í munnviki sínu: „Þaö er hreint ótrúlegt aö þessi sjávardýr skuli ekki hafa ver- ið nýtt á árum áöur. Eg er nefnilega sannfæröur um aö allur sá krabbi sem er að f inna á grunnsævi viö landið, get- ur einn og sér brauöfætt alla þjóöina til margra ára. Og þaö ættu ekki að þykja léleg kjör! ” Á síðustu setninguna legg- ur hann áherzluþunga um leið og hann gefur vélinni inn og stímið er sett á grynningamar undan Kjalamesi, þar sem krabbagildrunnar á aö vitja. „Mór fannst hugmyndin vægast sagt fáránleg..." — Þaðerbliðskaparveöurþennanút- ræðisdag okkar. Eilítið er þó þungt i sjóinn, alla vega i augum slíks land- krabba og undirritaður er. Þetta er um nónbil og sólin því skammt tekin að siga á hvelf ingunni. Meö í för, á þessum rétt rúmlega tveggja tonna timburdalli, er stýri- maöurinn Þorvaldur Olafsson en hann, ásamt Kjartani, er frumkvöðull í nýt- ingu krabbans til manneldis, héöan úr Reykjavík aö minnsta kosti. — Kjartan og Þorvaldur hafa stund- aö krabbaveiöar um eins árs skeið sem hobbý. Þeir hafa jafnan vitjaö gildra sinna annan hvern dag og hefur þá litlu skipt hvernig viöraö hefur hverju sinni. ,,Ég hló nú bara aö Þorvaldi þegar hann kom til mín einn daginn í fyrra og spurði mig hvort ég vildi byrja aö veiða krabba meö sér,” segir Kjartan. „Mér fannst hugmyndin fáránleg svo ekki sé meira sagt. En svo lét maður hafa sig út í þetta ævintýri og eitt er víst að ekki sér maður eftir því. Þó það hafi gengið anzi stopult aö fá kaupendur aö krabbanum, til aö byrja með, vomm viö strax ákveönir í aö hætta ekki fyrr en um allt þryti, enda vomm við báöir sannfærðir eftir á aö krabbinn ætti eftir aö veröa meö vin- sælli sjávarréttum sem fólk myndi hafa völ á. Sú hefur og raunin orðið.” Spennandi að prófa krabbann — Þeir Kjartan og Þorvaldur selja veiði sína til þriggja veitingastaöa enn sem komið er. Em þaö Rán á Skóla- vörðustíg, kínverski veitingastaöurinn Drekinn viö Laugaveg og Amarhóll. Eigandi síðastnefnda staðarins, og jafnframt sá fyrsti sem tók aö hafa krabba á boðstólum hérlendis, var ein- mitt með í förinni aö þessu sinni. Þaö er Skúli Hansen og við spyrjum hann, hvernig fólk hafi tekið þessari ný- breytni í fyrstu. „Þaö var nær eingöngu fólk sem haföi áöur smakkað krabba erlendis sem lagöi sig í þaö að boröa krabbann hjá okkur. Svo fór þaö fólk aö kynna þetta gómsæti fyrir vinum sínum og kunningjum og þannig hefur ágæti krabbans smám saman spurzt út til fjöldans. Fólki finnst mjög spennandi aö prófa þetta og þegar menn eru á annaö borö komnir á bragðiö, þá verður undantekningalítiö ekki aftur snúiö.” — Er fólk að sækjast eftir einhverju sérstöku bragöi þegar þaö leggur sér krabbann til munns? „Já, þaö er óhætt að segja,” heldur Skúli áfram. „Þaö er þetta eina og sanna sjávarbragö, sem ööru jöfnu skilur krabbann frá öörum sjávar- réttum, og þaö em helztu kostir krabb- ans aö áliti flestra. Þegar klæmar á þessum dýrum eru til aö mynda sogn- ar, þá leynir sér ekki þetta original bragö sem einkennir krabbann. Þaö er engulíkt.” Þáerhann fagurrauður og fafíegur — Og fólk er alveg óhrætt aö leggja sér þessi annars ófrýnilegu kvikindi til munns? „Jájá, og það má segja aö útlitið skipti ekki öllu máli. Þegar búiö er að sjóöa krabbann, þá er hann fagur- rauður og mjög failegur og hreinlegur á að líta. Þó fólk hafi verið nokkuð feimiö meö aö þreifa sig áfram í sjávarréttum til þessa þá virðist sem svo aö mikilla breytinga sé aö vænta í þeim efnum. Eg er til aö mynda ekki í nokkram vaf a um aö krabbinn á eftir aö veröa mjög algengur á almennum veitingahúsum á næstunni. Og gott ef þeir fara ekki aö selja hann í fískbúðunum innan skamms.” — Má ekki vænta fleiri nýjunga úr hafinu inn á matseöla veitingahúsanna íframtíðinni? „Jú, alveg örugglega. Má þar nefna keilu, hlýra og jafnvel blálöngu. En þaö er meö þessar tegundir, að mjög erfitt er að veiða þær í einhverjum mæli. Þaö er svolítill eltingaleikur aö koma þeim inn á matseöilinn. En eftir nokkur ár veröa þessar tegundir samt sem áöur orönar aö hversdagslegum hlut. Eg get ekki ímyndaðmérannað.” Mikið möndl að vinna á honum — En svo viö höldum okkur viö blessaðan krabbann. Er ekki mjög lítill matur í honum? „Það er aö minnsta kosti ekki hægt að segja aö hann sé mikill enda er krabbinn iöulega notaöur sem forrétt-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.