Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1983, Blaðsíða 13
DV. FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST1983. 13 síðan hafa menn jafnframt gripið til þess ráðs að hækka skattinn til þess að ná inn tekjumvegna lækkunar á að- flutningsgjöldum. Þegar talaö er um að söluskattur eigi að vera hlutlaus er átt við að skatt- urinn leggist á allar vörur, oghveming sem verslaö er. Taka má einfalt dæmi: Ef listamaður selur verk sín sjálfur þá þarf kaupandinn ekki að greiða sölu- skatt. Hins vegar verður kaupandinn aö greiða söluskatt ef listamaöurinn fær þriðja mann til þess að selja verkið fyrir sig, t.d. á uppboöi, eða ef verkið er til sölu á almennri listaverkasölu. Sama gildir um sölu listaverka. Ef eigandinn selur listaverkið án milli- liða þarf kaupandinn ekki að greiða söluskatt en ef eigandinn notfærir sér þjónustu listaverkasala verður kaup- andinn að greiða skattinn. Nú er það svo að listaverkin hækka ekkert í verði þótt söluskatturinn sé lagður á heldur lækkar verðið til seljandans sem nem- ur söluskattinum. Þarna er vitanlega um misræmi að ræða og óréttlæti sem kemur því sárar niður sem skatturinn er hærri. Á sama hátt er það svo að þeir sem kaupa mat á veitingahúsum verða að greiöa söluskatt en þeir sem kaupa mat í mötuneytum, sem rekin eru af fyrirtækjum eða starfsfólki, þurfa ekki aö greiöa söluskattinn. Þarna kemur enn fram misrétti. Svo má nefna blöð og tímarit en kaupendur sumra tíma- rita þurfa að greiða söluskatt en ekki aörir. Aö sjálfsögðu eru dagblöð undanþegin söluskatti! En var eyðilagður Eins og fyrr segir var söluskattur- inn nokkuð a lmennur skattur í upphafi. En með árunum hefur undanþágum fjölgað og er nú svo komið að undan- þágurnar eru óteljandi og koma óskaplega misjafnt niður. Þannig hafa undanþágumeistaramir holað lögin smátt og smátt, eins og dropinn stein- inn, og eru þau orðin hripleik. Það er því nauðsynlegt að setja ný söluskatts- lög eða samsvarandi lög um annan neysluskatt. Af hverju nýr skattur? Ein af röksemdunum fyrir virðis- aukaskatti er sú að skatturinn sé svo flókinn að útilokað sé að veita undan- þágur og sé það veruleg vörn gegn sér- hagsmunahópum. Það muni því taka miklu fleiri ár að eyðileggja skattalög- in en hins vegar sé það lífsnauösyn fyrir atvinnulífið að neysluskattar leggist með sama þunga á hvaða neyslu sem er. Sé það ekki gert þá muni fólk vitanlega freistast til þess að nota meira þá þjónustu og kaupa meira þær vörur sem ekki eru skatt- lagðar. Fylgismenn virðisaukaskatts hafna röksemdum um nauðsynjavör- ur, benda á að sá einn viti hvar skórinn kreppir sem noti hann og að óhóf fyrir einn mann sé lífsnauðsyn fyrir þann næsta. önnur og veigamikil röksemd fyrir virðisaukaskatti er sú að svipaður skattur hafi veriö tekinn upp í heistu viðskiptalöndum okkar í Evrópu og til þess að tryggja samkeppnismöguleika íslenskra fyrirtækja verði skattlagn- ing að vera með s vipuðum hætti. I sjálfu sér má fallast á þessar rök- semdir. En á móti kemur það, sem ég nefndi í upphafi, að skattheimtan verður dýrari og að virðisaukaskattur- inn er beittara skattheimtutól en sölu- skatturinn. Nógu skattpíndir eru fslendingar, þótt ekki sé verið að auka á byrðarnar. Og það virðist vera þvert á stefnu fjármálaráðherrans, um að- hald í ríkisrekstri, að taka upp skatt sem fleiri menn þarf til að annast um. Miklu nær væri að endurskoða sölu- skattslögin og gera söluskattsskylduna miklu umfangsmeiri en nú og jafn- framt að takmarka mjög allar heim- ildir ráðherra til þess að fella niður söluskattsskyldu. Slíkar heimildir eiga að vera settar af löggjafanum en ekki framkvæmdavaldinu. Haraldur Blöndal. • „Ef áfengisneysla fólks í þessu áfengis- sjúka þjóðfélagi er næg ástæða til þess að hætta öllu samkomuhaldi þá held ég t.d. að tími sé kominn til þess að loka flestum sam- komuhúsum höfuðborgarinnar og fleiri skemmtistöðum. ’ ’ ástæða til þess að hætta öllu samkomu- haldi þá held ég t.d. að tími sé til kom- inn að loka flestum samkomuhúsum höfuðborgarinnar og fleiri skemmti- stöðum. Eg held að blaöamenn ættu í alvöru að skyggnast ögn dýpra í það málefni sem hér um ræðir áður en þeir í for- undran veitast aö samkomuhaldaran- um og reyna á ómaklegan hátt aö skella skuldinni á hann. Drykkjuvandamálið er mun djúpstæðara og þar getur ekki einhver blaöamaöur komið fram fyrir hönd alira foreldra og krafið ungmenna- félagshreyfinguna reikningsskila á þeim vanda, (samanber fyrirspum í Sandkorni DV 8. ágúst sl.) en þar segir orðrétt. „Þykir fólki, ekki síst foreldr- um, tímabært að fá hreinskilningslega lýsingu á því hvernig sum þeirra ungl- ingamóta, sem haldin eru, fara fram.” Ef fyrirspyrjandi á við skrif DV frá 2. ágúst, og frásögn blaðsins í máli og myndum frá samkomunni í Þjórsárdal um verslunarmannahelgina, þá voru þau skrif langt frá því að vera hrein- skilnisleg lýsing á því sem þar fór fram, heldur var þar um að ræða ósmekklegan tíning á því lakasta sem biaðamaðurinn gat fundið þessa stund sem hann dvaldi á samkomustaðnum. Mikið félagslegt átak sem vert væriað kynna Eg er sannfæröur um það að ung- mennafélögin, íþróttafélögin og samtök bindindismanna munu ótrauð halda áfram sh'ku skipulögöu samkomuhaldi, einfaldlega vegna þess aö fáir aðilar hér á landi hafa meiri reynslu í slíkri framkvæmd og ég efast um að aðrir aðilar myndu gera það betur. Við undirbúning að einni sh'kri hátíð liggur að baki margra mánaöa vinna og skipulagsstarf. Enga frásögn eða myndir hefi ég séð blöðin birta frá því. Blaöamaður DV sá enga ástæðu til þess aö líta inn í þjónustumiðstöð móts- stjómarinnar í Þjórsárdal þegar hann var þar á ferð um verslunarmanna- helgina og ræða þar við stjómendur hátíðarinnar eða einhvern hluta þeirra 200 starfsmanna sem í sjálfboðavinnu sáu um framkvæmd hennar. Ekki leit hann inn á slysavaröstofu mótsins þar sem búin hafði verið myndarieg að- staða með fjórum sjúkrarúmum og öðru tilheyrandi, þar sem sérlært hjúkrunarlið vann allan sólarhringinn án endurgjalds aö aöhlynningu og þjónustu við mótsgesti. Engin mynd var frá þjónustutjaldi því sem hýsti tjaldlausa, og aðra miður-útbúna sam- komugesti, þar sem boðið var upp á heita súpu og aöra aðhlynningu. Ekkert viðtal var við hjálparsveitar- menn Gnúpverja sem skipuð var bændafólki úr sveitinni, fólki sem þekkti vel til allra aðstæðna og svo mætti lengi telja. Hér sannaðist það sem oft áður að þaö er ekki sama meö hvaöa hugarfari fréttamenn mæta á slíkar samkomur og vil ég trúa því að dimmviðrið hjá okkur Sunniendingum að undanförnu hafi verið orsök þessarar svörtu frá- sagnar blaðamannsins. Eraðstaðaná skipuiögðu mótssvæðunum peninganna virði? Hvað er svo verið að selja á þessum samkomum sem ungmennafélögin og aðrir slíkir standa aö? 1 fyrsta lagi aðstöðu á góðum stað til útilegu og margskonar þjónustu, t.d. slysaþjónustu, veitingar ýmiskonar, löggæslu og almennt eftirlit og margt fleira. Þá er þar í boði fjölbreytt skemmti- dagskrá sem reynt er að hafa við hæfi allra aldurshópa og þar koma ósjaldan fram landsþekktir skemmtikraftar. Dagskráin stendur jafnan í tvo til þrjá daga með dansleikjahaldi þrjú kvöld. Með góðum fyrirvara er samiö við sérieyfishafa og/eða hópferðabílstjóra um sem greiðastan flutning fólks að og frá mótssvæðunum og hefur slíkt mikluoftar gengið snurðulaust. Samkomuhaldarinn tryggir sér góöa samvinnu við löggæsluyfirvöld á viðkomandi stað enda eiga þessir aöilar oft margra ára farsæla sam- vinnuaöbaki. Nú vaknar sú spuming eðlilega hjá ýmsu fólki. Er slíkt skipulagt sam- komuhald peninganna virði fyrir þá sem velja sér aðstööu á mótssvæðun- um um verslunarmannahelgina? Þá er auðvitað átt við inngangseyri sem samkomugestir greiða. Er ekki bara í lagi að láta skeika að Kjallarinn Þorvaldsson sköpuöu hvar unglingunum dettur í hug að hópast saman, eftirlitslaust og án allrar þjónustu. Þeir sem þekkja báðar hliðar þessa máls, og hafa af þvi áratuga reynslu, vita vel hver munurinn er. — Eitt nær- tækt dæmi. I fyrra var ekkert skipulagt sam- komuhald í Þjórsárdal en þar munu þó hafa dvaliö um 500 til 1000 manns alla verslunarmannahelgina. Mikið var um allskonar óhöpp og hafði lögreglan á Selfossi mikiö að gera, m.a. í því að flytja fólk frá staðn- um í allskonar ástandi, þar á meðal tU meðferðar vegna ýmiskonar slysa, á Sjúkrahúsið á Selfossi. I ár brá hins vegar svo við að flest sUkt var afgreitt á staðnum og var helgin ein rólegasta helgi sumarsins hjá sjúkrahúsinu og svo mun einnig hafa verið hjá lögreglunni á Selfossi er þennan stað varðar. Sala á þjónustu, ekkiilla fengnir peningar Aðumefndur fyrirspyrjandi Sand- kornsins í DV spyr eitthvað á þessa leið. „Er ekki í meira lagi vafasamt að fjármagna starfsemi æskulýðssam- taka eins og UMSK með fjármagni sem hugsanlega kæmi sem gróði af slíku samkomuhaldi? ” Enn skal á það bent að hér er nr. 1 veriö að selja þjónustu sem reynslan hefur sýnt að er nauðsynlegt þjóðþrifa- fyrirtæki. Ef hugsanlega einhver hagnaöur yrði af þessu starfi þá er hann tUkom- inn vegna þess aö félagamir, sem létu þjónustuna í té, gerðu það í nafni sam- taka sinna endurgjaldslaust. Nr. 2 er þaö í meira lagi ómaklegt að gefa það i skyn að þaö sé markmið þessara umræddu samtaka að halda ölvunarsamkomur. ítrekuðum tilmælum er beint til fólks að skemmta sér án áfengis og í mörgum tUfeUum er í gUdi og hefur verið reynt algjört áfengisbann, að vísu með misjöfnum árangri. I þriðja lagi ættu blaðamenn og annað fóUc að vita þaö að veðráttan á Islandi býður sárasjaldan upp á mikla aðsókn sem gefið gæti framkvæmdaað- ilum verulegan hagnaö og þó svo væri í einhverjum tUfeUum þá held ég að þessir umræddu aöUar væru vel að því komnir. Allar vangaveltur sjálfskipaöra siðapostula um að ungmennafélögin séu yfir þessa starfsemi hafin er löngu hætt að hrína á forustumönnum ung- mennafélagshreyfingarinnar sem vita að þeir eru að vinna þjónustustörf í þágu meöbræðra sinna. Enginn er neyddur til þess að njóta þeirrar þjónustu en mér er nær að halda að ýmis meiriháttar óhöpp hefðu getaö átt sér stað, t.d. í Þjórsárdal um sl. verslunarmannahelgi, ef hennar hefði ekki notið við. Samvinna við fjölmiðla mikiisverð fyrir ungmenna- félagshreyfinguna Ágætu blaðamenn, undirrituðum er það mjög vel ljóst að hér á ungmenna- félagsforustan líka nokkra sök, upplýsingastreymi til ykkar vantar og gagnkvæma samvinnu. Ég geri það hér meö að tillögu minni að t.d. DV fylgist með undirbúningi og framkvæmd einnar slíkrar samkomu á næsta ári, allt frá fyrsta fundi fram- kvæmdaaðila til lokauppgjörs og þar til ungmennafélagarnir hafa lokið hreinsun samkomusvæðisins sem er mikiö verk. Eg er viss um að slík sam- vinna myndi verða ánægjuleg og upp- lýsa marga sem ekki vissu það fyrir að á vegum ungmennafélagshreyfingar- innar er unnið mikið og merkt starf, m.a. í kunnáttusamlegri framkvæmd útisamkomuhalds og á fjölmörgum öðrum sviðum. Þegar upp er staöiö er þaö því miður staðreynd að allt of mikill fjöldi ung- menna og annars fólks stundar óhóf- lega áfengisneyslu á samkomum. Þar tel ég hins vegar að síst eigi við ung- mennafélögin að sakast sem meö f jöl- þættri starfsemi sinni að íþrótta- og félagsmálum vinna mikið fyrirbyggj- andi starf þótt alltaf megi auðvitað gera betur. Að mati undirritaðs er lausnin ekki fólgin í því að gefast upp fyrir vandanum, miklu fremur verður að vinna markvisst að bættu samkomu- haldi hvort sem það er haldið á vegum íþrótta- og ungmennafélaga eða á vegum blaðamannastéttarinnar. Ungmennafélögin á Islandi munu hér eftir sem hingað til fús til þess að taka höndum sama við hvem þann aðila sem vill vinna að bættu sam- komuhaldi í landinu en þá verða menn líka að vinna af heilindum að kynningu slíks starfs í fjölmiðlum en sýna ekki og skrifa bara um þaðsem aflaga fer. Sem betur fer er það jákvæða miklu meira að vöxtum og mikill meirihluti fólks á siikum samkomum, sem hér hefur verið fjallað um, er sjálfum sér og öðrum til gleöi. Til þess er líka leikurinn gerður. Hafsteinn Þorvaldsson fyrrverandi formaður UMFt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.