Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 11
DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984. 11 ,yeitir ekki afbjart sýnum mönnum” —segir Leifur Steinn Elísson, markaös- og söluráðgjaf i tölvuf yrirtækisins Atlantis „Hutverk mítt er í fyrsta lagi aö stjórna öllum ma^kaösmálum í fyrirtækinu og í öðrU lagi að vera ráögefandi fyrir' væntanlega kaupendur tölvukerfa um val á hug- búnaði og vélbúnaði og vera í al- mannatengslum. ” Þetta sagði Leifur Steinn Elisson, sem tók við starfi markaðs- og sölu- ráðgjafa hjá tölvufyrirtækinu Atlantis um áramótin. Fyrirtækiö verslar eingöngu meö eigin tölvur, sem það kynnti fyrst á iðnsýningunni í fyrrasumar. Upphaf- lega var Atlantis eingöngu hugsað sem framleiðslufyrirtæki á tölvum en í október síðastliðnum var ákveðið að setja á stofn markaðs- og söludeild. I framhaldi af því réðst Leif ur Steinn til fyrirtækisins. „Viö erum með hugbúnaö sem viö eigum sjálfir og við erum einnig með hugbúnað i umboðssölu frá öðrum aðilum,”sagöihann. — Er það ekki mikil bjartsýni að vera eingöngu með íslenska tölvu? „Jú, þaö er mikil bjartsýni, en það veitir ekki af bjartsýnum mönnum ,hér á landi. En viö erum þó engir ævintýramenn,” sagði Leifur Steinn. Hann minnti á að einhver góöur 1 maður hefði sagt á Alþingi að land- búnaðurinn væri búinn að fá 1100 ára aðlögunartíma og tími væri kominn til að gefa öðrum atvinnugreinum tækifæri. „Hér eru margir ágætir verk- fræðingar og tækniþekkingin er til staðar. Það sem hefur háð er fjar- lægðin frá stórum mörkuðum. En viö lítum fyrst og fremst til íslensks markaðar og viljum að það sé skiln- ingur á aö það er þörf fyrir meira en sauðfé og fiskveiðar ef við eigum að lifa áfram í landinu.” — Nú ríkir mjög mikil samkeppni á tölvumarkaðinum og fréttir berast af stórfyrirtækjum sem tapa miklu fé. „Á þessu stigi erum við ekki að tala um alþjóðlega samkeppni, heldur á íslenskum markaði. Við teljum að við séum með sambæri- lega framleiðslu og erlendir aðilar. Við erum samkeppnisfærir í verði og við vonum að ráðamenn líti til þess að þetta er íslensk framleiðsla.” Leifur Steinn sagði að hver tölva sem þeir framleiddu sparaði 1500 dollara í erlendum gjaldeyri ef kaupa ætti samsvarandi tæki frá út- löndum. — Þú ert þá þeirrar skoðunar að tölvur séu framtíöin? „Eg er alveg á þvi. Hins vegar vil ég ekki segja að niðurstaðan sé sú í öllum tilfellum að fyrirtæki eigi að kaupa tölvu. Það verður að skoða máUð mjög vandlega því að það er ekki markmið mitt að allir kaupi tölvu heldur þeir sem á henni þurfa aðhalda.” — Hvenær byrjaðir þú að vinna við tölvur? „Þaö má rekja það allt til ársins 1978. Eg var þá við nám í hagfræði í Svíþjóð. Þar var töluvert farið aö fjalla um notkun á tölvum og ég gerði mér grein fyrir að ef ég færi til Islands bara með hagfræðimenntun ætti ég ekki sömu möguleika á að fá starf. Eg lauk því þremur stigum í tölvufræði.” Leifur Steinn sagöi að áhugann mætti rekja enn lengra aftur, eða til þess tíma er hann var viö nám í Há- skóla íslands. Þá vann hann m.a. á Vegamálaskrifstofunni þegar verið var aðtölvuvæða hana. — Hefurðu tölvu heima hjá þér? „Það vill nú til að svo er ekki. Meg- inástæðan er sú að hér hef ég aögang „Við erum samkeppnisfærir við erlenda aðila og við vonum að ráða- menn Hti til þess að þetta er íslensk framleiðsla," segir Leifur Steinn Elisson hjá tölvufyrirtœkinu Atlantis. DV-myndGVA. að tölvu hvenær sem ég vil. Eg er líka einn af eigendum tölvuskólans Framsýnar og þar hef ég einnig að- gang að tölvukerfum. Eg mun þó fljótlega fara með tölvu heim, m.a.1 vegna þess aö ég á börn. Eldri dóttir mín er að verða 9 ára og ég vil að hún læri að umgangast tölvur frá upp- hafi.” Leifur Steinn er kvæntur Svein--' björgu Svavarsdóttur sem lýkur BA prófi frá félagsvísindadeild Hl í vor. Þau eiga tvær dætur. -GB. ÚTífilfi 90-70' UTffilA V/SA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.