Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 7
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984.
7
Fjórfaldur
verðmunur
milli
matsölu-
staða
— niðurstöður verðkönnunar
Verðlagsstofnunar
Nýlega eöa dagana 16. - 18. maí
gekkst Verðlagsstofnun fyrir verö-
könnun á matsölustöðum á höfuðborg-
arsvæðinu, Isafirði, Sauðárkróki,
Akureyri og Egilsstöðum. Samtals var
verð kannaö á 89 matsölustöðum og
eru birtar niðurstöður f rá þeim 57 stöö-
um sem seldu minnst helming þeirra
vara sem spurt var um.
Matsölustöðunum er skipt í tvo hópa,
ekki er þjónað til borðs eða aðeins að
hluta á 33 matsölustöðum sem kannað-
ir voru. Matsölustaðirnir eru hins veg-
ar 24 þar sem þjónað er að fullu til
borðs. Þá eru réttir með sama heiti
mismunandi eftir veitingastöðum hvað
snertir magn, samsetningu og gæði,
auk þess er þjónusta misgóð og innrétt-
ingar og umhverfi meö ýmsum hætti.
öll geta þessi atriði haft áhrif á verð-
ið en í könnuninni er ekki lagt mat á
slíkt heldur er eingöngu um aö ræða
kynningu á verðlagi matsölustaðanna.
Samhliða verðkönnuninni var athug-
að hvort farið væri eftir þeim reglum
sem gilda um verðmerkingar á mat-
sölustööum. Kom í ljós að fæstir stað-
imir hafa verðlista á áberandi stað,
við inngöngudyr eins og þeim ber að
gera. Verðlagsstofnun mun fylgja því
eftir að slíkt verði gert. Verðkannanir
Verðlagsstofnunar liggja frammi fyrir
almenning hjá Verðlagsstofnun
Borgartúni 7 og hjá fulltrúum
stofnunarinnar úti á landi. Þeir sem
þess óska geta gerst áskrifendur aö
Verðkynningu Verðlagsstofnunar sér
aö kostnaöarlausu. Síminn er 91-27422.
Matsölustaðir þar sem ekki
er þjónað til borðs eða aö-
eins að hluta
Mestur var verðmunur á skinku með
2 eggjum og ristaðri brauðsneið.
Lægsta verðið var á Uxanum Glæsibæ,
krónur 50, en hæsta verðið í Valaskjálf
Egilsstöðum, 210 krónur, eða fjórfalt
hærra. Lægsta verðið á mjólk var í
Vogakaffi, 7 krónur, en hæsta verðið í
Valaskjálf, 25 krónur, eða þrefalt
hærra. Bæði á drykkjarvörum og heit-
um aðalréttum munaöi í öllum tilvik-
um meira en helmingi á lægsta og
hæsta verði. Súpa kostaöi 20 krónur í
Söluskála KHB Egilsstöðum en 70
krónur í Pottinum og Pönnunni, eða
rúmlega þrefalt meira. Djúpsteikt ýsu-
flök kostuðu 135 krónur í Smiöjukaffi
en 290 krónur í Valaskjálf eða rúmlega
tvöfalt meira. Svínakjötsréttur var
ódýrastur í Fjarðarkaffi Hafnarfirði,
krónur 180, en hjá Kokknum er verðið
473.
Þar sem þjónað er til borðs
Mestur var verðmunurinn á
drykkjarvörum, City hótel selur
mjólkurglasið á 7 krónur en það kostar
34 krónur í Sælkeranum. Þá var City.
hótel meö þrefalt iægra verð á gos-
drykkjum eöa 21 krónu en 66 krónur
kostar glasið á Hótel Loftleiöum.
Verulega mikill verðmunur var á
djúpsteiktum ýsuflökum, sem seld
voru á 160 krónur á City hóteli en 380
krónur á Hótel Loftleiðum BlómasaL
Þá eru kjúklingar á 250 krónur á City
hótel og Hressingarskálanum en 550
krónur i Lækjarbrekku. Þrefaldur
verðmunur var á nautakjötsrétti og
fiskrétti, þar sem City hótel er ódýrara
en Hótel Saga.
—RR
VERÐKÖNNUN Á MATSÖLUSTÖÐUM
- staðir þar sem þjónað er að fullu til borðs
(í neöangreindu veröi er reiknaö með tveimur máltíðum, ódýrasta fisk- og lambakjötsrétti
af sérréttamatseðli og er súpa dagsins innifalin í báðum tilvikum. Auk þess er gosdrykkur
og kaffi eftir mat með báðum réttum.)
Hlutfallslegur
Samtals samanburdur
verð lægsta verð = 100
City hótel, Reykjavík 507 100,0
Hótel Hof, Reykjavtk 541 106,7
Brauðbær, Reykjavtk 617 121,7
Hornið, Reykjavik 776 153,1
Torfan, Reykjavík 823 162,3
Sjallinn, Mánasalur, Akureyri 842 166,1
Kiðaberg, Hótel Esju, Reykjavtk 855 168,6
Sælkerinn, Reykjavík 865 170,6
Hlóðir, Reykjavík 884 174,4
Hótel Mælifell, Sauðárkróki 910 179,5
MEÐALVERÐ 924 182,2
Hótel KEA, Akureyri 932 183,8
Gullni haninn, Reykjavík 951 187,6
Smiðjan, Akureyri 976 192,5
Hótel Borg, Reykjavík 978 192,9
Rán, Reykjavík 1009 199,0
Lækjarbrekka, Reykjavík 1020 201,2
Hótel Loftleiðir, Blómasalur, Reykjavík 1027 202,6
Hótel Holt, Reykjavtk 1106 218,1
Naust, Reykjavtk 1138 224,5
Arnarhóll, Reykjavík 1142 225,2
Veitingahöllin, Reykjavík 1143 225,4
Hótel Saga, Reykjavík 1282 252,9
GEYSIR
Bílaleiga
Car rental
BORGARTÚNI 24 (HORNI NÓATÚNS) SÍMI 91-11015 Á KVÖLDIN 91-22434
SKIPAGATA 13, AKUREYRI SÍMAR 96-24535, 96-23092, TELEX 2073
HÖFUM OPNAÐ
BÍLALEIGU
Á AKUREYRI
Leigjum út: Lada 1500 station, Fiat Uno, Opel Kadett,
Citroén GSA Pallas, Datsun Sunny, Daihatsu Charaiant,
Lancer 1400 og Lada Sport jeppa, aöeins nýja bíla, út-
varp og segulband í öllum bílum.
Við afhendum bílinn á flugvellinum eða við hótelið, hvort
sem er í Reykjavík eða á Akureyri. Reynið viðskiptin,
gott verð, góð þjónusta, nýir bílar.
GEYSIR, REYKJAVÍK,BORGARTÚNI 24. GEYSIR, AKUREYRI, SKIPAGÖTU 13.