Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Qupperneq 2
Bjössi er bara átta ára og getur þvi ekki haft mikil áhrif á ákvarðarnir fullorðna fólksins. Bjössi, eða Hrannar Már Sigurðsson, leikur eitt aðalhlutverkið i sjónvarpsleikritinu sem sýnt verður á sunnu- daginn. Sjónvarp á sunnudag kl. 20.45: Sjónvarp Sjónvarp Þessi blessuð böm — nýtt íslenskt leikrit Islenskt sjónvarpsleikrit verður frumsýnt á sunnudaginn klukkan 20.45. Leikritið er eftir Andrés Indriöa- son. Andrés sagðist hafa skrifað leikritið '79 á ári bamsins en sama ár gerði hann þrjú önnur verk sem f jalla um böm og stöðu þeirra í samfélaginu. I leikritinu er skyggnst inn í hugar- heim 8 ára drengs. Leikritiö er ekki bamaleikrit, ef svo má að orði komast, heldur er það alvarlegs eðlis, skrifað fyrir fullorðna þar sem málstaður barnsins er tekinn. Þrátt fyrir það ættu allir að hafa gaman af því að fylgjast meö leik- ritinu. Leikstjóri er Láms Ymir Oskarsson en hann hefur hlotið mikið lof bæöi hér og erlendis fyrir mynd sína, Annar dansinn. Leikritiö fjallar um Bjössa sem er 8 ára og býr einn með mömmu sinni. Þegar mamma hans stendur svo í því að selja íbúðina, lætur Bjössi hugann reika til þess tíma er pabbi hans var heima. En börn á þessum aldri geta lítil áhrif haft á ákvarðanir fullorðna fólksins. 'Fjölskyldan ætti því aö geta safnast saman fyrir framan sjónvarpið á sunnudagskvöldið og notið íslensks efnis. öþ . Laugardagur 3. mars 14.45 Enska knattspyrnan. Umsjón- armaður Bjarni Felixson. 14.55 Everton — Liverpool. Bein út- sending frá leik liðanna á Goodi- sonpark í Liverpool. 17.15 Fólk á fömum vegi. 16. í garðinum. Enskunámskeið í 26 þáttum. 17.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Ingólfur Hannesson. 18.30 Háspennugengið. Fjórði þátt- ur. Breskur framhaldsmynda- flokkur í sjö þáttum fyrir ungl- inga. Þýðandi Ellert Sigurbjörns- son. 18.55 íþróttir — framhald. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Augiýsingar og dagskrá. 20.35 Við feðginin. Þriöji þáttur. Breskur gamanmyndaflokkur í þrettán þáttum. Aðalhlutverk: Richard O’Sullivan og Joanne Ridley. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.05 Vetrarólympíuleikarnir í Sara- jevo. Verðlaunahafar í skauta- íþróttum leika iistir sínar. (Evro- vision — JRT — Danska sjónvarp- ið). 22.10 Hetjurnar sjö (The Magni- ficientSeven). Bandarískur vestri frá 1960. Leikstjóri John Sturges. Aðalhlutverk: Yul Brynner, Steve McQueen, Robert Vaughan, Jam- es Coburn og Charles Bronson. Hvað eftir annað gerir ribbalda- flokkur usla í friðsælu þorpi í Mexíkó. Loks leita þorpsbúar á náðir kappa nokkurs sem kann að handleika byssu. Hann dregur saman iið ásamt lagsbróður sín- um og fer við sjöunda mann til að losa þorpsbúa við illþýðið. Þýð- andi Bogi Arnar Finnbogason. 00.20 Dagskrárlok. Sunnudagur 4. mars 16.00 Sunnudagshugvekja. 16.10 Húsið á sléttunni. Gamlir skólafélagar. Bandarískur fram- haldsmyndaflokkur. Þýðandi Osk- ar Ingimarsson. 17.00 Stórfljótin. Lokaþáttur — Rín. Franskur myndaflokkur um nokk- ur stórfljót, sögu og menningu landanna sem þau falla um. Þýð- andi og þulur Friðrik Páll Jónsson. 18.00 Stundin okkar. Umsjónar menn: Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Tage Ammendrup. 18.55 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingarogdagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku. Umsjón- armaöur Magnús Bjarnfreösson. 20.50 Giugginn. Þáttur um listir, menningarmál og fleira. Umsjón- armaður Áslaug Ragnars. Stjórn upptöku: Andrés Indriðason. 21.35 Ur árbókum Barchesterbæjar. Lokaþáttur. Framhaldsmynda- flokkur í sjö þáttum frá breska sjónvarpinu, gerður eftir tveimur skáldsögum frá 19. öld eftir Ant- hony TroUope. Þýðandi Ragna' Ragnars. Olympíuleikarnir í Sarajevo standa enn yfir í sjónvarpinu hjá okkur. A sunnudagskvöldið fáum við að sjá síð- asta þáttinn þaðan. Það er mynd frá hátíðasýningu ólympíumeistaranna á skautum og lokaathöfn leikanna. 22.25 Vetrarólympíuleikarnir í Sara- jevo. Hátíðarsýning ólympíu- meistara í skautaíþróttum og loka- athöfn. (Evrovision — JRT — Danska sjónvarpið). 23.30 Dagskrárlok. nrr Mtmmmn isjiöaACRTTpXö ;vo DV. FOSTUDAGUR 24. FEBRUAR 1984. n Mtnrn ■ ■ ■ g wra [ Kvikmyndir Kvikmyndir Jinmin, BÆJARINS BESTU HÁSKÓLABÍÓ: HRAFNIIMIM FLÝGUR Hrafninn flýgur er einhver eftirminnilegasta íslenska kvikmynd er ■ gerö hefur veriö. Þaö er margt sem hjálpar til viö að gera myndina eins góða og hún er. Efnið er spennandi saga um blóðþorsta, hefndir og tortryggni. Handritsgerö Hrafns er að vísu í veikara lagi, en leikstjórn hans er handverk manns sem veit nákvæmlega hvað hann vill gera úr hlutunum og kvikmyndataka Tony Forsberg er með eindæmum góð, hvort sem er í nærmyndum af hinum stór- brotnu persónum myndarinnar eða þegar landslagiö nýtur sín sem umgjörð um atburðarásina. Tónlist Hans-Erik Philip á líka sinn þátt í því að skapa heildina. Þetta er kvikmyndatónlist eins og hún getur best orðið, fellur vel að efninu og eykur stundum á spennuna. Aðalleikarar myndarinnar standa sig allir með mikilli prýði. Helgi Skúlason og Flosi Olafsson eru báðir frábærir í hlutverkum skúrk- anna og Edda Björgvinsdóttir í eina stóra kvenhlutverkinu í myndinni sýnir að hún kann meira fyrir sér en gamanleikinn. Þaö er helst að Jakob Þór Einarsson í aðalhlutverki myndarinnar sem vígamaðurinn nái ekki að vera eins sannfærandi, en leikur hans er samt sem áöur lipur en hörkuna vantar. I heild er Hrafninn flýgur samt best heppnaöa kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar. Mynd sem ' á eftir að skapa honum nafn erlendis. HK. BÍÓHÖLLIN: CUJO Cujo er kvikmynd um hund, nánar tiltekið 200 punda St. Bern- harðshund, hið mesta gæðablóð, er tryllist eftir aö hafa veriö bitinn af leöurblöku og drepur allt og alla er verða á vegi hans. Cujo er byggð á skáldsögu eftir Stephen King, þann fræga hrollvekjumeist- ara. Allflestar bóka King lýsa á einhvern hátt yfirnáttúrlegum atburðum en Cujo er undantekning frá því. Ef undanskilið er atriöi í svefnherbergi Tad, ungs drengs, sem er önnur aðalpersóna myndarinnar, þá er Cujo einföld saga fólks þar sem atburðir haga því á þann veg að móðir og barn eru innilokuð í biluðum bíl í þrjá sólarhringa með morðóðan hund utan við bQinn sem reynir allt hvað hann getur til að komast til þeirra. Cujo er vel heppnuð hroll- .vekja, þar sem tekist hefur á áhrifaríkan hátt að breyta gæfum hundi í óargadýr, hvernig svo sem tamningamennirnir hafa farið að því. Leikur Lee Wallace í hlutverki móðurinnar og Danny Pintauro í hlutverki drengsins er góður og áhrifamikill. I heild er Cujo spennandi mynd og hin ágætasta skemmtun. -HK. NYJA BIO: VICTOR/VICTORIA París fyrir stríö. Þær eru margar myndirnar, sem eru látnar gerast á þeim dýrðartímum, þegar fólk kunni enn að skemmta mér. Victor/Victoria er ein þeirra. Julie Andrews leikur atvinnu- lausa og svanga sópransöngkonu, er fyrir tilstilli homma nokkurs 1 tekur þaö til bragðs að bregða sér í gervi karlmanns, sem skemmtir í konugervi. Þar sem aðrar persónur myndarinnar eru ýmist hommar eða ekki hommar veldur þessi kynjaruglingur skemmtikraftsins alls kyns skemmtilegum uppákomum. Blake Edwards sýnir hér enn á ný að hann er meistari í að búa til óvæntar atburðakeðjur, þar sem upphafið getur veriö næsta hversdagsleg- ur smáatburður. Myndin er öll létt og skemmtileg, ekki síst fyrir frammistöðu Julie Andrews. Aðrir leikendur standa sig einnig með prýði og má þar nefna Robert Preston í hlutverki hommans Toddy. Victor/Victoria er brúnalyftir. -GB. BÍÓHÖLLIN: THEDAY AFTER , Hvaö gerist þegar kjarnorkusprengja fellur á friðsælar sveitir landsins þar sem búsmalinn er á beit og fólkið gerir í því að vera hamingjusamt? Jú, mannskepnan skiptist í tvennt, hina heppnu og hina óheppnu. Hinir heppnu drepast strax og láta sér fátt um : finnast um eftirleikinn. Hinir óheppnu lifa af sprenginguna, að minnsta kosti um sinn, og upplifa víti á jöröu. Þessa niðurstöðu má draga af einhverri umtöluðustu kvikmynd síðari ára, The Day After, og eru þetta sjálfsagt ekki ýkjur. Leikstjóra myndarinnar, Nicholas Meyer, tekst ætlunarverk sitt ágætlega. Honum tekst aö hræra upp í áhorfandanum og fá hann til að staldra við. Honum tekst einnig aö gera kjarnorkusprengjuna aö heilmiklu „sjói”, eins og Könum er einum lagið, og halda þannig athygli áhorfenda. The Day After er bráðdrepandi holl kvikmynd fyrir alla f jölskylduna. -GB. ■■■■■■■■■ m mm ■ m i ■ Kvikmyndir Kvikmyndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.