Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 36
36 DV. MANUDAGUR 30. JANUAR1984. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á m.b. Heimi KE-77, þingl. eign Heimis hf., fer fram við bátinn sjálfan í Keflavikurhöfn að kröfu Byggðasjóðs og innbeimtumanns rikissjóðs miðvikudaginn 1.2.1984 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Keflavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á m.b. Jóhannesi Jónssyni KE-79, þmgl. eign Jóhannesar Jóhannessonar, fer fram við bátinn sjálfan í Kefla- vikurhöfn að kröfu Byggðasjóðs og Tryggingastofnunar rikisins mlð- vikudaginn 1.2.1984 kl. 11.15. Bæjarfógetinn í Keflavik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Austurgötu 8, neðri hæð, í Keflavík, tal. eign Egils Jóhannessonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Tryggingastofnunar ríkisins, Vilhjálms Þórhallssonar hrl. og Hafsteins Sigurðssonar hri. fimmtudaginn 2.2.1984 kl. 10.00. Bæjarfógetinn í Keflavik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Austurgötu 20, efri hæð, í Keflavík, þingl. eign Gunnars Jóhannessonar og Báru Magnús- dóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl., Vilhjálms Þórhallssonar hrl. Veðdeildar Landsbanka Islands og Tryggingastofnunar rikisins fimmtudaginn 2.2.1984 kl. 10.15. Bæjarfógetinn í Keflavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Framnesvegi 21 í Keflavík, þingl. eign Harðar Falssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Utvegsbanka íslands, Framkvæmdastofnunar rikisins og Póst- gíróstofunnar fimmtudaginn 2.21984 kl. 10.45. Bæjarfógetinn i Keflavik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Greniteigi 7 í Keflavík, þingl. eign Hilmars Arasonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vil- bjálms H. Vilhjálmssonar hdl. fimmtudaginn 2.21984 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Keflavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið i Lbl. á fasteigninni Hafnargötu 24, rishæð, i Keflavik þingl. eign Guðrúnar Hauksdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl. og Veðdeildar Landsbanka ís- lands fimmtudaginn 2.2.1984 kl. 11.30. Bæjarfógetinn i Keflavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið i Lbl. á fasteigninni Heiðarvegi 21, efri hæð, i Keflavik, þingl. eign Sigurlaugar Guðmundsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl. fimmtudaginn 2.2. 1984 kl. 13.45. Bæjarfógetinn i Keflavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Hringbraut 63, neðri hæð, í Keflavík, þingl. eign Kristjáns Kristjánssonar o.fl., fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms Þórhallssonar hrl., Veðdeildar Landsbanka íslands og Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. fimmtudaginn 2.2. 1984 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Keflavik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Hringbraut 100, efri hæð, í Keflavik, þingl. eign Elvu Hólm Þorleifsdóttur o.fl., fer fram á eign- inni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl. fimmdutaginn 2.2. 1984 kl. 14.15. Bæjarfógetinn í Keflavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Iðavöllum 12 í Keflavik, þingl. eign Alexanders Jóhannessonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms Þórhallssonar hrl. fimmtudaginn 2.2.1984 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Keflavík. Um helgina Um helgina Handknaftleikur á niðurleið og svekkelsi út í ísfilm Dagskrá ríkisfjölmiðlanna ætti að stíga hæst á þessum tíma árs hvað gæði snertir. Dagskráin á ekki bara að lengjast yfir veturinn. Utvarpið er þá öllu skárra með það að bæta dag- skrána yfir vetrartímann en sjón- varpið. Eg horfði og hlustaði um helgina eins og tíminn leyfði og verð ég að segja að það var lítið sem gladdi mig og mína. A föstudagskvöldiö var sjónvarpið með kínverska kvikmynd. Eg held að það sé jafnframandi fyrir okkur að horfa á kínverska kvikmynd og fyrir Kínverja að horfa á íslenska kvikmynd og ég efast um að íslensk- ar kvikmyndir séu sýndar í Kína. Eða hvað? Skonrokk var á sínum staö á föstu- dagskvöld og gladdi þaö mig mikið að Edda Andrésdóttir er hætt að reyna að leika sér í gervi-fallhh'fum, flugdrekum og Matchbox-bílum. Kynningamar eiga að vera einfaldar ,þvi það eru hljómsveitimar og söngvaramir sem skipta máli en ekki þulurinn. Kastjós var nokkuö gott, sérstaklega sá hluti sem viðvék njósnamálinu í Noregi og var pistill Atla Rúnars góður. Traustur frétta- maður Atli. Iþróttaþáttur Bjama var loksins helgaður handknattleik, mik- iö var, Bjarni, að maður fær að sjá handknattleik utan úr heimi. En viö hvað getum við Islendingar nú miðað okkar handknattleik, ekki getum við miðað okkur við Svía eða Dani því maður sá það svart á hvítu að íslenskur handknattleikur er á mikilli niöurleið, þrátt fyrir að við ,erum loksins komnir með þjálfara á heimsmælikvaröa, allavega ef litið er á launin sem hann fær. Það hlýtur því að vera hægt að gera meiri kröf- ur en áður um góðan árangur. Við unnum að vísu Norðmenn í tveimur landsleikjum af þremur, en ef við berum saman leik Islendinga og Norðmanna sem við sáum í sjón- varpinu á laugardaginn við erlenda handknattleikmn þá skilur maöur vel af hverju áhorfendum hefur fækkaö bæði í landsleikjum og deildarleikjum. Hermann gerir þessa leiki liflega með lifandi lýsing- um í útvarpinu. Eg held að það kom- ist enginn meö tærnar þar sem Hemmi hefur hælana í þessum lýs- ingum. Eftir hádegiö á sunnudag hlustaði ég eins og venjulega á þátt Rafns Jónssonar „Vikan sem var.” Þessi þáttur var alveg út í hött að mínu mati. Það eina sem rætt var um var nýstofnað hlutafélag í kvik- myndafyrirtækinu Isfilm. Rafn fékk til liðs við sig tvo kvikmyndagerðar- menn sem gerðu ekkert annað en að rakka niður þetta nýstofnaöa fyrir- tæki og er það alveg furðulegt að stjómandi þáttarins skyldi ekki fá einhvern frá þessu fyrirtæki til að tala máli þess, einnig að fá gesti þáttarins til að tala um fréttir vik- unnar eins og gert hefur verið í þess- um þáttum Rafns. En þó verður að segja að fréttin um stofnun þessa hlutafélags um Isfilm er sú besta og ánægjulegasta um langan tíma og verður vonandi til þess að við Islendingar förum að fá eitthvaö gott á videomarkaðinn og þessar lélegur myndir sem boðið er upp á í videoleigum bæjarins rykfalli í hill- unum. Magnús Ólafsson Olafur Þorsteinsson lést 21. janúar sl. Hann fæddist í Reykjavík 7. nóvember 1965 en fluttist 10 ár gamall með for- eldrum sínum til Reyðarf jarðar og átti þar heima síðan. Utför hans verður gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30. Margrét G. Guömundsdóttir lést 18. janúar sl. Hún fæddist 31. ágúst 1923. Hún giftist Asmundi Þorsteinssyni og eignuðust þau þrjú börn. Ásmundur og Margrét slitu samvistum. Seinni maður Margrétar var Ingimar Guðmundsson. Utför Margrétar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Bryndís Elíasdóttir, Reynihvammi 34 Kópavogi, lést í Landspítalanum 27. janúar. Þjóðbjörg Þórðardóttir, Selvogsgötu 5 Hafnarfirði, andaöist á Sólvangi föstu- daginn 27. janúar. Ástríður Bjarnadóttir, Skipholti 12, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 31. janúar kl. 13.30. Óskar Jónsson, Skriðustekk 14, verð- ur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 31. þessa mánaðar kl. 10J0. Heba Geirsdóttir, Hringbraut 57, and- aðist27. janúar. Axel Konráðsson frá Bæ í Skagafiröi lést aö heimili sínu í Borgarnesi 26. janúar. Halldóra Þórðardóttir, Smiöjustíg 1 Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 25. janúar sl. Halldóra Jóhanna Sveinsdóttir, Selja- vegi 5, andaðist 26. þ.m. Wayne Clendening lést í San Diego, Kaliforníu, 22. janúar. Unnur Jónsdóttir, Grenimel 15, andað- ist í Landspítalanum 27. janúar. Bragi Þór Gislason veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 31. janúarkl. 15. Fundir Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík Aöalfundur félagsins veröur haldinn aö Hallveigarstööum fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20.30. Meöal annars: kosning nýs for- manns. Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 7. febrúar nk. kl. 20.30 að Langholtsvegi 122. Venjuleg aðal- fundarstörf. Stjórnin. Erindi um mál ís- lendinga í Vesturheimi Prófessor Haraldur Bessason frá Manitoba- háskóla í Winnipeg í Kanada verður gestur Islenska málf ræðifélagsins á almennumfundi í Arnagarði, þriðjudaginn31. janúar 1984. Hann flytur erindi sem hann nefnir: Fá- einar hugleiðingar um vestur-íslensku og ræðir þar um islenskt mái vestan hafs, stöðu þess sem innflytjendamáls í Norður- Ameríku og einkenni þess miðað við aðra íslensku. Fundurinn hefst kl. 17.15 og er í stofu 308 í, Arnagarði v/Suðurgötu. Hann er opinn öllum áhugamönnum. Fyrirtæki Stofnað hefur verið félagið Iðn- þróunarfélag Austur-Húnvetninga hf. á Blönduósi, Austur-Húnavatnssýslu. Tilgangur félagsins er að stuöla að iðn- þróun og eflingu atvinnu í Austur- Húnavatnssýslu. I stjórn eru: Jón Isberg, formaður, Garðabyggð 1, Blönduósi, Gylfi Sigurðsson, Boga- braut 12, Skagaströnd, Kristófer Kristjánsson, Köldukinn, A-Hún., Stefán L. Haraldsson, Hnjúkabyggð 27, Blönduósi og Gunnar Richardsson, Brekkubyggð 22, Blönduósi. Stofn- endur eru: Gunnar Richardsson, Jón Isberg, Kristófer Kristjánsson, Stefán A. Jónsson, Kagaðarhóli, A-Hún., Zophonías: Zophoníasson, Blönduósi, Blönduóshreppur, Blönduósi, Engi- hlíðarhreppur, Höfðahreppur, Skaga- strönd, Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi, Pólarprjón, Blönduósi, Sýslusjóður A-Hún., Blönduósi og Sölu- félag A-Húnvetninga, Blönduósi. Stofnað hefur verið félagið Fossnes hf. í Rvík. Tilgangur félagsins er heildverslun, smásöluverslun, rekstur fasteigna og lánastarfsemi. I stjóm eru: Hafsteinn Þorgeirsson formaður, Irabakka 6, Martin Petersen, Safa- mýri 18, og Marteinn Pétursson, Vesturbergi 40. Stofnendur auk ofan- greindra eru: Ketill Pétursson, Vesturbergi 42 og Karl Petersen, Safa- mýri 18, allir í Reykjavík. Tilkynningar Þorrablót Golfklúbbs Reykjavíkur veröur haldiö í Golfskálanum í Grafarholti laugardaginn 4. febrúar kl. 19. Þorramatur frá Múlakaffi. Hljómsveitin Metal leikur fyrir dansi. Miöaverö kr. 500. Aögöngumiðar seldir hjá framkvæmdastjóra. Miðapantanir í simum 35273,84735 og 33533. Ekiðákyrrstæðan — vitnivantar Ekið var á kyrrstæðan bíl við Miðbæ við Háaleitisbraut á laugardaginn, lík- lega milli klukkan 12 og 19.30. Bíllinn er af gerðinni BMW, grænsanseraður að lit, R—31737. Þeir sem kynnu að hafa tekið eftir atviki þessu eru beðnir að láta lögregluna vita. -óm Bara að Hjálmar vildi hætta að hringja í mig í vinnuna. Ég er svo upptekin af krossgátunni minni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.