Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Síða 17
DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984. 17 Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Dave Allen: Lengierhægtað lifaáþeim Bjöm Bergmann skrifar: Eg get ekki á mér setið að senda nokkrar línur eftir að hafa lesið það sem nokkrir (guðhræddir) landsmenn hafa skrifað um þættina með hinum stórskemmtilega Dave Allen. Mér finnst alveg sjálfsagt að hressa upp á skammdegið á þessum síðustu og verstu tímum meö saklausu gríni í sjónvarpinu og annars staðar. Eins og maðurinn sagði þá lengir hláturinn lífið og ég vil því skora á þessa hömndsáru menn að lækka niður í sjónvarpinu á meðan þessir stuttu þættir líöa hjá. Og leyfa öðrum lands- mönnum aö njóta þess að horfa á þætt- ina. Þvi lengi er hægt að lifa á þeim. FULLKOMIÐ ÖRYGGI í VETRARAKSTRI Á GOODYEAR VETRARDEKKJUM GOODYEAR veírardekk eru gerð úr sérstakri gúmmí- Dlöndu og með mynstri sem gefur dekklnu mjög gott veg- grlp. GOODYEAR vetrardekk eru hljóðlát og endingargóð. Fullkomin hjólbaröaþjónusta Tölvustýrö jaf nvægisstilling GOOD&ÝEAR CEFUR 0'RÉTTA ORIPID IhIHEKIAHF I" “I Lauaavogi170-172 Smi 21240 Rás 2 og Dave Allen Þetta er enginn annar en írski bind- indismaðurinn og háðfuglinn Dave Allen sem sjálfur segist vera strang- trúaður kaþólikki. Þorgrímur Björasson skrifar: 1DV þann 12. jan. segir náungi, sem kallar sig T.D., að stjómendur þátta rásar tvö séu með raus á milli laga. Rás tvö er mjög fjömg og skemmti- leg rás og ef stjórnendur eiga að fara aö temja sér einhvem sérstakan tals- máta gæti þetta minnt á auglýsingar á rás 1. Mig langar að benda T.D. á að þetta er ekki óskalagaþáttur. Fólk úti í bæ er hreiniega alltaf að hringja og biðja um óskalög og þau á rásinni fá hreinlega engan frið. Að vísu láta þau eitt og eitt óskalag fljóta með en það er ímjöglitlummæli. T.D. segir að kynningarnar séu eins og krakkar sjái um þær. Rás 2 var stofnuð sem létt rás og þegar þulir fara að grínast milli laga getur þaö vissu- lega komiö barnalega út og hjá því veröur aldrei komist að misjafn smekkur komi þar fram eins og alltaf vill verða hjá fólki. Eg spyr: „Gæti T.D.gertbetur? Jæja, nóg um T.D. Mig langar að skrifa út af kæra til ríkissaksóknara út af guðlasti í sjónvarpinu. Að mínu áliti er Dave Allen mjög góður grínisti og meinlausi kirkjuhúmorinn er engu meiri hjá honum en í allflestum brand- arablöðum sem era gefin út hér á landi og þar að auki sér maður að Dave er trúaður. Ef hann meinti eitthvaö illt með þessu þá segði hann ekki „megi guð vera með þér” í lok hvers þáttar. Hann sér bara presta í spéspegli eins og aðrir sjá pólitíkusa. En allt er þetta bara í gamni gert og mest ber á gríni á kaþólsku kirkjuna. Hjá honum er þetta bara meinlaus að- ferð til að fá fólk til að hlæja. Egvona aö kærandinn dragi kæra sína til baka og fylgist með þáttum Dave Allen og sjái jafnframt í réttu ljósi meinlaust grin. Það er hart að meirihlutinn þurfi aö gjalda fyrir smámunasemi minni- hlutans. Og í lokin kvörtun til DV. Hvar era þessar tvær síður af myndasögum sem DV hældi sér yfir? Þær hafa brugðist nokkuðoft. skódeild ★ dömudeild ★ barnafatadeild ★ herradeild ★ sportfatadeild ★ heimilisdeild

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.