Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Side 21
20
DV. FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984.
DV. FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984.
21
(þróttir
(þrótt
íþróttir
Eþróttir
Iþrótt
Eþróttir
Iþróttir
íþróttir
fjögur HM-mörk
— sigruðu Möttu 4:0 Í2. riöii
Evrópu
Sviþjóð sigraði Möitu 4—0 í 2. riðli Evrópu fyrir
heimsmeistarakeppnina í Mexíkó 1986 í gærkvöld.
Fyrsti leikurinn í riðlakeppninni. Leikið var í
Norrköping og voru áhorfendur 18.819. Thomas
Sunesson, tvö, Dan Corneiiusson (Stuttgart) og Inge-
mar Erlandsson skoruðu mörk Svia.
Hafþór með
tilboð frá Belgíu
Belgiska áhugamannafélagið Hebnes i Gent hefnr
haft samband við Hafþór Sveinjónsson, landsiiðsbak-
vörð úr Fram, og boðið honum að koma til Gent og
gerast leikmaður með féiaginu. Hafþór hefur afþakk-
að boð Hebnes þar sem hann ætlar að ieika með Fram
isumar.
-SOS
Guðmundur ekki
með gegn Þrótti
Guðmundur Toriason mun ekki leika með Fram
gegn Þrótti í kvöld. Guðmundur tugnaði ilia á æfingu
og var jafnvel haidið að liðbönd hefðu siitnað í ökkla.
Það kom fram i læknisskoðun í gær að svo var ekki en
Guðmundi var f yrirskipað að taka sér smáhvíld.
-SOS
Var ekki
flugveður
I DV sl. mánudag var skýrt frá því að Hildibrandur
frá Vestmannaeyjum hefði ekki mætt til leiks gegn
Drangi í 4. deild íslandsmótsins í knattspyrnu og er
það baíði satt og rétt.
Hitt er annað að þeir Eyjamenn komust ekki til
lands vegna ótærðar í lofti og það var ástæðan fyrir
því að dómari leiksins flautaði leikinn af.
-SK.
tvivegis
— en Santander féll út á Spáni
Magnús Bergs skoraði tvívegis fyrir Santander i
deiidabikarkeppninni á Spáni i gær. Santander lék þá
síðari ieikínn við varaiið Atletico Bilbao, sem varð
efst í 2. deiid. Liðín i 2. deild leika innbyrðis. Biibao
sigraði 2—1 en eftir venjulegan leiktima í gær stóð 3—
2 fyrir Santander. Þá var framlengt og Bilbao jafnaði
í 3—3. Þar með er Santander úr keppninni.
Santander og Tongeren (Beigiu) hafa enn ekki
komist að samkomulagi um Magnús. Spænska iiðið
völ fá að greiða kaupveröið á tveimur árum, belgiska
félagið vfli fá peningana strax. Þar stendur hnífurinn
í kúnni og Magnús er mjög ieiður yfir hve máiið hefur
dregist á langínn.
L_'
nsim.
Magnús Bergs—skoraöi tvivegis
Jóhann Grétarsson sést hér gefa fyrir mark KR í Ieiknum í gærkvöldi.
DV-mynd Öskar örn Jónsson.
„Magnús veit ekki um
hvað hann talar”
— Við lékum ekki vamarleik, sagði Hólmbert Friðjónsson, þjátfari KR,
eftir leikinn gegn Breiðablik
„Það er erfitt að vinna lið eins og
KR-liðið. KR-ingar léku með fjóra
„hafsenta” í þessum leik og léku
lengst af varnarleik. Eg er ánægöur
með Ieik minna manna. Það er ekki
hægt að sýna öllu betri knattspymu en
við gerðum á þessum mjóa grasvelli.
Það var svolitið andlegt áfail fyrir
mina menn þegar Jón Oddsson varð að
fara af velli en strákamir áttu stórleik
í síðari hálfleik. Þá börðust þeir af
fidonskrafti og sýndu mikinn
karakter,” sagði Magnús Jónatansson.
þ jálfari Breiðabliks í gær.
„Tómt rugl hjá Magnúsi"
„Ef Magnús heldur því fram að við
höfum leikið með fjóra „hafsenta” þá
veit hann ekki um hvað hann er að
tala. Það sem var að hjá okkur var að
við náðum ekki að halda knettinum
eftir að við unnum hann af Blikunum
og koma okkar mönnum inn í leikinn.
Ef við aetlum okkur að vinna leiki í
framtíðinni verðum við að vinna bolt-
ann og halda honum á miðsvæðinu,”
sagði Hólmbert Friðjónsson, þjáifari
KR.
„Eitthvað að hjá okkur"
„Það gefur augaleið að það er
eitthvaö að hjá okkur þegar við náum
alltaf forystu og gloprum henni síðan
niöur. Það veröur að leika knatt-
spyrnu allan leikinn til að vinna.
Þessi völlur býður því miður ekki upp
á að hægt sé aö leika góða knatt-
spyrnu,” sagði Gunnar Gíslason, KR.
„Mjög óhress"
„Eg er mjög óhress með jafnteflið.
Við sóttum að KR-markinu alian
síðari hálfleikinn og áttum að vinna
sigur,” sagði Þorsteinn Geirsson,
Breiðabliki.
„Mjög Ijúft að skora"
„Það var gaman að ná að jafna
leikinn. Það er ekki svo oft sem mér
tekst að skora. Fyrirgjöf Þorsteins
var mjög góð og ég var einn og
óvaidaður og það var unaöslegt að sjá
boltann fara í stöngina og inn,” sagði
bakvörðurinn Benedikt Guðmundsson
sem skoraði jöfnunarmarkið fyrir
Breiðablik.
„Ansi notalegt"
„Það var mjög notalegt að skora
mark í þessum fyrsta leik mínum
meö meistaraflokki. Eg fylgdi fyrir-
gjöf Sæbjöms vel eftir og sótti að
markverðinum og náði að pota
boltanum inn í markið,” sagði
Hannes Jóhannsson, ungur nýliði sem
skoraði mark KR í gærkvöldi.
„Mjög erfiður leikur"
„Það var mjög erfitt að dæma
þennan leik. Hann var hraður og
harður. Það var grátlegt fyrir KR-
ingana að missa af stigunum í lokin,
sagði dómarinn Friðjón Eðvarðsson.
-SK.
KEFLVIKINGAR NAÐU
AÐ JAFNA ÚR VÍTI
og jafntefli sanngjöm úrslit íleik ÍBK og KA
KA-menn frá Akureyri náðu ekki að
hafa þrjú stig á brott með sér norður er
þeir mættu Keflvíkingum í Keflavík i
leik iiðanna í 1. deild Islandsmótsins í
knattspymu í gærkvöldi.
Mikil barátta var í leikmönnum lið-
anna og norðanmenn öilu líflegri en
Keflvíkingar áttu fleiri marktækifæri.
Jafntefli sanngjöm úrslit en leikið var
við frekar erfiðar aðstæður, völlurinn
slæmur og nokkur vindur.
Litlu munaöi að Ragnar Margeirs-
son næði aö skora fyrir IBK á 6. minútu
leiksins er hann komst einn inn fyrir
vörn KA en skot hans fór til hiiðar við
markið. Smátt og smátt komust KA-
menn inn í leikinn og sókn þeirra
þydgdist og þeir náðu forysÉunni á 32.
mínútu. Steingrímur. Birgisson smaug
þá inn fyrir vöm IBK. Þorsteinn
Bjarnason var heldur seinn á sér og
skot Steingríms af frekar stuttu færi
hafnaði í markinu. Þannig var staðan í
leikhléi.
Keflvíkingar, sem drógu sig frekar í
hlé eftir markið, léku undan vindi í
síðari hálfleik. Þeir Valþór Sigþórsson
og Ragnar Margeirsson áttu báðir
nokkuð góð marktækifæri fljótlega í
síðari háifleik en hvorugum tókst að
skora. Það var síðan á 35. mínútu
siðari hálfleiks aö Ragnar fékk
knöttinn rétt utan vítateigs KA. Lék
með hann inn í teiginn þar sem varnar-
menn KA sóttu óþyrmilega að honum
og dajnd var vítaspyma sem Siguröur
Björgvinsson skoraöi úr og ja&iaði
metin 1—1.
Gísli Eyjólfsson, Valþór Sigþórsson
og Guðjón Guðjónsson voru einna
bestir hjá IBK ásamt þeim Ragnari og
Sigurði. Hjá KA var Njáll Eiðsson
bestur en þeir Steingrímur Birgisson,
Hafþór Kolbeinsson og Gústav
Baldvinsson léku einnig vel.
Liðin: IBK. Þorsteinn Bjarnason,
Oskar Færseth, Guðjón Guðjónsson,
Gísli Eyjólfsson, Valþór Sigþórsson,
Magnús Garðarsson, Sigurður Björg-
vinsson, Einar Asbjöm Olafsson,
Ingvar Guðmundsson (Sigurjón
Sveinsson), Kristinn Jóhannsson
(Rúnar Georgsson), Ragnar
Margeirsson.
KA. Þorvaldur Jónsson, Ormar
Orlygsson, Friðfinnur Hermannsson,
Asbjöm Bjömsson, Erlingur
Kristjánsson, Njáil Eiðsson, Stein-
grímur Birgisson (Þorvaldur Orlygs-
son), Gústav Baldvinsson, Hinrik
Þórhaiisson, Hafþór Kolbeinsson og
Mark Duffield.
Dómari var Magnús Theódórsson,
áhorfendur 688 og einn leikmaður fékk
gult spjald, Oskar Færseth IBK.
Maðurleiksins: NjállEiðssonKA.
emm/SK.
Géður sigur Skaga-
manna en of stór
—íslandsmeistararnir sigruðu Þór 3:0 á Akureyri í 1. deild
Frá Pétri Olafssyni, fréttamanni DV á
Akureyri.
„Eg er ánægður með stigin þrjú en
ekki ánægður með leik ÍA-iiðsins í fyrri
hálfleiknúm. Þá var Þór betra liðið en
við náðum okkur vel á strik í þeim
síðari,” sagði Hörður Helgason, þjálf-
ari Skagamanna, eftir að þeir böfðu
unnið stórsigur 3—0 á Þór á Akureyri í
L deild í gærkvöld. Það voru mikil
kaflaskipti í leik liðanna. Skagamenn
heppnir að fá ekki á sig mark eða mörk
i fyrri hálfleiknum. En þeir voru betri í
s.h. og sigruðu en sigurinn var of stór.
Veður var ágætt og áhorfendur 1370.
Metaðsókn í 1. deild í ár.
„Við vorum óheppnir að skora ekki í
fyrri hálfleik. Vorum þá betra liðið.
Byrjuöum með látum í s.h. Þá urðu
leikmönnum Þórs á mistök sem
kostuðu okkur tap,” sagði Þorsteinn
Olafsson, þjálfari Þórs, eftir leikinn.
Þór sótti mjög í fyrri hálfleik en
þegar aö markinu kom var skotið
framhjá eða Bjami Sigurðsson varði.
Furöulegt að Þór skyldi ekki skora á
22. min. Eftir mistök Bjama rúllaði
knötturinn eftir marklínunni en inn
ÖRN VARÐITVÆR
VÍTASPYRNUR
— Eyjamenn unnu HV 5:1 íEyjum íbikarkeppninni
öra Valdimarsson, markvörður HV,
gerði sér lítið fyrir og varði tvær víta-
spyraur í Eyjum í gærkvöldi. Það var
Kári Þorleifsson sem tók spyrauraar
og síðan skoraði hann úr sinni þriðju
vítaspyrau. Það munaði þó engu að
öra næði að verja hana — hann varði
skot Kára en missti knöttinn inn fyrir
marklinu.
Eyjamenn unnu leikinn, sem var
bikarleikur, 5—1. Sigurjón Kristinsson
skoraði þrjú mörk fyrir Eyjamenn,
Kári eitt úr vítaspyrnu og Lúövík
Bergvinsson eitt. -FÖV/-SOS.
vildi boitinn ekki.
A 37. mín. náðu Skagamenn svo
óvænt forustu og gegn gangi leiksins.
Guðbjöm Tryggvason skoraði fallegt
mark eftir að hafa fariö iila með
vamarmenn Þórs. A 42. mín. átti Oli
Þór Magnússon að jafna. Komst í
dauðafæri, tvo metra frá marki, en
spyrnti framhjá.
Skagamenn komust í 2—0 á 54. mín.
Fengu þá hornspymu, Páll Guðlaugs-
son markvörður missti frá sér knöttinn
og Sigurður Halldórsson skailaði í
mark. A. 60. mín. gulltryggði svo
Sveinbjöm Hákonarson sigur Skaga-
manna þegar hann skoraöi þriðja
markið. Eftir það voru Skagamenn
miklu meira með knöttinn en tókst ekki
að skapa sér færi. Oli Olsen dæmdi,
frekar slappur og hefði mátt nota
spjöldin. Liðin voru þannig skipuð:
Þór: Páll Guðlaugsson, Jónas
Róbertsson, Ami Stefánsson, Oskar
Gunnarsson, Sigurbjörn Viðarsson,
Kristján Kristjánsson, Nói Björnsson,
Guðjón Guömundsson, Bjarni Svein-
björnsson (Júlíus Tryggvason 55
mín.), Halidór Askelsson og Oli Þór.
Akranes: Bjami Sigurðsson, Guðjón
Þóröarson, Jón Askelsson, Sigurður
Lárusson, Sigurður Halldórsson,
Ingi Björn með
„H at—tri ck”
Gullfallegur skalli
Benna bakvarðar
—tryggði Breiðabliki jaf ntef li gegn KR
Enn tókst KR-ingum að glutra niður
fengnu forskoti er þeir iéku gegn
Breiðabiiki í 1. deiid tslandsmótsins í
knattspymu á Valbjarnarvelli í gær-
kvöldi. Lokatölur 1—1 og jöfnunar-
mark Biikanna kom þegar aðeins f jór-
ar mínútur vora til Ieiksloka.
Leikurinn var í heild nokkuð góður á
köflum eða öllu réttara væri að segja
að hann hefði verið dulítið minna
iélegur en fyrri leikir í Laugardalnum í
sumar.
Leiðindaveður var á meðan
leikurinn fór fram og um tíma í fyrri
hálfleik tók að snjóa svo menn vissu
vart í þennan heim hvaö þá annan. KR-
ingar áttu eina marktækifæri fyrri
hálfleiks og skoruðu úr þvL Snæbjöm
Guðmundsson tók aukaspymu. Gaf vel
fyrir markið, knötturinn skoppaði
mann á milli. Friðrik markvörður
UBK náði að verja en missti svo
knöttinn frá sér til nýliða í KR-liðinu,
Hannesar Jóhannssonar, og hann náöi
Staðan
í 1. deild
Urslitin í leikjunum í 2. umferð í 1.
deild í knattspymu urðu þessi. Fram-
Þrótturleikaíkvöld.
Víkingur-Valur 1—0
Þór-Akranes 0—3
KR-Breiðablik 1—1
Keflavík-KA 1—1
Staðan er nú þannig
Akranes
Víkingur
Þór
KR
Breiðablik
Kefiavík
Þróttur
KA
Valur
Fram
2 2 0 0 4-0 6
2 110 2—14
2 10 12-43
2 0 2 0 2-2 2
2 0 2 0 1-1 2
2 0 2 1 1—1 2
1 0 li 0 0-0 1
2 0 112-31
2 0 110-11
0 0 10-10
að pota knettinum inn fyrir
marklínuna.
I síðari hálfleik komu Blikar mjög á-
kveðnir til leiks og nánast áttu siðari
hálfleikinn. Ekkert vantaði upp á leik
liðsins nema mörkin. Eitt leit þó
dagsins ljós fjórum mínútum fyrir
leiksiok. Þorsteinn Geirsson, besti
maður Breiðabliks í þessum leik, tók
þá aukaspymu og gaf beint á koll
Benedikts Guðmundssonar og undra-
fagur skalli hans skall í markstönginni
neðanverðri og inn fór knötturinn.
Stutt var til leiksloka og mörkum
liðanna var ekki ógnaö frekar.
Miðaö við gang leiksins er hægt að
segja að jafntefli séu sanngjöm úrslit.
Ahyggjuefni hlýtur það að vera fyrir
KR-inga að geta ekki haldið forskoti og
þessi árátta leikmanna liðsins er í
mörgu farin aö minna á handknatt-
leiksmenn félagsins. Allir KR-ingar
áttu jafnan dag, enginn öðrum betri.
Jósteinn Einarsson og Omar Ingvason
léku ekki með KR vegna meiðsla og
Sverrir Herbertsson var við próflestur.
Hjá Blikunum var Þorsteinn Geirs-
son mjög góður og yfirvegaður.
Sannarlega leikmaður framtiðarinnar
sem á eftir að gera það gott í sumar.
Einnig átti Guðmundur Baidursson
góðan leik en hann lék áður með Fylki.
Friðrik var að venju traustur í mark-
inu.
Liðin voru þannig skipuð: KR. Stefán
Jóbannsson, Stefán Pétursson, Ottó
Guðmundsson, Haraldur Haraldsson, Jakob
Pétursson, Gunnar Gislason, Agúst Már Jóns-
son, Oskar Ingimundarson, Björn Rafnsson,
Sæbjörn Guðmundsson (Jón G. Bjarnason),
Hannes Jóhannsson (Willum Þórsson).
Breiðablik. Friðrik Friðriksson, Benedikt
Guðmundsson, Omar Rafnsson, Olafur
Björnsson, Loftur Olafsson, Vignir Baldurs-
son, Sigurjón Kristjánsson, Jóhann Grétars-
sopn (Heiðar B. Heiðarsson), Jón Oddsson
(Jén Einarsson), Þorsteinn Geirsson og Guð-
mundur Baldursson.
Leikinn dæmdi Friðjón Eðvarðsson, áborf-
endur voru 778. Gul spjöld fengu þeir Þor-
steinn Geirsson, UBK, og Jón G. Bjarnason,
KR.
Maður ieiksius. Þorsteinn Geirsson,
Breiðabliki.
-SK.
Heimir Guðmundsson (Olafur Þóröar-
son 73 min), Sveinbjöm Hákonarson,
Július Ingólfsson, Sigþór Omarsson,
Guðbjörn Tryggvason og Ami Sveins-
son. Maður leiksins. Ami Sveinsson.
PO/hsím,
Pálmi Jónsson og Jón Erling Ragnarsson úr FH sjást hér sækja að marki ÍR.
DV-mynd: Óskar Örn Jónsson.
Bikarkeppnin í knattspymu:
— þegar FH-ingar slógu ÍR-inga út 6:2 í Kaplakrika
— Það er alltaf skemmtilegt að
skora þrjú mörk í leik, sagði Ingi Björa
Albertsson, markaskorarinn mikli,
sem skoraði þrennu þegar FH-ingar
slógu IR-inga út úr bikarkeppni KSI
6—2 á Kaplakrikavellinum í Hafnar-
firði í gærkvöldi. Ingi Björa fékk gullið
tækifæri til að skora sitt fjórða mark
en honum brást bogalistin í vitaspyrau
— skaut yfir mark iR-inga.
— Eg er ánægður með sigurinn en
óhress hvað við vorum lengi að fara í
gang, sagði Ingi Björn. FH-ingar fá
Snæfell í heimsókn í annarri umferð-
inni.
Jón Erling Ragnarsson skoraði tvö
mörk fyrir FH og Páimi Jónsson eitt.
IR-ingar veittu FH-ingum harða
keppni framan af — jafnt var í leikhiéi
2—2. — Við gáfum eftir í seinni hálf-
leiknum, sagði Gústaf Bjömsson,
URSUT
Úrslit urðu þessi í bikarkeppninni i knatt-
spyrnu í gærkvöldi — 1. umferð:
S-Vesturland:
Reynir-Njarðvík
Ármann-Grindavík
Víðir-Hafnir
Stokkseyri-Fylkir
FH-IR
Selfoss-Haukar
ísafjörður-Víkverji
Vestmey.-HV
Norðurland:
Magni-Tindastóll
V ölsungur-Leiftur
Vorboðinn-Vaskur
2—0
0-1
1-0
1-4
G-2
3- 1
4- 0
5- 1
0-1
2-1
Frestað
veröur á fostudaginn kl. 20 á Akureyri.
Austurland:
Hrafnkell-Austri 1—3
Þróttur, N.-Leiknir 1—0
Valur-Einherji 1—2
Huginn-Sindri 2—0
þjálfari IR-inga. — FH-ingar skoruðu
flest mörk sín eftir hom- og auka-
spymur þar sem þeir voru sterkari í
loftinu, sagði Gústaf. Það var Tryggvi
Þór Gunnarsson sem skoraði bæði
mörk IR.
Éljagangur
á Selfossi
Þaö var ekki beint gott knattspjTnuveður á
Selfossi þegar Selfyssingar unnu Hauka 3—1.
Eljagangur var á meðan leikurinn fór fram.
Eínar Einarsson skoraði fyrst fyrir Hauka á
22. mín. en Selfoss jafnaði 1—1 á 23. min. og
tryggðu sér síðan sigur. Jón Birgir Kristjáns-
son skoraði tvö mörk og Birgir Haraldsson
eitt.
• Siguröur Guðnason og Ari Haukur Ara-
son tryggði Reyni sigur 2—0 yfir Njarðvík í
Sandgerði.
• Grétar Einarsson tryggði Víði 1—0 sigur
yfir Höf num í Garði.
• Grindavík lagði Armann að velli 1—0 á
Melavellinum í framlengdum leik. Helgi
Bogason skoraði markið á 98. mín.
• Marteinn Már Guðgeirsson tryggði
Þrótti, Nes., sigur 1—0 yfir Leikni þegar
aðeins 20 sek. voru eftir af framlengingu.
• Þórir Olafsson og Kristján Jónsson skor-
uðu mörk Hugins—2—0 gegn Srndra.
Einn á sjúkrahús.
Tveir leikmenn Isafjarðarliðsins meiddust í
leik gegn Víkverjum. Guðmundur Jóhanns-
son fékk langan skurð á höfuð og varð að fara
með hann á sjúkrahús þar sem sex spor voru
saumuð til að Ioka skurðinum. Þá fékk Krist-
inn Krist jánsson smágat á höfuð.
Isfirðingar unnu 4—0. Benedikt Björnsson
og Ragnar Rögnvaldsson skoruðu sin tvö
mörkrn hvor.
• Viðar Sigurjónsson og Gísli Daníelsson
skoruðu mörk Einherja 2—1 gegn Val en
Láðvik Vignisson skoraði fyrir heimamenn.
• Helgi Helgason skoraði mjög þýðingar-
mikið mark fyrir Völsung 1—1 gegn Leiftri
þegar aðeins fjórar sek. voru til leiksioka
þannig að framlengja þurfti leikinn. Jónas
Hailgrimsson tryggði Völsungi sigur 2—1 í
framlengingu.
• Oskar Theódórssou (2) og Anton Jakobs-
son skoruðu fyrir Fylki og Stokkseyringar
skoruðu siðan eitt sjálfsmark. HaUdór Viðars-
son skoraði fyrir heimamenn. -SOS
Nói og Mark
í leikbann
Aganefnd KSI kom saman til fundar í f yrradag. Tveir leikmcnn í 1. deild
vora dæmdir í eins leiks keppnisbann, Nói Björnsson, Þór, vegna brott-
reksturs, og Mark Duffield, KA, vegna 10 refsistiga. Bannið tekur gildi á
hádegi nk. laugardag.
SK.
IÞROTTIR ERU A BLS. 18-19
* s
' *
"■ ’1' <. ,*íV
'Íý
:**';í*i -
- ’ < >
8 . X
FYRSTI HEIMALEIKUR FRAM 1984
FRAM- ÞRÓTTUR
í KVÖLD KL. 20 Á LAUGARDALSVELLI.
Sverrir Einarsson, fyrirliði
Fram, alinn upp í Þrótti.
Leikskrá Fram Knattspyrnuskóli Fram. Innritun í Igjaður leiksins
kemur út að Framheimili í valinn.
nýju. síma 34792.
Ásgeir Elíasson, þjálfari
Þróttar alinn upp í Fram.