Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Page 19
Popp Popp Mick Jagger hefur löngum þótt sœtur á sviði, á myndhuti i mlðlð er henn með unnustu sinni, Jerry Hell, sem er Rollíng Stones i fullu fjöriá hljómleikum. Til vinstri: Keith Rich- ard faðmar kærustuna aðsór, fyrirsætuna Patti Hansen. athugaöar kæmi í ljós aö fréttir um Rollingana voru ekki af fínni gerð- inni; áberandi eru hneykslisfréttir hverskonar, kynsvall, dóp, djöfla- dýrkun, ólæti á hljómleikum aö ógleymdum stóruppslættinum þegar liösmenn hljómsveitarinnar sáust míga utan í ónefndan vegg! Og blööin vöruöu foreldra og uppal- endur viö þessari háskalegu hljóm- sveit: „Myndir þú leyfa dóttur þinni aö eiga stefnumót við einhvern af strákunum í Rolling Stones?” spuröi til aö mynda eitt blaöiö og æskilegt svar var auövitaö: — Nei, með tals- veröum þunga. Mick Jagger viöurkenndi ekki alis fyrir löngu í viötali aö þeir hefðu í upphafi ferils síns gert allt hvaö þeir gátu til þess aö fá umsagnir um sig í blöðunum, jafnvel þó þær gætu sumar ekki talizt „góö auglýsing”. „Eg sé stundum þessi gömlu blöö,” sagöi Jagger, „og þau bæöi skemmta mér og gera mig undrandi. Auövitaö vildum viö sjá nafn okkar sem oftast í blöðunum, en menn veröa aö greiða slíka kynningu dýru veröi. Eg hef alltaf litiö á mig sem tiltölulega venjulegan, kurteisan, hreinlegan og þokkalega menntaöan mann, sem er alger andstæða þeirrar myndar sem blöðin hafa dregið upp af mér. Eg játa aö mér varö dálítið um þegar mér varö þetta ljóst.” „Þegar þú ert ungur gerir þú þér ekki grein fyrir hættunni. Þú ert á ferö og flugi, fólk er einlægt að hvetja þig og skyndilega verður þér ljóst aö þú ert ekki lengur þú sjálfur. Þegar þú ert ungur og áhrifagjam, eöa jafnvel gamall og áhrifagjam, er hætta á því aö þú afvegaleiðist og missir s jónar af sj álf um þér. ” „Viö lærðum aö veita viðnám gegn þessari hættu eftir því sem tímar liðu, en fyrir suma okkar var það of seint. Brian (Jones) var veikgeöja og það grátlega var að smám saman varö hann þaö sem fólk taldi honum trú um aö hann væri. ” Brian Jones lézt eins og alkunna er sumariö 1969 aöeins örfáum dögum eftir aö hann lýsti yfir því aö hann væri hættur í Rolling Stones. Hann samdi sjálfur eigin eftirmsli sem lesin vom við útförina: „Vinsamleg- ast dæmiö mig ekki of harkalega.” Eiturlyf hafa verið sem rauður þráöur gegnum sögu Rollinganna, einkum þó framan af, þegar vart leið sá mánuður aö einhver þeirra væri ekki handtekinn, grunaöur eöa dæmdur fyrir neyzlu fíkniefna. Einkum vom Keith Richard og Brian Jones iönir viö fíkniefnakolann. Og Keith viöurkennir að hann hafi í tíu ár veriö þræll heróíns, þaö hefði ekki veriö fyrr en áriö 1977, um þaö leyti er hann var handtekinn og settur í svarthol í Kanada aö augu hans heföu opnast. „Eg var sokkinn svo djúpt aö ég átti engra góöra kosta völ lengur,” sagði hann. „Annað hvort var að halda áfram á sömu braut í nokkur ár til viðbótar eöa rífa sig upp úr þessu meö látum. Eg gerði mér grein fyrir því aö ég var aö ganga af hljómsveitinni dauöri og vanrækja bömin mín.” Og hann heldur áfram: „Ég vil taka þaö fram, aö ég sé ekki eftir því sem ég hef gert. Allir vilja fá sér- staka ánægju út úr lífinu, hvort heldur hún er fengin meö búsi eöa dópi. Allir eiga gamlan drykkjurút einhvers staöar í ættinni. Og ég held að hæfileikinn til aö ala upp böm skeröist ekki þó þú finnir á þér svo fremi aö þú sért til taks þegar bömin þurfa á þér aö halda. öðm máli gegnir um dópið. Eg gerði mér ljóst aö héldi ég áfram aö neyta efnisins yrði ég ekki til taks þegar mín væri raunvemlega þörf.” Keith játar aö hafa fyrr reynt að hætta í dópinu en gefizt upp. „Þá geröi ég þaö ekki af heilum hug. Mikilvægast er aö vera ákveðinn og eina leiöin til aö sigrast á óvininum er að hafa óstjórnlega löngun til þess aö sigra. Þegar þú sérö fjölskyldu- lífiö fara í vaskinn og tónlistin er að fara sömu leiö, þá kemur viljastyrk- urinn.” Oft hefur því veriö haldið fram aö Rolling Stones væru aö syngja sitt síöasta. Hingaö til hefur þaö ekki verið á rökum reist. Síöustu árin hefur stundum verið látiö í það skina að Bill Wyman bassaleikari væri á förum, — og einhverju sinni lét Jagg- er hafa þaö eftir sér aö sama væri þó aö Bill segöi skilið við hljómsveitina. Rolling Stones y röi til eftir sem áður. Bill hefur eins og kunnugt er sýslað í ýmsu fyrir utan hljómsveitina og þaö hefur vísast ýtt undir gróusög- umar. Hann segir:, ,Þeir halda aö ég sé ekki mikill áhugamaöur um hljómsveitina af því aö ég hef ekki nennu í mér til þess aö slæpast úti alla nóttina, djamma eöa hlusta á plötur. Mér geöjast ekki að soddan líferni, ég verð áhyggjufullur og spenntur af að hangsa við flösku- stúta fram undir morgun.” „Strákarnir hafa einlægt litiö á þetta sem hótun af einhverju tagi og þess vegna ekki verið alveg Ömggir hvar þeir heföu mig. Þaö hljómar kannski asnalega eftir öll þessi ár, en í raun og vem þekkjum viö ekki hverjir aöra .. . Innan hljómsveitar- innar hefur ævinlega veriö einhver óvissa: Er Mick á leiöinni í kvik- myndirnar alfarið? Ætlar Charlie aö ganga í djasshljómsveit? Og af því aö ég skil mig frá þeim, halda þeir því f ram aö ég hafi misst áhugann og eða vilji ekki lengur vera meö, sem er hvort tveggja hugarburður.” Þetta sagöi Bill. En hvað sagði Sig- urður Sverrisson blaðamaður eftir hljómleikana í Madrid á dögunum: „Hrifningin var ótrúleg. Fólk vein- aði af gleöi. Eldri menn sáust taka gítarsóló sisona út í loftiö og svo aö segja allir klöppuöu og stöppuðu í takt er fyrstu tónar Under My Thumb heyrðust. Um leið og lagiö hófst var mörg þúsund blöörum sleppt út í náttmyrkriö viö gífurlega hrifningu lýösins, sem orgaöi og grét eins og greitt væri fyrir eftir upp- mælingu.” Einhverju sinni lét Mick Jagger þau orö falla aö hann myndi fremur fyrirfara sjálfum sér en syngja ..Satisfaction” fertugur. Svo virðist sem hann veröi innan tíðar aö gera upp viö sig hvort verði fyrir valinu því aö hann veröur fertugur eftir tvö ár og þess em alla vega engin merki nú sem stendur aö Rolling Stones séu í þann veginn aö leggja upp laupana. Nema hann sleppi bara aö syngja „Satisfaction”. -Gsal. DV. FÖSTUDAGUR 30. JUU1982.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.