Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 26
26 DV. MÁNUDAGUR 30. JANUAR1984. fþróttir fþrótt fþróttir fþróttir IPSWICH FEKK SKELL —á Gay Meadow þar sem leikmenn Shrewsbury slógu Ipswich út úr bikarkeppninni í annað sinn á þremur árum Það var frekar lítið um óvænt úrslit í 4. umferð ensku bikarkcppninnar í samanburði við þriðju umferðina sem fram fór á dögnnum, en þá féllu mörg 1. deildar iið út úr keppninni mjög óvænt gegn iiðum úr neðri deildunum. En langóvæntustu úrslitin í 4. umfcrö- inni var sigur Shrewsbury Town úr 2. deild gegn 1. deildar liði Ipswich Town. Það var vetur konungur sem enn einu sinni lét til sin taka á Englandi og varð að fresta fimm leikjum í bikar- keppninni, og voru þeir allir í Mið- og Norður-Englandi, en þar er allt á kafi í snjó þessa dagana. Frestað var leikjum Derby-Telford, Huddersfield- Notts County, Middlesbrough-Bourne- mouth, Sheff. Wednesday-Coventry og W.B.A.-Scunthorpe. En við byrjum á því að fara á Gay Meadow, heimavöll Shrewsbury Town, en þar fengu heimamenn Ipswich Town í heimsókn. En það er einmitt þessi völlur sem hefur veriö grafreitur bikardrauma Ipswich á síðustu árum því aö það hefur tapaö tvisvar áður í bikarkeppninni á síðustu fjórum árum einmitt á þessum velli gegn Shrews- bury. Og þessi staðreynd virtist vera greypt í huga leikmanna Ipswich þegar leikurinn hófst því að þeir virt- ust hugsa um þaö eitt að reyna aö ná jafntefli og komast þannig sem fyrst frá þessum álagastað. En Shrewsbury náði strax undirtökunum í leiknum og sótti látlaust að marki Ipswich og sem dæmi um yfirburði heimamanna fengu þeir sjö homspyrnur gegn aðeins einni hjá Ipswich. Næst því að skora í fyrri hálfleiknum komst Bernard McNally, en hann átti þrumuskot rétt yfir þver- slána á marki Ipswich, af markteig. En það var síöan á 70. mínútu sem heimamönnum tókst loksins aö brjóta á bak aftur varnarmúr Ipswich og var þaö glæsimark. Var það leikmaður að nafni Gary Hackett sem markið skoraði, náði hann knettinum af George Burley og brunaði í átt aö marki og lét síðan þrumufleyg ríða af frá vítateigshorni og knötturinn hafnaði efst upp í markvinklinum, algjörlega óverjandi fyrir Paul Cooper í marki Ipswich. Eftir þetta mark vaknaði Ipswich örlítið til lífsins og reyndu leikmenn að jafna metin og var John Wark mikill klaufi að jafna ekki þegar hann skaut framhjá markinu í algeru dauðafæri af markteig. Það var siðan á næstsiðustu minútu leiksins URSLIT IJrslit urðu þcssi í ensku knattspyrnunni á laugardaginn: Bikarkeppnin: Charlton-Watford 0-2 C. Palace-West Ham. 1-1 Everton-Gillingham 0-0 Oxford-Blackpool 2-1 Plymouth-Darlington 2-1 Portsmouth-Southampton 0—1 Shrewsbury-Ipswich 2-0 Sunderland-Birmingham 1-2 Swíndon-Blackburn 1—2 Tottenham-Norwich 0-0 Fimm leikjum varö frestað: Sheff. Wed.- Coventry, Huddersfield-Notts C., Derby-Tel- íord, WBA-Scunthorp og Bournemouth. Middicsbrough- 1. deiid: Stoke-Arsenal 1-0 3. deild: BristolR.-Port Vale 0-0 Millwall-Hull 1-0 Orient-Wigan 0-0 Walsall-Bolton 1-0 Wimbledon-Southend 3—2 4. deild: Colchester-Stockport Crewe-Chester Hartlepool-Bristol C Hereford-Doncaster Reading-Rochdale Torquay-Peterborough 1-1 1-1 2—2 0—3 tt-d 1—0 sem leikmenn Shrewsbury spörkuðu Ipswich endanlega út úr bikarkeppn- inni, en þá skoraði Coiin Robinson síðara mark liðs sins, með skalla eftir hornspymu, en hann hafði nýlega komið inn á sem varamaður. Fagnaðarlætin voru því mikil þegar dómari leiksins, Clive Thomas, flaut- aði til leiksloka í Shrewsbury og enn. eitt tap Ipswich var staðreynd á Gay Meadow. Graham Tuerner, fram- kvæmdastjóri Shrewsbury, sagði eftir leikinn í viðtali við fréttamenn B.B.C. að sigur sinna manna hefði verið mjög sanngjam. „Eg var einungis óánægöur með að viö skyldum ekki skora fleiri mörk í leiknum, miðað við öll þau tæki- færi sem við fengum. Ipswich slapp vel að tapa aöeins með tveim mörkum og við höfum nú einfaldlega sýnt það að viö höfum betra liði á aö skipa en Ips- wich, það höfum við sýnt á síðustu árum í viðureignum okkar við það.” Fjörugur leikur á Selhurst Park Þaö var einnig stórskemmtilegur leikur þegar Lundúnaliðin Crystal Pal- ace og West Ham mættust á heimavelli þeirra fyrrnefndu, Selhurst Park í Suður-Lundúnum, aö viöstöddum 32.000 áhorfendum. West Ham byrjaði mun betur í leiknum og þurfti George Wood, markvörður Palace, að verja mjög vel skot frá Neil Orr strax á fyrstu mínútunum og Dave Swindle- hurst brenndi af úr dauðafæri nokkr- um mínútum síðar. En á 29. minútu leiksins náði Crystal Palace foryst- unni, en þá lék Kevin Mabbutt skemmtilega í gegnum vörn West Ham og sendi knöttinn fyrir markið á David Giles sem skallaði í þverslána, af henni féll knötturinn aftur fyrir fætur Giles sem nú skaut enn á markið en Phil Parkes varði skotið en hélt ekki knettinum og nú var það Andy McGull- och sem áttaði sig fyrstur og sendi knöttinn loksins rétta boðleiö í markið. Eftir markið tóku leikmenn Palace leikinn algerlega í sínar hendur og var West Ham heppið að fá ekki fleiri mörk á sig fyrir leikhlé. Palace leiddi því 1— 0 í hálfleik. En í síðari hálfleik snerist dæmiö algerlega við, West Ham náði æ betri tökum á Ieiknum og síðustu tuttugu mínúturnar sóttu leikmenn' þess látlaust að rnarki heimamanna og þegar aðeins sex mínútur voru til leiks- loka tókst þeim loks að jafna. Geoff Pike sendi þá knöttinn vel fyrir markið og Dave Swindlehurst kastaði sér fram' og skallaði í netið, glæsilega gert og óverjandi fyrir George Wood í mark- ínu. Voru þetta sanngjöm úrslit í leikn- um og verða liöin þvi að mætast aftur á' Upton Park á þriðjudaginn kemur. Birmingham tryggði sér sigur á elleftu stundu Birmingham virðist hafa góð tök á Sunderland því á síðustu 12 árum hafa liðin mæst fimm sinnum í bikarkeppn- inni og hefur Birmingham sigrað í öli skiptin. En það virtist allt stefna í það að nú yrði breyting á þegar liðin mætt- ust á Roker Park í Sunderland á; laugardaginn. Þegar aðeins sex mínútur voru til leiksloka leiddi! Sunderland með einu. marki gegn engu. Það mark skoraði Colln West á 41. mínútu eftir fyrirgjöf frá Paul Bracewell. West hafði komið inn á nokkm áður sem varamaður. En aðeins sex mínútum fyrir leikslok tókst ungum nýliða, Martln Kuhl, að jafna metin og þrem mínútum síðar skoraði Mick Harford sigurmarkið fyrir Birmingham með hörkuskalla eftir fyrirgjöf frá Robert Hopkins. Það var: stór stund hjá Harford að skora sigur- markið gegn Sunderland í bikarkeppn- inni því að fyrir sjö árum var hann ein- mitt hjá Sunderland til reynslu um tíma. Hann er fæddur og uppalinní Bobby McDonald — skoraði bæði mörk Oxford. borginni og átti þá ósk heitasta að leika fyrir Sunderland en forráðamenn liðsins töldu hann ekki nægilega góðan og létu hann fara frá sér. Þeir naga sig eflaust í handabökin nú yfir þeim mistökum sem þeir gerðu í þá daga. Ahorfendur á Roker Park vom 21.256. Slakur leikur hjá Tottenham og Norwich Það var mjög lélegur leikur á White Hart Lane í Lundúnum þegar Spurs mætti Norwich. Leikmenn Norwich virtust hugsa um það eitt að ná marka- lausu jafntefli og fá aukaleik á heima- velli sínum og léku þeir því varnarieik af mikilli skynsemi meö þá Dave Wat- son og Norðmanninn Aage Haradei frábæra í vörninni. Var eins og leik- menn Tottenham skorti allt hugvit til aö brjóta vöm gestanna á bak aftur. Var því útkoman markalaust jafntefli sem þóttu sanngjöm úrslit. Flestir áhorfendur í sex ár En sunnar í Lundúnum fór fram á sama tíma mun fjömgri og skemmti- legri leikur á The Valley, heimavelli Charlton þar sem þeir mættu Watford. Vora þar samankomnir flestir áhorfendur á þeim velli sl. sex ár, 22.936 og skemmtu þeir sér konung- lega. Það var Skotinn skotharöi, Maurice Johnston, sem náði f orystunni fyrir Watford strax á 19. mínútu með glæsilegu skoti af um 25 metra færi og eftir það hafði Watford undirtökin í leiknum. Nicky Johns, markvörður Charlton, varði meistaralega skot frá John Bames skömmu síðar. En rétt fyrir leikhlé munaði aðeins hársbreidd aö Charlton tækist að jafna metin. Þá var Derek Hales bragðið á vítateigs- línu og dæmdi dómari leiksins auka- spyrnu, en sumir töldu að Charlton hefði átt að fá vítaspymu því að Hales hefði verið bragðið rétt innan við víta- teiginn. Ur aukaspymunni átti Steve Cunningham hörkuskot undir þver- slána og niður á marklínuna, en varnarmönnum Watford tókst að hreinsa frá og afstýra frekari hættu. Það var síðan George Reilly sum gull- tryggði sigurinn fyrir Watford með fallegu skallamarki á 68. minútu eftir fyrirgjöf frá John Bames. Everton í basli Everton átti í hinu mesta basli með 3. deildar liö Gillingham þegar liöin mættust á Goodison Park í Liverpool. Everton byrjaði mun betur í leiknum og var Greme Sharp tvívegis mjög nálægt því að skora fyrir Everton í byr jun leiksins en eftir þaö mátti Ever- ton þakka fyrir að tapa ekki leiknum því leikmenn Gillingham börðust af miklum krafti og bjargaði John Bailey eitt sinn á marklínu skoti frá Richard Bowman og mark var dæmt af Gilling- ham þegar Jeff Johnson skoraöi, að því er virtist fullkomlega löglegt mark, en dómarinn sá eitthvað athuga- vert sem enginn annar á vellinum virt- ist sjá. Liðin mætast aftur í Gillingham áþriöjudaginn. Bobby McDonald hetja Oxford Gamla kempan Bobby McDonald kom heldur betur við sögu þegar Oifford United, bikarliðið mikla í vetur, sló Blackpool út á Manor Ground. McDonald náði forystunni fyrir Oxford úr vítaspyrnu á 43, mínútu eftir að Lawrence hafði verið bragðið innan vítateigs. En það var Keith Mercer sem jafnaði metin fyrir Blackpool á 63. mínútu eftir mikil varnarmistök McDonalds. En aðeins tveim minútum síðar skoraöi Oxford sigurmarkið í leiknum og enn var það vítaspyrna, sem McDonald skoraði að sjálfsögðu úr og tryggði Oxford í 5. umferð. • Fjórðu deildar lið Swindon Town byrjaöi mjög vel í leik sínum gegn ann- arrar deildar liði Blackburn. Það náði forystunni í leiknum á 20. mínútu með marki Jimmy Quinn en í síðari hálfleik tryggðu þeir Simon Garner og Glen Keeley Blackburn sigurinn í leiknum. • Kevin Dodd skoraði mark Darling- ton á 35. mínútu gegn Plymouth á suðurströndinni, en Dave Phillip jafnaði fyrir Plymouth rétt fyrir leik- hlé með skalla eftir aukaspymu frá Gordon Nisbet. Gordon Staniforth skoraði síðan sigurmarkið fyrir heima- menn í síðari hálf leik. -SE Dave Swlndlehurst — skoraði jöfnunarmark West Ham gegn sinum gömlu félögum. Sou itl iam pto n stal 1 s igri nuv n — í Portsmouth á síðustu sek. þar sem félagið vann heppnissigur 1-0 Það var stórskemmtilegur bikarleik- ur sem fram fór þegar stórliðin frá Hampshire í Englandi, Portsmouth og Southampton, mættust á Fratton Park í Portsmouth. Það voru 70 ár Iiðin síðan þessir nágrannar á suðurströnd- inni mættust síðast í bikarkeppni en þá sigraði Southampton 5—1, árið 1906. En það var greinilegt í upphafi að leik- menn Portsmouth ætluðu scr ekki að láta slíkar tölur líta dagsins ljós nú, 70 árum síðar. Þeir tóku leikinn strax í sinar hendur og sóttu stift að marki Southampton, og átti vörn þeirra strax í vök að verjast og á 10. minútu skall- aði Alau Biley yfir mark Dýrlinganna, einn og óvaldaður, af um sex metra færi og á siðustu minútu hálfleiksins varði Peter Shilton glæsilega þrumu- skot frá besta manni vallarins, Mark Heatley, af um 20 metra færi. I síðari hálfleik jafnaöist leikurinn nokkuð og Southampton kom meira inn í myndina og á 74. mínútu átti Mick Mills þrumuskot frá vítateig á mark Portsmouth sem Alan Knight mark- vörður varði af stakri snilld. En loka- kaflann reyndu heimamenn allt hvað af tók að knýja fram sigur og mikill darraðardans var oft í og við vítateig Southampton. En á síöustu mínútu leiksins vann Frank Worthington knöttinn við eigin vítateig og sendi fallega sendingu fram völlinn á David Armstrong sem brunaöi í átt að marki Portsmouth, hann skaut síðan föstu skoti aö markinu af um 20 metra færi sem Alan Knight gerði vel að verja, en hann hélt ekki knettinum og Steve Moran náði að pota honum yfir mark- línuna. Leikmenn Southampton fögn- uðu gífurlega en 36.000 áhorfendur á Fratton Park trúðu vart sínum eigin augum. Southampton hafði þar með tryggt sér farseðilinn í 5. umferðina í bikarkeppninni á miklum heppnis- sigri. Eftir leikinn sagði Lawrie McMenemy, framkvæmdastjóri Sout- hampton: „Þetta var hreint út sagt ævintýralegur endir á frábærum bikarleik sem hafði upp á allt það að bjóða sem áhorfendur vilja sjá í einum leik, hraða, spennu, marktækifæri og stórbrotna markvörslu. En ég viður- kenni að leikmenn Portsmouth voru mjög óheppnir aö tapa í leiknum, en það sannar enn einu sinni að það era mörkin sem gilda en ekki marktæki- færin,” sagði McMenemy að lokum, titrandi röddu eftir spennuna í leiknum á lokamínútunum. -SE. Hudson varfrábær — þegar Stoke vann Arsenal 1-0 Það var aðeins einn lelkur sem fór fram í 1. deild ensku knattspyrnunnar á laugardaglnn en þá léku Stoke City og Arsenal á Victoria Ground í Stoke. Stoke slgraði nokkuð óvænt í leiknum með elnu marki gegn engu og var það Paul Magulre sem skoraðl eina mark leiksins úr vitaspyrnu um miðjan síð- arl hálfleikinn. Sigur Stoke í leiknum var mjög sanngjarn og átti Alan Hud- son frábæran leik með Stoke en hann er þar nú lánsmaður frá Chelsea í einn mánuð og lék sinn fyrsta leik gegn Arsenal. íþrótt íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.