Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984. 23 Hvað er á seyði um helgina Hvað ér á seyði um helgina opnar fatamarkað Hverfisgötu 78. Beint fyrir aftan Kjörgarð. Opið mánud. til föstud. kl. 12 Fínar vörur — Frábært verð. Næg bilastæði. Tískuverslunin Laugavegi 118 Sími 28980 Þýskir dagar á Hótel Loftleiðum sel,” sagði Leifur Þórarinsson m.a. í dómi sinum um Miðilinn og Símann. Er nú síðasta tækifæri til að sjá þessa ágætu sýningu og ætti enginn tónlistarunnandi að láta hana fram hjá sérfara. Á sunnudagskvöld kl. 20 verður svo sýning á La traviata eftir Verdi og fer nú hver að veröa síðastur að sjá þessa alvinsælustu óperu allra tíma því aö eins og auglýst hefur verið fer sýningum nú óðum fækkandi. Los Paraguayos í Háskólabíói Hinir heimsfrægu listamenn Los Paraguayos, sem margir muna eflaust eftir og enn fleiri hafa heyrt syngja í útvarpi hér, koma fram á tónleikum í Háskólabíói í kvöld, föstudag 24. febrúar. Koma þeir þar fram ásamt „Iceland Seafunk Corporation” svo þama má búast viö meiriháttar skemmtun. Hefst hún í kvöld kl. 23.30. Bassaleikarinn Peter Kowald meí tónleika Peter Kowald, einn fremsti bassaleikari Evrópu, var hér á ferð fyrir fjórum áram og hélt hér tvenna tónleika sem seint munu gleymast þeim er heyröu. Hann mun endur- nýja kynni sín af íslenskum áheyrendum með því aö halda tónleika í Norræna húsinu í kvöld, föstudag, kl. 21. Peter er Vestur-Þjóð- verji og hefur leikið með f jölda heimsþekktra I gær hófst á Hótel Loftleiðum þýsk ferðakynning á vegum Flugleiða og fleiri aðila. Ber þessi kynning nafnið „Þýskir dagar”. Þykir sjálfsagt mörg- um þeir vera nokkuð fáir því að þeim lýkur á sunnudaginn kemur. Ýmislegt veröur á boöstólum þessa daga á Hótel Loftleiðum. Þar munu góðir þýskir skemmtikraftar koma fram og þýskir réttir veröa framreidd- ir. Munu þýskir kokkar sjá um að laga þá svo aö bragðið sé nú örugglega alveg rétt. Ferðakynning verður i gangi og happdrætti með glæsilegum vinning- um í boði í sambandi viö hana. A laugardag milli kl. 14 og 18 verður sér- stök ferðakynning sem er öllum opin. Verða þá sýndar kvikmyndir frá Þýskalandi og margt fleira sem sýnir og sannar Þýskaland sem afbragðs feröamannaland. Þýsk fyrirtæki munu sýna vörur sínar í anddyri hótelsins á meðan á „Þýsku dögunum’” stendur, en þeim lýkur eins og fyrr segir á sunnudaginn. Milljónasti gesturinn á leið inn í Þórscafé íslenskur verð- launahafi frá New York með sýningu á Kjarvalsstöðum og fl. Breytingar hafa nýverið orðið á hlut- verkaskipan: Sigurður Karlsson leikur nú Finnbjöm, Steindór Hjörleifsson Stíg skóara og Aðalsteinn Bergdal kennarann. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. Á sunnudaginn er svo sýning á brúöuleikj- unum Tröllaleikjum kl. 15. mundsson, Jón S. Gunnarsson, Pálmi Gests- son, örn Arnason, Sigurður Skúlason, Erling- ur Gíslason, Helga E. Jónsdóttir og Ámi Tryggvason. Skvaldur, eftir Michael Frayn, hefur nú verið sýnt 40 sinnum og á laugardagskvöld verða tvær sýningar á þessum eldfjöruga gamanleik þar sem allt getur gerst hversu ótrúlegt sem það er. Níu leikarar á fullri ferð allan tímann: Þóra Friðriksdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Sigurður Sigurjónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Bessi Bjarnason, Sigríður Þorvaldsdóttir, Rúrik Haraldsson, Lilja Guð- rún Þorvaldsdóttir og Þórhallur Sigurðsson. Sýningarnar á laugardagskvöld hefjast kl. 20.00 ogkl. 23.30. Sýningar Þjóðleikhússins um helgina: Sveyk í síðari heimsstyrjöldinni, eftir Bertolt Brecht og byggt á sögu eftir Jaroslav Hasek, verður sýnt í 6. sinn á föstudagskvöld og er uppselt á þá sýningu eins og fyrri sýningar. 7. sýning á Sveyk verður á sunnudagskvöld. Bessi Bjamason leikur Sveyk, en með önnur helstu hlutverk fara Þóra Friðriksdóttir, Baldvin Halldórsson, Sigurður Sigurjónsson, Gunnar Eyjólfsson, Gísli Rúnar Jónsson og PálmiGestsson. Amma þó! nýja bamaleikritið eftir Olgu Guðrúnu Ámadóttur verður sýnt í 2. sinn á laugardag kl. 15 og í 3. sinn á sunnudag kl. 15. Bráðhressilegt leikrit um ævintýralega fjöl- skyldu í Reykjavik nútímans og óvenjulega ömmu sem aldrei deyr ráðalaus þótt engir peningar séu til í kotinu fyrir mat og húsa- leigu. Leikurinn æsist er á líður uns alls óvænt og farsæl lausn finnst á öllum vanda. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson, leik- mynd og búninga gerir Messíana Tómasdótt- ir, en með hlutverkin fara Herdís Þorvalds- dóttir, Edda Björgvinsdóttir, Gísli Guð- „Gullna hliðið" á Hvammstanga Undanfamar vikur hefur Leikflokkurinn á Hvammstanga æft Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson undir leikstjórn Þrastar Guð- bjartssonar en hann gerði einnig leikmynd. Þetta er f jórða verkið sem Þröstur leikstýrir hjá leikflokknum. Æfingar hafa gengið vel. Það er mikið átak, ekki síst fyrir áhugahóp, að setja á svið svo viðamikið verk sem Gullna hliðið. Vill leikflokkurinn koma á framfæri þakklæti til allra sem lagt hafa hönd á plóginn og gert honum fært að setja upp þessa sýn- ingu. Eru það ekki færri en 40—50 manns sem þar hafa að komið, er það ekki lítill hópur í 600 manna byggðarlagi. Nú eru um 20 ár síðan Davíð Stefánsson andaðist og er Gullna hliðið eitt þekktasta verk hans. Leikflokkurinn á Hvammstanga mun fmmsýna Gullna hliðið á 20 ára dánar- dægri Davíðs þann 1. mars nk. Fyrirhugað er að fara með sýninguna í nágrannabyggðir. Næstu sýningar verða: Hofsósi laugardaginn 3. mars, Miðgarði 4. mars, Hvammstanga miðvikudaginn 7. mars, Skagaströnd laugar- daginn 10. mars, Blönduósi sunnudaginn 11. mars, Búðardal laugardaginn 17. mars, Varmalandi sunnudginn 18. mars. Síðustu sýningar heima verða föstudaginn 23. mars og sunnudaginn 25. mars. Um þessar mundireru liöin rétt sjö ár síðan veitingahúsiö Þórscafé í Brautarholti var opnaö aftur eftir gagngerðar endurbætur. Síöan þá hefur Þórscafé veriö einn vinsælasti veitingastaöurinn í Reykjavík enda þar boðið upp á góðan mat, fjölbreytt skemmtiatriöi og dans á tveim hæðum. Gestir Þórscafé síðan breytingin var gerð eru nú að nálgast eina milljón. Að því tilefni hafa eigendur hússins ákveðið að verðlauna milljónasta gest- inn sem þangað kemur inn. Er von á þessum gesti nú einhverja næstu helgi. Þessi milljónasti gestur Þórscafé fær við innganginn afhentan farseðil fyrir tvo til Benidorm. Veröur verðlaunaferöin farin á vegum Ferða- miöstöövarinnar 2. maí nk. Dvaliö verður á Hótel Don Pancho sem er eitt af fínustu hótelunum á Benidorm. Á hótelinu verður stjanað viö verðlauna- hafann og gest hans. Verða þeir þar í fullu fæði en auk þess er þeim boðiö í mat á einn besta matsölustað á Benidorm, Tiffanys, svo og í nætur- klúbbaferð og fleira. Eins og fyrr segir er milljónasti gesturinn væntanlegur í Þórscafé ein- hverja af næstu helgum. Er því betra að vera við öllu búinn þegar þangað er komið inn á næstunni því að þú getur Ungur og upprennandi listmálari, Jón Oskar, opnar sína fyrstu einkasýn- ingu hér á landi kl. 15 á laugardaginn í Kjarvalssalnum að Kjarvalsstöðum. Sýnir hann þar nokkur verka sinna, og eiga þau eflaust eftir að vekja mikla athygli eins og önnur verk hans sem hann hefur sýnt erlendis. Hefur hann áður tekiö þátt í samsýningum í Japan og Belgíu og haldið auk þess sýningu með öðrum ungum listmálara í New York í Bandaríkjunum. Jón Oskar stundaði nám í Myndlista- og handíöaskólanum og Myndlista- skóla Reykjavíkur. Arið 1980 hélt hann til New York og stundaði þar nám við „School of Visnal Arts”, en í þeim skóla eru um 4000 nemendur, þar af stór hópur í myndlistadeild. Þegar hann útskrifaöist þaðan var hann í hópi 12 nemenda sem fengu sér- staka viðurkenningu en síðan voru hon- um veitt 1000 dollara verðlaun úr sjóði skólans. Jón Oskar heldur aftur utan til náms síðar á þessu ári og er því útlit fyrir að einhver bið veröi á að hann haldi aðra stórsýningu hér á landi. Sýning hans á Kjarvalsstöðum er opin til 11. mars nk. Leikfélag Kópavogs — Óvæntur gestur A laugardagskvöld kl. 20.30 sýnir Leikfélag Kópavogs leikritið Ovæntur gestur eftir Agöthu Christie, í þýðingu Helgu Harðar- dóttur. Með hlutverk fara Helga Harðar- dóttir, Sigurður Grétar Guðmundsson, Sólrún Ingvadóttir, Svanhildur Th. Valdimarsdóttir, Eiríkur Hjálmarsson, Hrafn Hauksson, Finnur Magnússon, Þór Ásgeirsson og Gunnar Magnússon. Þá verður næstsíðasta sýning á Gúmmí-Tarsan á sunnudaginn kl. 15. Síminn og Miðillinn — síðasta sýning Hjá Islensku óperunni verður ópera Rossinis, Rakarinn í Sevilla, sýnd í 8. srnn á föstudags- kvöld kl. 20 og er uppselt á þá sýningu. Síminn og Miðillinn, 2 óperur eftir Menotti, verða sýndar á laugardagskvöld kl. 20 og er það siðasta sýning. Síminn er stutt, smellin gamanópera, hugsanlega ádeila á nýjunga- girni manna og það hvemig maðurinn getur látið stjórnast af tækninni. Miðillinn er hins vegar andstæða Símans, alvarlegur sorgar- leikur er fjallar um fólk sem flækist fast í sinni eigin sviksemi. „Þuríður Pálsdóttir er stórkostleg í hlutverki Flóru og stundum svo magnþrungin aö manni varð næstum ekki um sjálfur verið þessi gestur hússins númer milljón. Tónlist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.