Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Side 5
oo r
DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984._
íslensk hjón með heilsustöð
r íKristiansand:
Olga vegna
brottrekstrar
starfsstúlku
Heilsustöð, sem er rekin af íslensku
hjónunum Lovísu Stefánsdóttur og
Indriða Olafssyni í Kristiansand í
Suður-Noregi, hefur valdið blaðaskrif-
um þar um slóðir. Ástæðan er aö stöðin
hefur sagt upp 18 ára stúlku, að sögn
hennar sjálfrar til að fá ódýrari vinnu-
kraft.
Stúlkan hóf störf við stöðina í fyrra.
Eftir reynslutímann, sem var einn
mánuður, var hún fastráðin og fékk
3.200 norskar krónur fyrir 160 tíma
vinnu á mánuði. I nóvember réð stöðin
til sín nýja stúlku og þeirri sem fyrir
var var sagt að hennar laun lækkuðu
um 1000 norskar krónur á mánuði.
Þegar hún samþykkti ekki þessi skil-
yrði var henni gefið launalaust orlof.
Vinnuveitandinn hefur síðan auglýst
eftir nýjum starfskrafti.
I viðtali við blað eitt í Kristiansand
segir Lovísa Stefánsdóttir að hin 18
ára gamla stúlka hafi ekki gegnt störf-
um sínum nógu vel og þess vegna hafi
þau hjón orðið að ráða nýja stúlku í
haust. Ástæðuna fyrir orlofinu kveður
hún hafa verið þá að það hafi verið lítið
aö gera um háveturinn.
I norska vinnueftirlitinu vilja menn
ekki segja neitt ákveðið um þetta mál
þar sem það er í rannsókn. Hins vegar
segja þeir að ófélagsbundnir unglingar
njóti oft á tiðum lítilla réttinda á vinnu-
markaðnum, og að sérstaklega smærri
fyrirtæki misnotiunglinga.
-ÞóG/JEG-Osló.
Með bfl í bæinn á Húsavík:
Bömin kalla hann
skólastrætó
Það má segja að Húsavík sé í laginu
líkt og flestar konur vilja vera, sem
sagt löng, og mjó sumstaðar.
Skólamir eru miðsvæðis í bænum en
nýjustu og fjölmennustu íbúðarhúsa-
göturnar syðst og yst. Vill því verða
talsvert langt að fara í skóla fyrir
margt unga fólkið.
Guölaugur heitir ungur maður sem á
og rekur Sérleyfis- og hópferðabíla
Guölaugs Áðalsteinssonar. Sér hann
um akstur á flugvöllinn við Húsavík en
hann er 12 km frá bænum. Á sumrin
hefur Guölaugur sérleyfi á leiðinni
Húsavík—Vopnafjörður.
Nú ekur Guðlaugur bíl um bæinn
sem bömin kalla skólastrætó. Hann fer
um 10 ferðir á dag, byrjar kl. 7.30 á
morgnana og síðasta ferðin er kl. 4.05.
Guðlaugur segir aö upphafið að þess-
um akstri hafi verið að hann vissi að
áskorun hafði borist frá báöum skóla-
stjórunum til bæjarstjórnar um að
hafinn yröi rekstur skólabíls. Einnig
hefðu verið uppi raddir í bænum um að
þessa þjónustu vantaöi.
Guðlaugur sá að bærinn ætlaði ekki
aö gera neitt í málinu og er nokkrir for-
eldrar höfðu haft samband við hann
sat hann fund með bæjarstjórn þar
sem fram kom að bærinn ætlaði ekki að
f jármagna slíka starfsemi.
Guðlaugur hóf akstur þrjá síðustu
skóladaga fyrir jól til reynslu og er
töluvert margir foreldrar höföu lýst
ánægju sinni með þjónustuna í jóla-
leyfinu og spurt hvort ekki yrði fram-
hald á byrjaði hann aftur þegar skóli
hófst á ný.
Guölaugur á tvo bíla, 59 og 43
manna, en hann hefur fengið undan-
þágu hjá bifreiðaeftirlitinu til að flytja
62 farþega í ferð.
Hann segist flytja um 300 börn á dag
og farþegafjöldi aukist með degi
hverjum, mesti álagstíminn sé á
morgnana, í hádeginu og síödegis en
þá er hann að hugsa um að bæta viö
ferðum svo aö allir fái sömu þjónustu
eftirþörfum.
Fargjald fyrir böm er kr. 5 en kr. 10
fyrir fullorðna. Þeir hafa lítiö notfært
sér þjónustuna enn, þó er fólk að ranka
við sér og nokkrir fara til og frá vinnu
daglega með vagninum.
Áðspurður sagði Guölaugur aö hann
væri ekki hress yfir rekstrinum, hann
kæmi ekki vel út en hann sagði báða
skólastjórana hafa verið mjög hjálp-
lega varðandi upplýsingar og að koma
skilaboðum um ferðir til nemenda.
-Ingib jörg Magnúsdóttir,
Húsavík.
I
Flugskóli
Selfoss
„allur
á loftr
120, þar af er ein kona og önnur á
námskeiöinu, og hafa þeir 12 flug-
vélar. Það er óhagganleg skoðun
þeirra sem á námskeiðinu eru aö
konur séu betri flugmenn, þær fari
mýkri höndum um tækin, segja þeir.
Formaður Flugklúbbs Selfoss
hefur verið frá upphafi Jón I. Guð-
mundsson, yfirlögregluþjónn á Sel-
fossi, og er það án efa ánægjulegt
fyrir hann að sjá áhugamálið vaxa
og dafna á þeim tíu árum sem liðin
eru frá stofnun klúbbsins.
-GB.
Frá Kristjáni Einarssyni, frétta-
ritara DV á Selfossi.
Stjóm Flugklúbbs Selfoss ákvað
fyrir stuttu að standa fyrir nám-
skeiöi fyrir flugáhugamenn á Suður-
landi og auglýsti það, þó með nokkr-
um áhyggjum um þátttökuleysi. En
þær áhyggjur reyndust ástæðulaus-
ar. 66 höfðu áhuga á þátttöku og
bámst umsóknir alls staðar að af
Suðurlandi. Ákveöið var að halda
námskeiðið í þrennu lagi, eftir því
hvar menn voru staddir í fluginu, og
er fýrsta námskeiðið hafið með 24
nemendur innanborðs. Kennari á
öllum námskeiðunum er Ottó Tynes,
flugmaður úr Reykjavík.
Mikil gróska er í fluginu á Suður-
landi. Sem dæmi um það má nefna að
ekki liðu nema rúmir þrír mánuðir
frá stofnun Flugklúbbs Selfoss, þann
16. maí 1974, þar til flugvöllur með
tveimur brautum var vígður rétt
fyrir utan Selfoss. Og svona hefur
krafturinn verið allar götur síðan.
Nú hafa flugáhugamenn fjóra flug-
velli til umráða á Suðurlandi.
Félagsmenn Flugklúbbs Selfoss eru
Léttur andi var i salnum þegar nemendur Flugskóla Selfoss stilltu sér upp
fyrir myndatökuna. DV-mynd Kristján Einarsson.
LÆKKUM VIÐ ÚTSÖLU-
VÖRURNAR ENNÞÁ MEIRA
irisAiii
STORLÆKKAÐ VERD |r-
Tökum fram|
fleiri tegundir.
Kápur upp í|
itærð 54.
M
Laugavegi 66, sími 25980.
Guðlaugur Áöalsteinsson við farartæki sitt. DV-mynd Ingibjörg Magnúsdóttir.