Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Blaðsíða 28
DV. MÁNUDAGUR 30. JANUAR1984. CAR RENTAL SERVICE ^75 FAST VERÐ - EKKERT KÍLÓMETRAGJALD SÖLUSKATTUR INNIFALINN í VERÐI [031 MITSUBISHI COLT MITSUBISHI GALANT MITSUBISHI ' GALANT STATION 4^ Leitið upplýsinga. b)l»lí)L»»V SMIÐJUVEGI 44 D KÓPAVOGI ICELAND AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660 KVÖLD OG HELGARSÍMI: 43 631 & 46 211 TELEX 2271 IDN IS NÝTT GERIMAX GERIMAX GERIMAX BLÁTT GERIMAX inniheldur 25% meira GINSENG auk dagskammts af vítamínum og málmsöltum. örvar hugsun og eykur orku. gegn þreytu og streitu. gerir gott. Fœst í apótekum. Goö' öumv'ö eU'na'daK, GrísahaW --“jgfisassifflfi i«a meö BV» s loawofu -’s'áttarve * 0a\apV'sa ★ Bacon . nlnrnV\Sa Sumar- og vetrarfatnaður f rá íslandi vekur mikla athygli í Bandaríkjunum Við fréttum af því á dögunum, að búningurinn sem íslenska ólympíuliðið kemur fram í á vetrarleikunum í Sara- jevo í næsta mánuði þyki alveg sérlega glæsilegur og eigi án efa eftir að vekja mikla athygli þar. Það sem þó vakti meiri athygli okkar var að okkur var sagt að búningar þessir væru fram- leiddir hér á landi og það af fyrirtæki sem sama og ekkert hefur heyrst talað um. Er það fyrirtækið Scana hf. sem framleiðir fatnað undir merkinu , J)on Cano”. Við fórum á stúfana og fundum það loks í húsnæði sem áður var í eigu Sportvers við Skúlagötu. Flutti fyrir- tækið þangað inn um áramótin en áður var það í litlu húsnæði við Suðurlands- braut. Hugmynd okkar var upphaflega að heimsækja fyrirtækið og fá að sjá þennan umtalaöa ólympíubúning. En þegar við komum þangað inn gleymdist næstum því erindið vegna alls þess sem þar var að sjá — m.a. stórglæsilegs sumar- og vetrarsport- fatnaðar sem þar er verið að hanna til sölu á erlendum markaði. Svo leynt hefur verið farið með þetta að ekkert hefur sést af þessum fatnaði hér og aðeins örfáir fyrir utan starfsfólkiö vit- að um þessa framleiðslu. Eigendur Scana hf., þeir Karl Magnússon og Svíinn Jan Davidsson, sögðu okkur að þeim væri ekkert um umtal og auglýsingar gefið. „Við erum núna að fara á fulla ferð með framleiðsluna, og leigöum þetta húsnæöi og keyptum framleiðslu- apparatið af Sportveri til að geta annað eftirspum í framtíöinni,” sögöu þeir. Þeir sögöust hafa stofnað fyrirtækið fyrir 3 árum og byrjað smátt. Framleiddu þeir skíða- og vetrar- fatnað fyrir innlendan markað og voru fyrst með 4 til 6 saumakonur í vinnu. Nú vinna hjá fyrirtækinu 20 manns og á næstunni verða þeir að bæta við a.m.k. 15 saumakonum til að geta annað eftirspum erlendis frá. Jan, sem er klæðskerameistari, hannaði í fyrra mjög sérkennilegan og fallegan sumarsportfatnað sem kynntur var í Bandaríkjunum. Vakti þessi fatnaöur svo mikla athygii þar aö þegar hafa borist pantanir frá átta stöðum þar í landi og er framleiðslan uppíþæraðhefjast. Þá hefur Jan nú þegar hannaö og látið sauma í verksmiðjunni sýnishom af skíðafatnaöi sem hugmyndin er að selja á erlendum markaði næsta vetur. Er þar hver flikin annarri glæsilegri og er ekki að efa að sá fatnaður á eftir að slá í gegn. Er búningur íslenska ólympíuliðsins í þeirri línu og er hún ólík öllum öðrum sem við höfum séð. Þeir félagar sögöust vera bjartsýnir á framtíö fyrirtækisins núna. Nýju sumarlínunni þeirra hefði verið mjög vel tekið á Bandaríkjamarkaði eins og pantanirnar sýndu og þeir reiknuðu með að nýju vetrarlínunni þeirra myndi einnig verða vel tekið. Var farið með sýnishom af henni utan í vikunni en erlendir aðilar sjá um allar aug- lýsingar og kynningu á þessari islensku framleiðslu. Við spuröum þá Karl og Jan að því hvernig þetta væri hægt. Til þessa hef ur alltaf verið talað um að íslenskur Sýnishorn af Don Cano sumarfatnaðinum sem hannaður og saumaður er hér á tslandi. Þessi fatnaður hefur vakið svo mikla athygli í Bandaríkjunum að þegar hafa borist pantanir frá átta stöðum þaðan. Ein af starfsstúlkum Scana hf. brá sér i búninginn sem íslenska ólympíuliðið kemur fram í á leikunum í Sarajevo í næsta mánuði. A sá búningur örugglega eftir að vekja mikla athygli þar enda er þar ný lína í vetrarklæðnaði á f erðinni. DV-mynd GVA. fatnaður væri ekki samkeppnishæfur við erlendan, m.a. út af vaxtakostnaði og háum vinnulaunum og fleiru. „Þetta er erfitt því við þurfum að kaupa aUt sem við notum erlendis frá, efnið, tölur, rennUása og hvað eina,” sögðu þeir. En á meðan verðbólgunni er haldið niöri eins og núna er þetta hægt. Við erum Uka með mjög gott starfsfólk og það byggist aUt á því. Ef varan er góð skiptir engu máU í hvaöa landi hún er framleidd,” sögðu þessir tveir „Don Cano menn” að lokum. -klp. Eyrarbakki: Hjólin snúast aftur í frystihúsinu Frá Magnúsi Karel Hannessyni, fréttaritara DV á Eyrarbakka. Töluvert atvinnuleysi hefur verið á Eyrarbakka að undanförnu og á mánudag voru 86 manns á atvinnu- leysisskrá, sem er 16% íbúanna. Utlitið er þó aðeins bjartara nú því aö frystihúsið er að fara aftur í gang eftir tæplega tveggja mánaða stopp. Frystihúsiö hef ur fengið 50 tonn af fiski og er verið að kaUa fólk aftur til vinnu. Vinnsla við aflann hefst af krafti á föstudag og munu líklega um 50 manns fá vinnu. Báturinn sem landaði þessum fiski er Sæunn Sæmundsdóttir og mun hann landa í frystihúsinu í vetur. Tvær aðrar fiskverkunarstöðvar eru á Eyrarbakka og er einhver vinna hafin í annarri þeirra. -GB.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.