Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984.
11
kylfustúlka hjá mér. Hluti af fríinu fer
í undirbúning og þátttöku á Noröur-
landamótinu og svo er ég aö hugsa um
aö slappa af í eina viku.í sumarbústaö
sem Landsbankinn á i Þrastarskógi.
Meira er ekki á dagskránni í bili aö
minnsta kosti.”
Konan mjög umburðarlynd
1 þessum þáttum hefur ætíö veriö
leitaö álits hjá eiginkonu viömæland-
ans hverju sinni og hún spurö spjörun-
um úr varðandi eiginmanninn. Ut úr
þessu hafa oft á tíðum komiö hin nei-
kvæöustu svör til handa þeim heitt-
elskaöa og viö gefum Ragnari tækifæri
á að segja okkur eitthvað um konu
sína. Hann er hógværöin uppmáluð eöa
þá aö hann hreinlega þorir ekkert að
segja.
.JConan mín er mjög umburöarlynd
og tekur því ekki illa þó mikill tími fari
í golfið. Stundum fer ég víst yfir mark-
iö og þá er þaö gefið til kynna meö
vissu augnaráði sem ég þekki manna
best. Hún er mjög skemmtilegur félagi
og þaö hlýtur að gefa augaleiö að ég
treysti henni mjög vel fyrst ég læt hana
draga golfkerruna mína í mótum. Til
þess velur maður yfirleitt úrvalsf ólk. ”
Nú fer að styttast í Islandsmótiö.
Hverja telur þú möguleika þína á sigri
vera í ár?
„Eg tel þá góöa. Ég er búinn aö æfa
vel að undanfömu og æfi öðruvísi en
áöur. Mun meira skipulag í æfingum
mínum núna en veriö hefur þannig að
ég á von á aö veröa í fremstu röö.”
Hverjir verða helstu andstæöingam-
ir?
„Þeir veröa margir en ég reikna
meö að þeir Sigurður Pétursson,
Björgvin Þorsteinsson og Ulfar Jóns-
son veröi erfiðastir en vonandi tekst
mér aö leggja þá alia að velli,” sagði
Ragnar Olafsson.
—45K.
„VIÐ KYNNTUMST
Á GOLFVELLINUM”
—segir Hólmf ríður Jóna Guðmundsdóttir,
eiginkona Ragnars Ólafssonar
„Viö Ragnar kynntumst á golfvellin-
um i Grafarholti. Eg vann þá í eldhúsi
golfskálans og hann vann á vellinum,”
sagöi Hólmfríður Jóna Guömundsdótt-
ir, eiginkona Ragnars Ölafssonar, í
samtaliviö DV.
„Mér fannst hann strax huggulegur
maður og þar sem við unnum á sama
stað komumst við ekki hjá því aö sjá
hvort annaö svo aö segja á hverjum
degi. Svo fór hann að kenna mér golf
og þannig byrjaöi þetta. Samband okk-
ar þróaöist upp í hjónaband upp frá
því.”
Hvernig eiginmaður er Ragnar?
„Ragnar er mjög góöur eiginmaður,
bamgóður með afbrigöum og hefur
gaman af dóttur sinni. Hann er mjög
duglegur þegar hann er heima. Það er
ekki mjög oft. Hann er alltaf í golfi.”
Er þaö fariö aö fara í taugamar á
þér?
Nei, ég get ekki sagt þaö. Eg er farin
að fara með honum og draga fyrir
hann golfkerruna. Og svo er hann aö
reyna aö kenna mér að slá.”
Stefnir þú aö því aö verða jafngóö og
hannííþróttinni?
„Ég ætlaði þaö einu sinni en liklega
tekst þaö aldrei. En ég verö að viður-
kenna aö kennarinn er í betra lagi. Ég
get ekki haft þaö sem afsökun,” sagði
Hólmfríöur Jóna Guömundsdóttir.
—SK.
Ragnar Olafsson langaði að koma á
framfæri sérstöku þakklæti til Bjarna
Felixsonar fyrir þaö hve mikið hann
hefur sýnt af frábærum golfmyndum í
sjónvarpinu nú undanfariö. I kjölfarið
langaöi Ragnar aö spyrja Bjarna
hvort von væri á f ramhaldi í sama dúr.
Svar Bjarna Felixsonar:
„Eg þakka sömuleiðis. Ekki get ég
lofað miklu framhaldi á golfmyndum
en þó er aldrei aö vita hvaö verður. Ef
góðar myndir berast munu þær aö
sjálfsögöu veröa sýndar.”
Eftirlætísleikari Ragnars á er-
( lendri grund er Sir Laurence
| Olivier.
SFULLTNAFN: Ragnar Olafsson.
HÆÐOGÞYNGD: 180cmog80kg.
5GÆLUNAFN: Ekkert.
BIFREIÐ: Daihatsu Charade.
| UPPÁHALDSGOLFKLUBBUR:
! Golfklúbbur Reykjavíkur.
I UPPÁHALDSÍÞRÖTTAMAÐUR
■ ÍSLENSKUR: Ásgeir Sigur-
I vinsson.
■ UPPÁHALDSÍÞRÖTTAMAÐUR
* ERLENDUR: Kareem Abdul
| Jabbar.
J MESTU VONBRIGÐI I
| ÍÞRÓTTUM: Engin sérstök, ég er
svo f Ijótur að gleyma þeim.
| MESTA GLEÐISTUND í
■ ÍÞRÓTTUM: Þegar ég var valinn í
I EvrópuúrvalgegnS-Ameríku.
IÖNNUR UPPÁHALDSÍÞRÖTT:
Handknattleikur.
I UPPÁHALDSMATUR: AUur grUl-
* matur.
I UPPÁHALDSSJÓNVARPSÞÁTT-
J UR: iþróttir.
( UPPÁHALDSLEIKARI ERLEND-
■ UR: SirLaurenceOlivier.
I UPPÁHALDSLEIKARI ISLENSK-
■ UR:SigurðurSigurjónsson.
■ UPPÁHALDSBLAÐ: DV.
1 UPPÁHALDSHLJÓMSVEIT: Engin
|^sérstök, hlusta lítið á tónUst.
MINNISSTÆÐASTA HÖGG i .
GOLFI: Höggin þrjú þegar ég fór |
holuíhöggi. |
LÍKAR VERST Í SAMBANDI VUD I
ÍÞRÓTTIR: Aö þrípútta. ■
BESTIVINUR: Geir Svansson. •
ERFIÐASTI ANDSTÆÐINGUR: I
Vanmat. .
HELSTA METNAÐARMÁL Í |
LÍFINU: Næsti sólargangur. ■
HVAÐA PERSÖNU LANGAR ÞIG |
MEST TIL AÐ HITTA: Vigdísi Finn- I
bogadóttur forseta. ■
RÁÐ TIL UNGRA KYLFINGA: I
Æfa. ’
HVAÐ VILDIR ÞU HELST GERA I
EFTIR AÐ FERLINUM LYKUR? !
Honum lýkur aldrei. |
HELSTI KOSTUR ÞINN: Legg mig ■
aUtaf fram. I
HELSTIVEIKLEIKI: Ofsmámuna- I
samur. ■
FRAMTÍÐARMENN Í GOLFI: I
Synlr KaUa Jó, Karl og Jón.
BESTIÞJÁLFARI: John Nolan. g
YRÐIR ÞU HELSTIRÁÐAMAÐUR
ÞJÓÐARINNAR A MORGUN, |
HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA .
VERK? Fá mér Benz. I
ANNAÐ VERK: Leyfa bjórinn. |
Ragnar Ólafsson langar most til
að hitta forseta vorn, Vigdisi Finn- |
BÍIKÓ
ÞINN SEM „HOBBI"?
í björtu og hreinlegu
húsnæði með verkfærum frá
okkur getur þú stundað bíl-
inn þinn gegn vægu gjaldi.
• Seljum bónvörur, olíu, kveikjuhluti
o.fl. til smáviðgerða
• Viðgerðastæði
• Lyfta
• Smurþjónusta
• Lokaður klefi til að vinna undir
sprautun.
• Aðstaða til þvotta og þrifa
• Barnaleikherbergi
Tökum að okkur að þrífa
og bóna bíla.
Sérþjónusta:
Sækjum og skilum bíium ef
óskað er.
MÁNUD. —FÖSTUD. 9-22
LAUGARD. OG SUNNUD. 9-18.
BÍLAÞJÓNUSTAN
KÓPAVOGI
BÍIKÓ
TRABAIMT- OG WARTBURG-
EIGENDUR
Sérfræðingar frá Trabant- og Wartburgverksmiðj-
unum verða til aðstoðar og ráðieggingar
mánudag—fimmtudag að báðum dögum
meðtöldum. Vinsamiegast hafið samband við
Viihjáim í síma 84S10.
Frystihús—yfirverkstjóri
Höfum verið beðnir að finna yfirverkstjóra fyrir frystihús á
Suðvesturlandi. Umsækjendur hafi samband við Braga Berg-
svemsson.
ATH.: Nýtt símanúmer 91-685311.
rekstrartækni sf.
Tækniþekking og tölvuþjónusta.
Síðumúla 37,105 Reykjavík, sími 685311.
SMIÐJUVEGI 56
SÍMI 79110
Auglýsing
um lögtök vegna fasteigna- og brunabótagjalda í
Reykjavík
Að kröfu gjaldheimtustjórans, f.h. Gjaldheimtunnar í
Reykjavík, og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 12.
þ.m., verða lögtök látin fara fram til tryggingar ógreiddum
fasteignasköttum og brunabótagjöldum 1984.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, ásamt dráttar-
vöxtum og kostnaði, hefjast að 8 dögum liðnum frá birtingu
þessarar auglýsngar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess
tíma.
12. júní 1984.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK.