Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1984, Page 36
36
DV. FIMMTUDAGUR 24. MAI1984.
akstri kærastans.
Christie Brinkley, súper-
fyrirsætan, fékk gefna köku, í
samkvæmi er hún sótti í
Metropolitan safninu í New
York. Kakan ku hafa verið'
skreytt á þann hátt að andlit
móður hennar var á henni.
Nokkuð ósmekklegt þykir
Sviðsljósinu. Brinkley var
annars í samkvæminu til að
fagna framleiðslu á nýjum
íþróttafatnaði sem hún aug-
lýsir.
(„þurrkví"
að undanförnu
Tiskan,
tískan,
sumar
og haust
Fjólublá buxnadragt frá Gian-
franco Ferré.
Svart og fjólublátt eru uppáhalds-
litir Yves Saint Laurent um þessar
mundir samanber þennan kvöld-
klæðnað.
ROCKHUDSON:
Rock Hudson hefur verið í
„þurrkví” að undanförnu og
þegar má sjá árangurinn.
Utlitið hefur skánað ögn.
Drykkja undangenginna ára
hefur þó sett sitt mark á
kappann. Rock verður sex-
tugur á næsta ári. „Og ekkert
,,on the rocks” þá, félagi
Rock.”
Dálítill
friður
Tilton er með afbrigðum trú-
uð. Hún var nýlega á ferð í
Rómaborg og auðvitað brá
hún sér í Vatíkanið og hitti
páfann. Anægð var hún með
þann fund. Sagan segir
reyndar aö ekki hafi verið
ljóst hvort þeirra var ánægð-
ara meðfundinn.
CHRISTIE BRINKLEY:
Þýska stúlkan Nicole, sem
sló í gegn með friðarlagið sitt
i Eurovison-söngvakeppn-
inni í hittifyrra, ku nú vera á
kafi í próflestri. Vonandi að
hún fái frið í próflestrinum,
stúlkan myndarlega.
CHARLENE TILTON:
Heillaði
páfann
Dallasstúlkan Charlene
minn
Þetta er hvorki fugl né fiskur, hvað
þá flugvél. Þetta er sleði með tveimur
farþegum. Myndin er tekin á vetrar-
hátíð í Bad Tolz í Vestur-Þýskalandi.
Ahorfendumir horfa greinilega spennt-
ir á tiltæki sleðamannanna. Þeir sjálfir
virðast líka spenntir enda ekkert grín
ef sleðinn lendir ekki þægilega.
Kærastinn
Patrick Duffy og Priscilla Presley ástfangin i Dallas. Sú ást nær ekki út fyrir þættina. „Hún er vonlaus
leikari."
Patrick Duffy fer.ófögrum orðum
um Priscillu Presley sem leikiö hefur á
móti honum í Dallas. „Manneskjan er
gjörsamlega vonlaus leikari og það er
óhugsandi aö hún auki vinsældir þátt-
anna eins og til stóð,” segir hann um
Priscillu. ^
Bobby er ekki einn um að telja leik-
hæfileika Priscillu bágboma. Svo var
einnig um „sléttumanninn” Michael
Landon en hann lék á móti henni í
hennar fyrstu kvikmynd.
Landon gekk reyndar svo langt að
hann krafðist þess að frú Presley yrði
sparkaö úr myndinni. „Það þýðir
ekkertannaö,” sagðihann.
En Bobby og Priscilla eru ástfangin í
Dallas. Þar dúkkar hún upp sem
gamla æskuástin. „Það voni mikil
mistök að fá hana í þáttinn,” segir
hann snúðugt.
Fljúgðu, fljúgð
flugfiskur
á kagganum
— Stephanie
prinsessa lítt hrifm
af kappakstri
kærastans, Belmondo
Belmondo yngri, sem hefur
verið í slagtogi með
Stephanie prinsessu af
Monaco, ætlar sér aö ná langt
í kappakstursíþróttinni.
Hann hefur nú fengiö nýjan
bíl og á honum ætlar hann sér
ekkert annað en sigur í For-
mula 3-kappaksturskeppn-
inni.
Sjálfur er pabbinn, Jean
Paul Belmondo, hrifinn af
þessu uppátæki sonarins. Það
sama verður ekki sagt um
kærustuna, Stephanie. Hún
hefur enn ekki náð sér eftir
slysið fyrir tæpum tveimur
árum er móðir hennar,
Grace.lést.
Belmondo-feðgamir er nýi
kappakstursbillinn var afhent-
ur. Engu likara en pabbinn hafi
áhuga á að taka þátt i Formula
3-keppninni.