Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Síða 13
12 DV LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982. DV. LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982. 13 — Samar eru þjóö sem víða getur í íslenskum fornsögum, voru þá nefndir Finnar og einatt kenndir við fjöl- kynngi. Síðan má heita að ríkt hafi hér á landi þúsund ára þögn um huldubörn norðurhjarans, nema hvað þeirra er stuttlega getið í kennslubókum og þá kölluð lappar. Hitt virðast fáir ís- lendingar hafa gert sér ljóst, að þessi frumþjóð Noröurlanda á sér eldforna menningu, sem þróast hefur um þús- undir ára við sérstæð skilyrði. — Þessi orð standa á kápu bókarinnar Hvisla aö klettinum, sem er ein örfárra bóka á íslensku sem eitthvað segir okkur frá sögu og listhefð Sama. Það var Einar Bragi rithöfundur sem safnaði efni í bók þessa með styrk frá Norræna þýðingarsjóðnum. Kom bók- in út í fyrra og er hverjum manni hoil lesning. Við ætium hér á eftir að reyna að gera grein fyrir þessari Norðurlanda- þjóö sem Samar eru og notum til þess eriendar heimUdir, því eins og fyrr segir er varla að finna staf á íslenskri tungu um hagi Sama, utan fyrrnefnd bók Einars Braga. „Óvenju/ega frumstæðir" Talið er aö Rómverji nokkur, Tacit- us að nafni, hafi fyrstur manna kynnt suðlægari þjóðum lifnaöarhætti Sama svo einhverju nemur. Þaö var árið níu- tíu og átta eftir Krists burð. Hann lýsti þeim sem hirðingjum er legöu stund á veiöar á sjó og landi sér tU matar. Þeir hafi verið „óvenjuiega frumstæðir og hafi liðið skort”, með beinin ein og steina að vopni á veiðum sinum. Hvorki hesta né hús hafi þeir átt, klæddir loöskinnsfeldum, og hafi sofiö á jörðinni. Eina skjólið sem þeir hafi getaö veitt sér hafi veriö samsett úr nokkrum hríslum sem þeir hafi skorð- aö saman með mosa. Greiniiegt er að Rómverjinn á bágt með að trúa þessum aumu íifnaðar- háttum Sama, enda er ljóst af framan- sögöum orðum hans aö boriö saman við munaðarlíf Rómverja telji hann Sama frumstæða vUlimenn. Haldiðí gamlar venjur Frá því aö Tacitus kynntist lífi Sama liðu margar aldir þangaö til þeir kom- ust aftur á spjöld sögunnar. Það var eiginlega ekki fyrr en á fimmtándu öld að búseta annarra Norðurlandaþjóöa fór að þrengja aö löndum Sama. Æ síðan hafa Samar færst nær lifnaðar- háttum norrænna þjóða, sérstaklega eftir að kristinni trú var þröngvað upp á þá, skólar voru byggöir í löndum þeirra og tekiö var aö heimta skatta af þeim. Það er þó ekki þar með sagt að Samar beri ekki enn sín fyrri einkenni og haldi í gamlar venjur, þó vitanlega hafi það reynst þeim erfiðara sem árin hafa liöiö. Enn lifa margir þeirra í sín- um frumstæöu skinntjöldum, með hreindýrahóp sinn allt í kring, og ferð- ast frá einum staö til annars eftir því sem árstíðirnar og árferðiö segja til um. Eyðilegtland og erfitt yfirferðar Eins og málum er háttaö í dag lifa flestir Samar norðan við heimskauts- baug. Búsetusvæði þeirra ná allt frá norð-austurströnd Noregs, yfir norður- strönd Noregs og Finnlands, hásléttur þessara tveggja ríkja og Svíþjóðar og austur til Rússlands, yfirKolaskagann að Hvítahafi. Menning þeirra stóð hæst áður en til afskipta annarra þjóða kom. Þeir frumstæðu lifnaðarhættir sem þeir stunduðu þá hafa aö mestu gleymst ellegar breyst í átt til nútíma- legri lífshátta. Þeir ferðuðust milli sveita og byggöa, yfir eyðilegt land og erfitt yfirferðar, og það eitt að búsetu- svæði þeirra hefur spannað allt að þrjú hundruö þúsund ferkílómetra svæði þegar best lét, segir okkur hversu hæf- ir þeir hafa verið til að aðlagast kjör- um sem aðrar þjóðir hefðu engan veg- inn getað sætt sig við og því horfið flj ót- lega frá. Þrenns konar hópar Sama En þessi erfiðu lífsskilyrði höfðu sín áhrif á lifnaöarhætti Samanna. Torfær landsvæði knúðu þá beinlínis til þess að afmarka sér búsetusvæði. Þannig urðu fljótlega til þrenns konar hópar Sama og þróun hvers um sig einkenndist af því umhverfi sem þeir völdu sér til bú- setu. TU fyrsta hópsins má telja þá er hófu búsetu við sjávarsíöuna, einkum viö norð-austurströnd Noregs og í f jörðum og útdölum norð-vestur Rúss- lands. Landsvæði annars hópsins er fjallgaröurinn miUi Noregs og Sví- þjóðar — Kjölur, og daUrnir sem sker- ast inn í hann. Loks er það hópurinn sem býr á hásléttum Noröur-Svíþjóðar og Finnlands og suðurhluta Kola- skaga. Samar við sjávarsíðuna, sem er fjöl- mennastur hópa Sama, stunda einkum fiskveiöar í ám og sjó auk sel- og f ugla- veiða. Sá hluti Sama sem býr í f jöUum lifir á hreindýrahjörðum sínum og stundar hirðingjalíf. Þetta eru þeir Samar sem flestir þekkja af bókum og myndum. Þeir Samar er lifa á há- sléttunum eru ekki nema að hluta tU hirðingjar. Flestir þeirra eiga sér fast- an búsetustað allt áriö um kring. Sumir stunda landbúnaö og hreindýra- hjarðir sínar reka þeir ekki nema stuttan veg frá býlum sínum. Þjóðheitið Samar Sarnar hafa löngum veriö nefndir Lappar af öðrum þjóöum, eftir nafn- gift nyrsta hluta Skandinavíuskaga, Lapplandi. Sjálfir hafa þeir ávaUt nefnt sig Sama og land sitt Samaland. Eftir seinna heimsstríö tóku Norð- menn og Svíar einnig upp þetta heiti á þjóðinni fyrir norðan, svo og Finnar nokkru seinna. Á síðustu árum hefur þetta þjóðheiti svo hlotið útbreiðslu. Annars hafa Samar jöfnum höndum verið nefndir Lappar eða Finnar af öðrum þjóðum. Orðið Lappar er úr norsku, sem er þýðing á orðinu Finni, en eins og flestir vita er hásléttan norð- ur af Finnlandi oftlega nefnd Finn- mörk. Tilkoma þjóðheitis Sama er því aUflókin, en vissulega er réttast að nefna þá því heiti sem þeir sjálfir hafa vaUð þjóð sinni. Annaö væri móðgun við þá og menningu þeirra, svipað því og við Islendingar værum nefndir Danir eða Norðmenn af öörum þjóð- um. Samar munu um þessar mundir vera um fjörutíu og fimm þúsund talsins. Flestir þeirra búa innan landamæra Noregs, eða tæplega tuttugu og fimm þúsund manns. Um tíu þúsundir þeirra lifa á sænsku landsvæöi, tæplega fimm þúsund í Finnlandi og svipaður fjöldi í Rússlandi. I heimsókn hjá Johan Turi Ogreyktumeð óblandinni ánægju... Tjaldið var fuUt af reyk. Ég sat í heiðurssætinu við hUðina á Turi. EUikare, kona hans, tók stykki af hreindýrakjöti og setti á stóran ketil yfir eldinum. Því næst skammtaði hún. Fyrst skammtaði hún körlum, svo kon- um og börnum, disk af þykkri súpu. Við borðuöum þegjandi. Leifunum var skipt á mUU hundanna, sem ekki voru á veröi. Þeir komu inn hver af öörum og lögöust niður við eldinn. Við drukk- um tU skiptis kaffi úr tveimur bollum, þeim einu sem til voru á heimiUnu. Svo tóku aUir Utlar tóbakspípur upp úr leðurpokum og reyktu meö óblandinni ánægju. Karlmennirnir tóku ofan hreinskinnskóna, og breiddu grasið úr þeim yfir eldinn, svo aö þaö þomaði. Samar nota ekki sokka. Eg dáðist aö því, hve Utlu fæturnir þeirra voru vel lagaöir, meö fjaöurmögnuðum ristum og útskotnum hælum. Sumar konurnar tóku böm sín úr næfravöggunum, og gáfu þeim að sjúga, en vaggan var hengd upp viö tjaldsúluna og fóöruð með mosa. Aðrar konur sátu undir stálpuðum bömum og leituðu í höföi þeirra. Ú/furinn er versti óvinur Sama Turi tók aö ræöa viö mig. Brátt skyldu þeir fara aö taka niöur tjöldin. Hann kvaðst ætla, að snemma vetraöi. Snjórinn væri að verða svo harður í birkiskógunum, að hreindýrin næöu ekki mosanum. Nauðsyn væri aö færa þau niður í greniskógana, áöur en mánuöurinn væri úti. Turi sagðist heyra á gelti hundanna, að úlfurinn væri ekki langt undan. Ulfurinn er versti óvinur okkar, sagði Turi. Hann þorir ekki aö ráðast á hreindýrahjarðirnar, en stendur áveð- urs. Og þegar hreindýrin hafa þefað uppi, að úlfur sé í nánd, tvístrast þau í allar áttir, og þá drepur úlfurinn þau eitt af öðm, oft svo tugum skiptir á einni nóttu. Turi kvaðst eiga erfitt meö aö skilja, hvernig Samarnir heföu í gamla daga getaö gætt hreindýrahjarða sinna, áður en hundurinn kom til sögunnar. í fymdinni veiddi hundurinn hreindýrin í félagi viö úlfinn. En hundurinn sem var allra dýra greindastur, komst fljótt að þeirri niðurstöðu, að honum hæföi betur samstarf við Samana en úlfana. Hundurinn bauðst til að ganga í þjónustu Samanna, með því skilyrði aö maöurinn yrði vinur hans og hengdi hann, er hann væri orðinn ófær til starfs. Af þessari orsök hengja Samar ennþá hunda sína, er aldur færist yfir þá. Jafnvel smáhvolpar, sem ekki er hægt aö setja á vegna fóðurskorts, em ætíð hengdir. Og Turi hélt áfram sög- um af viðskiptum Sama og hunda. Erfitt er aö lýsa daglegu lífi þeirra í svo stuttri grein sem þessari. Það er þó freisting aö grípa niðurí æviminningar breska læknisins Axel Munthe, en hann heimsótti Samabyggðir um miðja þessa öld. Á einum staö í bókinni lýsir hann vera sinni í tjaldbúðum Johans Turi, sem teljast verður til helstu rit- höfunda Sama. Við gefum Munthe orö- ið. — Sólin var hnigin til viðar bak við Vassojarvi. Kvöldloftið var bjarma- fagurt, en fölnaöi smám saman og varö gult, og rúbínrautt, gulleitt mist- ur sveif yfir kvöldbláum fjöllunum. Þaö glitraði á drifhvítar fannir og föla birkiskóga í fyrsta hrími haustsins. Dagsverkinu var lokið. Karl- mennirnir komu heim að kof unum með slöngvivað yfir herðum sér, en konurn- ar með stórar tréfötur fullar af spen- volgri nýmjólk. Hjörðin, þúsundir hreindýra, var kringum kofann. Hund- arnir stóðu á verði, og nú voru hjarðirnar ömggar um nóttina, bæði gegn úlfum og gaupum. Stöðug köll hreinunganna og brothljóð af þrammi þeirra voru að deyja út. Allt var kyrrt. Ekkert rauf þögnina, nema stakt hundsgelt, hrafnskrunk og væl ugl- unnar uppi í f jöllunum. Þágátuöll dýr talað... Hann sagöi að þegar mönnunum hafi veriö gefiö málið, hafi hundamir misst það, en aftur á móti skildu þeir hvert orð, sem við þá væri talað. Endur fyrir löngu hefðu öll dýr getað talað, og einnig blómin, trén, steinamir og allar lífvana verur, sem skapaðar voru af sama guði og mennimir. Því beri mönnunum að vera öllum dýmm góðir og umgangast allt lífvana eins og það heföi heym og skilning enn þann dag í dag. Eg spuröi Turi, hvort hann heföi nokkum tíma séð álfa. Nei, en konan hans hafði oft séð þá og börnin margsinnis. Hann hefði heyrt til þeirra neðanjaröar. Þeir væru á ferli um nætur, en svæfu um daga. Stundum heföi þaö komið fyrir aö Sam- arnir settu tjöldin sín, þar sem álfarnir bjuggu. Þá gáfu þeir Sömunum merki um að færa sig. Þeir vom vingjam- legir svo framarlega sem ekkert var gert á hlut þeirra. En ef þeir reiddust, dreifðu þeir dufti á hreindýramosann, og hreindýrin dóu hundmðum saman. Það hefði jafnvel komið fyrir að álfamir heföu tekið Samaböm og látið til Sama sín eigin böm. Álfabörnin vora alskeggjuö, og þau höföu langar og hvassar tennur í munni. Sumir álitu að best væri að hýða slík böm meö log- andi hrísvendi þar til álfamóðirin þyldi ekki lengur að heyra óp þeirra og kæmi aftur með stolna bamið, en tæki sitt í staðinn. Aðrir vom þeirrar skoöunar, að best væri aö sýna um- skiptingnum gott atlæti sem sínum eigin bömum. Álfamóðirin yrði þá svo þakklát, að hún skilaöi aftur barninu. Menning og list Sama En nú sagði Turi að kominn væri háttatími. Þetta haföi verið langur og erfiður dagur. Við lögðumst fyrir kring um hálfkulnaöan eldinn. Reykfullt tjaldið varð bráölega koldimmt. Það eina, sem ég sá, var Pólstjarnan, sem skein gegnum strompinn á tjaldinu. Eg fann gegnum svefninn hlýjan hunds- líkama við brjóst mitt og mjúkt trýni hans í lófa mínum. — Þannig lýsir Axel Munthe dagshluta úr lífi Sama um miðja þessa öld, og er vonandi að hann gefi lesandanum nokkra grein fyrir lífsmáta og lífs- skilningi Sama, þó vitanlega hafi þeir eitthvað breyst frá því samtal hans og Turi fór fram. Víkjum þá nokkuð að menningu og listum Sama, þá fyrst bókmenntum. Johan Turi sem við fengum að kynnast hér að framan, er talinn vera braut- ryðjandi í bókritun Sama. Á fyrri hluta aldarinnar lét hann frá sér fara merki- legt rit um þjóöhætti og menningu þjóðar sinnar. Aörir mikilsvirtir Sam- ar sem á næstu áratugum skrifuöu bækur í líkum dúr og bók Turi, vom Anta Pirak og Nils Nilsson Skum. Þetta voru fyrstu Samarnir sem festu annað á bók en þýðingar, en eilítið hafði verið um þær fyrr á öldum, þá einkum þýðingar á kirkjuritum. „Samískar bókmenntir sem barn í reifum " I kjölfar þessara frumherja hafa samiskir höfundar á allra síðustu árum og áratugum tekið að semja fagurbókmenntir, bæði ljóð og sögur. I formála að bókinni Hvísla að klettin- um, sem áður er getið, segir þýðandinn Einar Bragi: „(Þaö) verður ekki annað sagt en samískar bókmenntir séu enn sem bam í reifum. Skáldin eiga við mikla öröugleika að etja, og veldur þar mestu um, að tungu þeirra hefur fram á þennan dag veriö sýnd megn fyrirlitning og gert allt til bölv- unar, sem heimsk stjórnvöld og illvilj- ugframastgátu.” En löngu áður en ritöld hófst með Sömum var til skáldskapur í munn- legri geymd, svo sem ljóð, þjóösögur og ævintýri, svo og jojk, en hið síðast- nefnda er talið vera upprunalegasta al- þýðutónlist Evrópubúa. Jojk var ekki Hreinninn ungi — I fymdinni var ekki eins mikill munur á mönnum og dýmm og nú á dögum. Mennimir áttu sér kofa, og dýrin bjuggu í skóginum umhverfis þá. Og töluðu þau ekki sömu tungu, mál skóganna og vindsins? Ekki er auðsvaraö hvers vegna himinninn hafði neitað aö blessa gömlu hjónin í minnsta kofanum, svo að þeim mætti verða bams auðið. Árin liðu og snjórinn sem féll á hár konunnar gleymdi smám saman aö þiðna. Oðm hverju andvörpuðu þau bæði, og í hjarta bám þau sömu þrá. En morgunn einn varö konan þess vör, að ósk þeirra ætlaði að rætast. Engum er þó ofsæla hoil á jörðu hér. I staðinn fyrir ungan svein, eins og þau höföu vonast eftir, gaf himinninn þeim ofurlítinn hrein. Móðirin kvartaði ekki, og það gerði maður hennar ekki heldur. En ná- grannar þeirra felldu fáein samúöar- tár. Silkimjúkur feldur litla hreinsins og viökvæmar granirnar vöktu móður hans einlæga gleði, og hún horfði meö ástúö djúpt i svört augun, sem voru stærri en berin uppi íhlíðinni. Litli hreinninn var ekkert hissa á því, þótt foreldrar hans væm ekki vitund iikir honum. Hann saug mömmu sína og lifði glööu og áhyggjulausu lífi. Honum fannst helst til heitt viö hlóðirnar og kúröi úti í homi sem fjærst eldinum. Hann haföi gaman af að horfa út um gluggann, og í huganum henti hann á lofti snjófly gsur sem flögruðu hjá. Aftur á móti var hann hræddur við norðurljósin sem kviknuöu um miðj- ar nætur, og þá gat ekkert róað hann nema traustið í augum mömmu hans. Tvisvar á dag sótti faðir hreinsins eldiviö út i skóg og bar inn til þerris, og þá fann litla kvölin svalt og hreint loft leggja inn um dyrnar. Það var þrungið einhverri dul, svo að hann kitlaðiínasimar. Þegar frá leið fór honum að finnast móöurmjólkin fullsæt, en haföi ekki orð á því til að hryggja ekki mömmu. Þar kom þó um síðir, aö hann gat ekkiþagaö: „Skógurinn hrópar á mig,” sagði hann. „Eg skil ekki, hvemig á því stendur.” Móðir hreinsins sagði ekki neitt, en faðir hans gekk fram að dyrunum til að athuga, hvort þær væru ekki vel lokaðar. Tímar liðu. Litli hreinninn stóð löngum við gluggann. Oft dró ein- hverja móðu á augu honum, eins og leggst á rúðumar á nóttunni þegar nístingskalt er úti. „Skógurinnhrópará mig.” „Ertu ekki ánægöur hjá okkur? Viltu fá mýkra fleti? Eða eigum við að bæta viði á eldinn, svo að þér verði ekkikalt?” Hann svaraði engu, en upp frá þeim degi fór hann aö leggja af og ganga úr hárum. Á hverjum morgni þegar mamma hreinsins sópaöi, fann hún svolitla dreif af hámm á gólfinu og hélt þeim vandlega til haga. Dag nokkum faðmaði hún son sinn, tók höfuð hans milli handa sér ogsagði: „Þú ert sóiin sem lýsir veg okkar á nóttu ellinnar. En stundum er manni til góðs að skilja við þann sem maður elskar. Far þú á vit skógarins sem hrópar á þig, en hlustaðu fyrst á það semég þarf aðsegja þér.” Hún gaf honum mörg holl ráð og varaði hann við ótal hættum. Aö svo búnu gekk faðir hans til dyra og opn- aði. Á yfirboröinu var eins og ekkert hefði gerst, en gamli maðurinn varð hljóðlátari með hverjum degi. Þegar hann fór út í skóg að sækja brenni, var hann oft lengur en nauðsynlegt gæti talist. Morgun einn sagði hann við konu sína, að sig hefði dreymt lítinn hrein sem kveinaði sáran. Þann dag fór hann fyrr út en vandi hans var og kom ekki aftur um kvöldið. Konan stóð iengi í dyrunum og kallaði á hann.en hann komaldrei. Enn liðu fáein ár. Kvöld eitt þegar noröurljós köstuðu fölrauöum bjarma rnn á gólfið og gamla konan ætlaöi að fara að leggja sprek á eld- inn, fékk hún svima og hneig niöur fram á hlóðirnar. Þá lukust dyrnar ofurhljóðlega upp, og inn gekk stór- eflis hreinn. Hann dróst með herkj- um til gömiu konunnar og lagði höfuðið í skaut henni. Með erfiðis- munum teygði hann úr sér við hlið- ina á henni og tók aö segja frá skóg- inum, sem hafði séð hann verða stór- an og veitt honum vemd gegn að- steðjandi hættum. Hann talaði um vetrariandiö, um úlfana, um norður- ljósin sem stöku sinnum stigu niður til jarðar og snertu hom hans. Hann talaði um vorið, þegar ámar rumska undir ísum. En sérstaklega orðdrjúgt varö honum um trén og angandi stofna þeirra sem hann sleikti og hnusaði af líkt og í leiöslu. Hann varð æ máttfarnari i tung- unni, og smám saman hljóðnaði rödd hans. Djúpkyrrðfærðistyfirailt. Hendurnar struku um stóra höfuð- ið sem hafði hnigiö niður í kjöltu móður sinnar, en urðu æ þreytulegri í hreyfingum. Augu gamla hreinsins horfðu í friösæld beint fram fyrir sig, en þau sögðu ekkert f ramar. Hendumar gældu enn um stund við silkim júkan feldinn eins og i draumi. En þar kom, að þær lágu líka kyrrar. — Úr bókinni Hvisla aö klettinum, þýðing Einars Braga rithbfundar. leikið á hljóðfæri, aðeins sungiö. Þó eru öruggar heimildir um, aö takturinn var sleginn á trumbu. Stundum var jojkað án oröa. En alla jafna er jojk ljóðsöngur: ljóð og söngur samtvinn- uð. Við birtum hér á síðunni eina þjóðsögu og nokkur ljóö úr fómm Sama til að fólki gefist kostur á að skoða brot úr bókmenntaarfleifð þeirra. Fyrirmyndir listaverka sóttar ídaglegtlíf ur Sælir eru hógværir Ekki er allt gult sem glóir segja vitringar heimsins. kannig snúa þeir hug annarra frú gutlinu og sitja aó því einir (höfundur ókunnur) Ljóð Eins og krœklótt birkihrísla hreggi harin vid rœtur fjalls, þannig er lif mitt. Er hvítan bjarkarstofninn ber vió nakinn svörd, grípur mig þrú til fjallu, til tjaldbúda ó heidum frammi. l'arerlíf mitt, þar er atlt sem ég elska. (cftir Paulus Utsi) Móðurmál Sumamúl nied gullinhljóm, hví sefur þú? Hvi brcsturþig einuró? 1‘agna ekki módurmúl, þó erlend ori) oghugtök séu ad grafa þérgröf, þó enn séu brumhlífar ekki brostnar, blóm þitt ekki dó fullu sprungid út. (höfundur ókunnur) Gjafmildi Hinir sUegvitru ala Sama ú kökum og kringlum. Sama Hreinkjötiö éla þeir sjdlfir. (höfundur ókunnur) Eg er hljóð- látt tré Ég er hljódlútt tré, í limi minu kvedur lif sér hljóós. Ég er vorlré, í rótum rnínum nida lágróma lindir. Ég er htjódlátt tré sem elur þessum brosmild börn. egmdarheimi (hiifundur ókunnur) — Ur bókinni Hvisla aö klettinum, þýöiug- ar Einars Braga rithöfundar. Önnur list Sama en áður er getiö er að mestu hagnýt að eöli. Á þetta til að mynda viö um útsaum kvenna sem og útskurð karla í tré og hreindýrahom og -bein, einnig um gerö handverkfæra og annarra tóla til daglegrar notkunar. Myndlist Sama má rekja til hins sama og myndlist annarra þjóöa á upptök sín í — hellamálverkanna. En á seinni ámm hafa Samar vitanlega fundið málverkum sínum fleiri staði en á steinum. Fyrirmyndir í verkum sinum sækja Samar þó að mestum hluta enn í daglegt líf, til hreindýrahjarðanna, veiða og annars slíks. Mjög hefur verið vegið að menningu og lifnaöarháttum Sama á síðustu árum. Flestir ættu aö þekkja til atburöanna í Altafirði úr fréttum. En þaö eru ekki aðeins hugsanlegar virkjanir sem sækja aö búsetusvæði þeirra. Allt frá síöara heimsstríöi hef- ur verið litið á lönd þeirra sem hemaöarlega mjög mikils virði. Og vegiö er að Sömum úr báöum áttum, meö herstöðvum NATO í norð-austur Noregi og herstöðvum Varsjárbanda- lagsins á Kolaskaga. Sömum hefur einnig reynst erfitt aö viðhalda tungu sinni. Eins og Einar Bragi minnti okkur á hér að framan, „hafa heimsk stjórnvöld” litið samískuna illu auga. Síöustu tíu til fimmtán ár hefur raunar verið leyft að halda uppi kennslu í samísku. „En hvorki í Noregi, Svíþjóð, né Finnlandi er samiskum börnum tryggður skýlaus réttur til aö njóta kennslu á samísku,” segir Ole Henrik Magga í grein í ritinu „Vi i norden”, sem út kom á fyrra ári. Fjarlægðin frá öðrum þjóðum að minnka Margt í lífi Sama hefur breyst eftir því sem meira hefur þrengt aö lifnaðarháítum þeirra frá nærliggj- andi þjóöum. Kirkjur hafa verið reist- ar í flestum byggðum, skólar og stjómarbyggingar, nokkuðsem Samar töldu ónauðsyn fyrr á tímum. Ungir Samar flytja í auknum mæli suður á veg til mennta og atvinnu í borgum, og eiga ekki afturkvæmt. Margir þeirra sækja vinnu til náma í Svíþjóð og þannig má áfram telja. Samabyggðir og ábúendur þeirra g jalda þess í aukn- um mæli aö fjarlægöin frá öðrum og nútímalegri þjóðum fer æ minnkandi með árunum. Kannski verður hún að engu eftir nokkur ár, sem svo sannar- lega væri miður, því menning og saga Sama er einstök. Viðleitni þeirra til að halda í gamlar hefðir og lífsvenjur sem þeir hafa lifaö við mann fram af manni, um aldir og áður en nokkur önnur þjóð treysti sér til að setjast að á Norðurlöndum, veröur seint metin að verðleikum. Og það er hún raunar ekki, svo mjög er þrengt aö búsetu þeirra norðan heimskautsbaugs. SER tók saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.