Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Side 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Dýrt aö versla svangur
—ogfaraoftíbúðir
Matarpeningar mánaðarins eyðast
upp löngu fyrir túnann, þá er farið í
allar skúffur og vasa á heimilinu, oft-
ast er hægt að finna aura fyrir skyri og
brauði. En það eru ýmis ráð til sem vert
er að hafa í huga. I fyrsta lagi að skrifa
niður innkaupalista áður en lagt er að
stað og að sjálfsögðu að kaupa ekki inn
umfram það sem á hann er ritað. Þá er
einnig mikilvægt að fara í þá verslun
sem maður veit að hefur vörur á sann-
gjörnu verði. Siðan í þriðja lagi að vera
ekki svangur þegar maður kaupir inn,
það er ótrúlegt en satt að þá kaupir
maður mun meira.
Hvað á ég að hafa í kvöldmatinn?
Mikill höfuðverkur hjá sumum sem
reynt er að leysa með því að sjá hvað
til er í næstu búö. Maður fer beint úr
vinnu rétt fyrir kvöldmat, það verður
að vera fljótmatreitt sem keypt er,
jafnvel þó þaö sé dýrt, börnin bíöa
heima og allir orðnir svangir. En
siaðreyndin er sú aö þaö er dýrt aö
kaupa inn daglega, versli maður í flýti
og jafnvel rétt fyrir lokun. Kannanir
hafa leitt í ljós að gefist fólki tækifæri
til aö versla fyrir utan annatíma, hefur
það tíma til verösamanburðar, það
gerir góð kaup og þykir ekki leiðinlegt
aökaupainn.
Erfiðast fyrir
barnafjölskyldur
Almennt er það eldra fólkiö sem
hefur betri tíma til innkaupa, segir í
niðurstöðum kannana, en fyrir fjöl-
skyldufólk er það pína aö kaupa inn.
Þá kom það og fram að fólk á aldrinum
25—44 ára meö bam á framfæri, eyddi
3 timum vikulega til matarinnkaupa.
Það færist æ í auka að fólk versli í stór-
mörkuöum. Þá eyöir það mun meiri
tíma í að ganga um og tína í körfurnar
en þaö geröi þegar verslaö var hjá
kaupmanninum á horninu. Sá inn-
kaupamáti sem nú tíðkast gerir kröfur
til okkar að skipuleggja innkaupin
áður en farið er af stað.
Skyndikaup
Það tekur ekki aöeins tíma að versla
oft, það er einnig dýrt. Þeim mun oftar
sem maður fer í verslanir því fleiri
verða freistingamar að kaupa
ýmislegt sem ekki vantar á heimilið.
Til að byrja með er ágætt að fara ekki
oftar en tvisvar til þrisvar í viku og
kaupa þá inn fyrir minnst tvo daga.
Innkaupamiði kemur að miklu gagni
og það hjálpar að vera ekki svangur
þegar keypt er í matinn. Ráölagt er aö
halda sig við eina verslun við matar-
innkaupin en ekki að elta uppi
verslanir sem hafa tilboðsverð á
einstaka vöru hverju sinni. Það kostar
sitt aö aka á milli búða og í flestum
tilfellum er þá keypt meira en aðeins
hin auglýsta vara á tilboösverði. Þá er
Ei skal gefa bömum mjólk
ef vakna þau á nóttu
Það er oft verið aö gefa bömum
sætindi í tíma og ótíma, sem er að
sjálfsögðu bölvun fyrir tennurnar.
En hvað er þaö sem á sér stað? Skán
kemur á tennurnar af sykri sem er í
mat og drykk. Sykurinn breytist í
— vatnið er það eina rétta
sýru þegar hann sameinast sýklum
sem fyrir eru í munni. Síöan er það
sýran en ekki sykurinn sem skemmir
tennumar. Þessar efnabreytingar
hefjast fáeinum mínútum eftir aö
maturinn er kominn í munninn og
Af tvennu illu er betra að barnið borði margar karamellur um helgar en eina á
hverjum degi.
það tekur tvo til þrjá tíma fyrir sýru
aö myndast. En þaö er ýmislegt hægt
aö gera þessu til varnar eða til aö
draga úr sýrumyndun. Þó besta
lausnin sé að sjálfsögðu að hætta að
neyta sætrar fæöu og aö bursta
tennur að lokinni máltíð. En það
nægir ekki að fylgjast einungis með
því hve mikils er neytt af sætri fæöu,
heldur þarf að athuga hve oft hennar
er neytt. Vilji foreldrar gleðja böm
sín með sælgæti er betra að leyfa
þeim aö neyta þess alls til dæmis um
helgar heldur en að gefa þeim sæta
mola oft í viku. Vakni barn upp að
nóttu til skal hvorki gefa því mjólk
né sætan ávaxtadrykk. Mjólkursyk-
ur fer illa með tennurnar nái hann að
vera á þeim næturlangt. Baminu
skal gefa vatn og ekkert annað.
-RR.
Í5VIKAX
FACE
OF
THE 80'S
Það er a/ltaf ein-
hver við h/iðina
á mér sem vísar
veginn.
Hreinskilið og hressilegt
viðtal við hina landsþekktu
Soffíu Pálma.
ISLENSKA
SKJALDARMERKIÐ
— íslenska skjaldarmerkið
hefur lengi verið vinsælt til
útsaums, en mynstrið þvi
miður ófáanlegt um langt
skeið. Við bætum úr því I
þessari VIKU.
Nú drögum við út
TOYOTA TERCEL
— /þessari VIKU hefst lokaáfangi afmæiisget-
raunar VIKUNNAR og tílmikils erað vinna.
VIKAN reynsluók Toyotu Tercelínokkra daga
og frá þvisegjum við nánar.
ÁSKRIFTARSÍMINN ER 27022
SttUl
það einnig mikill bensínspamaður að
nota símann viö leit aö einstakri vöru í
stað þess að þeytast eftir götum í leit
að bílastæði og finna ekki það sem leit-
að eraö.
Innkaupaseðill
Það er góður vani að skrifa
jafnóðum á miða þegar nýbúið er aö
eyða kaffibirgöunum, eða þeim eina
pakka sem til var, hveitið búið eða
kökudropamir. Sé þetta ekki skrifað
niður kemur oft fyrir aö gripið er i
tómt þegar næst er fariö aö matreiða
eða baka. Það er safnað á miðann, allir
fjölskyldumeölimir hjálpast að við aö
muna hvað vantar á heimilið, jafnvel
yngsta heimilisfólkið hefur sínar
mataróskir þó þeim sé ekki alltaf
framfylgt. Þá er ágætt að hafa
reglulega fisk, til dæmis tvisvar í viku,
tvo daga vikunnar mætti leggja
áherslu á léttmeti, súpu, egg og gróf
brauð og þá jafnvel kjötmeti aöra daga
vikunnar. Ööru hvoru mætti reyna
nýja uppskrift úr matreiöslubók og þar
kemur innkaupalistinn að góðu gagni,
til að skrifa niður það sem kann aö
vanta. En þaö er allt of algengt aö litiö sé
á mataruppskriftir rétt áður en áætlaö
er að matreiða og þá verður að hætta
við verkið því ekki er allt hráefnið til á
bænum. Svo em sumir sem sleppa því
að láta í réttinn þaö sem ekki „slys-
aöist” til að vera til uppi í skáp og
bragðið verður annað.
Heimsending
Að fá heimsent vikulega hefur sína
stóru kosti. Það eru þá einkum þeir
sem búa langt frá verslun og hafa ekki
bíl til afnota sem notfæra sér
heimsendingarþjónustu. Einnig eru til
þeir sem velja vörumar sjálfir í
versluninni og fá þær síöan sendar.
Þjónusta þessi borgar sig tæplega hjá
verslunum svo það tíðkast yfirleitt
ekki að heimsendingarþjónusta sé
mikiö auglýst. Margar verslanir bjóöa
ekki upp á þetta og aðrar einungis á
föstudögum. Þá eru einnig dæmi
um aö verslanir sem almennt senda
ekki vörur heim geri undantekningu
ef fleiri í sama nágrenni vilja nýta sér
þjónustuna. Þeir sem hafa bíl til
umráöa ættu aö geta keypt
hreinlætisvörur fyrir mánuðinn og
jafnvel talsvert af mat í frystl Þaö er
dýrt aö leysa út mikiö vömmagn á einu
bretti en það sýnir sig að útkoman
verður í alla staði hagstæðari þegar
keypt er mikið inn í einu og ekki alltaf
minnstu pakkarnir, samanber þvotta-
efnispakkar og fleira. Hve mikiö
sparar maður á að skipuleggja sín
innkaup? Það væri ekki úr vegi aö
reyna þetta einn mánuð, sama hve lítið
sparast þá er þaö eflaust fyrirhafn-
arinnarvirði. _rr.
Dýrasti innkaupamátinn er að fara
daglega út í búð.
Versli maöur í flýti rétt fyrir lokun
gefst enginn tími til verðsamanburðar
og innkaupin verða eftir því.
Með því að skrifa á lista hvað vantar
og kaupa aðeins það sem á honum
stendur má mikið spara.
Það eru ýmsir kostir sem fylgja því að
fá vörurnar sendar heim.
PLASTUR
GEGN
SJÓVEIKI
Nú er komið nýtt ráö við sjóveiki.
Lámdur er plástur bak við eyrað og
inniheldur hann sjóveikimeðal, sem
smýgur í gegnum húöina og í bóðið.
Hann hefur áhrif í 72 tíma og er talið
að hann eigi eftir að valda byltingu á
þessu sviöi. Þessi plástur hefur veriö
notaður í Bandaríkjunum við góöan
orðstír og nú stendur til aö nota hann
í Noregi.
I Noregi hefur verið gerö könnun
meöal sjómanna sem sýnir að
sjóveiki er mikil meðal þeirra.
Margir sjómenn þar í landi hafa
orðið að hætta störfum vegna þess
hve ilia sjóveikin hefur lagst í þá. En
fleiri harka það af sér og upplifa
vinnudaginn með ógleði og upp-
köstum.
Umræddur plástur ku geta hjálpaö
þessum sjómönnum mikið.
Ingolf Petersen, deildarstjóri
lyfjadeildar heilbrigðisráðuneyt-
isins, sagöi að þessi plástur væri ekki
kominn hingað til landsins, en líklegt
væri að hann bærist hingaö ef hann
yröi vinsæll erlendis. Þegar væri
byrjaö að nota plástra sem lyf og
væri það nýtt lyfjaform.
-APH.