Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1984, Blaðsíða 4
4
DV. LAUGARDAGUR10. MARS1984.
Niðurstöður skoðanakönnunar DV:
Ríkisstjórnin stór
eykur fylgi sitt
Ríkisstjórninni hefur vaxiö fylgi
síðan DV stóö fyrir skoöanakönnun á
fylgi stjómarinnar í október síöast-
liðnum. Samkvæmt skoöanakönnun
DV nú um síöustu helgi nýtur ríkis-
stjórnin fylgis afgerandi meirihluta
landsmanna.
Spurt var: Ertu fylgjandi eöa and-
vígur ríkisstjórninni?
Af öUu úrtakinu í skoöanakönn-
unni sögöust 56,8% vera fylgjandi
ríkisstjórninni. Aöeins 17,2 prósent
kváöust andvíg ríkisstjórninni,
21,5% voru óákveöii) og 4,5% vildu
ekki svara spurningunni. 1 skoðana-
könnun DV í október síðastliönum
k' áöust 48,2% af úrtakinu vera fylgj-
andi ríkísstjórninni. Þá voru 27,7%
andvig ríkisstjórninni, 20,7%
óákveöi.- og 3,5 vildu ekki svara.
Fylgisaukning ríkisstjórnarinnár er
því mikil eins og af þessum tölum
sést.
Ef aðeins eru teknir þeir, sem
tóku afstöðu, þýöir þetta, að 76,8%
fylgja ríkisstjórninni samanborið viö
63,5% í október.
23,2% þeirra, sem taka afstööu nú,
eru andvíg stjórninni samanbcrið
viö 36,5% í október síöastliönum.
Fylgi stjómarinnar er býsna mik-
iö, þegar litiö er á, hvaö stjórnar-
flokkarnir tveir höföu í síðustu þing-
kostningum.
Sjálfstæöisflokkurinn fékk þá
38,7% atkvæöa og T-Usti sjálfstæöis-
manna á Vestfjörðum 0,5%. Fram-
sóknarflokkurinn fékk í þingkosning-
unum 18,5% atkvæöa, og BB-listi
framsóknarmanna á Norðurlandi
vestra 0,5%. Samtals fengu þessir
tveir flokkar því, meö aukalistum,
58,2% atkvæöanna.
Urtakið í könnuninni vora 600
manns, þar af helmingur á
Reykjavíkursvæöinu og því helm-
ingur utan þess, og jöfn skipting var
milU kynjanna.
Fylgi ríkisstjórnarinnar er mest
meðal karla után höfuðborgarsvæð-
isins en tiltölulega minnst meðal
kvenna á höfuöborgarsvæöinu.
-HH
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar
urðu þessar: Nú í okt.
Fylgjandi ríkisstjórninni 341 eöa 56,8% 48,2%
Andvígir 103 eða 17,2% 27,7%
Óákveðnir 129 eða 21,5% 20,7%
Vilja ekki svara 27 eða 4,5% 3,5%
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu
verða niðurstöðurnar þessar:
Nú í okt.
Fylgjandi 76,8% 63,5%
Andvígir 23,2% 36,5%
Ríkisstjóra Steingríms Hermannssonar.
Ummæli fólks í könnuninni:
„Meðan verðbólgan minnkar”
„Ríkisstjórnin viröist vera á réttri
leið,” sagöi karl á Reykjavíkur-
svæðinu, þegar hann svaraöi spum-
ingunni í skoöanakönnun DV.
„Fylgjandi henni. Þeir vinna á verð-
bólgunni,” sagöi kona á Reykja-
víkursvæðinu. „Hafi eitthvaö farið
úr böndunum, hefur það tekið langan,
tíma og því vil ég taka lengri tíma til
aö laga þaö aftur og gefa stjórninni
tækifæri,” sagöi karl á Reykjavíkur-
svæðinu. „Eg vil láta þá fá aö
spreyta sig betur. Þetta er bara
hálfnað verk,” sagði kona á Vestur-
landi. „Eg er afskaplega ánægöiir
með ríkisstjórnina eins og hún er
nú,” sagöi karl á Reykjavíkur-
svæðinu. „Fylgjandi. Þaö er ágætt
sem hún er að gera,” sagði karl á
Reykjavíkursvæöinu. „Viö viljum
ráöa niöurlögum veröbólgunnar, og
ríkisstjórnin er aö baksa viö það,”
sagði kona á Reykjavíkursvæöinu.
„Eg styð ríkistjómina, meðan verö-
bólgan minnkar,” sagöi kona á
Reykjavíkursvæðinu.
„Við höfum ekki efni á aö steypa
ríkisstjórninni núna,” sagöi karl á
ReykjavíkurSYæðínu. „Eg er
ryigjandi stjóminni eins og er, en
hún má fara aö vara sig,” sagöi kona
i sveit.
„Grjónagrautur"
„Þetta er hálfgert rugl hjá þeim,
hver höndin upp á móti annarri.
Albert er einn á báti. Það er ekki
hægt aö styöja svona stjórn,” sagöi
kona á Reykjavíkursvæðinu.
„Andvíg. Þaö er alltof mikill launa-
mismunur í þjóöfélaginu,” sagöi
kona á Reykjavíkursvæðinu. „Mér
finnst þetta vera einn grjónagrautur
allt saman,” sagöi kona á Reykja-
víkursvæöinu.
„Þeir eru allir eins, allt sami
grauturinn,” sagöi karl á Reykja-
víkursvæöinu. „Hvorkimeöné móti
ríkisstjórninni, er andsk. . .sama,”
sagöi karl úti á landi. „Þessir stjórn-
málamenn eru allir eins,” sagði kona
úti á landi. „Þetta er allt saman
hringavitleysa. Eg er óákveöin,”
sagöi kona á Reykjavíkursvæðinu.
„Eg er svo lítið pólitísk,” sagöi kona
í sveit. „Ríkisstjórnin er eins og
kransakaka, misgóö,” sagöi kona í
sveit. „Sama hver er. Sami rassinn
undir þeim öllum,” sagöi kona úti á
landi. -HH
Ragnar Arnalds,
Alþýðubandalagi:
Fólk ekki til-
búið að velta
stjórninni
„Eg held það einkenni hugsunarhátt
fólks nú aö það er mjög hikandi. Fólk
óttast atvinnuleysi og fyrirhugaöan
aflasamdrátt í kjölfar kvótaskipting-
arinnar. Því bíöur fólk átekta og vill
vafalaust láta þaö koma í ljós hvers
þessi stjóm er megnug,” sagöi Ragnar
Arnalds, formaöur þingflokks Alþýöu-
bandalagsins, aöspurður um niöur-
stööur skoðanakönnunar um fylgi rík-
isstjórnarinnar.
„Fólk er af þessu aö dæma ekki til-
búiö aö kollvarpa ríkisstjórninni. Sami
hugsunarhátturinn var augljós viö
gerö kjarasamninganna. Fólk er ekki
tilbúið til átaka. Því endurspeglar
þessi skoöanakönnun þá biöstöðu sem
er nú ríkjandi. Þaö er ekki efst á dag-
skrá hjá almenningi að skipta um rík-
isstjóm enda vill fólk ætíð gefa ríkis-
stjórnum tækifæri. Auk þess hafa vá-
leg tíöindi undanfarna mánuöi gert
fólk enn meira hikandi.
Eg minntist þess að þegar skoöana-
könnun var á sínum tíma gerö á fylgi
ríkisstjómar Gunnars Thoroddsen
eftir álíka langa valdasetu haföi hún
mikið fylgi. En aöalflokkar þessarar
sömu ríkisstjórnar, Alþýöubandalag
og Framsóknarflokkur, höföu hins
vegar ekki samsvarandi fylgisaukn-
ingu,” sagði Ragnar Arnalds.
HÞ
„Eg get aö sjálfsögöu ekki annað en
fagnaö þessari niöurstööu. Hún
staðfestir þaö aö við eram á réttri
braut,” sagöi Steingrímur Hermanns-
son forsætisráöherra um niöurstöður
skoöanakönnunar DV um fylgi við
ríkisstjórnina.
„Þaö sem viö eram að gera nýtur
stuðnings almennings. Eg hef oröið
var viö þaö meðal fólks að það styður
okkur í því aö ná niður verðbólgunni.
Eg tel aö fylgisaukningin frá síðustu
könnun ykkar sé vegna þess aö þaö
eru fleiri sem trúa því aö þetta sé
hægt,” sagöi forsætisráöherra.
-KMU.
Steingrímur
Hermannsson
forsætisráðherra:
Við erum á
réttri braut