Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Síða 35
DV. FIMMTUDAGUR11. NOVEMBER1982
35
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Guðmundur Ing
ólfsson með
nýja plötu
—fersenní
hljómleikaferð
Guömundur Ingólfsson jass-pían-
isti hefur sent frá sér sína fyrstu
sóló-plötu, Nafnakall.
Blaðamaður DV sló á þráðinn til
Guðmundar og spjallaöi við hann um
nýju plötuna og jasslífið aimennt.
„Já, þetta er fyrsta sólóplatan mín
og að sjálfsögðu er þetta jassplata.
Það eru 10 titlar á henni, lögin eru að
hluta frumsamin en einnig á Björn
Thoroddsen 3 lög og eitt lagið, þrjá-
tíu sekúndna lag, er frumburöur okk-
ar Guömundar Steingrímssonar.
Þeir Guðmundur og Bjöm koma
raunar mjög við sögu á plötunni.
Guðmundur leikur á trommur á plöt-
unni og Björn leikur á gítar í þremur
lögum, en auk þeirra er Pálmi Gunn-
arsson með á bassa. Lögin eru alls
konar blúsar, fjúsjón skýtur upp
kollinum og svo einnig latín-ívaf. Eg
spila sjálfur á píanó og rafmagnað
píanó í einu lagi og svo gríp ég í nikk-
• una í tveimur lögum.”
— Hefurðu gengið með sólóplötu
lengi í maganum?
„Það er auövitað draumur allra að
gefa út plötu. En ég skellti mér i að
taka upp plötu í júní í sumar í stúdiói
Nema fyrir austan og við Svavar
Gests gef um hana saman út.”
— Hvaðhefurðuspilaöjasslengi?
,,Ég hef verið með mjög lengi!”
segir Guðmundur og hlær. ,^Allt frá
því ég var sextán ára og er nú orðinn
fjörutíu og þriggja.”
— Nú eru yngri menn búnir að
vera að gefa út plötur sem má flokka
undir jass, upp á síökastið, hvemig
listþéráþá?
„Mjög vel. Eg verð að segja að
þessi jass-þróun hefur verið mjög
hagstæð. Ög það einmitt að ungir
menn séu að koma með nýjar jass-
stefnur er mjög gott. Jassinnhefur
alltaf þróast mjög mikið og breytt
um stíl og stefnu og ef það gerðist
ekki hjakkaöi allt í sama farinu.
Þess vegna hef ég ekkert nema gott
umþaðaösegja.”
— En nú er Jazzvakning í miklum
kröggum. Helduröu að það hafi ekki
slæm áhrif á jasslifið?
„Tapið var náttúrlega mjög mikið
og ferlegt fyrir fjárvana fyrirtæki
eins og Jazzvakningu. En meiningin
er hjá íslenskum jass-tónlistarmönn-
um að gera sitt til að bjarga Jazz-
vákningu með því að halda tónleika
til styrktar henni.”
— Þú hefur verið að spila í Naust-
inu upp á síðkastiö, en hvað tekur nú
viðhjá þér?
„Ja, ég fer í smáfri frá Naustinu
og þeir Jónas Þórir, Graham Smith
og Bjarni bassaleikari ætla að leysa
mig af um stund. Við Pálmi, Viðar
Alfreðsson og Guðmundur Stein-
grímsson erum nefnilega á leiðinni i
tónleikaferð til Luxemborgar. Við
verðum þar á Cock-pit Inn og í jass-
klúbb þar í borg, auk þess sem við
tökum upp þætti fyrir útvarp og sjón-
varpíLuxemborg.” ás
lli
Niðjamót í
Grundarfirði
— afkomendur Páls Brekkmans Einarssonar koma saman
Frá Bæring CecUssyni, fréttaritara frá fæðingu Hjörtfríðar Kristinar Brekkman Einarssonar. Páll fæddist
DV í Grundarfirði: Haraldsdóttur. 1825 en Kristín 14. október 1882. Páll
Grundfiröíngar héldu á dögunum Var þetta gert með þeim hætti að Brekkman bjó lengst af í Suðurbúð í
upp á að 100 ár eru liðin á þessu ári halda niðjamót allra niðja Páls Eyrarsveit. B.C.
Auglýsingastofur
með sameiginlega
árshátíð
Auglýsingastofur héldu sameigin-
lega árshátíð í Átthagasal Hótel Sögu á
dögunum. Var mikið f jör eins og búast
mátti við. Ullen dúllen doff flokkurinn
sá um skemmtiatriði.
Einar Olason, ljósmyndari DV, var á
staðnum með myndavélina. Er ekki
annað að sjá en að þaö fari vel á meö
þeim Ragnheiði Gústafsdóttur hjá
Auglýsingastofu Olafs Stephensen,
Páli Stefánssyni, auglýsingastjóra DV,
Hildigunni Olafsdóttur hjá Argus og
önnu Guðnadóttur.