Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1984, Blaðsíða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 23. MARS1984. Spurningin Hvernig heldurðu að úrslita leikurinn á milli Everton og Liverpool á sunnudaginn fari? Olafur Leópoldsson: Eg held aö það verði jafntefli. Andrés Andrésson: Hann fer 3—1 fyrir Liverpool, öruggt mál. Viðar Birgisson: Liverpool vinnur tvö núlL Guðný Gísladóttir: Liverpoolmenn verða sigurvegarar. Hann fer 1—0. Sigurður Heiðar: Eg spái Liverpool sigri. 1—0 býst ég við. Elías Leifsson: Þetta fer 2—0 fyrir Liverpool. Þeir eru betri. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Meðal listaviðburða í VIN a þessum tima veroa óperurnar: Salome - Carmen - Aida - Daphms og Cloé/Eldfuglinn - Viva la Mamma - Greifinn frá Lúxemborg - Zarewitsch - Wiener Blut. • Einnig getur hver og einn fundið skemmtanir við sitt hæfi í hinum ótrúlega fjölda leikhúsa, klúbba og skemmtistaða í hinni margrómuðu Vinarborg. • Frá Vínarborg liggja vegir (og fljót) til allra átta. Kappkostað verður að mæta óskum farþeganna um ferðir frá VÍN. Vegna hagstæðra _ samninga f 18-400." kostarferðin aðeins ■VI ■ "ww f Innifalið: Beint flug og gisting á fyrsta flokks hóteli - íslensk fararstjórn - skoðunarferð um VIN og óperumiði. takmarkað sætaframboð GREIÐSLUKJÖR Nú er tækifærið að lyfta sér upp eftir harða veðratti undanfarið og heilsa vorinu í hinni undurfögri VÍNARBORG — þegar borgin skartar sínu fegursta ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITTAR HJÁ: MEIRA UM LAG- LAUNADAUÐA G.S.skrifar: Kæra nafnníimer 2812—8436. Ekki ætla ég að fara að svara fyrir Steingrím og Davíð en mig langar að senda þér fáeinar línur því aðstæður okkar eru svo líkar að ég hefði eins getað skrifað bréfiö þitt. Nema hvað ég borga ekki nema 1000 kr. í hita og gat því keypt strætómiða og á meira að segja 1050 kr. eftír ennþá sem duga vel fyrir grautnum til mánaða- móta. Þessar iinur áttu nú heldur að hressa þig upp svo ég ætla ekki að spyrja hvort þú þurfir að safna fyrir afborgunum af húsnæðismálaláni og greiöa af húseigendatryggingu og þess háttar. Eg sé það á bréfinu þinu aö þú gerir þér, eins og ég, grein fýrir því^ að við erum heppnar að vera ekki ennþá meö böm á framfæri og þurfum ekki að borga húsaleigu (kannski 6—8 þúsund á mánuði). Eg vona að þú gleðjist líka yfir þvi að fá að ganga úr og í vinnu því þar með færð þú ókeypis líkamsþjálfun og verður komin í fínt form þegar þú leggur af stað i sumarfríið, gangandi að sjálfsögöu, skítt meöþaðþótt þú sért klukkutíma hvora leið. A mínum vinnustað var haldin árshátíð í febrúar og kostaði miðinn 650 kr., það er að segja 1300 kr. fyrir hjón. Þaö mætti segja mér að þú hefðir líka glaðst yfir því aö þessar 2.200 kr. sem þú borgaðir i gjöld um síöustu mánaðamót hefðu kannski nægt fyrir matnum handa þing- manninum þinum og maka hans i nýafstaðinni veislu þingmanna á Sögu. Nú, svo geturðu líka hlakkað til næstu mánaðamóta. Þá fáum við kannski heilum 600 kr. meira i umslagið. Bestukveöjur. LEIGUSALAR: Variðykkuráaðtaka bankabækur sem tryggingu Leigusalihringdi: Vildi hann vara aðra leigusala viö leiðindamáli sem fyrir hann kom ekki alls fyrirlöngu. Þegar hann leigði húsnæði sitt þá tók hann sem tryggingu frá leigjendunum bankabók með á- kveöinni innstæðu. Þessi bók var ekki á nafni leigjanda heldur móður annars þeirra sem búsett er úti á landi. Þegar svo að því kemur að hann þarf að taka út úr bókinni kemur í ljós að hann fær ekki aö gera þaö. Búnaðar- bankinn vildi ekki leyfa honum að leysa peningana út nema með sam- þykki eiganda sem hann þekkir ekki. Vildi hann vara aðra við þessu því talsverö vandræöi heföu skapast sem gjamanhefðimátt afstýrameðforsjá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.