Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Blaðsíða 18
18
DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984.
kureijn
BLAÐBURÐARBARN
VANTAR IHVERFI:
MIÐBÆR-BREKKUGATA
| Upplýsingar gefnar á afgreiðslunni,
J|ilk Skipagötu 13, sími 25013.
Illh
11
■Akur
^annprtiabErslunín
Crla
Snorrabraut 44.
Sími 14290.
PRJÓNAGARN,
PRJÓNAMUNSTUR
OG PRJÓNAR
I FJÖLBREYTTU ÚRVALI.
Póstsendum.
Pósthólf 5249.
IMauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Vikurbraut 9, suðurenda, í
Grindavík, þingl. eign Dóru Jónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu Jóns G. Briem hdl. föstudaginn 3.2.1984 kl. 10.15.
Bæjarfógetinn í Grindavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Leynisbrún 18 í
Grindavík, þingl. eign Bjarna Péturssonar, fer fram á eigninni sjálfri
að kröfu Arnar Höskuldssonar hdi., Landsbanka íslands og Veðdeildar
Landsbanka íslands föstudaginn 3.2.1984 kl. 10.45.
Bæjarfógetinn í Grindavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Efstahrauni 5 í Grindavík,
þingl. eign Guðmundar Karls Tómassonar, fer fram á eigninni sjálfri
að kröfu Þorvalds Lúðvikssonar hrl. og Veðdeildar Landsbanka Ís-
lands f östudaginn 3.2.1984 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn í Grindavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Leynisbraut 10 í
Grindavik, þingi. eign Jóns Guðmundssonar, fer fram á eigninni
sjálfri að kröfu Landsbanka tslands og Vilhjálms H. Viihjálmssonar
hdl. f östudaginn 3.2.1984 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn i Grindavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Garði í Grindavík þingl.
eign Þorleifs Jónatans Hallgrímssonar, fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og Búnaðarbanka islands föstudag-
inn 3.2.1984 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn i Grindavik.
DANSKUR PRÓFESSOR
VILL SAMBANDSSLIT VIÐ
GRÆNLAND OG FÆREYJAR
Frá Eðvarð T. Jónssyni, fréttaritara
DVíFæreyjum:
Virtur danskur prófessor, Poul
Meyer, hefur lagt til að sambandið
milli Danmerkur, Færeyja og
Grænlands verði leyst upp vegna
þeirra þungu fjárhagsbyrða sem
Danir verða að axla og þess fjand-
skapar sem Danir mæta í Grænlandi.
F’rófessorinn segir að hvorki Danir
né Grænlendingar hafi lengur áhuga
á að viöhalda ríkjasambandinu og
böndin sem tengi þjóðirnar saman
séu aðeins tilfinningalegs eðlis. Hann
segir einnig að grænlenska heima-
stjórnin komi illa fram gagnvart
Dönum í Grænlandi. „Eg tel því,”
segir prófessorinn, „að tími sé til
þess kominn aö Grænlendingar fái
fulla sjálfsstjórn. Það má hamingjan
vita að viö fórum illa með
Færeyinga, Islendinga og
Grænlendinga í margar aldir, en sú
skuld er nú að fullu greidd.”
Jónatan Motzfeldt, landstjórnar-
maður á Grænlandi, segir að
ummæli Poul Meyers komi á
óheppilegum tíma. „Við erum ungt
lýðveldi að stíga fyrstu skrefin. Við
höfum enga þörf fyrir ásakanir
heldur hjálp og leiðsögn. Við leitum
því samstarfs við Norðurlöndin og
þjóðir eskimóa í grannlöndum
okkar.”
Grænlandsmálaráðherrann
danski, Tom Höyen, sem er illa
þokkaöur á Grænlandi, segir að
þegar hann sæki fundi um landiö
greini hann frá röksemdum Poul
Meyers fyrir sambandsslitunum.
„Eg held að Danir séu orðnir þreytt-
ir á því að heyra því stööugt haldið á
lofti að þeir séu nýlenduþjóð og
heimsvaldasinnar. Við viljum ekki
sitja undir þessu ámæli lengur.”
Nýir menn í brúnni
hjá Marmorex sf.
Hornafjörður:
Meiri
loðdýrarækt
ervilji bændaí
A-Skaftafellssýslu
Frá Júiíu Imsland, fréttaritara DV
á Hornafirði.
Arlegur bæn'dafundur Austur-
Skaftfellinga var haidinn í Mána-
garði um sl. helgi og var þetta
40. fundurinn. Nú sátu fundinn í
fyrsta sinn fulltrúar frá öilum
kvenfélögum sýslunnar, bændum
að sjálfsögðu til mikillar ánægju.
Þó kvartaði einn yfir því að þær
hefðu verið hljóðar.
Fundurinn fjallaöi aöallega um
atvinnumál héraðsins og uppbygg-
ingu á nýjum atvinnugreinum. As-
geir Magnússon, iönráögjafi
Austurlands, og Hermann Hansson
kaupfélagsstjóri fluttu framsögu-
erindi. Helst beindust umræður að
meiri og fjölbreyttari úrvinnslu
sjávarafla og eins var rætt um
aukna atvinnu í sveitum, t.d. meiri
loðdýrarækt og fjölþættari fóður-
framleiðslu í heykögglaverk-
smiðjunni í Flatey. Þingmennirnir
okkar, þeir Halldór, Sverrir og
Egill, sátu fundinn, sem var vel
sóttur og málin mikið rædd. -GB. •
Tækni-
f rjóvgun og
fjölmiðlar
— meðal viðfangsefna
norræns
lögfræðingaþings
Tveir islenskir iögfræðingar
verða meðal framsögumanna á
norrænu lögfræðingaþingi sem
haldiö verður í Osló í ágúst næst-
komandi. Gunnar Schram mun
fjalia um hafréttarmál og Garöar
Gíslason um lagareglur í sambandi
viö tæknifrjóvgun. Einnig mun Þór
Vilhjáimsson taka þátt i
hringborðsumræðum um samspil
'lagaogfjöimiðla.
Sömuleiðis verður á þinginu
fjallað um tölvutækni i þágu lög-
fræði og lagastofnana. -þóG.
Reykjavik:
864skráðir
atvinnulausir
Alls vopu 864 skráðir atvinnu-
lausir í Reykjavík í siöustu viku og
hafði f jölgað um 140 frá fyrri viku.
Mest munaöi þar um starfsfólk
Bæjarútgerðar Reykjavíkur, sem
sagt var upp kauptryggingu frá 20.
janúar.
A skrá hjá Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar voru 487 karlar
og 377 konur. Stærsti hiuti þessa
fólks er úr fiskvinnslunni. Togarar
Bæjarútgerðarinnar, Hjörleifur og
Jón Baidvinsson, fóru út til veiða
um helgina og ætti því atvinnu-
ástandið að skána um mánaða-
mótin. -OEF.
Þessir herramenn, Atli Hafsteinsson
og Baldur Guðgeirsson, tóku nýlega
við rekstri fyrirtækisins Marmorex sf.
í Hafnarfirði. Fyrirtækið framleiðir
gluggakistur, stigaþrep, borðplötur og
Kristinn Júliusson, bankastjóri á
Selfossi, lét af störfum um siöustu ára-
mót. Hann verður sjötugur eftir nokkr-
ar vikur. Birgir Jónsson skrifstofu-
stjóri hefur verið settur bankastjóri.
Kristinn tók við starfi útibússtjóra í
Landsbankanum á Selfossi i desember
árið 1971. Aður hafði hann verið á
Eskifirði.
Hann er kvæntur Brynhildi Stef-
ánsdóttur og eiga þau tvö böm.
Tilboð í lokaáfanga íbúða aldraðra í
Njarðvík hafa verið opnuð. Alls bárust
sex tilboð. Akveðið var aö taka lægsta
tilboðinu, sem kom frá Ingólfi Bárðar-
syni, rafverktaka í Njarðvík.
Tilboö Ingólfs hljóðaði upp á krónur
5.089.501, sem er 83 prósent af kostn-
aðaráætlun. Hæsta tilboðið var 2
fleira úr marmarasandi, samkvæmt
erlendu einkaleyfi. Þeir vinna ein-
göngu eftir sérpöntunum og enga tvo'
hluti gera þeir eins.
Eg spurði Kristin hvort það hefði
ekki verið meira að gera á Selfossi en á
Eskifiröi. Hann svaraöi þvi neitandi.
Hann sagði að léttara hefði verið á
Selfossi því að á Eskifirði hefði hann
haft stór umdæmi, frá Langanesi og
suöur á Breiðamerkursand. Kristinn
gat þess jafnframt að hann hefði
alltaf verið heppinn meö starfsfólk og
það hefði mikiö að seg ja.
Regína, Selfossi.
prósentum yfir kostnaðaráætlun.
Ibúöirnar, sem eru átta talsins, er
verið að reisa við Vallarbraut 2. Þær
eru þegar fokheldar. Stefnt er aö því að
ljúka verkinu fyrir 1. júní næstkom-
andi, að því er Asbjöm Guðmundsson,
sem sæti á í byggingarnefnd, tjáði DV.
-KMU.
Landsbankinn Selfossi:
Krístinn Júlíusson
bankastjórí hættir
Njarðvík:
TILBOÐ í ÍBÚDIR
ALDRAÐRA OPNUÐ