Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Síða 23
DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984. 23 róttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir „Þetta er allt á réttri leið” ■ sagði Kristján Arason, f yrirliði íslenska landsliðsins, ef tir f imm marka sigur á Noregi, 25-20, í gærkvöld DV-mynd: Oskar Örn Jónsson. þoldu n paðfyrirKR 75-81 ar. Stigahæstur hjá KR var Guöni Guðnason meö 24 stig. Þeir Jón Sig- urösson og Garðar Jóhannesson skor- uðu 14 hvor og Birgir Guöbjörnsson 12. Þessir báru nokkuö af í KR-liðinu. Það er hægt aö taka undir orð Ein- ars Bollasonar hér aö framan. Hauka- liðið virðist ekki alveg tilbúið til stóraf- reka en mikið voöalega er fariö að styttast í glæsta sigra liðsins. Meðal- aldur liðsins er mjög lágur og margir leikmenn liðsins eiga framtíðina fyrir sér. Þeir Kristinn Kristinsson og Hálf- dán Markússon voru einna skástir Haukanna í þessum leik en allir leik- menn liðsins geta gert betur og eiga ör- ugglega eftir að gera það. Kristinn skoraði 13 stig'og það gerði Hálfdán einnig en næstur þeim kom Pálmar með 11 stig. Ovenjulítið hjá honum. Sveinn skoraði 10 stig og Ein- ar Bollason 9. Leikinn dæmdu þeir Kristinn Al- bertsson og Gunnar Bragi Guðmunds- son og hafa gert betur. -SK. STAÐAN Staöan í úrvalsdeildinni eftir leiki helgarinnar er þessi: Njarðvík-IR 83-72 Valur-Keflavík 92-69 Haukar-KR 75—81 Njarðvík 965—894 13 10 3 20 KR 1005—988 14 8 6 16 Haukar 1015-1025 14 8 6 16 Valur 1159-1089 14 6 8 12 Keflavik 854—969 13 5 8 10 m 987—1020 14 4 10 8 Stigahæstu leikmenn: Valur Ingimundarson, Njarðvík 360 Pálmar Sigurðsson, Haukum 308 Kristján Ágústsson, Val 273 Torfi Magnússon, Val 228 Hreinn Þorkelsson, 1R 220 „Ég er ánægður með þessi úrslit. Það var mikil barátta í þessum leik h já íslenska liðinu og alltaf leikmenn að koma upp eins og Sigurður Gunnars- son í þessum leik. Þetta er aUt á réttri leið hjá okkur — allt að koma og það var gott að vinna norska liðið með þessum mun eins og dómgæslan var,” sagði Kristján Arason, fyrirliði ís- lenska landsliðsins í handknattleik, eftir að Island hafði sigraði Noreg 25— 20 í þriðja landsleik þjóðanna í gær- kvöld í LaugardalshöU. Þar með erum viö komnir með tvo sigra umfram Norðmenn í Iandsleikjum þjóðanna. Góður sigur en það verður að segjast eins og er að lengi vel var eins og dönsku dómararnir væru á kaupi hjá þeim norsku. Svo mjög dæmdu þeir norska liðinuíhag. Leikurinn var mjög harður, ekkert gefið eftir hjá báðum liðum og Norð- menn komu á óvart framan af með því aö taka tvo leikmenn ísl. liösins úr um- ferð. Hættu því þó rétt fyrir miðjan fyrri hálfleikinn. Reyndu þaö svo aftur lokakaflann þegar leikurinn tapaöur fyrir þá.Bogdan Kowalczyk, landsUðs- þjálfari, keyröi á nær sömu átta leik- mönnunum mest aUan leikinn, þeim Jens Einarssyni, Kristjáni Arasyni, Steinari Birgissyni, Þorbirni Jenssyni, Atla Hilmarssyni, Jakob Sigurðssyni, og svo þeim Þorbergi Aðalsteinssyni og Sigurði Gunnarssyni, sem skiptust á í sókn og vörn. Þorbergur í vörninni. Það voru talsverðar sveiflur í leik Soler til Hamburger Frá Jóni Einari Guðjónssyni — frétta- manni DV í Noregi. — Gunter Netzer, framkvæmda- stjóri Hamburger SV, er væntanlegur th Osló nú í vikunni til að ganga frá samningum við norska landsUðsmann- inn Erik Soler sem fer til Hamburger í júlí. Þeir Netzer og Soler áttu leyni- fund í Gautaborg í sl. viku. Hess náði forustunni Erika Hess, Sviss, sem sigraði samanlagt í keppni kvenna í heimsbik- arnum, náði forustu í stigakeppninni í gær, þegar hún sigraði í stórsvigi i Saint-Gervais í Frakklandi. Tími hennkr var 2:24,05 mín. Langfyrst. Önnur varð Christin Cooper, USA, á 2:24,94 mín. og Carole Merle, Frakk- landi, þriðja á 2:25,13 mín. hsím. ísl. liösins. Jens varði átta skot í fyrri hálfleik, síðan lítið sem ekkert (tvö skot) og Einar Þorvarðarson lék átta síðustu mínútumar. Vörnin var yfir- leitt sterk meö þá Steinar, Þorbjörn, Kristján og Þorberg sem aðalmenn og þeir Steinar og Þorbjöm komust einnig mjög vel frá sóknarleiknum. Skoruöu mörg þýðingarmikil mörk, einkum Steinar, sem vex með hverjum leik. Þeir PáU Olafsson og Atli léku nú ekki aöalhlutverkið í sóknarleiknum eins og áöur. Þar sáust margir fallegir hlutir. Siguröur Gunnarsson skoraði nokkur glæsimörk og átti góðar línusendingar en nokkuð „villtur” undir lokin. Kristján lék sinn besta landsleik undir stjórn Bogdan og Jakob, yngsti maður liðsins, stendur vel fyrir sínu. Island fékk fimm vítaköst í leiknum og „fisk- uðu” þeir Þorbergur (2), Atli (2) og Þorbjörn þau. Gangur leiksins Island skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins, 3—0, og Norðmenn komust loks á blað eftir rúmar átta mínútur. En þeir fylgdu því eftir. Jöfnuðu í 3—3. Island komst aftur yfir, 5—3 og 7—4 og var það mest vegna glæsilegrar frammistöðu Jens í markinu. Eitt sinn varöi hann þrjú skot í röð á örfáum sekúndum. Síðan fóru Norðmenn aö minnka muninn enda vísuöu norsku dómararnir tveimur ísl. leikmönnum af velli. Þá voru fjórir útispilarar Is- lands gegn sex Norðmönnum. Staðan breyttist í 7—6, síðan 8—7, en loka- sprettur ísl. liðsins var mjög góður síðustu fimm mínúturnar. Það skoraöi þá fjögur mörk gegn einu og staðan í hálfleik 12—8. Þennan fjögurra marka mun tókst Norðmönnum að vinna upp á fyrstu átta mín. síðari hálfleiks. Jafna í 14—14 og spennan var mikil jafnt á vellinum sem meðal áhorfenda. Oft baulað á dönsku dómarana. Island sigldi fram úr aftur, komst í 17—15, síðan 20—17 þegar níu mín voru eftir. Sigurinn virt- ist vera að komast í höfn. Norð- mönnum tókst þó að minnka muninn í eitt mark, 20—19, á 53. mín. en loka- kaflinn var algjörlega íslenska liðsins. Það skoraði fimm mörk gegn einu síðustu fimm mínútumar. Góður sigur íhöfn. Kristján var markhæstur í íslenska liðinu með átta mörk. Fimm þeirra koruð úr vítaköstum. Þeir Steinar og Sigurður Gunnarsson skoruðu fjögur mörk hvor, Þorbjöm 3, Atli og Jakob tvö mörk hvor, Þorbergur og Siguröur Sveinsson eitt mark hvor. Hjá Norðmönnum var Kári Ohrvik markahæstur með sjö mörk og voru fjögur þeirra skoruö úr vítaköstum. Jan Rundhovde og Gunnar Pettersen | skoruðu fjögur mörk hvor, Tore Johannes- sen tvö Lars Christian Haneborg, Odd Soensterud og Harold Sletten eitt hver. hsím. Pétur skoraði gegn Waterschei — Ungverjinn Fazekas fór á kostum hjá Antwerpen eftir að hann kom inn á Frá Kristjáni Bemburg — fréttamanni DVíBelgíu: — Pétur Pétursson skoraði gott mark fyrir Antwerpen, þegar félagið lagði Waterschei að velli 4—2 í hafnar- borginni frægu. Það var Ungverjinn Lazslo Fazekas sem var hetja Ant- werpen — hann kom inn á sem vara- maður þegar staðan var jöfn 1—1 í byrjun seinni háifleiksins og kom hann þá með nýtt blóð í Antwerpen-liðið. Fazekas lék skemmtilega í gegnum vörn Waterschei rétt eftir að hann kom inn á og sendi knöttinn til Péturs Péturssonar sem skoraði 2—1. Pétur þakkaði síöan fyrir sig og sendi góða sendingu til Fazekas stuttu seinna og skoraði Ungverjinn 3—1. P. Jensen minnkaði muninn fyrir Waterschei í 3—2 áöur en Fazekas gulltryggði sigur heimamanna. Lárus Guðmundsson var varamaður en hann kom inn á þegar 30 mín. voru til leiksloka og var staðan þá 3—1. Aðalleikurinn í Belgíu var í Brugge þar sem FC Brugge fékk Anterlecht í heimsókn. Viðureigninni lauk með jafntefli 1—1 en 30 mín. tafir urðu á leiknum vegna óláta áhangenda lið- anna. Lokeren tapaði 0—2 í Molenbeek. Seraing vann Kortrijk 2—0. Beveren hélt áfram sigurgöngu sinni — vann Beerschot3—2. Beveren er með 34 stig eftir 20 leiki, Seraing 28, Anderlecht 26, Standard 25 og FC Brugge 24. -KB/-SOS Heimsbikarkeppnin íalpagreinum: Fyrsti sigur Wenzel í risa-stórsviginu Andreas Wenzel, Lichtenstein, slgr- aðl í risastórsvigi heimsbikarsins í gær í Garmisch-Partenkirchen i V-Þýska- landi. Keyrði brautina, 2200 metra, á 1:36,53 min. Pirmtn Zurbriggen, Sviss, varð annar á 1:36,62 min. Þrlðji varð Hans Enn, Austurriki, á 1:37,55 min. Þá Marc Girardelli, Lúxemborg, á 1:37,62 min. og Ingemar Stenmark, sem er litið hrifinn af þessu risastór- svigi, varð fimmti á 1:37,68 min. Þetta er fyrsti sigur Wenzel í risa- stórsviginu en Zurbriggen jók þó stiga- forustu sína. Hann sigraði samanlagt í bruni og risastórsviginu á mótinu. Þar varð Wenzel annar. I bruninu á laugardag sigraöi Steve Podborski, Kanada, á 1:56,95 mín. í Kandahar brautinni. Erwin Resch, Austurríki, varð annar á 1:57,20 mín. og Franz Klammer, Austurríki, þriðji á 1:57,44 mín. Zurbriggen varð sjötti á l:58,23mín. I stigakeppninni samanlagt er Zur- briggen efstur með 209 stig. Wenzel hefur 168 stig og Stenmark þriðji með 156 stig. Síðan koma þeir Girardelli og Franz Heinzer, Sviss, með 123 stig. -hsím. Steve Cram þegar hann sigraði í 1500 m hlaupinu á heimsmelstaramótinu í Helsinki í fyrrasumar. Fyrsta tap Steve Cram frá 1981 — varð Í8. sætiá móti á Nýja-Sjálandi Enski heimsmeistarinn og íþróttamaður ársins á Bretlandi, Steve Cram, varð aðcins í áttunda sæti í 1500 metra hlaupi á móti í Hamilton á Nýja-Sjálandi fyrir skömmu. Hljóp á 3:42,4 min. og þetta er í fyrsta skipti, sem hann tapar hlaupi i 1500 m frá þvi síðsumars 1981. Cram hefur átt við meiðsli í hné að stríða og því lítið getað æft síðustu mánuðina. Eftlr hlaupið sagði Cram að hann hefði alveg náð sér af meiðslunum, „en það er kjánaiegt að vera að keppa í janúar gegn mönnum sem allir eru í mikiu betri æfingu en ég”. Steve Cram hefur ákveðiö að taka ekki þátt í fleiri mótum á Nýja- Sjálandi og í Ástralíu en einbeita sér þess í stað aö æfingum þar. -hsím. Sjö öruggir blaksigrar Enginn sjö meistaraflokksleikja í blak- inu um helgina telst hafa veríð spennandi. Tveir leikir voru í 1. deild karla, þrír í 1. deild kvenna og tveir í 2. deild karia. Urslit voru öll eftir bókinni. 11. deild karla sigraði Þróttur Fram 3— Ö: 15-9,15-6 Og 15-5. HK sigraði Víking einnig 3—0:16—4,15—5 og 15—6. 1 keppni kvennaliða sigraði Breiðablik Þrótt 3—2. Iþróttafélag stúdenta vann Vík- ing 3—0 og Völsungur vann KA 3—0 á Akureyri. 12. deild karla vann Samhygð 3—0 sigur yfir B-liði HK á Selfossi. Reynivík lagði Skautafélag Akureyrar 3—0. -KMU. ■pa a x a Zico skoraði tvö mörk — og Platini skoraði eitt mark á Ítalíu Brasiiíumaðurinn Zico heldur sinu striki á Itaiíu. Þessi snjalli leikmaður skoraði bæði mörk Udinese, sem lagði Avellino að velli 2—1. Zico skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu og seinna markið bcint úr aukaspyrnu, sem hann er heimsfrægur fyrir. Zico er markhæstur á Italiu með 15 mörk. Michel Platini skoraði mark Juventus þegar félagið gerði jafntefli 1—1 gegn Napolí, sem hefur ekki tapað leik á heima- velii í ellefu rhánuði. Platini skoraði markið beint úr aukaspymu. Toríno vann Inter Milanó 3—1. Argentínumaðurinn Hernandez skoraði tvö mörk Torino úr vítaspymum og Austurríkismaðurinn Walter Schachner skoraði þriðja markið. Argentínumaður- inn Daníel Bertoni skoraöi bæði mörk Fiorentina, sem vann Ascoli 2—1. Roma gerði jafntefli 1—1 viö AC Mílanó. Juventus er efst á Italíu með 26 stig eftir 18 leiki, Torino 24, Fiorentina 23, Udinese, Roma og Verona eru með 22 stig. -sos þróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.