Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 15
DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984. 15 Háttvirti ráöherra. Nú síöustu daga höfum við starfsmenn álvers- ins verið mjög umtalaöir í fjöl- miölum, sérstaklega þó í þessu blaði, og er tilefniö ekki merkilegra en þaö aö viö viljum fá mannsæmandi laun fyrir vinnu okkar, og hafa þar margir lagt hönd á plóg, ég nefni dæmi. Haukur Helgason talar um aö upp sé að rísa forréttindastétt sem vinni fyrir útlendinga. Jónas stýrimaöur, og gamall skipsfélagi minn, talar um Leninverkföll í álverinu. Ellert skrif- ar forustugrein og er hissa og sár eins og stundum áöur en Magnús Bjarnfreösson, penni ársins, er til- tölulega hógvær, hann kallar okkur handbendi kommúnista og skemmd- arverkamenn meö þá hugsjón æösta aö eyðileggja efnahag þjóöarinnar og veita inn í þjóölifiö 170% verð- bólgu. Nú er það einu sinni svo meö dagblöö, aö þar er þeim best trúað, sem hæst gala og hraöast ljúga og raunar er Magnúsi Bjarnfreössyni vorkunn, hann er ekki fyrsti mis- heppnaöi stjórnmálamaðurinn sem fellur í þá gryfju aö kalla alla menn kommúnista ef þeir hafa uppi til- buröi til aö fá sanngjörn laun fyrir vinnusína. Kjallarinn SÖLVI KJERÚLF VERKAMAÐUR í STRAUMSVÍK / slæmum selskap En hvaö um þaö, nú í síðdegisvöku í dag heyri ég aö þú ert kominn í hóp þessara manna og ert farinn aö taka undir þeirra sjónarmið, geisar mik- iö, og hefur í hótunum, og þá finnst mér aö þú sért kominn í slæman sel- skap og þaö rennur mér til rifja sök- um fomrar vináttu og einnig af öðrum ástæðum sem hér veröa ekki tíundaðar. En meö tilliti til þess sem á undan er gengið þá finnst mér rétt aö upplýsa þig og aöra, sem þetta kynnu aö lesa, um nokkrar staöreyndir málsins. Fyrst er þar til aö taka aö starfs- menn álversins hafa aldrei sett fram kröfu um 40% kauphækkun, það er hins vegar mat Vinnuveitendasam- bands Islands aö kjaraskerðingin áriö 1983 hafi veriö 40% en þaö eru þeirra orö, og koma þessari deilu ekki viö af mjög einfaldri ástæöu, nefnilega þeirri aö VSI er ekki aðili að þessari deilu og þeir ágætu menn geta því ályktað út og suður eins og þeim sýnist, en ættu aö hafa næga sómatilfinningu og vit til aö vera ekki aö skipta sér af okkur með áróöri og ósannindum í fjölmiölum. Þá væri sennilega búiö að semja núna og æsingamenn á síöum dag- blaðsins gætu snúiö sér að öðrum viðfangsefnum. Kemur innlendum vinnumarkaði ekki við Nú má það merkilegt vera ef bæði þú og aðrir koma ekki auga á þá augljósu staðreynd að Islenska ál- félagiö er eina fyrirtækið á Islandi sem veltir ekki launakostnaöi út í verölagið og þar af leiöandi koma launagreiöslur þar innlenda vinnu- —opið bréf til iðnaðarráðherra markaöinum ekkert viö og það er einum of mikil tilætlunarsemi að ætl- ast til þess aö starfsmenn Isal beri ábyrgö á kjarasamningum almenna vinnumarkaöarins og raunar alveg út í hött. Þegar síöast var gengið til kjarasamninga hjá Isal voru horfur í áliönaði slæmar, álverö var ekki nema helmingur af því sem þaö þurfti að vera, birgðir af áli voru í hámarki, gríöarmiklar og fjárfrekar framkvæmdir í sambandi við mengunarvarnir og hagræðingu voru nýafstaönar, og þar ofan í kaupiö haföi þáverandi iðnaðar- ráöherra, þaö sér helst til dundurs að ofsækja fyrirtækiö leynt og ljóst, og gera því það til bölvunar sem hann gat. Sem sagt, staðan var mjög þröng og meö tilliti til þess var sam- iö. En nú er sem betur fer komin betri tíö, álverð hefur sjaldan eða aldrei verið hærra, birgöir í lágmarki, og hvert metið á fætur ööru er slegiö hér suður í Sraumsvík bæöi hvaö snertir straumnýtingu, magn fram- leiöslunnar og gæöi. Og enn er gengið til samninga og starfsfólkiö fer fram á þaö aö fá aö halda óbreyttum launum, en er þá sagt af óviðkomandi aöilum aö þaö sé svo mikil óáran í sjávarútveginum, hringormur í þorski, togaramir allt- of dýrir, frystihúsin undir hamrinum og Nígeríumennirnir borgi ekki skreiðina, og þess vegna megi ekki hækka launin. Nei, kæri vinur, svo- leiðis röksemdir eru ekki gjaldgeng- ar fyrir sunnan Hafnarfjörö, viö svo- leiöis röksemdum segja launamenn pass. Stefna S/álfstæðisfíokksins Það er stefna Sjálfstæðisflokksins aö fyrirtæki séu fjárhagslega sterk og óháö og greiði laun eins og annan kostnaö miðaö viö afkomu, um þetta emm við örugglega sammála, eins og raunar margt annað. Þaö gæti verið lærdómsríkt fyrir marga að huga að því hvemig kjarasamningar hafa farið fram hjá Isal síðan verk- smiðjunni var startaö 1969. Þetta hafa nær alltaf verið beinir milliliöa- lausir samningar milli verksmiöju- stjórnar og starfsfólks. Báöum megin viö borðið hafa setiö ábyrgir og heiöarlegir menn sem hafa haft velferö fyrirtækisins og starfs- fólksins aö leiðarljósi en pólitískum verkalýðsrekendum og misheppn- uöum stjórnmáiamönnum hefur verið haldiö þar fyrir utan og við skulum vona að svo megi vera áfram, þótt nú hafi syrt í álinn um stund. Við skulum hafa það í huga báðir aö Islenska álfélagiö er alvörufyrir- tæki, meö hæfa stjórnendur, og frá- bært starfsfólk, sem á þaö ekki skilið að vera leiksoppur í pólitískum hrá- skinnaleik né heldur það að liggja undir stöðugum ofstækisárásum í dagblöðum, sjónvarpi og útvarpi fyrir þaö eitt aö vilja halda óskertum launum. Við skulum einnig hafa þaö hugfast aö þetta fyrirtæki, sem svo margir sjá ofsjónum yfir og öfund- ast út í, er gild þjóðhagsleg stærð, góöur vinnuveitandi og miklu meira viröi en hundrað þúsund tonn af þorski meö hringormum. þaö gleöur mitt gamla hjarta aö þú skulir sitja í þessu mikilvæga embætti nú þegar svo mikiö gengur á og aldrei hef ég séö eftir því aö hafa lagt mitt litla lóð á þær pólitísku metaskálar sem hófu þig upp í stöðu alþingis- manns fyrir Austurlandskjördæmi á sínumtíma. Nokkuð langdregið En ég held nú ég segi, eins og kerl- ingin sagði viö Þórberg þegar þau voru aö skemmta sér á leiöinu í kirkjugarðinum: þetta er nú farið að veröa nokkuö langdregiö. En þar sem ég hef sannfrétt aö þú sért nú senn á förum til Sviss til þess meðal annars aö vinna að vexti og viðgangi • „Það gleður mitt gamla hjarta að þú skulir sitja í þessu mikilvæga embætti nú þegar svo mikið gengur á og aldrei hef ég séð eftir því að hafa lagt mitt litla lóð á þær pólitísku metaskálar sem hófu þig upp í stöðu alþingismanns fyrir Austurlandskjördæmi á sínum tíma.” stóriðju á Islandi, til aö skapa ný at- vinnutækifæri og nýta auðlindir landsins, þá ætla ég að láta þig hafa nokkrar tölur í nesti. Ariö 1983 mun Isal hafa greitt í vinnulaun um þaö 'bil 300 milljónir kr. (heimild DV) og miðaö við það að tölur VSI séu réttar og kjaraskerðingin sé 40% þá vantar hér upp á litlar 120 milljónir. Þaö er athyglisvert aö þetta er sama talan og áætlaö er aö Lands- virkjun fái í tekjur áriö 1984 af orkuverðshækkuninni sem þú samdir um í haust og nú skalt þú giska á hversu djúpt Svisslending- amir þurfa aö fara í budduna til aö greiða þessa veröhækkun á orkunni og í guösbænum gerðu nú ekki neitt vanhugsaö, hvorki gagnvart þeim né okkur. Eg ætla aö vona aö prentvillu- púkinn verði mér miskunnsamur í þetta sinn og aö þú gerir góða ferð til Sviss og læt þessu hjali lokið. Meö flokkskveöju. sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti (könnun verðlagsráðs) og ekki síst fyrir hátt endursöluverð. Nú hefur útliti og innréttingum verið breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd, stillanlegir speglar innanfrá, stuðarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta að öryggi og endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð. Sifelld þjónusta Verð við birtingu auglýsingar kr. 199.500,- Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600 Söludeild sími 312 36 Vól: Rúmtak ................1442sm3 Borun .................. 76 mm Slaglengd .............. 80 mm Þjöppun ............... 8,5:1 Kraftur .......55 kW (75 DIN PS) á 5600 sn/m Tog ..........108 Nm á 3500 sn/m Eyðsla ............7-101/100 km

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.