Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Qupperneq 38
38
DV. MÁNUDAGUR 30. JANUAR1984.
TINNA
FURUGERÐI3
Opið:
fimmtudaga 9-20,
laugardaga 9-12,
aðra virka
daga 9-17.
Sími 32935.
Nýkomið
fallegt
hárskraut.
—Hi
Byggingarkrani
— kerf ismót
Verzlunarskóli Islands óskar eftir aö kaupa byggingarkrana,
70—130 tonnmetra, og kerfismót ásamt stálstoðum. Tilboöum
sé skilað til Verkfræðistofu Stanleys Pálss. hf., Skúlatúni 4, s.
29922, fyrir 7. febrúar 1984.
OLIULAMPAR
TILVALDAR TÆKIFÆRISGJFARIR
MARGAR GERÐIR. VERÐ FRÁ KR. 98.00.
LAMPAOLÍA í 5 LITUM.
TIL SÝNIS OG SÖLU
Benz 911 árg. 1973, með framdrifi, ekinn aðeins
127.000 km. Sæti fyrir 12 + vörupallur. Spil framan
og aftan. Olíumiðstöð.
Festingar og úrtök fyrir snjótönn.
Til sýnis á
sími 81666.
„Svörtustu dagarnir
í sögu færeyskrar
verkalýðshreyfingar’
Fréttabréf frá Eðvarð T. Jónssyni í
Þórshöfn.
Mikil átök hafa átt sér stað á fær-
eyska vinnumarkaðinum undanfarn-
ar vikur og standa þau enn yfir. Geta
þau orðið til þess að veikja mjög
stööu færeysku verkalýðsfélaganna
og var hún þó ekki burðug fyrir.
Verkalýðshreyfingin hefur verið
klofin í mörg ár eftir að verkalýðs-
félögin í Þórshöfn og Klakksvík
sögðu sig úr landssamtökunum og
hófu að semja upp á eigin spýtur.
Forsaga átakanna, sem nú standa
yfir, er sú, aö um langt skeið hafa
konur, sem vinna við snyrtingu í
frystihúsum, verið skyldaðar til að
setja merkimiða í fiskbakkana, sem
þær senda frá sér. Meö þessu móti
hafa verkstjórar getaö fylgst meö
afköstum hverrar konu. Ekkert
bónuskerfi er í gildi í færeyskum
frystihúsum nema aö nafninu til í
Bacalao í Þórshöfn. Samkeppni
hefur þannig verið sköpuð milli
kvennanna, sem lagt hafa haröara
að sér en ella og í raun unnið
ákvæðisvinnu á venjulegu tíma-
kaupi. Þessi skipan mála hefur lengi
verið gagnrýnd harölega og í nóvem-
ber sl. lögðu konur í Fuglafirði niður
vinnu í frystihúsinu þar í mótmæla-
skyni. Mjög hörð hríð var gerð að
konunum í færeyska Dagblaðinu,
málgagni Fólkaflokksins, en það er
mestanpart í eigu atvinnurekenda og
baptista í Færeyjum. Tóku konurnar
aftur upp vinnu eftir að sæst hafði
verið á bráðabirgöalausn.
Sprengjuhótun
í Vogi
Um miðjan desember ákvaö stjórn
FA (Föroya Arbeiöarafelags) að
láta til skarar skríöa og skipaði
öllum meðlimuft) sínum að hætta að
setja merkimiða í fiskbakkana.
Forystu um aðgerðirnar hafði for-
maður FA, Ingeborg Vinther, búsett
í Vogi á Suðurey og jafnframt for-
maður verkakvennafélagsins þar,
Fjallbrúðar.
Fiskkaupendur í Færeyjum
brugðu hart við og formaður þeirra,
Heri Mortensen, flokksbundinn
jafnaöarmaður, lýsti því yfir að
frystihúsin mundu engan fisk kaupa
meðan konurnar settu ekki miða í
bakkana. Jafnframt fylltust
einstakir frystihúsaeigendur
heilagri bræði og einn þeirra, Jakob
Jóensen, forstjóri Pólarfrosts í Vogi,
hafði við orö að sprengja f rystihúsið í
loft upp og flytja allt kapítaliö til
Kanada. Með hótunum og
símhringingum til stjórnarmeðlima
Fjallbrúðar tókst að berja konurnar
til hlýðni. Var þeim tilkynnt að þær,
sem ekki mættu til vinnu og settu
miða í bakkana, yrðu reknar
umsvifalaust.
A fundi sem Jakob Jóensen hélt
síðan með starfsfólkinu bað hann það
að velja milli sín og Fjallbrúðar.
Hann lét einnig í ljós þá skoðun, að
ekki væri nauðsynlegt aö hafa slíkt
félag í Vogi og stakk upp á að stofnað
yrði nýtt félag og hét þeim fullum
stuðningi, sem tækju það að sér. Á
fundinum kom fram uppástunga um
að Jakob yröi sjálfur formaöur í hinu
nýja félagi.
Þrýstingurinn á verkakonurnar í
Vogi var svo mikill, að jafnvel þeir
stjómarmeðlimir í Fjallbrúði, sem
greitt höfðu atkvæði meö mótmæla-
aðgerðunum, mættu til vinnu og
settu miða í bakkana. Samtímis
klauf varaformaður félagsins, Gud-
run Kristiansen, sig út úr félaginu
ásamt nokkrum úr stjóminni og lýsti
yfir vantrausti á Ingeborg Vinther.
Gamali verkalýðsforingi í Vogi lét
svo ummælt, að líklega væri þetta
svartasti dagurinn í sögu færeyskrar
verkalýðshreyfingar.
Ingeborg Vinther, formaður verka-
kvennafélagsins Fjallbrúðar í Vogi í
Færeyjum, hefur nú stefnt félaginu
eftir að hún var rekin úr embætti.
Gleymdi faðir-
vorinu
Ekki reyndist alls staðar jafnauð-
velt að kljúfa samtök launafólks og í
Vogi. I frystihúsinu Lynfrost í Rúna-
vík var hart lagt að verkakonum að
setja miða í bakkana, en þær stóðu
þétt saman og mættu ekki til vinnu.
Var þá reynt að hræða þær meö þvi
að bátar frá Rúnavík mundu leggja
upp annars staðar í framtíðinni.
Sosialurinn, blað jafnaðarmanna,
skýrir frá því að á jólagleði, sem
haldin var hjá Lynfrost hafi forstjór-
inn, Jens Kannuberg, staöiö upp og
lesið jólaguðspjallið eins og siður er
til. Þegar lestrinum var lokið
gleymdi hann að fara með faðirvor-'
ið, en dró í þess staö upp úr pússi sínu
stefnu vinnuveitendafélagsins gegn
FA og las yfir viðstöddum.
Nú í janúarbyrjun var boðaö til,
fundar hjá Fjallbrúöi í Vogi og var á
þeim fundi samþykkt með tveggja,
atkvæða meirihluta, að reka for-
manninn, Ingeborg Vinther, úr félag-
inu. Var síðan kosinn nýr formaður
og ný stjórn. Til fundarins var boöað
með fimm klukkustunda fyrirvara
og láðist að láta formanninn vita af
honum. Ingeborg hefur nú stefnt
félaginu fyrir brot á eigin lögum, en
samkvæmt þeim getur kosning for-
manns og stjómar aðeins farið fram
á aöalfundi. Jafnframt benti hún á,
að hún hefði ekki tekið sér neitt
annaö fyrir hendur en það sem sjö
manna stjóm FA fól henni einróma
aðframkvæma.
Hverjir ráða
í Færeyjum?
I skeleggu bréfi frá FA, sem birt
var í flestum færeysku blöðunum ný-
lega var m.a. fjallaö um hverjir það
væm, sem stjórnuðu landinu. Vom
þar efstir á blaði nokkrir helstu
togara- og fiskiskipaeigendur í Fær-
eyjum auk stjórnmálamannsins Ola
Breckmann, ritstjóra Dagblaðsins,
sem 10. janúar sl. hlaut kosningu
sem annar af tveimur fulltrúum
Færeyinga á danska þjóöþinginu,
m.a. með auknum atkvæðastyrk
Fólkaflokksins í Vogi. I bréfinu er
bent á, að mörg færeysku frystihús-
anna eru í eign bæjarfélaga og þar
með almennings og færeyska þjóðin
greiði hundruð milljóna króna árlega
til að halda þeim gangandi. Samt
neiti forráðamenn þeirra að kaupa
fisk og allt ætli um koll að keyra,
þegar bann sé lagt við óeðlilegu og
samkeppnisskapandi eftirliti með
starfsfólki frystihúsanna. Á hinn
bóginn teldu þessir sömu forráða-
menn sig hafa fullan rétt til að leggja
öllum togaraflotanum lungann úr
janúarmánuöi til að mótmæla lækk-
un fiskverðs og þá segi enginn orð.
„Þeir eiga skipin, þeir eiga fiskinn
og þeir eiga allt,” segir í bréfinu.
Mikla athygli vakti, að í nýafstöðn-
um kosningum til danska þingsins
jók Fólkaflokkurinn verulega fylgi'
sitt í Vogi, þótt blað flokksins, Dag-
blaðið, hafi gengiö hvað harðast
fram í gagnrýni á forystu verkalýðs-
hreyfingarinnar. Lítur út fyrir að
Jakob Jóensen hafi treyst mjög veldi
sitt í Vogi og var það þó ærið fyrir.
Auk alls annars sem honum tilheyrir
þar um slóðir, virðist hann líka hafa
„eignast” verkakvennafélagið á
staönum.
Þessir atburðir hafa sýnt það vel
hverjir ráða ferðinni í færeysku at-
vinnubfi og þeir lýsa einnig vel;
hinum djúpstæða pólitíska klofningi í
Færeyjum. Jafnframt varpa þeir
nokkru ljósi á stöðu kvenna í fær-
eysku þjóðfélagi. Færeyjar eru
sennilega eitt af síðustu vigjum
óskoraðs karlaveldis á Vesturlönd-
um. Samheldni er litil meðal kvenna
og jafnréttishreyfing, sem ber það
nafn með rentu, er ekki til í Fær-
eyjum. Þetta er ekki síst sök kvenna
sjálfra. I kosningunum til Danaþings
nýlega voru fjórar konur í framboöi
og ráku þær allar lestina hvað snerti
persónulegt fylgi. Karlmennirnir, að
ekki sé sagt karlremban, ráða því
áf ram ríkj um í Færeyj um.
Eðvarð T. Jónsson.
Skipstrand íFæreyjum:
Björgunarmenn vilja
50 milljónir í laun
Frá Eðvarð T. Jónssyni, fréttaritara
DV í Færeyjum.
Kínverska flutningaskipið Cock
Crow, sem siglir undir fána Panama,
rak á land á Suðurey í Færeyjum í fár-
viðrinu sem gekk yfir eyjarnar á
sunnudag fyrír viku. Skipinu var
bjargaö og fara björgunarmenn fram
á andvirði 50 milljóna króna í
björgunarlaun og neita að hleypa
skipinu í burt fyrr en peningarnir eru
komnir.
Skipið, sem er 40 þúsund tonn og 220
metra langt, var að koma frá Islandi
þegar það bað um leyfi að leita vars
við Suðurey. Leyfiö fékkst en þá fór
semfór.
-GB.