Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Side 22
22 DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984. íþróttir Bryan Robson, lyrlrliði Man. Utd. og Eng- lands. Robson alls ekkiseldur „Það eru ekki til nægir peningar á ítalíu til að kaupa Bryan Robson,” sagði Ron Atkinson, stjóri Man. Utd, í Manchester í gær eftir að sá orðrómur hafði komist á kreik að ítalska 1. deildarliðið Sampdoria vildi kaupa Robson, fyrirliða Man. Utd og Englands, á þrjár milljónir sterlingspunda. Tveir breskir leikmenn leika með ítalska lið- inu, Liam Brady og Trevor Francis. „Ég er að reyna að byggja upp besta lið hér í landi og ætla ekki að brjóta það niður. Eg er orðinn þreyttur á þessum eiiífa söguburði,” sagði Atkinson ennfremur. Eftir 30. júní næstkomandi fá ítölsku iiðin ekki aö kaupa erlenda leikmenn næstu tvö árin og þess vegna ræða ftalir nú um alls konar leikmenn. Ian Rush hjá Liverpool var einnig í fréttunum. Sagt að Juventus og Real Madrid hefðu áhuga á honum. Tvær milljónir punda nefndar. Robson tók þessum fréttum rólega í gær. Sagði: Ég er ekki hræddur viö að fara til ítalíu en ef United vill halda mér þá er það í lagi.” hsim. Daníel var með bestan árangur Daniel Hilmarsson frá Dalvik stóð sig betur en ólympíufarar tslands á svig- mótum i Austurríki um helgina. Hann varð 37. af 140 keppendum í Lermose á 86,85 sek. Guðmundur Jóhannsson frá Isafirði varð i 40. sæti á 87,34 sek. Arni Þór Árna- son úr Reykjavík varð úr ieik. Austurrikis- maðurinn Koel Bichler slgraði á 79,53 sek. Daníel varð síðan í 36. sæti í Wengle á 1:35,07 mín„ en hann hafði rásnúmer 82. Guðmundur varð í 40. sæti á 1:35,72 mín. Árni Þór varð úr leik. V-Þjóðverjinn Wiindl slgraði á 1:25,54 mín. • Nanna Leifsdóttir keppti í stórsvigi í Belleconte í Frakklandi og varð í 34. sæti af 90 keppendum á 2:22,14 mín. Sigurveg- ari varð Meiander frá Svíþjóð á 2:12,22 mín. _SOS Yngsti ís- landsmeistari — íatrennulausum stökkum Sautján ára strákur úr Breiðabliki, Einar Gunnarsson, vakti mikla athygli á íslandsmótinu í atrennulausum stökkum í tR-húslnu í gær. Hann bætti árangur sinn um hálfan metra í þristökki án atrennu og sigraði meö 9,54 m. Vngsti maður, sem hlotið hefur Islandsmeistaratitil í atrennu- lausum stökkum. Unnar Garðarsson, HSK, varð Islands- meistari í tveimur greinum. Stökk 1,63 m í hástökki án atrennu og 3,16 m í langstökki án atrennu. Guðmundur Nikulásson, HSK, varö annar í báðum greinum með 1,59 m og 3,13 m. Annar í þrístökki varð Stefán Þ. Stef ánsson, IR, með 9,48 m. Kolbrún Rut Stepens, KR, reyndi viö nýtt Islandsmet í hástökki án atrennu, 1,44 m. Tókst ekki. Sigraði með 1,40 m. Helga HaUdórsdóttir, KR, önnur með 1,30 m. Kolbrún Rut sigraði einnig í þrístökki, stökk 7,97 m. Helga önnur með 7,76 m en í langstökki sigraöi Helga. Stökk 2,55 m. Kolbrún Rut varð þar önnur meö 2,53 m. Bryndís Hólm, IR, þriðja með 2,48 m. Keppendur á mótinu voru 35 og tókst það mjög vel undir stjóm Guömundar Þórar- inssonar. hshn. íþróttir íþróttir fþróttir íþ Leikmenn Brighton gerðu sér lítið fyrir í gær og slógu Liverpool út úr ensku bikarkeppninni annað árið í röð. Sigruðu 2—0 í 4. umferð í Brighton og var leiknum sjónvarpað beint á Bret- Joe Corrigan — markvörðurinn snjaUi. landseyjum. Ahorfendur samt um 19 þúsund. Það var gamli, enski landsliðsmark- vöröurinn Joe Corrigan (lengi Man. City) sem öðrum fremur tryggði Brighton sigur. Hann varði frábær- lega í leiknum, sex sinnum af hreinni snilld. Liverpool varð fyrir áfalU á 30. mín. þegar fyrirUði Uðsins, Graeme Souness, varð að yfirgefa vöUinn vegna meiðsla en þeir Ian Rush og Mike Robinson fengu þó góð tækifæri til aðskora. Brighton gerði út um leikinn á einni mínútu snemma í síðari hálfleik. Irski landsUðsmaðurinn Gerry Ryan skor- aöi fyrra markiö á 57. min. og tæpri mínútu síðar sendi Terry Connor knött- inn í markiö hjá Bruce Grobbelaar. Þar við sat. Fleiri urðu mörkin ekki. I fyrra sigraði Brighton Liverpool einnig í bikarkeppninni. Það var í 5. umferð og Brighton vann þá 2—1. Leikurinn var meira að segja háður á Anfield í Liverpool. Brighton komst þá alla leið í úrsUt en tapaöi fyrir Man. Utd. eftir tvoleiki. hsím Öraggt hjá Valsmönnum Einar Bollason (t.v.) nær ekki að stöðva KR-inginn Garðar Jóhannesson. „Strákamir ekki spenm — sagði Einar Bollason, eftir að Haukar höfðu ta Aftur féll Liverpool fvrir Brighton — Brighton sigraði 2-0 Í4. umferð ensku bikarkeppninnar í gær „Þetta var mjög góður leikur hjá okkur, við lékum allir vel og þetta var þýðingarmikUl sigur fyrir okkur. Það er orðið langt síðan við höfum unnið leik og margir sigrar munu fyigja í kjölfarið,” sagði Tom Holton, leik- maður með úrvalsdeUdarliði Vals í körfuknattleik, eftir ieik Vals og Keflavíkur í Seljaskóla í gærkvöldi. Lokatöiur urðu 92—69 en staðan í leik- hléi var 48—31 Vai í vU. Þaö þarf ekki að hafa mörg orð um leik þennan. Hann var eign Valsmanna frá upphafi og var leikur Uðsins mjög góður. Tom Holton var mjög góður hjá Val og skoraði 20 stig og þeir Jóhannes Magnússon og Torfi Magnússon skoruöu 11 hver. Furöulegt að Jóhannes skuli ekki fá að leika meira með liöinu. Lið Keflavíkur var ákaflega slakt í þessum leik og allir leikmenn áttu dapran dag. Jón Kr. var stigahæstur með 18 stig en Bjöm Víkingur Skúlason kom næstur með 12 stig. Oskar Nikulásson skoraöi 11 og þeir Guðjón Skúlason og Sigurður Ingimundarson skoruðulOstighvor. Dómarar voru þeir Jón Otti Olafsson og Gunnar Bragi Guðmundsson og var dómgæsla þeirra mjög góð þegar á heildina er litið enda á ferð tveir af bestu dómurum okkar í greininni. Maður leiksins: Tómas Holton Val. -SK. „Strákarnir þoldu ekki spennuna. Lið mitt virðist ekki tilbúið i að halda út góðu gengi og það bætir svo ekki ástandiö þegar lykilmenn liðsins klikka eins og í leiknum hér áðan,” sagði Einar Bollason þjálfari og leik- maður Hauka í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik eftir leik Hauka og KR í íslandsmet Sveit Njarðvíkur setti Islandsmet í 4X50 m bringusundi karla í gær — synti vegalengdina á 2:12,1 mín. Gamla metiö átti sveit SH, 2:17,0 mín. Hafnarfirði á laugardag. Lokatölur urðu 81:75 en staðan í leikhléi var 44:37 KRívil. KR-ingar, sem hafa verið mjög köfl- óttir í síðustu leikjum sínum, náðu nú góðum leik og margir leikmenn liðsins léku af öryggi. Má þar nefna Guðna Guðnason sem skoraði 24 stig og missti þrjú skot í öilum leiknum. Þá átti Jón Sigurðsson alveg einstaklega góðan leik og virðist sá kappi vart ætla að eld- ast. Þáttur hans í sigrinum á laugar- dag var stór. Og annað gamalt brýni lék vel á laugardag en það var Birgir Guöbjömsson. Greinilegt að hann er að koma mikið til og á eftir að styrkja KR-Iiðið mikið á baráttu framtíðarinn- Atli var hetja íslands skoraði jöfnunarmarkið 24-24 í Hafnarfirði Atli Hilmarsson var hetja íslenska landsliðsins í handknattleik sem varö að sætta sig við jafntefii 24—24 gegn Norðmönnum í Hafnarfirði á laugar- daginn. Atli var besti leikmaður íslenska liösins og hann tryggði íslendingum sigur þegar hann skoraði jöfnunarmarkið rétt fyrir leikslok með því að brjótast í gegnum vamarvegg Norðmanna. Vamarleikur íslenska liðsins brást algjörlega í Hafnarfirði og var mark- varslan síðan eftir því — aöeins sex skot varin og þau varði Einar Þor- varðarson í fyrri hálfleiknum. Það vantaði alla einbeitingu og yfirvegun í sóknarleik liðsins og var greinilegt að leikmenn liðsins mættu of sigurvissir til leiks — héldu að Norðmennirnir yröu eins auöveldir og í fyrsta lands- leiknum í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið. Norðmenn mættu aftur á móti á- kveðnir til leiks — börðust grimmilega og þrátt fyrir að fimm þeirra væri vikið af leikvelli, aðeins tveimur tslendingum, þá höföu þeir alltaf frumkvæðið. Þeir voru yfir 13—12 í leikhléi og síðan náðu þeir fjögurra marka forskoti í byrjun seinni hálf- leiksins — 17—13. Islendingar náðu að jafna 17—17 og síðan var jafnt á öllum tölum út leikinn. Eins og fyrr segir var íslenska liðið lélegt — sérstaklega var vamarleik- urinn slakur. Atli Hilmarsson var besti leikmaöur liðsins og er hann í mikilli framför. Tvær breytingar vom gerðar á íslenska liðinu frá fyrsta leiknum. Þorbergur Aðalsteinsson tók stöðu Sigurðar Gunnarssonar og Brynjar Kvaran stöðu Jens Einarssonar sem markvörður. Þeir sem skoruðu mörkin í leiknum, voru: Island: Atli 6, Kristján A. 5, Steinar B. 4, Jakob S. 3, Páll 0.2, Þorgils Ottar 2, Þorbjörn J. 1 og Þorbergur 1. Noregur: Johannssen 6, Ohrvik 5, Bauer 4, Pattersen 4, Rundhovde 2, Haneborg 1, Soensterud 1 og Skadverg !• -SOS. Sigurður áhorfandi Það vakti mikla athygli í Hafnar- firöi á laugardaginn að Siguröur Sveinsson, vinstrihandarskyttan í handknattleik, sem leikur með Lemgo í V-Þýskalandi, sat allan tímann á varamannabekknum — kom ekki inn á í eina einustu sekúndu. Sigurður var einnig lítið notaður í fyrsta landsleiknum gegn Noregi. Það er hreint furðulegt að Bogdan landsliðsþjálfari skuli kalla á Sigurð frá V-Þýskalandi til að láta hann verma bekkinn. Það er ekki uppörvandi fyrir Sigurð. -SOS. T I I I (þróttir (þróttir (þróttir (I (þróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.