Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 25
l't t:r, t ‘A fc r T ,1/ / ,f/1 <J i. ftfA A 7 DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984. róttir íþróttir íþróttir Samvinna Asgeirs og Comeliusson frábær — Ásgeir var maður vallarins þegar Stuttgart vann Kaiserslautern 5-1. Corneliusson skoraði þrjú mörk Frá Hilmari Oddssyni — frétta- manni DV í V-Þýskalandl: — Ásgeir Sigurvinsson átti stórleik með Stuttgart þegar félagið, sem lék án Förster-bræðranna, vann stórsigur, 5—1, yfir Kaiserslautem. Blöð hér í V- Þýskalandi gefa honum hæstu einkunn og segja að hann hafi sjaldan ieikið eins vel — stjóraaði öllum leik Stutt- gart. Eitt blaðanna velti því fyrir sér, hvers vegna i ósköpunum landsliðs- maðurinn Hans-Peter Brigel hefði ekki verið settur sem yfirfrakki á Ásgeir sem komst upp með að gera allt sem honum sýndist. Það var Svíinn Dan Corneliusson sem átti einnig góðan leik, sem skoraði fyrsta markið á 18. mín. eftir frábæra sendingu frá Asgeiri — ellefu metra sendingu sem datt niður rétt fyrir framan Svíann. Corneliusson skoraöi síðan tvö mörk til viðbótar, einnig eftir sendingar frá Asgeiri. Peter Reichert skoraði fjórða markið og Asgeir það fimmta með þrumuskoti af 14 m færi. Thomas Allofs skoraði eina mark Kaiserslautern. Aðeins 16 þús. áhorfendur sáu leikinn en það vakti athygli hér að aðeins 100 þús. áhorfendur komu á leikina í „Bundesligunni”. Alls voru skoruð 43 mörk í leikjunum, sem er metívetur. Litli og stóri óstöðvandi Bræðurnir Michael Rummenigge og Karl-Heinz Rummenigge skoruðu mörk Bayern Miinchen þegar félagiö lagði Bielefeld að velli 3—1. Michael, sem átti stórleik, skoraöi tvö mörk en Karl-Heinz eitt — úr vítaspymu. Aðeins 11 þús. áhorfendur sáu leikinn. Það var Finninn Pasi Rautiainen sem skoraði mark Bielefeld. Urslit urðu þessi í „Bundesligunni” á laugardaginn: Bayem—Bielefeld 3-1 „Gladbach”—Offenbach 3-2 Frankfurt —Uerdingen 2-2 Hamburger—Dortmund 7-2 Stuttgart—Kaiserslautern 5-1 Mattháus til Bayern Það standa nú yfir viðræður milli forráðamanna Bayera Munchen og Borussia Mönchengladbach um Lothan Mattháus. Bayera hefur áhuga á að kaupa þennan snjalla landsliðs- mann og miðvallarspilara sem myndi styrkja liðið mikið í baráttunni um V- Þýskalandsmeistaratitillnn. Það er talið liklegt að „Gladbach” láti hann fara til Bayera þar sem félagið fær mikla peninga fyrir hann. -HO. STAÐAN Dan Coraellusson skoraðl þrjú mörk fyrir Stuttgart. Bochum—Bremen 3—3 Niirnberg—Leverkusen 2—3 Mannheim—Braunschew. 2—2 Leik 1. FC Köln og Diisseldorf var frestað þar sem leikvangurinn í Köln var ísilagöur. Sjö mörk Hamburger Leikmenn Hamburger eru greini- lega búnir að rétta úr kútnum — unnu stórsigur, 7—2, yfir Dortmund á mjög slæmum velli í Hamborg þar sem aöeins 15 þús. áhorfendur voru. Þeir Manfred Kaltz og Wolfram Wuttke voru bestu leikmenn Hamburger. Wuttke skoraöi tvö mörk og voru það hans fyrstu mörk fyrir Hamburger í vetur. Manfred Kaltz, Ditmar Jakobs, Jimmy Hartwig, Wolfgang Rolff og Juerger Groh skoruðu hin mörkin. Þeir Marcel Raducanu og Ulrich Bittcher skoruðu fyrir Dortmund. • Völiurinn í Bochum var einn forar- pyttur þegar leikmenn Werder Bremen komu þangað í heimsókn. 19 þús. áhorfendur sáu fjörugan leik og 8 oi slapp Bremen með skrekkinn því að staöan var 0—3 fyrir Bochum þegar 15 mín. voru til leiksloka. Þá skoraöi Rudi Völler tvö mörk — það seinna á 88. mín. og Frank Neubarth eitt. • Wilfried Hannes, Uwe Rahn og Lothan Mattháus tryggöu Borussia Mönchengladbach sigur, 3—2, yfir Offenbach. Uwe Bein skoraði bæði mörk Offenbach. 12 þús. áhorfendur. • Karl-Heinz Rummenigge er nú markahæstur í V-Þýskalandi með 13 mörk, en þeir Rudi Völler, Bremen og Vaas hjá Leverkusen hafa skorað 11 mörk. -HO/-SOS. Inter Milano vill Völler — í skiptum fyrir Hansa Miiller Forráðamenn ítaiska félagsins Inter Milano hafa nú augastað á markaskor- aranum mikla, Rudi Völler, hjá Werder Bremen, en Inter Milano vantar illilega markaskorara. Pellogrini, forseti félagsins, sagði að þeir tveir erlendu leikmenn hjá Inter Milano, Hansi Muller, sem varkeyptur frá Stuttgart og Ludo Coeck, sem var keyptur frá Anderlecht, væru of líkir leikmenn — báðir miðvallarspilarar. Inter Milano vill nú skipta á Hans Múller, sem er miðvallarspilari eins og Coeck, og fá Völier í staðinn. -SOS. Kennedy til Hartlepool Ray Kennedy, fyrrum ieikmaður Arsenal og Liverpool, sem hefur leikið með Swansea undanfarin ár, er fimmti leikmaður félagsins sem hefur farið frá því á stuttum tíma. Kennedy hefur gerst leikmaður með Hartlcpool. IMauðungaruppboð sem auglýst var í 49., 52. og 59. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Tjaraarbraut 3, kjallara, norðausturhluta, Hafnarfirði, þingl. eign Grétu Hafsteinsdóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- banka tslands og innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 2. febrúar 1984 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Hjallavegi 3 L í Njarövík, þingl. eign Gunniaugs Mikaclssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Bæjarsjóös Njarðvíkur, Jóns Þóroddssonar hdi. og innheimtumanns ríkissjóðs miðvikudaginn 1.2. 1984 kl. 11.15. Bæjarfógetinn í Njarðvik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Holtsgötu 42, miðhæð, í Njarðvík, þingl. eign Guðmundar Friðrikssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Bæjarsjóðs Njarðvíkur miðvikudaginn 1.2. 1984 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Njarðvík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Kirkjubraut 27 í Njarðvík, þingl. eign Sigríðar I. Haraldsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Bæjarsjóðs Njarðvíkur miðvikudaginn 1.21984 kl. 14.15. Bæjarfógetinn íNjarðvík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Háaleiti 1,2. hæð merkt E, í Keflavík, þingl. eign Lilju Sigurðardóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Viihjálms H. Vilhjálmssonar hdl. miðvikudaginn 1.2.1984 kl. 10.15. Bæjarf ógetinn í Keflavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Vallargötu 24, kjallara, í Keflavík, þingl. eign Guðríðar S. Valgeirsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G.'Briem hdl. miðvikudaginn 1.2.1984 kl. 10.45. Bæjarfógetinn í Keflavík. Staðan er nú þessi í V-Þýskaiandi: Bayera 19 12 4 3 38—17 28 Stuttgart 19 11 5 3 41—17 27 Hamburger 19 11 4 4 39—21 26 W. Bremen 19 10 5 4 42-20 25 „Gladbach” 19 10 5 4 40—27 25 Dusseldorf 18 9 5 4 43—23 23 Leverkusen 19 9 4 5 35—29 22 Uerdingen 19 6 6 6 33—34 20 Köin 18 8 3 7 35—26 19 Bielefeld 19 6 5 8 25—21 17 Mannheim 19 5 7 7 24—34 17 Bochum 19 5 6 8 35-43 16 Braunschw. 19 7 2 10 31—42 16 Kaiserslautern 19 6 3 10 35—43 15 Dortmmid 19 5 4 10 25—42 14 Offenbach 19 4 3 12 28—58 11 Frankfurt 19 1 8 10 19—39 10 Núrnberg 19 4 1 14 25—46 9 (þróttir o LAUNÞEGAR! Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur skattframtala 1984 er ^ I rilMij Síðasti skiladagur fyrir einstaklinga með sjálfstæðan atvinnurekstur er 15. mars. L Ríkisskattstjóri J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.