Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Síða 2
2
DV. LAUGARDAGUR 5. MARS1983.
Hvrnö gerðbst efSuðurlmulsskjálftinnriði yfirlandið?
Btíust tftfi við hörniu-
legum afleiðingum!
— meginhliiti inaniivirkjsi á Su dur landsundir lendinu stórlaskadist eda eydilegdist
— ýmsar byggingar ú höf udborgarsvædinu skemmdust líklega og spryngju illa.
Fullvíst má telja að mjög harður
jarðskjálfti ríði yfir Suðurland ein-
hvern tima á næstu árum — þess
vegna á morgun. Bergið undir þessu
landsvæði er að safna í sig orku, og
það hefur það verið að gera óvenju-
lengi. Eftir því sem tíminn líður og
orkan brýst ekki út þeim mun sterk-
ari skjálfta má vænta. Sjötíu og eitt
ár er liðið frá því síðustu jarð-
hræringar urðu á Suðurlandi og átta-
tíu og sjö eru liðin frá síðasta stóra
Suðurlandsskjálftanum 1896. Nær
öruggt er því að næsti skjálfti verði
mjög stór og hafi geigvænleg áhrif á
byggð og íbúa. Vafalítið verður hann
ekki undir sjö að stærð á Richters-
kvarða og áhrif hans verða eyðandi.
Hvaöa áhrif getur næstu Suður-
landsskjálfti haft fyrir þéttbýlis-
kjama og önnur mannvirki Suður-
landsundirlendis og mun hann raska
byggö á höfuðborgarsvæðinu? Þess-
ari stóru spurningu verður reynt að
svara hér á eftir.
Áhrifjarðskjálfta metin
Fyrst er að átta sig á hvernig áhrif
skjálfta á byggð og íbúa eru metin.
Líkt og í veðurfræði, þar sem
veðurhæð er flokkuð niður í tólf stig
eftir áhrifum vindsins á land og haf,
eru áhrif jarðskjálfta á land og fólk
einnig flokkuð í tólf stig. Þar sem
áhrifin dvína með fjarlægð frá upp-
tökum getur sami skjálftinn fengið
mismunandi stigagjöf eftir því hve
langt frá upptökunum stigin eru
metin. Þessi kvarði á því ekkert
skylt við mat á stærð skjálftans eða
orku hans (samanber Richters--
kvarðann sem það mælir), þótt þess-
um hugtökum — áhrifum og stærð —
sé oftlega ruglað saman í fréttum af
skjálftum. Nú er almennt notaður
áhrifakvarði kenndur við Mercalli.
Kvarðinn er auðkenndur með róm-
verskum tölum. XII stig eru mestu
áhrifin sem skjálfti getur haft í för
meö sér. Þau eru gereyðandi. XI stig
eru mjög eyðandi, öll hlaðin steinhús
hrynja viö upptök skjálftans og jám-
bent hús verða illa útleikin. Þannig
heldur vægi Mercallikvarðans áfram
niður á við. Við III stig eru áhrifin
orðin mjög hverfandi.
Richterskvarðinn, sem kenndur er
við skjálftafræðinginn Charles F.
Richter, mælir hins vegar aöeins
stærð skjálfta þar sem þeir eiga upp-
tök sín. Richterskvarðinn segir okk-
ur aðeins hversu mikil orka leysist
þar úr læðingi en ekkert um það hver
áhrif hans verða á land, byggð og
fólk. Mjög mikilvægt er því að rugla
þessum tveimur kvörðum ekki sam-
an. \
Næsti skjáifti ekki
undir 7,5 á Richter!
Samkvæmt áliti þeirra sem þekkja
til hegðunar Suðurlandsskjálftans er
líklegast að næsti skjálfti verði líkur
að stærð, hafi svipuð áhrif og eigi
sömu upptök og landskjálftinn 1784,
en hann er líklega mesti og hrikaleg-
asti jarðskjálftinn sem dunið hefur
yfir Suðurland til þessa. Stærð þessa
skjálfta var 7,5 á Richterskvarða og
viö upptök hans í Holtum við Þjórsá
mældust áhrifin XI á Mercalli-
kvarða. Þeir hinir sömu og segja
þetta álíta að jaröskjálftahrina fylgi
í kjölfar þessa skjálfta. Annar jarð-
skjálfti komi nokkrum vikum,
mánuðum eða ári síðar og eigi
upptök sín mun vestar en hinn fyrri,
til dæmis í ölfusi. Og þá má fólk á
höfuðborgarsvæðinu fara að vara
sig!
Suðurlandi hefur verið skipt niöur í
áhrifasvæði. Á uppdrættinum, sem
fylgir þessari grein, sjást greiniiega
þau svæði sem eru innan hvers
áhrifasvæðis um sig. Þannig sést að
Selfoss er innan þess svæðis sem
hætt er við áhrifum allt að X á
Mercallikvarða, og svo framvegis.
(Skoðið uppdráttinn vandlega!)
Nú verður fjallað um byggð á þeim
svæðum sem gætu orðið fyrir mestu
hugsanlegum áhrifum og þar með
mestu tjóni af völdum væntanlegs
Suðurlandsskjálfta. Þetta er sú
byggö sem er innan áhrifasvæðis IX,
X og XI. Síöan verður rætt um
hugsanlegar afleiöingar þessara
áhrifa á byggð og atvinnu. Loks hver
röskunin verði á byggö á höfuð-
borgarsvæðinu, ef hún verður ein-
hver.
Tíu þúsund manns
innan svæðisþar
sem áhrifin verða
mjöghörð
Fyrst lítum við á þaö svæði sem er
innan áhrifasvæöis IX. Mercalli-
kvarðinn segir okkur að áhrif skjálft-
ans á því svæði verði mjög hörð; um
helmingur hlaðinna steinhúsa eyði-
leggist og sum hrynji til grunna, en
flest verði ónothæf til íbúöar. Járn-
bent steinhús skemmist líklega nokk-
uð. J arðleiðslur slitni.
Innan áhrifasvæðis IX búa um
þessar mundir rúmlega tíu þúsund
manns og þar liggja eftirtaldir þétt-
býliskjamar: Hveragerði, Seifoss,
Laugarás — Skálholt, Flúðir, Hella
— Rauðilækur og Hvolsvöllur. Af
hringvéginum (þjóövegi eitt) liggja
um sextiu og níu kílómetrar innan
þessa áhrifabeltis og þessar helstu
brýr: ölfusárbrú, Sogsbrú, IÖubrú,
Þjórsárbrú, brúin yfir Ytri-Rangá og
brúin yfir Eystri-Rangá.
Á áhrifasvæði IX er einnig Búr-
fellsvirkjun og Sogsvirkjanimar
liggja við norðurmörk þess. Þar að
auki má nefna tengivirki við Hvols-
völl fyrir raforku til Vestmannaeyja
og austur um Suðuriand, ásamt með
öllum aðaldreifilínum fyrir raforku-
kerfiö frá Hellisheiði aö Kirkju-
bæjarklaustri.
Af Búrfeilsiinu I liggja um fimmtíu
og sjö kílómetrar innan þessa áhrifa-
beltis eða um hundrað og fjörutíu
möstur og af Búrfellslínu n áttatíu
kílómetrar eöa um tvö hundmð
möstur.
Megin tengi- og dreifistöövar fyrir
simakerfiö á Suðurlandi eru á Sel-
fossi og Hvolsvelli og þar með innan
beltisins.
Búrfel/slínurnar,
fjórðungssjúkrahúsið
og mjólkurbúið
gætu hruniðl
Þá skulum við kanna það svæði
sem liggur innan áhrifabeltis X.
Mercallikvarðinn segir okkur að um
þrír fjóröu allra hlaöinna steinhúsa
eyðileggist af völdum skjálfta á því
svæði, flest þeirra hrynji til grunna.
Vel byggð timburhús og brýr stór-
skemmist og einstaka eyöileggist.
Járnbent steinhús skemmist töluvert
og þau verst byggðu mikið. Stíflu- og
flóðgarðar verði fyrir miklum
skemmdum. Leiöslur í jörðu rifni í
sundur og skekkist. Sprungur komi í
malbikaðar götur. Mikil skriðuföll og
grjóthrun úr fjöllum. Yfirborð á
lausum sandi breytist allmikið. I ám
og vötnum myndist öldur sem gangi
á land.
Innan áhrifasvæðis X búa um þess-
ar mundir rúmlega fimm þúsund
manns, þar af langflestir á Selfossi.
Af hringveginum (þjóðvegi eitt)
liggja um þrjátíu og níu kílómetrar
innan þessa áhrifabeltis og þar af
ölfusárbrú, Sogsbrú og Þjórsárbrú,
auk annarra mikilvægra samgöngu-
æða.
Innan áhrifasvæðis X eru einnig
um þrjátíu og tveir kílómetrar af
Búrfellslínu I eða um áttatíu möstur
og af Búrfeilsvirkjun H um sextíu og
sjö kílómetrar og um hundrað og
sjötíu háspennumöstur auk fjöl-
margra dreifilína.
Á Selfossi eru aðaltengistöð sím-
ans á Suðurlandi og Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Suðurlandi, þar er
einnig mjólkurvinnslustöö Suður-
landsundirlendis.
Þá munu öllhlaðin
steinhús hrynja
Loks skulum viö athuga það svæði
sem liggur innan áhrifabeltis XI, og
að öllum líkindum fer verst út úr
næsta Suðurlandsskjálfta ef honum
svipar til landskjálftans 1784, eins
og þeir sem til þekkja vilja halda.
Mercallikvarðinn segir að þessi
skjálfti verði mjög eyðileggjandi. öll
hlaðin steinhús hrynji. Einstaka vel
byggð timburhús standi lítiö
skemmd. Jámbent steinhús springi
og skemmist allmikið. Best byggðu
brýr stórskemmist, stöplar brotni
sundur og svo framvegis, verr
byggðu brýmar hrynji hins vegar
gjörsamlega. Stífiu- og flóðgarðar
springi og stórskemmist. Jarðleiðsl-
ur eyðileggist. Oft sjáist miklar
breytingar á yfirborði jarðar, mikii
skriðuföll og grjóthmn.
Innan þessa svæðis búa nú um það
bil sex hundmð manns og allir í
dreifbýli. Engar mikilvægar brýr
liggja innan svæðisins en þó er
Þjórsárbrú í útjaðri þess. Engin raf-
orkuver og tengivirki eru inni á
þessu svæði en um það bil tuttugu og
fjórir kílómetrar af Búrfellsvirkjun
II eða um sextíu háspennumöstur
liggja innan svæðisins.
Mat á hugsanlegu
manntjóni og slysum
Eins og heimildir bera með sér
(sjá sögu skjálftanna í sérgrein)
verða skjálftar á Suðurlandi ýmist
stakir eöa í hrinum með nokkurra
stunda eða daga bili. Milli stakra
skjálfta líða stundum fá ár og mætti
jafnvel líta svo á aö tengsl séu á riiilli
þeirra. Víðtækastar verða afleiðing-
ar þegar hrina byrjar með mjög stór-
um skjálftum í Rangárvallasýslu en
nokkru minni skjálftar fylgja í
Árnessýslu nokkmm dögum eöa vik-
um síðar. Það er einmitt það
skjálftamynstur sem fræðingar telja
líklegt að næsti Suðurlandsskjálfti
hegðiséreftir.
Mat á hugsanlegu manntjóni og
slysum er mjög erfitt. Af reynslu
sem fengist hefur í landskjálftum
erlendis er þó vitaö að fjórir þættir
ráða mestu um manntjóns- og slysa-
hættu, auk stærðar skjálftans. Þessir
þættir era:
1. Styrkleikiogtegundmannvirkis.
2. Landslag, umhverfi og jarðlög.
Áhrif landskjálfta á land, byggingar
og fólk eru metin samkvæmt svonefnd-
um Mercalli kvarða. Honum svipar til
vindstiga í veðurfræði, stigin eru tólf,
en ólíkt vindstigum auðkennd með
rómverskum tölum.
í heimildum um Suðurlandsskjólfta
er að finna lýsíngar á áhrifum skjálft-
anna á fóik og hvernig þeir léku jörð,
byltu um jarðvegi, mynduðu gjár og
sprungur og oUu skriðuföUum. Þessar
lýsingar er auðveldara að feUa að Mer-
caUi kvarða. Uppdrátturinn hér að of-
an sýnir bróðabirgðaniðurstöður slíks
mats. Dregnar eru línur um svæði, sem
gætu að hluta orðið fyrir mestu
(verstu) hugsanlegu áhrifum — IX, X
eða XI — í skjálfta samkvæmt reynslu
síðustu þrjú hundruð ára. Athuga skal
að þessi áhrif verða aldrei samtímis á
öUu svæðinu heldur í hvert sinn mest á
þeim hluta hvers svæðis sem næstur er
upptökum skjálftans.
A uppdrættinum sést að stærsti og
fjölmennasti kaupstaður Suðurlands,
Selfoss, liggur innan áhrifasvæðis XI,
sem MercalU kvarðinn segir okkur aö
séu mjög eyðandi áhrif. HeUa, Hvera-
gerði, HvolsvöUur og BúrfeUsvirkjun
liggja innan áhrifabeltis IX og svo
framvegis.