Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Side 2
2
Við erum ekki að
kaupa nýtt skip
— segir Jóhann A. Jónsson, forstjóri Hraðfrystihúss Þórshafnar
„Viö erum rétt búnir aö kaupa
togara, Stakfellið, og þaö er ekki á
neinu stigi að kaupa nýtt skip,” sagöi
Jóhann A. Jónsson, forstjóri
Hraöfrystihúss Þórshafnar í gær er
hann var spuröur hvort þeir væru að
kaupa nýtt skip, annaö þeirra sem nú
er í raðsmiöi hjá Slippstööinni á
Akureyri.
Aö undanfömu hafa verið raddir
um þaö aö Hraöfrystihús Þórshafnar
væri aö kaupa nýtt skip, meöal
annars var frétt um það í Timanum.
Um atvinnuástandiö á Þórshöfn
sagöi Jóhann aö þar heföi veriö
sæmileg atvinna og í fyrsta skiptiö í
áraraöir sem ekki heföi veriö
árstíðabundið atvinnuleysi.
En hver jir ætla aö kaupa togskipin
tvö sem Slippstööin á Akureyri er
meöísmiöum?
„Viö höfum gert smíðasamning viö
aðila á Eskifiröi um smíöi annars
skipsins, sem nú er langt komin, um
"60 prósent. Hvaö hitt skipið varöar
hefur enginn smiöasamningur veriö
geröur, en það eru aöilar sem hafa
verið að gjóa augunum á þaö,” sagði
Gunnar Ragnars, forstjóri SIipp-
stöðvarinnar á Akureyri í gær.
Hann sagði ennfremur aö byrjaö
heföi veriö á skipunum um áramót
og væri aðeins tíundi hluti þess
siöara búinn. „Viö erum ekki
bundnir viö afhendingartíma og
getum því ýtt þessu á undan okkur og
tekiö meira af viögeröum, en í þeim
er mjög mikiö aö gera núna. Tíu
togarar á legunni og tvö skip komast
íeinuuppíslipp.”
Þess má geta aö raösmíöuöu skipin
tvö eru 240 tonn aö stærö og teljast
samkvæmt skilgreiningunni ekki
togarar. -JGH
SKÍÐA-
FÓLK
Á ÍSA -
FIRÐI
—áhjólum
Skíðafólk á ísafirði æfir
stíft um þessar mundir
enda vetur í nánd.
Snjóleysið kemur ekki að
sök því hjólaskíði eru ekki
verri á malbikinu.
Hér á myndunum sést ís-
firskt skíðafólk á æfingu
með þjáifara sinum, Einari
Ólafssyni.
DV-myndir Valur
Jónatansson.
DV. FÖSTUDAGUR 26. AGUST1983.
Dekkjaskerar
enn á ferð:
Eyðilögðu
dekkátveim
bifreiðumí
gærkvöldi
Skoriö var á dekk á tveim bíium í
Reykjavík í fyrrakvöld. Er þaö
þriöja kvöldið á skömmum tíma sem
einhver eöa einhverjir fara um og
skera dekk á biium. Viröast bíiamir
vera valdir af handahófi, en þau
dekk sem skorin voru í fyrrakvöld
voru á bUum sem voru á Háteigs-
vegi og Barónsstíg.
Var skorið á öll dekk á þeim báðum
og greinilega notaö gott eggvopn því
langar rifur voru á öllum dekkjun-
um. Þama er um aö ræöa tUfinnan-
legt tjón hjá eigendum bttanna en
einn umgangur undir bíl kostar um
10 þúsund krónur.
Lögreglan kom á vettvang þegar
fréttist um dekkjaskuröinn á Há-
teigsvegi. Þar sást til þriggja
grunsamlegra pUta og voru þeir
teknir inni í porti ölgerðarinnar, þar
rétt hjá en þar voru þeir aö ná sér í
flöskur. Voru þeir yfirheyrðir en
sleppt aftur eftir aö taliö var nokkuð
fuiivist aö þeir hefðu ekki komið
nálægt bílunum. -klp-
Sundhöll
Hafnarfjarðar
á fjörutíu
áraafmæli
— fjöldi baðgesta um
3,4 milljónir
SundhöU Hafnarfjarðar er fjörutíu
ára um þessar mundir og er fjöidi
baðgesta á þessum árum oröinn
samtals um 3,4 mUljónir.
Þaö var áriö 1943, þann 29. ágúst,
aö útisundlaug var vígö i Hafnar-
firöi. Var hún starfrækt mánuðina
apríl til október ár hvert til ársins
1951. Þá var byggt yfir sundlaugina
og hefur hún verið opin allt árið síðan
1952.
Miklar endurbætur hafa veriö
geröar á sundhöUinni á undanförn-
um árum, bæöi í tækjabúnaði og
bættri aöstööu fyrir starfsfólk og
baögesti.
Nú er unniö aö stækkun búnings-
herbergja viö sundhöUina og ætla má
aö því verki ljúki á næsta ári.
Hönnun á nýrri útisundlaug í
suðurbæ Hafnarfjarðar er nú aö
mestu lokið og er áætiað að
framkvæmdir hefjist fljótlega.
JGH
JÖFUR
HR
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
&
S>
*
KOMDU MEÐ SKODANN
ÞINNOG PRÚTTAÐU
um milligjöfina.
Nú kostar nýr Skodi aðeins frá kr. 128.900.- og við tökum
gamla bílinn þinn upp í. Um milligjöfina prúttarðu við Halla
og þú kemst lengra en þú heldur.