Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1983, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1983, Side 6
22 DV FÖSTUDAGUR 7. JANUAR1983. Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina TÖFRAFLAUTAN AFTUR Á FJALIRNAR í KVÖLD — ársafmæli íslensku óperunnar á sunnudaginn Nú aö loknu jólahléi eru hafnar aö nýju sýningar Islensku óper- unnar á Töfraflautunni eftir Mozart. Hefur hún nú veriö sýnd tuttugu sinnum viö ágæta aðsókn. Sýningar á Töfraflautunni nú um helgina veröa sem hér segir: föstudag 7. janúar kl. 20, laugardag 8. janúar kl. 20, sunnudag 9. janúar kl. 20. Fyrirhugaö er að halda áfram sýningum fram í miöjan febrúar en þá veröur frumsýnd ný ópera á sviöinu í Gamla bíói. Þaö er því ástæða til að hvetja fólk, sem hug hefur á aö sjá Töfraflautuna, aö dríf a sig sem f yrst. Hrönn Hafliðadóttir tekur nú í kvöld við hlutverki einnar af hirð- meyjum Næturdrottningarinnar sem Anna Júlíana Sveinsdóttir hefurhafttil þessa. Þess má einnig geta aö sunnu- daginn 9. janúar er eitt ár liðið frá því að Sígaunabaróninn var frum- sýndur í Gamla bíói og þar með eitt ár frá því aö bíóið var formlega tekiö í notkun sem óperuhús. Islenska óperan mun í tilefni þessa standa fyrir veitingum í hléi á sýningunni sunnudaginn 9. janúar. -PÁ. helgarblað 56 síður á morgun ALLT UM SNJÓFLÓÐA- HÖRMUNGAR ÍSLENDINGA Helgarviðtalið við Harald Kröyer sendi- herra íslands í Moskvu. „Rómantíkin er farin". Rætt við Sigurveigu í Garði um kristinn sið og kvennahreyfingu. • Hverfisgata í myndsjá liðins tíma. • DV kynnir West Bromwich Albion. Leikfélag Akureyrar sýnir leikritið Siggi var úti eftir Signýju Páls- dóttur, tónlist eftir Ásgeir Jónasson, laugar- daginn 8. janúar kl. 15.00 og sunnudaginn 9. janúar kl. 15.00. Er þetta leikrit fyrir alla krakka á öllum aldri. Miðasala opin frá kl. 13.00. Miöapantanir í síma 24073. Allra síðustu sýningar á Jóa, Hassið og Skilnaður halda áf ram 1 kvöld (föstudagskvöld) er 5. sýning á For- setaheimsókninni, hinum nýja gamanleik Leikfélagsins, sem frumsýndur var milli jóla og nýárs. Höfundar eru Rego og Bruneau en verkið fjallar á gamansaman hátt um um- stang það sem verður á venjulegu heimili þegar von er á forsetanum í heimsókn. Þýð- andi er Þórarinn Eldjárn, leikmynd og búningá gerir ívan Török og leikstjóri er Stefán Baldursson. i helstu hlutverkum eru Kjartan Ragnarsson, Sigríður Hagalin, Soffia Jakobsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Guð- mundur Pálsson, Gisll HaUdórsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Hanna Maria Karls- dóttir. Annaö kvöld hefjast að nýju sýningar á hinu vinsæla leikriti Kjartans Ragnarsson, Skilnaði, sem sýnt hef ur verið fyrir fuUu húsi í allan vetur. Þar fara með hlutverk: Guðrún Ásmundsdóttir, Jón Hjartarson, Soffia Jakobsdóttir, Valgerður Dan, Aðalsteinn Bergdal og Sigrún Edda Björnsdóttir. Höf- undur er sjálfur leikstjóri, leUanynd og bún- inga gerir Steinþór Sigurðsson. Annað kvöld er svo fyrsta miðnætursýning eftir jól á ítalska gamanleiknum Hassinu hennar mömmu eftir Dario Fo, sem notið hef- ur fádæma vinsælda og verið sýndur fyrir fuUu Áusturbæjarbíói um helgar siðan i haust. Það er Jón Sigurbjörnsson, sem er leik- stjóri, leikmynd og búninga gerir Jón Þóris- son en í stærstu hlutverkum eru: Margrét Olafsdóttir, GisU HaUdórsson, Kjartan Ragnarsson, EmU G. Guðmundsson, Aðal- steinn Bergdal, Guðmundur Pálsson og Ragn- heiður Steindórsdóttir. Miðasala á Hassið er í Austurbæjarbíói en sýningin hefst á laugar- dagskvöld kl. 23.30. Á sunnudagskvöld er 112. sýning á leikriti Kjartans Ragnarssonar, Jóa, en verkið var frumsýnt haustiö 1981 og hefur síöan verið sýnt við frábærar viðtökur leikhúsgeta í Iðnó auk þess sem farið var með þaö í leikferð um Noröur- og Vesturland í sumar. 1 verkinu seg- ir frá ungum hjónum, Lóu og Dóra, hún er sál- fræðingur, hann myndlistarmaöur og vanda þeim sem þau standa frammi fyrir þegar móðir Lóu deyr og einhver verður að taka að sér andlega þroskaheftan bróður Lóu, Jóa. Leikritið og sýningin hafa vakið athygh bæði vegna efnisins svo og afbragðsgóörar frammistöðu leikenda en í stærstu hlutverk- um eru Sigurður Karlsson, Hanna María Karisdóttir og Jóhann Sigurðsson, sem leika þau Dóra, Lóu og Jóa. Ennfremur eru í sýningunni stór hlutverk ieikin af Guðmundi Pálssyni, Þorsteini Gunnarssyni, Elfu Gísla- dóttur og Jóni Hjartarsyni. Kjartan er leik- stjóri en leikmynd og búningar eru eftir Stein- þór Sigurðsson. Stúdentaleikhúsið tekur upp þráðinn Vegna fjölda áskorana verða aukasýningar á leikritinu Bent eftir Martin Sherman í Tjamarbíói þriöjudaginn 11. janúar og föstu- daginn 14. janúarkl. 21.00 bæði kvöldin. Leikritið hefur hlotið mjög góða dóma hjá gagnrýnendum og öðrum áhorfendum. Rúnar Guðbrandsson þýddi verkið en leikstjóri er ÖV DV DV DV Inga Bjamason. Með aðalhlutverk fara Andrés Sigurvinsson, Magnús Ragnarsson, Ami Pétursson og Þórarinn Eyfjörð, Karl Aspelund sá um leikmynd og búninga en framkvæmdastjórn er í höndum Guðbjargar Guðmundsdóttur. Miðasaia er í Tjamarbíói báöa sýningardag- ana frá 17.00 til 21.00, simi 37860. Nánari upplýsingar eru veittar í sima 13757 alla daga. DV DV DV DV V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.