Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Side 2
20
Sjónvarp
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva íEvrópu
—sjónvarp á morgun kl. 19,00:
Evrópusöngvakeppnií
beinni útsendingu
—þátttakendur frá tuttugu löndum
Keppendur frá tuttugu löndum
taka þátt í söngvakeppni sjónvarps-
stööva í Evrópu á þessu ári. I fyrsta
skipti getum viö fylgst meö keppn-
inni í beinni útsendingu. Söngva-
keppnin hefst klukkan 19.00 og
veröur send út frá Miinchen í Þýska-
landi, hún stendur yfir í rúmlega
tvær og hálfa klukkustund.
Það verður Frakkinn Guy Bonnet
sem ríður á vaðiö og flytur fyrsta1
lagiö í keppninni, sem hann hefur
sjálfur samiö og nefnir Vivre. Næst
veröa Jahn Teigen og fjórar stúlkur
frá Noregi sem flytja lagiö Do-Re-
Mi. Jahn hefur meö aðstoð tveggja
aöila samiö bæöi lagið og textann.
Frá Bretlandi kemur fram grúppan
Sweet Dreams, þar flytja 6 manns
þriðja lagiö, I’m never giving up.
Carola Haeggkvist, sænsk 16 ára
gömul stúlka, syngur fjóröa lagiö
Fraemling. Ricardo Fogli kemur
fram fyrir hönd Itah'u og syngur
fimmta lagið, Per Lucia.
Tyrkir flytja sjötta lagið, Opera.
Þeir nefna sig Cetin Alp and The
Short Waves. Remedios Amaya frá
Spáni flytja sjöunda lagið, Quien
maneja mi barca. Mariella Farré frá
Sviss syngur áttunda lagið, Io cosí no
ci sto. Jassbailettdansarinn Ami
Aspelund frá Finnlandi syngur
niunda lagið, Fantasiaa. Christi
Stassinopoulou frá Grikklandi
syngur tíunda lagiö, Mou les.
Bemadette frá Hollandi flytur ell-
efta lagiö, Sing me a Song. Danijel
Popovic frá Júgóslavíu syngur 12.'
lagiö, Julie.
Stavros og Constantina frá Kýpur •
flytja þrettánda lagiö, I Agapi
akoma zi (Ástin lifir enn). Hoffmann
og Hoffmann koma fram frá Þýska- ■
landi, fjórtánda lagiö heitir Rueck-'
sicht. Fimmtánda lagið, Kloden j
Drejer, syngur 18 ára gömul stúlka,
Gry Johansen frá Danmörku. Fimm
Þátttakendur i söngvakeppni sjónvarpsstöðva i Evrópu koma frá tutt-
ugu löndum til Munchen þar sem keppnin fer fram á morgun. Á mynd-
inni eru keppendur frá Noregi, Jahn Teigen, Anita Skorgan, Karimette
Aamodt, Siri Lenning Froemyhr og Nina Bayer, sem flytja lagið Do-Re-
Mi.
síðustu lögin í keppninni eru Hi frá
Israel, flutt af Ofra Haza, Esta
Balada que te dou frá Portúgal, flutt
af Armandó Gama og kór, Hurricane
frá Austurríki, flutt af Westend, og
næstsíðasta lagið er frá Belgíu,
Rendez-vous, flutt af Pas de Deux.
Corinne Hermes frá Luxemburg slær
botninn í keppnina meö laginu Si ia
vie est cadeau. -RR
Fjölskyldufaðirínn nefnist bandarísk biómynd um miðaldra heimilisföður
sem heldur fram hjá konu sinni. Myndin hefst klukkan 22.30 föstudags-
kvöldið 29. april
verk: Jack Lemmon, Walter
Matthau, Susan Sarandon, David
Wayne og Carol Burnett. Frétta-
ritari viö dagblaö í Chicago segir
upp erilsömu starfi vegna þess aö
hann ætlar aö kvænast. Honumi
reynist þó erfitt aö slíta sig lausan,
því aö ritstjórinn vill ekki sleppa
honum og mikilvægt mál reynist
flókið úrlausnar. Þýöandi
Kristmann Eiösson.
Sunnudagur
1. maí
18.00 Sunnudagshugvekja. Skúli
Svavarsson kristinboöi flytur.
18.10 Bjargið. Ný kvikmynd
íslenska sjónvarpsins í norrænum
barnamyndaflokki. Myndin gerist
í Grímsey að vori til og er umj
nokkur börn sem fá að fara í fyrsta
skipti í eggjaferð út á bjargið.
Leikendur: Hulda Gylfadóttir,
Þóra Þorleifsdóttir, Svavar Gylfa-
son, Konráö Gylfason og Bjarni
Gylfason. Kvikmyndun: Baldur
Hrafnkell Jónsson. Hljóö: Sverrir
Kr. Bjarnason. Þulur: Hallgrimur
Thorsteinsson. Umsjón og stjórn:
Elín Þóra Friðfinnsdóttir.
18.30- Dagiegt líf í Dúfubæ. Breskur
brúöumyndaflokkur. Þýöandi
Öskar Ingimarsson. Sögumaöur
Sigrún Edda Björnsdóttir.
18.44 Palli póstur. Breskur brúðu-
myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir. Sögumaöur Siguröur
Skúlason. Söngvari Magnús Þór
Sigmundsson.
19.00 Sú kemur tíð. Franskur teikni-
myndaflokkur um geimferöaævin-
týri. Þýöandi Guöni Kolbeinsson,
þulur ásamt honum Lilja Berg-’
steinsdóttir.
19.25 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku. Um-
sjónarmaöur Magnús Bjarnfreðs-
son.
20.55 Stiklur. 10 þáttur. Fámennt í
fagurri sveit. Byggöir, sem
fyrrum voru blómlegar við Breiða-
fjörö, eiga nú í vök aö verjast og
allstór eyöibyggö hefur myndast í
Baröastrandarsýslu. I þessum
þætti er fariö mn Gufudalssveit.
Þar er byggö aö leggjast niöur í
Kollafirði og síðasti bóndinn flytur
úr firöinum í ár. Myndataka:
Helgi Sveinbjörnsson. Hljóö:
Agnar Einarsson. Umsjónar-
maöur: Omar Raenarsson.
„ 21.35 Ættaróöaliö. Sjötti þáttur.
Breskur framhaldsflokkur í ellefu
þáttum gerður eftir skáldsögu
Evelyns Waugh. Efni fimmta
þáttar: Charles dvelur á Brides-
head um áramótin 1925. Sebastian
og Samgrass eru þar fyrir,
nýkomnir frá Austurlöndum nær.
Lafði Marchmain gérir ráöstaf-
anir til aö halda yngri syni sínum
frá drykkju. Sebastian býöst tæki-
færi til aö sneiða hjá boði móöur
sinnar þegar safnast er til refa-
veiöa. Þýðandi Oskar Ingimars-
son.
22.25 Placido Domingo. Spænskur
tónlistarþáttur. Þýðandi Sonja
Diego.
23.30 Dagskrárlok.
DV. FÖSTUDAGUR 22. APRIL1983.
YTnrwYwmwwwYwm’Yi
Kvikmyndir
Kvikmyndir
HÁSKÓLABÍÓ:
HÚSIÐ
Islendingar eru mystískir og áhugi þeirra á hinu yfirnáttúr -
lega, því dulúöuga, er mikill. Svo hefur lengi verið. Þaö er því ekki
að ófyrirsynju að lagt var út í gerö kvikmyndar um þessi efni. Hún
hefur veriö tekin til sýninga meö nafninu Húsiö — trúnaðarmál. I
fáum orðum sagt er hún eitthvert besta, vandaöasta og heilsteypt-
asta kvikmyndaverk er ég hef séö. Myndin er lýsandi dæmi hvern-
ig tekist hefur aö gera áhugavert efni aö spennandi og eftirminni-
legri röö atvika sem hvert um sig eru perlur; kvikmyndunarlega
séö. Sem slíkur er söguþráöur Hússins ekki mikill aö vöxtum — ef
hann væri sagður í sagnaformi væri hann lítilsveröur — en meö
kvikmyndavélinni, eölilegum leik og snjallri leikstjórn, hefur tek-
ist aö gera hann trúveröugan og aö nokkru fallegan. Helstu kostir
myndarinnar eru frábærar tengingar milli ólíkra atriöa, skemmti-
leg stígandi, sem er hæg og vinnur meö efniviönum. Þá eru
klippingar oft magnaöar og falla vel aö heildarmyndinni. Húsiö —
trúnaðarmál er hrífandi dulúö sem lætur engan ósnortinn.
-SER.
AUSTURBÆJARBIO:
Á HJARA VERALDAR
Á hjara veraldar er djörf tilraun í íslenskri kvikmyndagerö.
Tekiö er fyrir lif þriggja persóna og kafað djúpt í myrkur sálarlífs
þeirra. Myndin fjallar um móöur, dóttur og son sem öll hafa á sinn
hátt orðið fyrir vonbrigðum í lifinu. Móöirin er ung þegar hún fer
úr sveitinni þar sem hún hefur alist upp og leggur upp í ferö þar
sem takmarkið er aö komast í söngnám, en feröin endar í Reykja-
vík þar sem hún giftist og eignast börnin tvö. Söngnámiö veröur
aöeins til í huga hennar. Dóttirin er oröin þingmaöur og berst fyrir
því aö virkjunarframkvæmdir veröi hafnar í sveit móöurinnar. En
þaö er stutt í efasemdirnar. Sonurinn fór ungur til sjós en starfar
nú sem ljósamaöur í leikhúsi. Hann er einangraður frá öörum,
fiktar við kukl og lifir í eigin hugarheimi. Á hjara veraldar f jallar
um þessar þrjár persónur og þaö ófullnægjandi líf sem þær lifa. Á
hjara veraldar er fyrsta verk Kristínar Jóhannesdóttur, en hún er
bæöi leikstjóri og handritshöfundur og veröur myndin að teljast
nokkuö persónuleg. Hún krefst mikils af áhorfandanum en skilur
líka á móti mikiö eftir sig. -HK.
REGNBOGINN
FIRST BLOOD
Sjaldan eöa aldrei hetur Silvester Stallone sýnt eins góöan
leik og í nýjustu mynd sinni, First Blood, sem skrifuð er eftir met-
sölubók David Morrell um örlög eins af sonum Bandaríkjanna er
liföi líkamlega af hörmungar Víetnamstríösins. Eg minnist þess
ekki að hafa séð kappann tjá persónu af jafnmiklu öryggi og með
jafnmiklum tilfinningalegum tilþrifum. Almennt er leikurinn mjög
góöur í kvikmyndinni, nema ef vera skyldu tilþrif þeirra sem hafa
meö smáhlutverkin aö gera. Leikstjórinn hefur náö góöum tökum
‘ á efniviönum, honum tekst aö leiöa söguna trúveröuga áfram, láta
atvikin jafnt og þétt vinda upp á sig upp í magnaöa spennu, þó ekki
yfirmáttugan stórkostleik, heldur hreint eölilega og fágaöa stíg-
* andi. Öll tæknivinna er meö ágætum í myndinni. Kvikmyndun og
klipping er oft sérlega smekklega af hendi leyst. I nær öllum atriö-
um er þetta verk Ted Kotcheff hafiö langt yfir meöalmennsku. Og
' þó hann fari óþarflega nálægt mörkum stórslysaþemans í vissum
atriðum þá verður ekki annaö sagt en hér sé um prýöisgóöa afþrey-
ingarmynd að ræöa — og vel það.
-SER.
NVJA BÍÓ:
DIIMER
Diner er heiti á hamborgarasjoppu þangaö sem fimm vinir venja
komu sínar en þessir fimm félagar eru aöalpersónur myndarinnar.
Þaö gengur á ýmsu í samskiptum þeirra á milli og út á viö, en allt
fær farsælan endi í þessari ágætu mynd sem látin er gerast rétt
fyrir 1960, þegar rokkiö var í algleymingi, enda er tónlistin í mynd-
inni frá þeim árum. Diner er frumraun Barry Levinson sem leik-
stjóra, en hann er þekktari sem handritshöfundur, bæöi úr
sjónvarpi og kvikmyndum. Hann er fæddur í Baltimore, en einmitt •
þar er kvikmyndin látin gerast, og hann hefur sagt að sögu-
þráðurinn sé að nokkru leyti byggöur á eigin reynslu. Diner er
glettin mynd, full af lífi og f jöri og að mestu laus viö allt ofbeldi. Og
þótt söguþráöurinn sé ekki merkilegur þá er svo vel gengið frá
aöalpersónunum að myndin í heild er góð skemmtun þar sem
ungir og efnilegir leikarar fara á kostum.
-HK.
■y ■■■■■■■■11
Kvikmvndir
Kvikmyndir
■ ■■illE.
iIU