Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Blaðsíða 13
12 DV. LAUGARDAGUR 5. MARS1983. DV. LAUGARDAGUR 5. MARS1983. 13 mm 'e wJlí vM/ MWMMjMmRM/MM/MM/ Mm( ■ y-1 ? y' ' *mm% fcv; ®s? /a^ wr 1 ; ’ f ' y; l: ,;jí ,“■: ! //, ... 'U?\Jr :■.& ■•ú ■■ <■..> Gamla höfnin þar sem þrœlaverslunin blómstraði alveg fram á 18., 19. öld. „Ég rakst á gamlan mann hér á götir um daginn og hann spuröi mig hvaö ég væri að fást við núna. Ég sagði honum að ég væri héma heima í stuttu leyfi, en annars stjómaði ég hafnarfram- k væmdum í Sómaliu. Sá gamli sló sér á lær og sagði: Ja, hérna, ég man nú þá tíð að erlendir verktakar vom fengnir hingaö til lands til að stjóma, ef ein- hverjar stórar framkvæmdir átti að gera hérlendis, en nú era íslenskir verktakar orðnir útflutningsvara hjá okkur!” Það er Olafur Gislason sem þetta segir, verkfræöingur er starfar á veg- um Istaks og E.Phil & Sön, dansks verktakafyrirtækis, í Sómaliu. Og sá gamli, sem vitnað er í hér aö framan, hefur aldeilis lög að mæla. Til skamms tíma, reyndar alveg fram yfir seinna strið, þurfti að sækja allan tæknibúnaö og verkmenningu til útlanda, en nú er öldin önnur... „Miklir möguleikar á að hækka „lifistandardinn" Sómalia liggur í Norðaustur-Afríku rétt við miðbaug. Þar búa hátt í fimm milljónir manna. Höfuðborgin heitir Mogadishu og þar búa um sjö hundrað þúsund manns. 1 Sómalíu er svokallað temprað loftslag. Hitinn er um 30 til 32 stig að meðaltali á daginn en f er niður í 22—24 á nóttunni. „Þama er alltaf hafgola,” segir Ölafur, „og því verður eldtí heitara en þetta þótt landið liggi rétt við miö- baug. Og maður er fljótur að aölagast þessu loftslagi, því ef ég kem út á morgnana og hitinn er ekki „nema” 22 stig finnst mér bara ansi kalt! ” Sómalir tala sómalísku en læra bæði ensku og arabisku í skólum. „Sómalir eru að eðlisfari afskaplega vinsamlegt fólk,” heldur Olafur áfram. „Þeir eru svo lausir við alla út- lendingahræðslu. Þeir eru ekkert að afsaka sig fyrir að vera til- Þetta er stolt fólk. Það er hávaxið og ber sig veL Upphaflega eru þeir hirðingjar. Flestir þeirra starfa við landbúnað, á hiröingjavísu. Þeir ganga um meö hjarðir sínar og eru sýknt og heilagt að flytja sig um set. En Sómalía er vel fallin til akuryrkju, auk þess eru rík fiskimið skammt undan ströndum landsins og því eru miklir möguleikar fyrir þá að hækka „lifistandardinn” með því að fara aö stunda þessar atvinnugreinar. Það er mikill áhugi bæði hjá Alþjóðabankanum og öðram hjálparstofnunum að veita þeim þróunaraðstoð tii þessa. En svo gagn- gerar breytingar á atvinnuháttum gerast ekki á einni nóttu. Þar þarf minnst eina kynslóð til að breyta ein- hverju þar um. Og eins og er, held ég, að innfæddum þyki lítið spennandi að fara allt í einu aö setjast aö á einum staðoghætta flakkinu.” — Er þá verið að reyna að breyta lifnaðarháttum þeirra og „hækka lifi- standardinn” án þeirra samþykkis? „Nei, ekki er það nú. Það er mikill áhugi hjá yfirvöldum á þessu og þetta er jú það sem koma skal. Því ekki aö nýta það sem til er? ” „Lrfsgæðakapphlaupinu er ekki fyrir að fara" — Hvernig búa Sómalir? „Flestir búa í leir- og strákofum, þeir gera nú ekki meiri kröfur. Hins vegar era þetta nægilega góð húsa- kynni. Þarna er enginn regntími eða annaö sem raskar náttúrunni. Annars búa embættismenn og aðrir góöborg- arar í steinsteyptum húsum.” — Hvemig klæðast þeir? „Þeir vef ja um sig slæðum. Konum- ar eru vafðar frá öxlum og niður úr en karlarnir frá mitti. Og svo eru þeir berfættir í ilskóm.” — Nú era Sómalir múhameðstrúar. Eru þeir heittrúaðir? „Nei, þeir eru ekki heittrúaðir. Ég held þeir séu ósköp líkir okkur Islend- ingum hvað það snertir, nema náttúr- lega trúarbrögðin eru ólík. Þeir halda ýmsar „tradisjónir” í heiðri, sem okkur veitist erfitt að skil ja.’ ’ — Er mikil stéttaskipting rikjandi þarna? „Já, nokkur. Það er annars vegar sárafátækur almúginn og hins vegar fámenn borgarastétt, sem ekkert skortir.” —Hvað með skólagöngu? „Nýlega var lögleidd skólaskylda í Sómaliu og það virðist vera að valda mikilli breytingu, einkum virðist hún brúa bilið milli ríkra og fátækra. Skólaskyldan hjá þeim jafnast á við grunnskólann hér hjá okkur.” rættmð fflof GíslémmmwmrlkfræMmg §<B’m stiérmur intklum fmsmfo'væmdum í Sémulíu ‘í m * * Mb l ■ ví v mm. wm - - ; i 1 ■» Í I 1 I * ■ Unniö við grjótnám. Það eru Danir sem þarna eru með þeim innfæddu. Drífa Þórarinsdóttir og Inga Sif Ólafs- dóttir, 7 og 8 ára gamlar, fyrir utan heimili Ólafs ásamt starfsstúlku á heim- ilinu. „Innfæddir berja bumbur alveg óspart og þá er bara notað það sem hendi er næst. Hór erþað þvottabalil" — Búa þeir við skort af einhverju tagi? „ Ja, það er skortur á vissum hlutum. Þama era engar verslunarmiðstöðvar eða slíkt og verslanir, sem ekki era ýkja margar, era ekki merkilegar á vestræna visu. Veitingahús era nokkur en ekki fyrsta flokks, ef svo má segja, enda er þetta land í uppbyggingu. Eg held að viö Islendingar geram okkur ekki grein fyrir því hvað við höfum það gott. Þama er ekki lífsgæöakapphlaup- inufyriraðfara.” Sómalir una glaðir við sitt. —Hver er aöalf æða þessa f ólks? „Þeir borða mikið úlfaldakjöt og geitakjöt. Þeir drekka ekki vegna trúar sinnar, hins vegar tyggja þeir rótina af jurt einni, sem „cat” er köll- uð, en mér skilst aö þeir verði ekki ýkja hátt uppi af því! ” — Ekkert eiturlyfjavandamál? „Nei, ekkertslíkt.” — Hvað með þjófnaði eða gripdeild- ir.Erþaðtil? „Það er ekki algengt, reyndar mjög óalgengt. Sómalir eru einstaklega broshýrir og ánægðir að eðlisfari og allir una glaðir við sitt. Þar er hægt að ferðast einn að nóttu sem degi, hvar sem er, án þess að verða fyrir áreitni.” „íslendingar gætu kennt Sómölum sitthvað um fiskveiðar" — Svo við snúum okkur að verkefni þínuí Sómaliu...? „Já, ég hef verið þarna í tvö ár og er yfirmaður framkvæmdanna sem verið er að vinna að. Þær eru í Mogadishu og snúast um stækkun á aðalhöfninni. Þessum framkvæmdum er nú að ljúka, en við erum búnir að fá fleiri verkefni til að fást við, bæði stækkun á vatns- veitu fyrir borgina, svo og byggingu verslunarmiðstöðvar. Svo ég býst viö Dæmigerð götumynd úr miðbæ Mogadishu þar sem betriborgararbúa. bankanum og dönsku þróunarstofnun- innL Istak stendur ekki straum af nein- um kostnaði, leggur aðeins til nokkra starfsmenn. Það er starfssvið Istaks, enda er ekkert því til fyrirstöðu að flytja tæknikunnáttuna út, er það?” — Hvernig búið þið í Sómalíu? „Flestir okkar búa á lokuöum svæð- um, í minni íbúðum. Aðrir búa í ein- býlishúsum úti um borgina. Eg og fjöl- skylda mín búum í einu slíku.” — Hverig er með böm ykkar, ganga þau í sómalíska skóla ? „Nei, það væri ekki hægt. Það væri svo framandi fyrir þau. Hins vegar eru þau í sérstökum skólum. ” — Umgangist þið mikið þá innfæddu utanvinnutíma? „Ekki er það nú mikið en eitthvað þó. Þetta er svo allt önnur menning sem þeir búa við og þeir halda sig nokkuð út af fýrir sig.” Ólafur Gíslason. Næstá myndinnimá sjá pramma þann sem notaður er tilað dýpka höfnina. „Gæti ekki hugsað mér að setjast að í Sómalíu" — Hvað stingur mest í augu Islend- ings sem kemur til Sómalíu? „Ætli það séu ekki bara lifnaðar- hættirnir yfirleitt. Þeir eru svo allt öðruvísi en við eigum að venjast. Fólk- ið lifir svo einföldu lífi og kemst af með svo miklu minna en við getum gert okkur í hugarlund, en það stafar kannski öðru fremur af því hversu veðráttan er góð og stöðug.” — Er eitthvað í fari þeirra eða lifnaðarháttum, sem líkist okkur? „Já, kannski. Þeir eiga nefnilega mjög svipaðar „ljóðatradisjónir” og við. Það þykir sjálfsögö kurteisi, ef menn eru í boðum, að þakka fyrir sig á eftir í bundnu máli! ” — Gætirðu hugsað þér að setjast að fy rir fullt og allt í Sómalíu? „Ekki nema í stuttan tíma. Þótt Sómalir séu myndarlegir, vel gefnir og jákvæðir, þá er þjóöin svo f jarlæg okk- ur, einkum hvað viökemur menningu og trúarbrögðum. Þar rekumst við á erfiðleika, sem erfitt eða kannski ómögulegt er að yfirstíga,” sagði Ölaf- urGíslason. -KÞ að verða þarna af og til í um tvö ár í viðbót. Annars eru miklar vatnsveitu- framkvæmdir í Sómalíu einmitt núna og er það liöur í uppbyggingu landsins, því eins og ég sagði áöan er veriö að reyna að kenna Sómölum að nýta auðlindir sínar með akuryrkju og fisk- veiðum. Reyndar held ég að Islending- ar gætu kennt Sómölum heilmikið varðandi fiskveiðar. Hvaö varðar verslunarmiðstöðina, þá veröur hún sú fyrsta sinnar tegundar og meiningin er aö Sómalir byggi hana sjálfir að mestu. Hingað til hefur öll verslun Sómalíu farið fram á „eins konar bösuram”.” — Hvernig stóð á því aö þú fórst til starfa í Sómalíu? , JVú, það á langan aðdraganda. Eftir verkfræðinám hér í Háskólanum fór ég til framhaldsnáms í Danmörku. Árið 1974 hóf ég svo störf hjá Istak, en þeir hafa um nokkurt skeið starfað í nánu samstarfi við Phil & Sön. Saman buðu þessi fyrirtæki í stækkun á höfninni í Þorlákshöfn og fengu verkið. Þeim framkvæmdum lauk ’76 og þá var hafist handa um aö bjóða í fleiri slík verk víðs vegar um heim. Eitt þessara verkefna var höfnin í Mogadishu. ’ ’ — Þeir Islendingar sem störfuðu við höfnina í Þorlákshöfn, eru þeir þarna útilíka? „Já, sumir þeirra. Viö erum sjö Islendingar sem störfum í Sómalíu við höfnina, auk þess eru fimm, sex Englendingar, þrjátíu Danir og svo starfa hjá okkur um 250 Sómalíumenn. Þannig era um sex, sjö Sómalir í starfi hjá okkur á móti hverjum einum Vesturlandabúa. Þeir innfæddu eru mjög námfúsir og eiga auðvelt með að aölagast nútímatækni, enda eru flestir tækjamenn og bílstjórar okkar Sómal- ir.” „Alþjóðabankinn og danska þróunarstofnunin borga" — Hver fjármagnar svo þessar framkvæmdir? „Þetta er fjármagnað af Alþjóða- Innfædd stúlka. Hún er dæmigerð fyrir íbúa Sómalíu hvað útlit varðar. „Þetta er mjög myndarlegt fólk, laglegt og vel vaxið." O SANTA PONSA er sérlega fallegur baðstrandabær og einn allra eftirsóttasti dvalarstaðurinn á Mallorca. Þar er iðandi mannlíf, fjöldi verslana veitingastaða, skemmtistaða og frábærar baðstrendur. PÁSKA- FERÐ 30. MARS 2 VIKUR VERÐ FRÁ KR. 11.700,- JARDIN DEL SOL MIMFOLIES LUXUSVILLUR í SÓLSKINSPARADÍS Dvalið er í lúxusvillum (bungalows) eða ibúðum á einum fegursta og eftirsóttasta ferðamanna- staðnum á Mallorca, Puerto de Andrtaitx. í boði er gisting i glæsilegum villum og ibúðum. VERÐTRYGGING: Ef ferö er pöntuö og greidd aö fullu fyrir 15. mars 1983, fostum viö verö feröarinn- ar miöað viö þann dag. Viö veitum 5% staögreiösluafslátt eöa greiðslukjör sam- kvœmt nónari upplýsingum á skrifstofu okkar. er stórglæsilegt nýtt íbúðarhótel í Santa Ponsa, sem var opnað i júlí 1982. Allar íbúðir eru með svefn- herbergi, rúmgóðri stofu, baðherbergi, eldhúsi og svölum sem snúa að sjó. Glæsilegir veitingastaðir og setustofur. Mjög góð aðstaða til útivistar og sól- baða, stór sundlaug og Jardin del Sol stendur al- veg við sjóinn. MALLORCA - VERÐSKRÁ 1983 30,3 13/4 11/5 27/5 15/6,6/7 27/7,17/8,7/9 Páskaferð 2 vikur 4 vikur 17 dagar 19 dagar 22 dagar 22 dagar MINI FOLIES íbúð 1 svefnh. 4 í íbúd 11.700 11.700 11.900 15.200 15.400 15.500 3 í íbúd 12.200 12.200 12.900 16.900 16.800 17.100 2 í ibúd 12.800 12.800 13.900 18.500 18.900 19.100 Bungalow 1 svefnh. 4 í ibúd 13.900 13.900 13.900 16.200 16.700 16.900 3 í ibúð 14.600 14.600 14.600 17.200 17.600 17.800 2 i ibúð 16.200 16.200 16.200 18.700 19.200 19.700 JARDIN DELSOL íbúð 1 svefnh. 4 í íbúð 13.900 13.900 13.900 16.200 16.700 16.900 3 í íbúð 14.600 14.600 14.600 17.200 17.600 17.800 2 í íbúð 16.200 16.200 16.200 18.700 19.200 19.700 Verö 15. januar 1983. BARNAAFSLÁTTUR: 2-5 ára kr. 4.000,00, 6-11 ára kr. 3.000,00, 12-15 ára kr. 2.000,00. Simi 28633. Ferðaskrifstofan Laugavegi 66.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.