Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Page 6
28
DV. FÖSTUDAGUR 22. APR1L1983.
Hvað er á seyði um helgina Hvaðeráseyði um helgina
Fyrsta einkasýning Brynhildar Þorgeirsdóttur á glerskúlptúr verður opnuö ,á morgun, laugardag, i Galleri
Langbrók klukkan 16.00.
GalleríLangbrók:
Brynhildur Þorgeirsdóttir
sýnir glerskúlptúra
— eftir margra ára nám í glerskólum
Brynhildur Þorgeirsdóttir opnar
sýningu á glerskúlptúrum í Gallerí
Langbrók Amtmannsstíg 1
Reykjavík, á morgun, laugardag,
klukkan 16.00. Brynhildur lauk námi
frá Myndlista- og handíöaskólanum
1978 en síöan hefur hún lært glergerð
víöa erlendis, svo sem í Hollandi,
Svíþjóö og Bandaríkjunum þar sem
hún var viö nám í tvö ár. Sumariö
1982 stundaði hún nám í Pilchuck
glerskóla í Washington og hlaut þar
viöurkenningu, „The Corning
price”.
Þetta er fyrsta einkasýning
Brynhildar en áöur hefur hún tekiö
þátt í samsýningum í Hollandi,
Bandaríkjunum og hér á landi á sýn-
ingunni Gullströndin andar.
Sýningin í Gallerí Langbrók veröur
opin virka daga frá klukkan 12—18
og laugardaga frá 14—18. Sýning-
unnilýkur6.maí.
-RR.
rr Óbærí/egt
undirher-
stjórn
á Falklands-
eyjum"
— Denis og Margareth
Humphreys,
Falklandseyingarnir
sem ætla
að setjast að á íslandi,
í helgarviðtali.
Þeir
sigidu
þjóðarskút-
unni í dentíð
— svipmyndir
af gömlum
stjórnmálakempum.
Suzanne Brogger,
danski metsöiuhöfund-
urínn, í viðtaii.
Stíklað á stóru
um „Frankie boy".
Veistu hvað
Vatnajökull er?
Gunnar
Möiier,
formaður
landskjör-
stjórnar,
segir frá
sínu starfi.
Skáldin og vorið.
Fyrrverandi
hermaður Hitlers
ferðast um
Staiingrad þar
sem hann barðist
fyrir fjörutíu árum.
Svipmyndir
úrlífiPéturs
Sigurðssonar,
fyrrverandi
forstjóra
Landhelgis-
gæslunnar.
HELGARBLAÐ
72 SIÐUR Á MORGUN
MEÐAL EFNIS:
Þjóðleikhúsið um helgina:
30. og sídasta sýning
á Jómfrú Ragnheiði
— Grasmaðkur, Lína og Súkkulaði
handa Silju
Nú um helgina lýkur sýningum í
Þjóöleikhúsinu á leikritinu Jómfrú
Ragnheiöi, nútímalegri leikgerð
Bríetar Héöinsdóttur á Skálholti Guð-
mundar Kamban. Lokasýning á verki
þessu veröur sunnudagskvöldiö 24.
apríl kl. 20.00 og veröur þaö jafnframt
30. sýning á verkinu.
Athygli skal vakin á því aö sýningar-
tími bamaleikritsins Línu Langsokks
er klukkan 12.00 á laugardag og
klukkan 15 á sunnudag. Súkkulaöi
TónleikarStefnis
íMosfellssveit
Karlakórinn Stefnir Mosfellssveit
heldur sinn annan konsert aö Fólk-
vangi Kjalarnesi föstudaginn 22. apríl
kl. 21. Á efnisskrá eru bæöi innlend og
erlend lög af ýmsum toga. Einsöngv-
arar meö kómum eru aö þessu sinni
þeir Helgi Einarsson og Sigmundur
Helgason. Þriðju og síöustu tónleikar
Stefnis hér sunnanlands veröa síöan í
Hlégarði Mosfellssveit sunnudaginn
24.aprílkl. 15.
Kórinn heldur síöan norður í land og
syngur aö Miðgarði Varmahlíö föstu-
daginn 29. apríl kl. 21, Ydölum Aöaldal
laugardag 30. apríl kL 21, Skjólbrekku
sunnudaginn 1. maí kl. 14.1 norðurferö
kórsins munu þeir Friðbjörn Jónsson
og Þóröur Guömundsson syngja ein-
söng meö kórnum, undirleikari er
Guöni Þ. Guömundsson. Stjórnandi
kórsins er Láms Sveinsson.
Málverkasýning
íGrindavík
aöeins opið þessa helgi
Eyjólfur Olafsson opnar málverka-
sýningu í Kvenfélagshúsinu Grindavík
á morgun, laugardag, 23. aprílklukkan
10.00. Um 40 olíu- og vatnslitamyndir
eru á sýningunni sem er fimmta einka-
sýning Eyjólfs. Sýningin stendur
aðeins yfir þessa helgi og lýkur
klukkan 18.30ásunnudagskvöld. -RR.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudaginn 24. aprú.
1. kl. 09. Skarðsheiðin. Gengið á Heiðarhom
(1055 m) e£ veður leyfir. Verð kr. 300,-
2. kl. 13 Þyrill — Bláskeggsá. Þessi gönguferð
hefst við SUdarmannabrekkur, síðan gengið
með brúnum f jaUsins og komið niður hjá Blá-
skeggsá. Verð kr. 200,-
Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Njótið útiveru i góð-
um hópi.
Afmælisfundur kvenna-
deildar Slysavarna-
félags Reykjavíkur
verður haldinn á Hótel Heklu mánudaginn 25.
apríl og hefst með borðhaldi klukkan 19.30.
Góð skemmtiatriði.
handa Silju veröur sýnt á litla sviðinu í
Leikhúskjallaranum sunnudagskvöld
klukkan 20.30.
Nýja leikritiö, Grasmaökur, eftir
Birgi Sigurösson, sem frumsýnt var
um síöustu helgi, verður sýnt í kvöld og
annað kvöld klukkan 20.00. Gras-
maökur er spennandi verk sem í senn
er kímiö, nærgöngult og grimmt, þaö
gerist hjá „venjulegu” fólki í
Reykjavík.
-RR.
Kjarvalsstaðir:
Þorbjörg Pálsdóttir með
höggmyndasýningu
Þorbjörg Pálsdóttir myndhöggvari
opnaði sýningu á höggmyndum aö
Kjarvalsstöðum í gær, fimmtudaginn
21. apríl. Sýningin stendur til 3. maí og
veröur opin frá klukkan 14.00 til 22.00
alla daga. Aögangur er ókeypis.
Þetta er þriöja einkasýning Þor-
bjargar. Á henni veröa eingöngu högg-
myndir og hafa flestar þeirra veriö
unnar síöastliöin tvö ár. Allt eru þetta
barnamyndir aö undanskibnni einni
ófrískri konu.
Þorbjörg Pálsdóttir stundaöi mynd-
listamám í Stokkhólmi og hér heima
hjá Ásmundi Sveinssyni, Sigurjóni
Olafssyni og Jóhanni Eyfells.
-JBH.
BROADWAY: A fðstudags- og laugardags-
kvöld veröur Broadway-ballettinn sýndur,
dansparið Kara og Reynir taka snúninga, Jón
Axel stýrir plötunum á fóninn á föstudags-
kvöldi en Gisli Sveinn á laugardagskvöldi.
KLÚBBURINN: Á föstudags- og laugardags-
kvöld mun hljómsveitin Goðgá halda uppi
fjörinu ásamt tveim diskótekum.
HÖTEL SAGA: Á föstudags- og laugardags-
kvöld mun hljómsveit Ragga Bjama drífa
menn og konur í dansinn.
GLÆSIBÆR: Tveir saUr og tónUst við aUra
hæfi. Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi í
öðrum salnum. Diskótekið annast þeir Grétar
Laufdal og Karl Gunnlaugsson. Það er boðiö
upp á vinsæl lög, bæði gömul og ný, mest þó
diskó.
HOLLYWOOD: Opið ÖU kvöld helgarinnar,
vanir menn i diskótekinu og vinsæl lög að
vanda.
OÐAL: Opið öll kvöld helgarinnar. Topplög
og toppfólk í diskótekinu. Ásmundur sér um
snúningana föstudagskvöld, Fanney laugar-
dagskvöld og Dóri sunnudagskvöld. Auðvitað
komastaUirístuð.
SNEKKJAN: Föstudagskvöld sér HaUdór
Árni um diskótekið, hljómsveitin Metal
skemmtir laugardagskvöld.
ÞÓRSKAFFI: Föstudags- og laugardags-
kvöld mun Þórskabarettinn skemmta dans-
húsgestum. Það eru þau Jörundur, Júlíus,
Laddi og Saga sem skipa hann. Dans-
bandið og Þorleifur Gíslason leika undir
öruggri stjóm Árna Scheving. Kristján
Kristjánsson leikur á orgel fyrir matargesti.
VEITINGAHÚSIÐ BORG: Asgeir Braga
kemur öUum út á gólfið föstudagskvöld, en
Nesley leikur sitt vinsælasta laugardags-
kvöld. Gömlu dansana stíga menn sunnudags-
kvöld á Borginni, það er hljómsveit Jóns
Sigurðssonar sem leikur.
HREYFILSHÚSIÐ: Opið laugardagskvöld -
gömlu dansarnir.