Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Blaðsíða 2
22
DV. MÁNUDAGUR18. APRIL1983.
Laus staða
hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg vill ráöa safnvörd til
Ásmundarsafns er sjái um daglega vörslu og
rekstur safnsins. Góðrar málakunnáttu ásamt
þekkingu og áhuga á höggmyndalist er krafist.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Upplýsingar veitir garöyrkjustjóri í síma 18000.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a.
frá menntun og starfsreynslu auk almennra
persónulegra upplýsinga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæö, fyrir
kl. 16.00 föstudaginn 22. apríl 1983.
Tilkynning
um lóðahreinsun í Reykjavík, vorið 1983
Samkvæmt ákvæöum heilbrigðisreglugeröar er lóðareig-
endum skylt aö halda lóöum sínum hreinum og þrifalegum og
aö sjá um aö lok séu á sorpílátum.
Umráðamenn lóða eru hér með minntir á aö flytja nú þegar
brott af lóðum sínum allt sem veldur óþrifnaði og óprýði og
hafa lokið því eigi síðar en 14. maí nk.
Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar skoöaðar og þar sem
hreinsun er ábótavant verður hún framkvæmd á kostnað og
ábyrgð húseigenda, án frekari viðvörunar.
Þeir sem kynnu að óska eftir sorptunnum og lokum, hreinsun
eða brottflutningi á rusli á sinn kostnað tilkynni það í síma
18000.
Eigendur og umráðamenn óskráðra, umhiröulausra
bílgarma, sem eru til óþrifnaöar á götum, bílastæðum, lóðum
og opnum svæðum í borginni, eru minntir á að fjarlægja þá hið
fyrsta. Búast má við að slíkir bílgarmar verði teknir til
geymslu um takmarkaöan tíma en síðan fluttir á sorphauga.
Urgang og rusl skal flytja á sorphauga við Gufunes á þeim
tíma sem hér segir:
Mánudaga—föstudaga kl. 08^-20
laugardaga ki. 08—18
sunnudaga kl. 10—18
Rusl, sem flutt er á sorphauga, skal vera í umbúðum eða
bundið.
Ekki má kveikja í rusli á sorphaugunum og hafa ber samráð
við starfsmennina um losun.
Sérstök athygli skal vakin á því að óheimilt er að flytja úrgang
á aðra staði í borgarlandinu. Verða þeir látnir sæta ábyrgð
sem gerast brotlegir í þeim efnum.
GATNAMÁLASTJÓRINN í REVKJAVÍK
HREINSUNARDEILD.
I Lengd 24 fet (2,4 tonn), smíöaár 1976, járnsleginn á stefni, kili og hæi.
■j Ryöfríir öx/ar. 3 rúllufestingar. Viðha/d sór/ega gott. AÖeins sumar-
■ notkun. Keyrslustundir innan viö 800.
■ V6I og gir: Yanmar Diesel, 12 hö, /okað kæ/ikerfi, alternator og startari.
■ Sjá/fvirk rafmagnslensidæla. Reimknúin lensismúldæla. Aukaskrúfa
I o.fí.
| TIL SÝNIS AÐ HJALLAVEGI 8, RVÍK,
EFTIR SAMKOMULAGI í SÍMA 37648.
| UPPLYSINGAR EINNIG í 74195 OG 81384.
TILBOÐ BERIST FYRIR SUNNUDAGS
| KVÖLD 24. Þ.M.
L—-..........-I
Sjóklár
Tilboð
óskast
(þróttir
(þróttir
Guðmundur
landsliðs-
þjálfarí
Guðmundur Þórðarson hefur veriö
ráðinn landsliðsþjálfari kvennaiands-
liösins í knattspymu, sem mun leika
fjóra landsleiki í Evrópukeppni lands-
liða í sumar — gegn Norðmöunum,
Finnum og Svíum.
Fyrsti landsleikurinn verður gegn
Noregi hér á landi 30. júlí. Fyrir lands-
leikina er fyrirhugað að landsliðið fari
í æfingabúðir til Færeyja.
-sos
Guðbjörn á
skotskónum
Guðbjöm Tryggvason tryggði
Skagamönnum sigur, 2—0, yfir Hauk-
um í litlu bikarkeppninni. Hann skor-
aði bæöi mörk Skagamanna í Hafnar-
firði.
Keflvíkingar lögöu Breiöablik aS~
velli í Kópavogi 1—0.
Kurt Niedermayer varð fyrir því óhappi að meiðast í leik.
Stórmeistarajafn-
tef li í Stuttgart
þegar Bayem Miinchen kom þangað í heimsókn
Frá Axel Axelssyni — fréttamanni DV
í V-Þýskalandi:
— Ásgeir Sigurvinsson og félagar
hans hjá Stuttgart gerðu jafntefli, 1—1,
gegn Bayera Miinchen í Stuttgart. Það
var varamarkvörðurinn Siegfried
Griiningen sem var hetja Stuttgart.
Hann varði glæsilega í sinum fyrsta
leik í Bundesligunni og var tvímæla-
laust maður leiksins. Eitt sinn varði
hann snilldarlega skot frá Reinold
Mathy, sem var kominn einn inn fyrir
vöm Stuttgart.
Það var svo Mathy sem skoraði
Maradona
skoraði
þrjú mörk
Leikmenn Real Madrid em nú komn-
ir með aðra höndina á spánska meist-
aratitilinn, þar sem þeir unnu Osasuna
2—1 í Madrid á sama tíma og Athletico
Bilbao vann Real Sociedad 2—0 í
Bilbao. Nú, þegar aðeins ein umferð er
eftir á Spáni, er Real Madrid með 49
stig en Bilbao með 48 stig.
Diego Maradona skoraði þrjú mörk
þegar Barcelona vann stórsigur 7—2
yfir Las Palmas. V-Þjóðverjinn Berad
Schuster skoraði tvö mörk.
-SOS
Finnarnáðu
jafntefli
íVarsjá
Finnar komu á óvart þegar þeir náðu
jafntefli 1—1 gegn Pólverjum í
Evrópukeppni landsliða í Varsjá. Pól-
verjar fengu óskabyrjun er Smolarek
skoraði úr vítaspyrnu á 2. mín. en
'síðan var pólski varaarleikmaðurinn
Janas fyrir því óhappi aö skora sjálfs-
mark. 60 þús. áhorfendur sáu leikinn.
Staðan er nú þessi í riðli tvö í EM:
Portúgal 2 2 0 0 4—1 4
Pólland 3 1115—53
Rússland 1 1 0 0 2—0 2
Finnland 4 0 1 3 3-8 1
mark Baýem á 43. roín. eftir góðan
undirijúníng Calle Del’Haye. Mathy
varð stuttu síðaí að eftirgefa völlinn
meiddur á hné og þárf að skera hann
upp viö brjósklosi.
Það yar svo varamaðurinn Erwin
Hadewicz sem jafnaöi fyrir Stuttgart
af 12 m færi án þess að belgíski lands-
liðsmaðurinn Pfaff gæti komið vömum
við. Pfaff lék að nýju eftir átta vikna
hvíld og varði hann mjög vel — t.d.
þrumuskot frá Asgeiri Sigurvinssyni
og Kurt Niedermayer, sem meiddist í
leiknum og verður að gangast undir
uppskurö þar sem liðbönd í hné slitn-
uöu.
Táningalið Borussia Mönchenglad-
bach náði jöfnu, 1—1, gegn Hamburger
SV. Það var Horst Hrubesch sem skor-
aöi fyrir Hamburger meö skalla á 84.
min. en landsliösmaöurinn Lothar
Matthaus jafnaði fyrir „Gladbach”
tveimur mín. seinna.
Atli skoraði
Atli Eðvaldsson skoraði fallegt mark
fyrir Fortuna Diisseldorf gegn Núm-
berg en það dugði skammt því aö leik-
menn Núrnberg voru búnir að skora
þrisvar áður en Atli skoraði.
Urslit urðu þessi í Bundesligunni.
Schalke — Karlsruhe 1-0
„Gladbach” — Hamburger 1—1
Stuttgart — Bayern 1-1
Hertha — Bochum 1-1
Köln — Frankfurt 2-2
Bremen — Braunschw. O 1 co
3-3
3-0
3-1
Dortmund — Leverkusen
Kaiserslautem — Bielefeld
Núrnberg — Dússeldorf
Bremen vann sinn stærsta sigur á
heimavelli í Bundesligunni. Það voru
þeir Uwe Reinders 2, Klaus Völler 2,
Thomas Schaaf og Volfgang Sidka sem
skoruöu mörkin.
Littbarski hélt upp á 23 ára afmælis-
daginn sinn með því að skora mark eft-
ir aðeins 5 mín. gegn Frankfurt og
Klaus Fischer bætti öðru marki við.
Það voru þeir Sziedat og Tohmas
Kroth, fyrrum leikmaöur Köln, sem
skoruðu mörk Frankfurt.
Dortmund var undir 0—3 í leikhléi
gegn Leverkusen en þeir Abramczik,
Keser og Klitz náðu aö jafna fyrir fé-
lagið í seinni hálf leiknum.
-Axel/-SOS
Aberdeen
í úrslit
Aberdeen tryggði sér rétt til að leika
til úrslita um skoska bikarinn þegar fé-
lagið lagði Celtic að velli 1—0 á
Hampden Park. Það var Peter Weir
sem skoraði sigurmarkið á 65. mín.
Aberdeen mætir Glasgow Rangers
eða St. Mirren, sem geröu jafntefli 1—1
á Celtic Park. Sandy Clarke skoraði
fyrir Rangers en Craig Paterson
jafnaöi fyrir St. Mirren — sendi knött-
inn í eigið mark.
-SOS
Feðgamir í
fremstu röð
Bretinn Mark James varð sigur-
vegari í fyrsta Evrópumóti ársins í
keppni atvinnumanna í golfi, sem
var í Túnis og lauk um helgina.
Mark James lék 72 holumar á
samtals 284 höggum, eða 2 höggum
undir pari. 1 öðru til fjórða sæti á
286 höggum voru þeir Tom Sieck-
mann, Bandaríkjunum, og skosku
^feðgamir Gordon Brand yngri og -aip-
Gordon Brand eldri.
Svíar, sem eiga orðið marga at-
vinnumenn í golfinu, áttu nokkra.
keppendur á þessu móti. Bestum
árangri þeirra náði Krister Kinell
en hann var á 292 höggum eins og
sigurvegarmn í Evróputúrnum fyr-
ir tveim árum, Vestur-Þjóðverjinn
Bemhard Langer.
-klp-