Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 13
DV. MÁNUDAGUR 30. JANUAR1984. 13 raun alltaf veriö á förum frá því arma landi, Islandi, á förum frá því fólki, sem hann vildi leiöa og ríkja yfir og hræðileg yfirvofandi frelsisskerðing er þess valdandi, aö þessi brottfarar- árátta ráðherrans upplýsist. En þaö er hundur í fleirum en fjár- málaráöherra að mega ekki hafa eigin lög og siöareglur eftir aö fara. Frjálst útvarp er uppáhaldsslagorö ýmissa þeirra, sem í blöö skrifa, en ekki þarf lengi aö lesa, þegar ástæðan fyrir hinni annarlegu frelsisást kemur í ljós. Frjálst útvarp gæti oröið gróöa- vænlegur „business” fyrir unga ofur- huga frelsisins og miðaö viö gæöi greina þeirra mætti ætla, aö forheimskun lýösins fylgdi gróðahvöt- inni fast á hæla. Og fátt væri betra til afsiðunar en fjársterkir fjölmiðlar, sem hefðu frjálshyggju fjármagnsins aö alfa og omega alls. Frelsi til afurðasölu ýmiss konar hefur oft komið mönnum til aö skrifa grátklökkar greinar um höft og einokun. Eggin eru býsna eggjandi dæmi. Fljótlega koma þó úlfshárin í ljós undan frelsisgærunni, hinir stóru og f jársterku sem allt geta haft á hreinu eru venjulega hér á ferö og eina mark- miöiö aö knésetja þá smærri og meira veikburða og sitja síðan einir aö hit- unni. Og flögrar það aö nokkrum, að þá yröi eitthvað hugað aö hagsmunum neytenda. Hvaöa stórlaxar eöa auöhringar hafa nokkru sinni gert slíkt nema tilneyddir? ,, Eggin eru býsna eggjandi dæmi. Fljótiega koma þó úifshárin i Ijós undan freisisgærunni, hinir stóru og fjársterku sem allt geta haft á hreinu, eru venjulega hár á ferð og eina markmiðið er að knósetja þá smærri og meira veikburða og sitja siðan einir að hitunni." Hassneyzla mikils hluta þingmanna er gómsætt söluefni, getur orðið tilefni margra lesendabréfa og jafnvel kjallaragreina, og allt gengur þetta upp í gróðanum í lokin. En gróða hvers ? Svari hver fyrir sig. Samfélagið býr nú viö mikiö frelsis- hjal af stjómvalda hálfu. Menn eiga aö vera frjálsir aö því aö sóla sig utan- lands, án þess aö þurfa að greiöa sam- félaginu smágjald, menn eiga aö fá að leggja fjármagn sitt í fyrirtæki og fá skattaívilnanir út á þaö og svo mætti áfram telja. Hins vegar er mönnum ekki frjálst aö hljóta mannsæmandi laun sem umbun fyrir erfiði sitt. Og uppi eru raddir og býsna sterkar hugmyndir um það, aö menn séu ekki frjálsir að því að leggjast á sjúkrahús, nema greiða farmiöa — væntanlega ekki „one way ticket” þó. Frelsiö er á vörum ráöherranna sí og æ, ekki sízt hundahaldarans og kvóta- ^ „Fáar frelsisgreinar les ég svo, að ekki megi milli línanna eða þá beint lesa sér- hyggju og eigin gróðasjónarmið liggja að baki.” Tjáningarfrelsi Frelsi til aö koma skoöunum sínum og sjónarmiöum á framfæri er sjálf- sagt. En á þvimá líka græöa. Krassandi svívirðingar, falskar ásakanir, stóryrtar upphrópanir gefa góða sölu. Stundum er nafnleyndar notiö. Broslegasta dæmi þessa tjáningar- frelsis er úr DV frá einhverjum alls ónefndum eiturlyfjasala, sem ber margt góögætiö á borð, aö sjálfsögöu án eigin ábyrgðar, en þá einnig aö sjálfsögöu á ábyrgö ritstjóranna, sem eiga orö þessa ólánsmanns, ef hann er þá til, og hafa gert þau aösinum. kóngsins, enda samræmi oröa og athafna eftir því. Samfélagsmynstur okkar á, aö þeirra dómi, aö laga sig aö frelsi fjármagns og gróöa í staö vel- feröar og lífshamingju þegnanna. — Samfélagsmynstur okkar á líka aö hafa nýlendudrættina nógu skýra, þeg- ar erlent auðmagn á í hlut. Þá er ekki ónýtt aö hafa þrýst okkur niður á það stig að vera slíkt láglauna- svæði sem Island er nú sannanlega aö veröa. Lærisveinar falsarans Friedmans mega glaöir horfa á hina nýju tilbiðjendur úr Framsóknarflokknum, sem svo eru orðnir samdauna fjár- magnsfrelsi hinna ríku, aö enginn veit hvar meiningarmunurinn liggur milli stjórnarflokkanna tveggja. „Frelsisflytjendur" Já, víða er frelsishjalið og ekki skyldi gleymt frelsinu margumtalaöa til að velja og hafna í áfengismálunum. Þegar æöstu valdsmenn landsins hiröa óhikað hluta áfengisgróðans svo sem nú er, þá er von að víða teygi áfengis- auðvaldiö klærnar. Margar frelsisgreinar hafa veriö skrifaðar af leigupennum þess fyrr og síðar, og gott ef ekki hefur verið falist bak viö menningu, listir og jafnvel guö- sp jöllin, þegar mikið hefur legið viö. Mál er aö linni nú, en af því ég minnt- ist á guðspjöllin þá eiga vel við „frelsisflytjenduma” orö frelsarans, hinseinaogsanna: „Veiyðuro.s.frv. Að verja frelsið fyrir „frelsis- flytjendunum” er brýnasta verkefni félagshyggjumanna í dag. Um þá bar- áttu og fleira um frelsiö mun fjallað í framhaldsgrein. Höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna: „Þeir sem stofnuðu Sameinuðu þjóðirnar og sórstofnanir þeirra — þ.m.t. UNESCO — ilok ægilegasta hild- arieiks sögunnar voru þeirrar skoðunar að fátt mundi betur geta tryggt og varðveitt friðinn en að þjóðirnar hittust á vegum ríkisstjórna sinna. . . þriöja heimsins þar sem frjáls fjöl- miölun hefur náö að skjóta rótum, þökk og heiður skilinn fyrir að hafa haldið vöku sinni. Þaö má ekki sofa á verðinum. Hinsvegarer ómálefnalegt aö fordæma stofnun fyrir stefnumál sem hún rekur alls ekki í reynd. Meginstefna UNESCO í málefnum fjölmiölunar er efling frjáls og raun- sanns fréttaflutnings og upplýsinga- streymis milli landa. A aöalþingi UNESCO sl. haust náöist almennt samkomulag um fjölmiölunarstarf- skrána fyrir starfstímabilið 1984— 1985. Áttu öll vestræn ríki í UNESCO hlut aö því máli. Er og vandséö aö niöurstaðan hafi gengið gegn ríkjandi grundvallarsjónarmiðum í fjölmiðla- málum á Vesturlöndum. Má nefna þar sem dæmi aö samþykkt var tillaga frá Bretlandi um að viö rannsóknir á svo- kölluöu nýju heimsfyrirkomulagi á upplýsingastarfi og fjölmiölun skyldi litiö á rannsóknarefniö sem þróunar- feril en ekki sem einhvers konar reglu sem UNESCO ætti aö reyna aö fá framfylgt. Þá var og fallist á aö taka inn í starfskrána efni norrænnar til- lögu um aö við fjölmiðlarannsóknir UNESCO 1984-1985 yröu tekin með í reikninginn fyrirbærin ritskoöun og sjálfs-ritskoðun í fréttaflutningi. Úrsögn Bandarðcjanna Bandaríkin tilkynntu úrsögn úr UNESCO hinn 28. desember sl. og kem- ur úrsögnin til framkvæmdar 31. desember 1984. Nokkuö hefur verið rætt um þaö hvort ákvöröun Bandarikjanna um úr- sögn hafi komið á óvart. Otvírætt er aö svo var um mjög marga, þ.e. að sú ákvöröun Bandaríkjanna aö segja sig úr UNESCO nú í desember 1983 kom á óvart. Var mönnum þó vel kfínnugt um aö ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur haft máliö til alvárlegrar athugunar undanfarin þrjú ár. Astæöa þess aö ekki var búist viö slíkri ákvöröun nú er sú aö á 22. aöalþingi UNESCO, sem haldið var í París 25. október — 26. nóvember sl„ kom fram sáttavilji sem flestar og líklega næstum allar sendi- nefndir á þinginu túlkuöu svo aö ólík- legt væri aö Bandaríkin yfirgæfu stofn- unina að svo stöddu. Samið var um öll viðkvæmustu deilumálin á þinginu og var sendinefnd Bandaríkjanna aöili að því samkomulagi í öllum atriðum nema einu: fjárhagsáætlun stofnunar- innar fyrir starfstímabiliö 1984—1985 sem Bandaríkin greiddu atkvæöi gegn eitt aöildarríkja. En í skýringu á því atkvæði sagöi formaður sendinefndar- innar aö þaö bæri ekki aö túlka sem fordæmingu á störfum og stefnu UNESCO heldur sem aögerð sem fæli í sér holla stjórnarandstöðu — en stjórnarandstaða væri mikilvægur þáttur í lýöræöislegu starfi sem alþjóð- leg milliríkjaþing þyrftu ekki síður á aö halda en þjóöþing. Örðugt var aö túlka þaö sem aö framan greinir ööruvísi en svo aö Bandaríkin mundu veröa áfram í UNESCO, a.m.k. enn um sinn, og halda áfram aö reyna aö tryggja hags- munamálum sínum brautargengi innan stofnunarinnar. En nú hefur Bandaríkjastjórn sem sagt ákveðið að segja sig úr UNESCO. Hefur sú ákvöröun veriö tekin eftir aö síðasta aöalþingi var lokið. Bandaríkin eru hér aö sjálfsögöu í sínum fulla rétti: sér- hvert aðildarríki getur gengið úr stofn- uninni, með eins árs fyrirvara, hvenær sem því sýnist. Þaö er ekki einsdæmi í UNESCO að aöildarríki kveöji stofnun- ina. Portúgalir tóku hatt sinn og fóru árið 1972. Þeir komu hins vegar aftur síösumars 1974. Og sömu sögu er aö segja af einstökum öörum sérstofnun- um Sameinuöu þjóöanna. Bandaríkin sögöu skilið viö Alþjóðavinnumála- stofnunina (ILO) áriö 1977. Þau gengu inn aftur þremur árum síðar. Víst er aö þaö eru ekki lítil tíðindi þegar Bandaríkin segja sig úr UNESCO og stafar þetta ekki eingöngu af því aö þau greiða f jóröung fjárhags- áætlunar. Tíminn mun leiða í ljós hvort og hvenær og þá meö hvaöa skil- yrðum Bandarikjastjóm treystist til að ganga aftur í UNESCO. Er óska.ndi aö þetta geti orðið sem fyrst, enda hafa Bandaríkin gegnt jákvæöu hlutverki í UNESCO meö margvíslegum hætti og væri raunar æskilegt aö þátttaka þeirra yröi enn virkari en hingaö til ef og þegar þau vilja ganga til leiks á ný. Sókn og barningur Menningarmálastofnun Sameinuöu þjóöanna — UNESCO — var stofnuö 4. nóvember 1946. Nú á 161 ríki aðild aö stofnuninni. Þaö er markmiö UNESCO aö efla frið og auka velferð mannkyns meö því aö treysta bönd milli þjóöa heimsbyggðarinnar á sviöi menntun- ar, vísinda og menningar. Þetta leitast Menningarmálastofnunin viö að gera meö því aö koma á margháttaöri sam- vinnu milli aöildarrikja sinna á sviöi skólamála, raunvisinda, menningar- starfsemi og fjölmiölunar. Sem dæmi um vel heppnuð störf UNESCO ir.iá nefna verndun og björgunmenningar- verömæta, t.d. Abú-Simbel- og Philae- hofanna í Egyptalandi (sem ella heföu lent undir uppistöðulóni Assúan-virkj- unarinnar), Borobúdúr-hofsins á Indónesíu, mannvirkja í Feneyjum o.fl. Einnig er vert að nefna ýmis sam- starfsverkefni í vísindum sem unnin eru í nánu samráði viö alþjóðasamtök sérfræðinga, s.s. á sviöi umhverfis- mála, jarövísinda og vatnfræði. I skólamálum mætti nefna ýmis þróun- arverkefni, t.d. stuöning viö baráttuna gegn ólæsi og verkefni á sviði kennara- menntunar í einstökum löndum þriðja heimsins. Og í f jölmiölun skal minnt á fyrrgreinda Alþjóöaáætlun um þróun fjölmiölunar sem er að vísu enn nokk- uð févana en hefur unniö gagnlegt starf. Er þá allt í lukkunnar velstandi í starfskrá og starfsháttum UNESCO? Nei, svo er ekki. Þetta ferst misjafn- lega úr hendi og sækist treglega á stundum. Aðalgalli starfskrárinnar er sá aö einstök verkefni eru of mörg, smá og dreifö. Hafa Noröurlöndin ver- iö í fararbroddi um að gagnrýna þetta atriöi á undanförnum árum og bent á að stofnun sem láti sig varöa jafn- margt í menningarmálum og vísindum geti, þegar fram líða stundir, vaknað upp við þann vonda draum aö hún hafi ekki gert sig verulega gildandi í neinu. Hefur nokkru verið áorkaö um sam- þjöppun starfskrár. Arangur er þó tak- markaður enn sem komiö er. Betur má ef duga skal. Norðurlöndin og fleiri aöildarríki hafa einnig gagnrýnt ýmislegt í stjórn- un UNESCO. Ljóst er að þar er ýmsu ábótavant: skriSinnska er að jafnaði mikil og stundum afskapleg, þróunar- hjálp er oft þung í vöfum og öll ein- kennist stjómsýslan af mikilli miöstýr- ingu. Þá er og ljóst að í starfsliði stofn- unarinnar er misjafn sauður í mörgu fé, enda koma starfsmenn frá rúmlega 120 aöildarríkjum. En menntun þeirra, starfsreynsla, málakunnátta og af- staða til starfsins býsna ólík. Eg undirritaður er þeirrar skoðunar aö þaö sé á þessum sviöum sem starf UNESCO þarf mestra umbóta við. Mun ég reyna aö gera mitt besta til að stuðla aö framförum í þeim efnum, í samræmi við einhuga stefnu Norður- landanna þar aö lútandi, á því fjögurra ára tímabili sem ég hef verið kjörinn til aö sitja í stjórn stofnunarinnar. Einnig má rökstyöja aö ýmislegt í þróun fjölmiðlamála í UNESCO sl. 10 ár hafi reynst stofnuninni óþarft. Þaö má að vísu margt finna að fréttaflutn- ingi blaöa, sjónvarps og útvarps um al- þjóöamálefni — eins og Islendingar ráku sig svo eftirminnilega á í land- helgisdeilunni viö Breta hér á árunum. Er skiljanlegt aö þeim aðilum sem raddminni eru og ómáttugri í .frétta- miölun skuli oft svíöa málflutningur hinna sterku. Fjölmiölar eru sannar- lega ekki hafnir yfir gagnrýni. Er mál- efnaleg gagnrýni raunar vísasti veg- urinn til aö bæta þá. En spurningin er: hvað getur UNESCO gert hér aö gagni? Leiö milliríkjastofnunar er vandrötuö í þessum efnum. Líklega mun þaö vænlegast til árangurs fyrir UNESCO aö líta ekki á fjölmiölun sem markmiö starfsins í sjálfu sér heldur öllu fremur sem leiö til aö vinna aö meginmarkmiðum stofnunarinnar. Síöan ætti UNESCO aö einbeita kröft- unum annars vegar aö frjálsu streymi hugmynda og þekkingar þjóöa á milli og hins vegar aö framfarasókn á borö við menntun fréttamanna og eflingu fréttastofa eins.og Alþjóöaáætlun um þróun f jölmiölunar vinnur að. Lokaorð UNESCO er milliríkjastofnun eins og aörar stofnanir Sameinuöu þjóð- anna. Milliríkjastofnanir er örugglega erfitt aö reka svo aö vel sé og vafalaust þeim mun öröugra sem þær eru stærri. Og UNESCO er stór milliríkjastofnun líkt og Sameinuöu þjóöirnar sjálfar og ýmsar aörar sérstofnanir þeirra. En það er ekki aðeins vandasamt aö reka og stjóma stórri milliríkjastofn- un. Það getur einnig verið andstreymt aö starfa á samkomum hennar sem fulltrúi þjóöar sinnar. Aðildarrikin eru mörg, sjónarmiö ólík og umræður oft langdregnar og þreytandi. Þing og aðrir fulltrúafundir UNESCO eru lýö- ræöislegarsamkomur: þar hefur hvert ríki eitt atkvæöi hvort sem það er stórt eöa smátt. Þessu getur veriö erfitt aö una, ekki síst fyrir stórar og voldugar þjóöir. En þaö er sem sagt talað saman, ráöiö ráðum sínum og ákvarðanir teknar á lýöræðislegan hátt. Þjóðirnar reyna að leysa vand- ann saman. Nú hafa Bandaríkin ákveðið að segja skiliö viö UNESCO. Þá ráöstöfun ber að harma. Er vonandi aö þau sjái sér fært, og þaö sem fyrst, aö ganga aftur til samstarfs við önnur ríki á vettvangi UNESCO. Báöir aöilar, Bandaríkin og UNESCO, geta stuölaö aö slíkri lausn mála — meö svalhuga yfirvegun, samráöum og leit aö sam- komulagi. Þeir sem stofnuðu Sameinuöu þjóðirnar og sérstofnanir þeirra — þ.m.t. UNESCO — í lok ægilegasta hildarleiks sögunnar voru þeirrar skoöunar aö fátt mundi betur geta tryggt og varðveitt friöinn en aö þjóöirnar hittust á vegum ríkisstjórna sinna, skiptust á skoöunum, settu sér sameiginleg markmiö og leituöu leiða til aö ná þeim meö því aö vinna saman. UNESCO stuölar að þessu fyrir sitt leyti meö samvinnu á sviöi menntunar, vísinda og menningar. Viö slíka viöleitni þjóöanna mun best fara á því aö eitt band bindi þær allar saman. Leiðin til aö tryggja þaö liggur um vegi gagnkvæms trausts. • „Því hefur oft verið haldið fram að starf UNESCO að fjölmiðlamálum á alþjóða- vettvangi feli í sér skerðingu á ritfrelsi. Þetta er á misskilningi byggt. Engin samþykkt, yfir- lýsing né starfskrárliður UNESCO felur neitt slíktísér.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.