Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Side 3
bV.LAÚGÁRDAGURÍÖ.'R!lÁk!S'l984'. 1 Ameríkuflug Loftleiða hófst 25. ágúst árið 1948. Myndin var tekin af áhöfn Geysis við komuna til New York þann dag. Frá vinstri: Halldór Guðmunds- son, Sigríður Gestsdóttir, Hólmfríður Mekkínósdóttir, Alfreð Elíasson, Axel Thorarensen, Bolli Gunnarsson og Kristinn Olsen. Loftleiðir 40ára Loftleiðir hf. eiga 40 ára afmæli í dag. Félagið var stofnað þann 10. mars árið 1944. „Nei. Það verður ekkert sérstakt gert,” sagði Grétar Br. Kristjánsson, stjórnarformaður Loftleiða, er DV spuröi hvort afmælisins yrði minnst meö einhver jum hætti. Fyrir rúmum áratug þann 10. júlí 1973, voru Loftleiðir og Flugfélag Is- lands sameinuð og fyrirtækið Flug- leiðir stofnað. Hvorugt gömlu félag- anna starfar nú. Aöalfundur er þó haldinn árlega í báðum félögum og stjórn kosin. Stjómarmenn eru allir jafnframt í stjórn Flugleiða. Bæði fé- lögin eru nú eign Flugleiða. -KMU. Atómstöð- in á Akur- eyri — aðsóknin m jög góð íReykjavík Atómstööin, sem sýnd hefur verið í Reykjavík að undanförnu, var frum- sýnd á Akureyri í gær, föstudag. Er’ þaö fyrsta sýning myndarinnar utan Reykjavíkur. „Við munum sýna myndina víða um land og sem allra fyrst,” sagði Þórhallur Sigurðsson í samtali við DV. „Við erum meö þrjú, fjögur eintök í gangi og munum nota þau til hins ýtrasta.” Aðsóknin að kvikmyndinni, sem sýnd hefur verið í viku í Austurbæjar- bíói, hefur verið mjög góð, aö sögn Ama Kristjánssonar bíóstjóra. „Aðsóknin er óvenju góð af kvikmynd að vera enda nær uppselt á flestum sýningum,” sagði Ami. -KÞ Péturvarlög- legur með ÍR — dómstóll ÍBR dæmdi íPétursmálinu í gær og dómnum verðurekki áfrýjað Dómstóll IBR, skipaður þeim Hirti Hjartarssyni, Erni Höskuldssyni og Sveini Ragnarssyni, dæmdi í Péturs- málinu” svokallaða í gær. Féll dómur þannig aö Pétur hefði verið löglega með IR í körfunni í vetur, en Valsmenn og KR-ingar kæröu Pétur fyrr í vetur. „Við töpuðum málinu og ætlum okkur ekki aö áfrýja þessum úrskurði dómstóls IBR,” sagði Sigurður Láms Hólm, formaður körfuknattleiksdeild- ar Vals, í samtali við DV. „Þar meö er ekki sagt að við sættum okkur við úr- skuröinn. Þvert á móti finnst okkur þetta vera furöulegur dómur,” sagöi Sigurður. Samkvæmt heimildum DV munu KR-ingar ekki áfrýja þessum dómi og þar með ætti þetta leiðindamál að heyra fortíðinni til. A áfengissjúklingur að fá veikindabætur? hæstaréttardómur væntanlegur Hæstiréttur Islands mun á næstu dögum skera úr um hvort áfengis- sýki sé sjúkdómur. Hæstiréttur mun úrskurða hvort maður í meðferð við áfengissýki sé sjúklingur og þar með veikur í skilningi laganna. Hér er á ferðinni mikilvægt próf- mál. Dómur Hæstaréttar, hver sem hann verður, mun aö líkindum hafa fordæmisgildi. Niöurstaðan mun snerta f jölmarga því spurt er um rétt áfengissjúkra til veikindagreiðslna. Máhð höföaði trésmiður nokkur gegn trésmiðju sem hann vann hjá. Maðurinn var illa haldinn af áfengis- sýki og fór í fimm vikna meðferð hjá SAA. Trésmiðurinn vill ekki sætta sig viö að fá ekki veikindabætur fyrir þann tíma sem hann var í meðferð. Undirréttardómur féll í nóvember árið 1981. Hann var trésmiðnum í óhag. Lögmaður trésmiðsins er Arn- mundur Backman. Lögmaður fyrir- tækisinser JónasHaraldsson. -KMU. Áhugamannafélag um fiskirækt varlagtniður Nýlega voru tveir aðalfundir haldnir afhenda Landssambandi fiskeldis- og Hinn fundurinn var svo aðalfundur Sambandiðkaussérstjómoger Jón nánast samtímis að Háaleitisbraut 68. hafbeitarstöðva 20 þúsund króna sjóð Landssambands fiskeldis- og hafbeit- Kr. Sveinsson frá Lárósstöðinni á Annar var aðalfundur Félags áhuga- félagsins. Þeir skilmálar voru fyrir arstöðva. Fyrir utan venjuleg aðal- Snæfellsnesi formaður hennar. manna um fiskirækt og var þar gjöfinni að henni yrði varið til almenns fundarstörf miðluðu menn af reynslu -GS. ákveöiö að leggja það félag niður og fræðslustarfs á vegum sambandsins. sinni við hinar ólíklegustu aðstæöur. isýningar laugardag og sunnudag kl. 2-5. í ÖNDVEGIVERDA AÐ ÞESSU SINNI: NISSAN CABSTAR Sendibíll á grind. Þögull vinnuþjarkur. WARTBURG PICKUP Sumt verða menn að sannreyna til að trúa. Eitt af því eru hinir frábæru aksturseiginleikar Wartburg. Er það aðal- lega að þakka sjálfstæðri gormafjöðrun á hverju hjóli, miðstyrktri grind og framhjóladrifi. NISSAN MICRA Billinn sem Ómar Ragnarsson sagði að væri nánast útilokað að fá til að eyða nokkru bensíni. Yfirskrift greinar Ómars í DV 29/12 um Micra var svona: „Fisléttur, fiskur bensínspari sem leynir á sér." En Nissan Micra leynir ekki bara á sér þvi Micra er gullfallegur og svo hlaðinn aukahlutum að sumir verða að taka upp vasatölvuna til að geta talið þá alla. NISSAN MICRA GL 263.000,- NISSAN MICRA DL 251.000,- NISSAN SUNNY COUPÉ Nissan Sunny — sólskinsbíllinn — er fáanlegur í 14 gerðum. Ein af þeim er Sunny Coupé fyrir þá ungu og ungu í anda. Sunny Coupé er sportlegur og rennilegur með 84 hestafla vél, framhjóladrifi og 5 gira eða sjálfskiptur. NISSAN SUNNY COUPÉ KR. 332.000,- NISSAN SUNNY FÓLKSBÍLL, 4 DYRA, KR. 315.000,- NISSAN SUNNY STATION KR. 331.000,- VERIÐ VELK0MIN 0G AUÐVITAÐ VERÐUR HEITT Á KÖNNUNNI: INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560. -SK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.