Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Page 13
12
DV. FÖSTUDAGUR 30. JULI1982.
DV. FÖSTUDAGUR 30. JULI1982.
13
Ertu tUiinninaawera eða töffari?
— líttu í lófa þér og gahhtu úr shuggaum það!
Hjartað afhjúpast í lófanum, seg a
spákerlingar. Hrukkurnar í skinniriu
eru merki um einkenni okkar að áliti
þeirra. Sérfræðingar í lófalestri segja
aö hægt sé að finna allt út um hvem
einstakling með því að skoða þrjár
línur í lófanum. Þetta eru liflinan, þar
sem hægt er að sjá allt um iikamlegt
ástand. Því næst höfuðlinan, sem segir
til um innrætiö, og að lokum hjarta-
línan sem sýnir hvaða tilfinninga-
legum eiginleikum hver manneskja er
búin. Hér á eftir f jöllum viö um allt
sem varðar hjartalínuna.
Hendumar eru um sumt ólíkar. Við
skoðum vinstri hönd fyrst þvi þar sést
það sem undir býr í hverri veru. Hægri
höndin útskýrir hvaö hver og einn
hefur afrekað eða mun gera. Við
skoðum aðeins hjartalínuna hér, en
rétt er aö geta þess að stöku sinnum
hafa höfuð- og líflínur áhrif á það sem
lesið er út úr h jartalínu.
Til að mynda getur höfuölina ái
helmingunar bætt upp mishæðii
ósléttrar hjartalinu. Á Utlu lófamynd
inni má sjá aldurslista yfir tilfinninga
lega atburði. Yfirleitt má lesa atburð:
tilfinningalegs eölis á hjartaUnunni,
sbr. Utla myndin. Þetta „almanak” á
aöeins viö um hjartaö. HöfuðUnunni ei
skipt niður á annan hátt.
-AS.
Ástrídur
Hjartagœska
Reidarslag
Hjartalína, sem er mjög langt frá
fingurrótum, segir til um mikilvœgi
tilfinningalegra viðbragða: fúsleika,
félagslyndi, rausn, góðgirni, ídeal-
isma. En lína sem er stutt frá fingur-
rótum bendir til að tilfinningaleg
viðbrögð séu ekki sérlega mögnuð og
að viðkomandi sé tœkifœrissinnaðri
en annars.
Lína sem bugðast og endar á milli
vísifingurs og baugfingurs bendir til
þess að um meiri nœmni sé að'rœða
hjá viðkomandi en ef línan er bein.
Bein lína bendir til aðlögunathœfni.
Lína sem nœr lengra en þangað sem
vísifingur er, gefur í skyn að maður
sé áhrifagjarn og jafnframt að sá
hinn sami eigi auðvelt með að tjá sig,
hafi sköpunargáfu.
Ef endi línu er mjög skýr og
myndaður af aðeins einni grein þá
samsvarar það óframfœrni, nánast
því að vera sokkinn inn í sjálfan sig.
Margkvíslóttur endi (b) ber vitni um
löngun til ástúðar og eðlilegan
þokka sem verður til þess að aðrir
treysta á viðkomandi og að hann sé
góður félagi.
Sérstök merki við enda linu, svo sem
rákir sem mynda ferhyrninga og
tengjast krossi eða stjörnu, gefa til-
efni til bjartsýnnar túlkunar. Mögu-
leika á að rœtist úr einhverju, að lík-
legt sé að vonir einhvers á til-
finningasviðinu rœtist og vœnta
megi ánœgjulegra félagslegra sam-
skipta.
„Eyjur” í upphafi línu (a) standa
fyrir kvíða í tilfinningalegum sam-
skiptum. Efannað slíkt merki (b), og
þá skýrara, er lengra inni á línunni,
merkir það að viðkomandi finni
stöðugleika síðar. Efslík merki birt-
ast enn, ofar á línunni bendir það til
að slík tilfinningavandamál komi
aftur(c).
Lína sem er alsett „eyjum”, eða er
helminguð, bendir til geðshrœringa, \
nœmni og hverflyndis og þar af leið-
andi erfiðleika við að hemja sig til-
finningalega.
Tilfinningalegt
mál sem endar
á hamingjusami
hátt
Velgengni ______Aft—^—r
Tilfínningar
Líflína
Skýr lína: Orka
Hjartalína:
10 ára aldur sést
Ferhyrningur:
Vernd
Áframhaldandi
hiifuðlína:
Gott jafnvœgi
Sem betur fer er brotin hjartalina
sjaldgœf. Hún þýðir tilfinningaleg
svöðusár. En í þessu sambandi
verður einnig að líta á höfuðlínuna.
Ef hún er skýr og lokuð getur það
verið uppbót fyrir brotna hjartalínu.
Punktar (a) og smástrik (b) eru mun
algengari og að sama skapi ekki eins
mikilvœgir og brotna línan.
Punktarnir og strikin merkja smá-
sorgir, mótlœti og vonbrigði sem
vara skamma stund og skilja ekki
eftir sig stór spor. En kross eða
stjarna hins vegar (c) þýðir oft á tíð-
um reiðarslag.
Breinar sem kvíslast frá hjartalín-
unni (a) og snúa í átt að heilalínunni
eru algengar. Þœr þýða að manni sé
hafnað af einhverjum eða uppstokk-
un tilfinningalegs sambands.
Greinar sem beinast í átt til fingra
(b) merkja djúpa löngun til að tjá
hugsanir sínar.
Hjartallnan getur blandazt öll eða
að hluta við heilalínuna. Ekkert
athugavert er við það, en það bendir
til persónuleika sem vill allt eða ekk-
ert. . .
Tvöföld lína (a) bendir til mikillar
þarfar að vera elskaður/ elskuð. Hún
getur táknað draumlyndi, listrœna
tjáningu. Henni fylgir lítið raunsœi
og það að hœtt sé við vonbrigðum.
Bogadregið far á milli hjartalínu og
fingurróta þýðir forvitni og nýjunga-
girni.
Línur sambanda, sem sjást á milli
hjartalínu og litlafingurs, eru eins
og nafnið gefur til kynna fyrir alvar-
legum tilfinningasamböndum. Ef
þœr eru helmingaðar og með
„eyjar”, holur á milli þýðir það að
sambandið gengur ekki upp. Ef end-
ar snúa niður er manneskjan mjög
einmana. Ef línan er tvígreinótt er
hœtta á skilnaði.
ev Nastassia Kinski
Nafn hennar er frægt en hún er ekki
sérlega þekkt á götu. Samt má telja
víst að allt aö því hver karlmaður
sem þar mætti henni, Uti um öxl og
góni!
Hún verður nú líka að teljazt frem-
ur aðlaðandi, stúlkukindin
Nastassia Kinski, sem hér er til um-
fjöllunar. Til marks um þokka henn-
ar má þess geta að blaðamenn, af_
karlkyninu er eiga’ viðtal við hana,
standast sjaldnast þá freistingu að
verja meginhluta af rými sínu í að
lýsa í skrautlega ljóðrænum setning-
um, hversu fögur og aðlaðandi hún
sé. Það viröist svo vera aukaatriði í
augum þeirra að geta þess aö um
þessar mundir er verið að sýna þrjár
stórmyndir í kvikmyndahúsum um
víöa veröld þar sem Nastassia fer
með aðalhlutverkið. Þetta eru mynd-
irnar One from the Heart, sem
meistari Coppola stýrir, Cat People,
Pauls Schrader en um þessar mund-
ir er verið aö sýna kvikmynd þess
leikstjóra American Gigalo í einu
kvikmyndahúsa borgarinnar. Þriðja
myndin sem Nastassiu getur að líta í
um þessar mundir, er myndin
Exposed þat- sem hún leikur á móti
rússneska ballettdansaranum
Nurejev.
er fædd í Berlín
og er á tuttugasta og öðru ári. Sem
kunnugt er, er hún dóttir hins mikil-
hæfa þýzka leikara, Klaus Kinski,
sem nýlega hefur lokið við að leika í
meistarastykkinu Fitzcaraldo. En af
föður sínum hefur Nastassia ekki
mikið að segja, síðan foreldrar henn-
ar skildu er hún var á tíunda ári. Hún
ólst upphjá móðursinni, Ruth, „sem
er mín stoð og stytta í lifinu”, eins og
stúlkan kemst s jálf að orði.
Fullvíst má þó telja að faðemi
hennar hafi átt einna stærsta þáttinn
í því hversu frami hennar hefur verið
skjótur.
Strax á táningaaldri var hún farin
að sitja fyrir sem tízkumódel og um
fermingu hóf hún leik í sjónvarps-
myndum. Það var í einni slíkri sem
kvikmyndaleikstjórinn umtalaði,
Roman Polanski, sá Nastassiu
bregða fyrir í fyrsta skipti. Þá var
hún fjórtán ára. Þau hittust skömmu
síðar í veizlu, og þrátt fyrir ungan
aldur féll Nastassia flöt að fótum
hans. Og þrátt fy rir að hún hafi verið
vöruð viö smástelpuveiðum þessa
fræga leikstjóra, hóf hún ástarsam-
band með Polanski og varð ,,með
stolti stúikan við hans hlið”, eins og
hún hefur látið hafa eftir sér um
kynni sín af þessum umtalaða
glaumgosa, og bætir við: „mér
finnst hann virkilega skemmtilegur
og þegar ég sá hann í eigin persónu í
fyrsta skipti, fann ég fyrir óseðjandi
þorstaíhann!”
Polanski gerði Nastassiu að
WMtmh sr dóttír Klaus Kfnski, þskkts þýzks fmikara. Alla~ gtitur sftian 1980, er hún kom
fyrst fram, þótti hún fædd stjama.
/ kvikmyndfnnf „Cat Peopht" feikur Nmststssia ungm „kattstúiku", en
þessi mynd og þá atialiega efnisþráður hennar þykk nokkuti frábrugð
inn þvisem kvikmyndahúsagestir hafa vanizt tilþessa.
stjömu, svo að segja á einni nóttu.
Það var meö kvikmyndinni Tess,
sem hvarvetna hefur fariö sigurför
um heiminn eins og raunar flestar
myndir þessa meistara hvíta tjalds-
ins. En Polanski er síður en svo
þekktur fyrir þaö að vera lengi í tygj-
um við eitt og sama sprundið.
Astarsambandi hans og Nastassiu
lauk nokkm eftir að Tess var frum-
sýnd: .,£g gerði mér alveg ljósa
grein fyrir að við myndum hætta
saman fyrr eða síðar og þannig kom
mér þetta ekkert á óvart. En við er-
um samt sem áður mjög góðir vinir
ennþá,” áréttirNastassia.
Nýjasta kvikmyndin sem
Nastassia leikur í Cat People, sem
fyrr greinir frá, er nokkuð einkenni-
leg hvað handrit snertir. Hún f jallar
um forboðna drauma fólks í þjóð-
félagi þar sem kynlífið skipar veg-
legasta sessinn! Kattfólkið lýsir kyn-
þætti sem lifir af eigin blóði, og ef
það leggur sér annaö til munns,
drepur það aUt sem á vegi þess verð-
ur og breytist í stórhættulegar
skepnur. I mynd þessari leikur
Nastassia unga saklausa kattstúlku
— sem einn góðan veðurdag hittir
pilt í dýragarði og þar...
Nokkur rimma stóð á milli leik-
stjóra, þessarar myndar, Paul
Schrader, og Nastassiu á meðan
kvikmyndun hennar stóð. Þannig
var að sú síðamefnda birtist á stóru
og veglegu veggspjaldi um þetta
leyti þar sem hún lá alsnakin með
slöngu vafða um líkama sinn. Þegar
Schrader baröi þessa mynd augum,
varð hánn ævareiður og lét þaö
hafa eftir sér aö þar með h Tði
Nastassia fyrirgert frekari frama
sínum á hvita tjaldinu.
En hin unga stjarna sem hefur ver-
ið lýst sem blöndu af leikkonunum
Ingrid Bergman, Brigitte Bardot og
Audrey Hepbum hvað útlit og leik-
hæfileika snertir, brosir sínu blíðasta
við þessum ummælum leikstjóra
sins. „Mér finnst þessi mynd hvort
tveggja fögur og listræn og tel að hún
hafi síður en svo áhrif á velgengni
mína í kvikmyndum. Ef fólk á annaö
borð býr yfir einhverjum leikhæfi-
leikum, þá á ekki að skipta máli
hvort fólk sér þaö alklætt eða alsnak-
ið!”