Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Side 18
Stanes í tuttugu ár Þeir hefðu verið álitnir eitthvað meiriháttar skrýtnir sem látið hefðu út úr sér þá fjarstæðu fyrir tuttugu árum, þegar Rolling Stones kom fyrst fram opinberlega, að þetta ætti eftir að verða frægasta rokk- hljómsveit heims og fara mikla sig- urför um hljómleikahallir Evrópu á árinu 1982. En nákvæmlega þetta er nú staðreynd: Rollingarnir þræddu hljómleikasali um Banda- rikin þver og endilöng í fyrra og í sumar hafa þessir síungu rokkarar fyllt íþróttaleikvanga og stærstu hljómleikahallir í Evrópu, látið eins og fjörkálfar á sviðinu sem þeirra er vani og munu sumir hafa átt bágt með að trúa því að þar væru menn um fertugt að sletta úr klauf- unum. En Rollingarnir láta lítt á sjá, „Time Waits For No One" sungu þeir eitt sinn og einnig .. what a drag it is getting older", — en það mun ekki vera neitt lygimál að elli- mörk eru ekki sjáanleg á þessari stórkostlegu hljómsveit, Jagger stæltur sem unglamb og hinir í ffnu formi. Já, og samt hafa þeir verið í eldlínunni í tuttugu ár, sukkað stíft á stundum, en haldið saman gegnum þykkt og þunnt. Meö þessari miklu hljómleikaferð um Evrópu í sumar hafa Eolling- arnir veriö aö halda upp á tuttugu ára starfsafmæli sitt, þótt raunar séu áhöld um þaö nákvæmlega hve- nær Rolling Stones varð til. Sumir álíta aö raunverulega hafi hljóm- sveitin oröið til áriö 1960 þegar Mick Jagger og Keith Richard hittust fyrir tilviljun og komust aö raun um aö tónlistarsmekkur þeirra var sá sami, ryþm&blús og rokk&ról. Aðrir segja það hafi veriö áriö 1961 þegar Jagger og Richard rákust á tóniist- arséní að nafni Brian Jones, — eöa DV. FÖSTUDAGUR 30. JULl 1982. var það áriö 1962 þegar þeir þrír komu fram opinberlega í fyrsta sinn? Viö þann atburð hefur altént tuttugu ára afmælið í sumar verið miðað. Ætli við getum ekki veriö sammála um þaö að Rollingarnir hafi átt erfiöa æsku. Þrátt fyrir augljósar vinsældir allt frá upphafi reyndu margir aö gera hljómsveitinni lífiö leitt á sokkabandsárunum. Væru fyrirsagnir blaöa frá þessum tíma Popp — Popp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.