Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Blaðsíða 10
10 DV. LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982. mmmmm FRÁSAGMR FYRSTÆ TÚRISTA HEIMSmS! „Og þegar konungurinn fann líkiö höfuölaust í fjárhirslunum lét hann hengja þaö upp og bauð að hver sá er sæist gráta eöa kveinka sér viö aö sjá það yröi tafarlaust kallaöur til yfir- heyrslu. En bróðurnum, sem var samsekur, tókst meö brögðum að stela líkinu og grafa þaö. Þá skipaöi konungur dóttur sinni að ráöa sig á hóruhús og spyrja alla þá er hún lægi meö um guölausasta og lævís- asta verknað sem þeir heföu fram- iö. Og einn daginn komsvo sökudólg- urinn þangaö.. . ” Maöurinn sem segir þessa hrylli- legu sögu um hvernig faraó Rhampoinitos flettir ofan af þeim sem stal líkinu er Grikkinn Heródót- os. Þetta gerðist um 450 árum fyrir Krists burö. „Fyrsti túristinn" Hver var hann þessi griski sagn- fræðingur? Þaö er ljóst aö hann var fæddur um 484 f. Kr. í bænum Halikarnassos. Sá staður liggur á suövesturströnd Litlu-Asíu og var á því landsvæði sem Grikkir höföu gert aö nýlendu. Heródótos óx upp í andrúmslofti margþættra minninga um forna tíö, minninga frá stríösárum Grikkja og Persa, minninga frá Maraþonvöllum og Laugarskaröi. Og fyrir fróöleiks- fúsan ungling var víöa aö leita. Grískar bókmenntir stóðu í blóma: Ilions- og Odysseifskviöur og nokkur önnur verk. Ennfremur gafst tæki- færitilaðferöast. Heródótos var vel lesinn og mjög víöförull. Einhver hefur kallaö hann „fyrsta túristann”. Og þaö er ekki fjarrisanni. Hann hefurhaft auguog eyru opin, hann tekur vel eftir, á við- ræöur viö menn, hlustar á frásagnir, undrast og athugar meö gagnrýni og hugleiöir. Hann fellir þetta allt sam- an í eina heild i bók sinni, Kannanir, og kemur víöa viö í frásögum sínum. „Eíginmennirnir sitja heima og vefa..." Merkilegastar veröur aö telja frá- sagnir hans um Egyptaland, þjóöina og faraóana eins og þetta kom hon- um f yrir sjónir um miöja fimmtu öld. Margt óvænt hefur hann lifað þar í siðum og venjum Egypta. Viö skulum heyra hvaö hann hefur aö segja: „Eiginmennirnir sitja heima og vefa, meöan konumar eru á torginu og versla. Aðrar þjóöir færa ívafiö upp þegar þeir vefa, en Egyptar niður. Karlmenn bera byröarsínar á höfö- inu enkonurnara öxlunum. Konurnar standa uppréttar þegar þær kasta af sér vatni, en karlmenn gera þaö sitjandi. Þeir ganga öma sinna utan húss, en eta á götum úti. Synir eru ekki skyldir aö sjá fyrir foreldrum sinum, en dætumar skil- yrðislaust. Þeir hnoöa deigiö meö fótunum, en leirinn með höndurium. Þeir færa höndina frá hægri til vinstri, þegarþeir skrifa og reikna.” Meta hreinlæti umfram ráðvendni Svo er að sjá sem Heródótos hafi undrast og fengiö mikinn áhuga á trúarbrögöum Egypta. Hann segir aö þeir séu einkar guðhræddir svo aö þeir taki öömm þjóöum fram. Þeir meta meira hreinlæti en ráðvendni, skrifar hann. Um prestana kemst hann þannig aö oröi: „Þeir raka allan kroppinn annan hvern dag til þess aö engin lús eöa önnur óþrif finnist á þeim. Þeir baöa sig tvisvar á dag og tvisvar á nóttu upp úr köldu vatni. Þeir búast ein- ungis línklæðnaöi og sefskóm. ööm mega þeirekkiklæöast.” En Heródótos getur þess aö þrátt fyrir þetta sé þaö eftirsótt aö veröa prestur vegna þess aö „þeir fá dag- lega brauö sitt bakaö, uxakjöt og gæsakjöt, eins og þá lystir og dúfna- vín. Fisks mega þeir ekki neyta og baunir mega þeir ekki sjá, sakir hýöisins, sem er óhreint. ” Að fórna er eitt af höfuðstörfum prestanna. Heródótos hefur margt aö segja um fómirnar. Þegar nauti er fómaö er presturinn skyldugur til þess aö ganga úr skugga um aö ekk- ert svart hár finnist á því. Er nautinu haföi veriö slátraö eru haus og útlim- ir skomir af, innyflin fjarlægð og Sfinxinn 6800 ára gamall. búkurinn fyUtur brauöi, hunangi, rúsínum, fíkjum, reykelsi, myrm og öðrum efnum sem lyktuöu vel. Síðan er hellt á oUu og kveikt í fóminni. Skarti búnir krókódflar Egyptar hafa firnaáhuga á vissum dýmm. Sum þeirra eru heilög og Heródótossegir: „Þaö ber viö aö menn vinna heilög- um dýrum heit. Þegar efna skal heit- iö snoöraka menn háriö af börnum sínum og vega þau meö silfri. Fyrir silfriö kaupir húsmóðirin fisk, sem hún gefur dýranum. Ef einhver hefur uppi áform um aö drepa dýriö heU- aga, er hann dæmdur tU dauöa, og sá, sem af tilvUjun hefur drepið hauk eöa íbisfugl, veröur aö láta lífið, þó að tUgangur hans hafi engan veginn veriö sá aö deyöa fuglana. Kettir em Egyptum sérstaklega heilagir. Þegar eldsvoöa ber aö höndum kæra þeir sig ekki um aö slökkva eldinn, en taka sér varðstöðu tU aö sjá um aö kettirnir álpist ekki inn í eldinn. En þaö kemur fyrir aö þeir gera það. Þá fyllast Egyptar snrg, segir Heródótos, og bætir viö aö ef köttur deyr eölUegum dauðdaga, rakar fólk aUt hár af augnabrúnum sér! Dauðu kettirnir era smurðir og meö þá f ariö til Babistio þar sem þeir era grafnir. Um krókódUinn segir Heródótos aö kjaftur hans sé fuUur af blóðsugum. En í hvert sinn sem hann kemur upp úr vatninu og opnar giniö — og þá snýr hann sér alltaf í vestur — kem- ur sandlóan og gleypir blóðsugumar. Sumum Egyptum er krókódUUnn heUagur, segir hann. Þeir eiga tamda krókódíla, sem þeir prýöa meö eyrnaskrauti úr gleri og gulU. Á framfætur hans draga þeir armbönd. Þegar krókódíUnn svo hrekkur upp af, smyrja þeir hann og grafa í sér- stakri gröf. Læknir og líksmyrjari Sérhver læknir í Egyptalandi er sérfróður í einhverjum ákveönum sjúkdómi, segir Heródótos ennfrem- ur. Sumir eru augnlæknar, aörir höfuölæknar og enn aörir tannlækn- ar. Egyptar smyrja hina dauöu. Þrjár ólíkar smurningsaöferðir eru til. Sú Musteri frá dögum Ramsesors II. Likneskln, sem sjást á myndinni, eru um tuttugu metrar á hæð. Veggmynd frá tímum faraóanna. Þessi mynd á að lýsa daglegu lifi i Egyptalandi 'um 400 árum fyrir Krists burð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.