Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1983, Blaðsíða 8
DV FÖSTUDAGUR14. OKTÓBER1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur SLATUR- GERÐ — uppskriftir - verklýsingar - kostnaður- tilraunaeídhús DV um mánaðamótin Um síðustu helgi tóku sig til þrjár myndarlegar konur vestur í bæ og gerðu slátur. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi því að sláturgerð hefur fariö fram á mörgum heimilum aðundanfömu. En það sem telst til tíðinda er það aö tvær þessara þriggja kvenna munu starfa í tilraunaeldhúsi DV eitthvað fram eftir vetri og öll þeirra verk þar veröa birt lesendum hér á neytendasíð- unni. Konumar eru heimilisfræðikenn- arar, önnur er Bergljót Andrésdóttir í Þinghólsskóla í Kópavogi og hin, Gunnþórunn Jónsdóttir, kennir í Hlíða- skóla í Reykjavík. Bergljót og Gunnþómnn munu til- reiða hina ýmsu rétti fyrir okkur í vetur og væntum við góðs af samstarf- inu við þær. Við munum hafa hverju sinni verklýsingu, greina frá vinnu- tíma og kostnaði við matargerðina. Öráðið er enn hversu oft tíðindi úr tilraunaeldhúsinu berast en það kemur síðar í ljós. Byrjað var á sláturgerð, sem þær höfðu ákveðið að leggja til at- lögu við, og næst höfum við í hyggju að birta uppskriftir að lifrar- og kinda- kæfu. Þá skulum við fylgjast með því hvemig sláturgeröin gekk hjá þeim Gunnþórunni, Bergljótu og Stefaníu Snævarr en á hennar heimili fór slátur- gerðin fram. Sláturgerð Keypt voru 5 slátur og unnið úr þeim. Vinnutími ca 10 klukkustundir fyrir einn. Þær stöllumar keyptu 5 slátur sem kostuðu kr. 488, en að athuguðu máli var það lægsta verðið á þeim stöðum þar sem spurt var um það. Tekið var saman hve annar tilkostnaður við sláturgeröina var mikill og heildarút- komanvarþessi: Tólg Aukamör er hægt aö bræða í tólg sem síðar má nota til aö steikja kleinur, laufabrauð og fleira þejss háttar í. Tólg er mjög hörð fita og er því betra að blanda olíu saman við hana fyrir notkun. Það má blanda allt að helmingsmagni af oh'u á móti tólginni (notiö nólgina aldrei eintóma, hún er afaróholl). Verklýsing: 1. Mörinn er brytjaður og eitlar teknir. 2. Settur í pott ásamt örlitlu vatni og bræddur við vægan hita. Hrært í öðru hverju og froðan tekin. 3. Tólginsíuðígegnumgrisjuíílát. Ef á að hirða hamsana er best að skilja svolitla fitu eftir með þeim. Geymt í kæli og hægt að frysta. Agætt er að frysta tólgina í álform- um. Svið Sviðin eru lögð í bleyti í kalt vatn, skafin og/eða burstuð, heilinn tekinn úr. Sjóðið eða pakkið í frysti strax. Ef þiö fáiö sviðin frosin er best að setja þau strax í frysti. Mörgum finnst betra að hreinsa þau áður en þau eru sett í frystinn. Þá þarf að láta þau þiðna áður — og frysta aftur og má segja aö það sé ekki rétt samkvæmt nákvæmustu hollustuháttum. Háisæser og þindir Hálsæsarnar hreinsaðar, allar æðar og allir kirtlar fjarlægðir. Himnan klippt af þindunum. Notað í kæfu, hakk, smásteik eða lundabagga. Hér eru þmr stöllurnar þrjár, ein fyllir í keppina og tvær sauma. Gunnþórunn fremst á myndinni, síðan Berg- IJótog Stefaníe. á köldum stað og frysta keppina strax svo rúgurinn gerjist ekki. Suðutimi 2—21/2 klst. Pikkið kepp- ina vel með nál þegar suðan kemur upp. (Sjá síðar nánar um suðutímann). Hór er allt tílbM tH sláturgorðarinnar: vambirnar í balanum, mörinn fyrir aft- an og blóð í kassanum. Á diskinum á miðri myndinni eru itfrar og sviðabaus- ar ystó borðinu. Fremst eruhólsæsar, þindir, nýru oghjörtuá fati. Ufrarpylsa — uppskrift 2500 g (ca) lif ur og nýru 800—900 g rúgmjöl 450—500 g haframjöl 200ghveiti 3msk. salt 7 dl mjólk 7 dl kjötsoð (vatn — súpukraftur — hlutföll: 11/2 msk. kraftur á móti 1/21 vatni) 1200 gmör ca30keppir Aukalega geta sælkeramir leikið sér við að bragðbæta einstaka keppi. En athugið að ekki verður bæði sleppt og haldið, „aukaefnin” mega ekki yfir- gnæfa hið gamla sláturbragð. Lifrarpylsuna má bragðbæta með hakkaðri nautalifur (ca 1/2—1/5 á móti kindalifrinni). Einnig má nota saxað- an lauk, beikonstrimla, sveppi, fjalla- grös, blóðberg og oregano svo eitthvaö Kostnaður 5 slátur kr.488,- aukavambir (2X2keppir) kr. 38,- rúgmjöl kr. 40,- haframjöl kr. 80,- hveiti (juvel) kr. 2,- salt kr. 3,- mjólk kr. 12,- umbúðir, plastpokar kr. 45,- Samtals: kr. 708,- Undirbúningur Athugið að vinna á köldum stað og koma öllum sláturmat í suöu eða frysti um leið og hann er tilbúinn. 1. Vambimar lagðar í bleyti í kalt vatn, skafnar eftir þörfum. 2. Vambimar sniðnar — úr hverri vömb ættu að fást 6—8 keppir (sjá mynd). 3. Keppimir saumaðir með stórri nál og bómullargarni. Athugið að hafa sporin frekar gisin og skiljið eftir op og þráö til að sauma fyrir keppina eftir að búiö er að setja í • þá. 4. Geymið keppina í köldu saltvatni meöan á öðrum undirbúningi stendur. Keppina er hægt að frysta, tii dæmis afgangskeppi ef einhverjir verða. Mör 1. Hreinsið eitla úr mömum. 2. Brytjið mörinn smátt, geymið á köldum stað. Keppirnir tilbúnir, pakkaðir og morktir i frystikistuna. D V-myndir: BJ.BJ. Umsjónarmenn: Þórunn Gestsdóttir og Arnar Páll Hauksson Hjörtu Hjörtun hreinsuö. Allt blóö kreist úr þeim. Stóm æðarnar efst í hverju hjarta skomar burtu. Hjörtu eru notuð í smásteik, einnig steikt heil, fyllt með ávöxtum eða grænmeti ef vill, eða notuð í k jötsúpu, kæf u og fleira. Blóðmör — uppskrift 41ítrarblóð 8 dl vatn 6msk.gróftsalt 1200 g haframjöl 1800—2000 g rúgmjöl 1600 mör 30—40 keppir Svo höfum viö hér aukatillögur fyrir sælkerana sem geta bragðbætt blóð- mörinn eftir smekk, til dæmis með rúsínum, söxuðum fjallagrösum, blóð- bergi, negul, brúnkökukryddi og allra- handa. Þá snúum við okkur að því hvemig best er að haga verkinu. 1. Síiðblóðiðígegnumfíntsigti. 2. Bætið vatni og salti út í, hræriö. 3. Hrærið haframjöli og rúgmjöli út í. Hrærið vel með hendinni og gætið þess að engir kekkir séu. 4. Hrærið mömum saman við. 5. Takið keppina úr vatninu og strjúkið vætuna af þeim. 6. Setjið hræruna í keppina, þeir eiga að vera rúmlega hálfir. 7. Saumiö fyrir keppina og þurrkið af þeim. 8. Sjóöiö keppina strax í saltvatni eða pakkið þeim í loftþéttar umbúðir, merkið og frystið. Athugið að vinna sé nefnt. Hversu mikið af hverju bragðefni eða kryddi sælkeramir nota verður smekkur þeirra aö segja til um. Verklýsing: 1. Skolið lifur og nýru úr köldu vatni. 2. Hreinsið lifrina, fjarlægið allar æðar og himnuna utan af (ef vill). Sama gildir um nýrun. 3. Hakkið lifrina einu sinni til tvisvar íhakkavél. 4. Blandið salti og vökva út í, hrærið vel. 5. Hrærið mjölinu saman við. Gætið þess að engir kekkir verði í hrær- unni. Athugið að lifrarhræran er höfð þykkari en blóömörshræran. 6. Hræriðmörnumsamanvið. 7. Strjúkið vætuna af keppunum og setjiöí þá. Þá á aðeins aðhálffyila. 8. Saumið fyrir og þurrkið af þeim. 9. Sjóðið strax í saltvatni eða pakkiö í loftþéttar umbúðir og frystið strax. Suðutiminn er 2—2 1/2 klukkustund. Nægilegur suðutími fyrir nýtt slátur er tvær klukkustundir en tvær og hálf fyrir frosna keppi. Þegar keppimir em frosnir (eins nýir) era þeir látnir í heitt saltvatn og pikkaðir vel þegar suðan kemurupp. Að síðustu er rétt að táka fram að keppina er best að frysta flata og stafla ekki pökkunum mikið í frysti- kistuna. Þeir sem fá vambir og innmat og allt sem sláturgerðinni fylgir frosið í hendur verð að breiöa úr matnum og láta hann þiðna og getur það tekið um sólarhring. Það hefur löngum verið talin mikil búbót að eiga slátur enda er þetta ódýr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.