Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Side 12
12
w:mbmAGVRíi mtÆ
ar.
Boeing 747 risaþota frá British Airways, sem var á leið frá London tii
Los Angeles, lentiá Keflavíkurflugvellisl. miðvikudag. Tilkynning barst
um að sprengja væri i þotunni. 233 farþegar voru um borð og nokkrir
fengu skrámur.
Um hvitasunnuhelgina var glaumur og gleði í Þjórsárdal sem unga
fólkið þar,, fílaði" i botn.
Mikil spenna var i leik Breiðabliks og Keflavíkur i Kópavogi um siðustu
helgi. Hart var barist um boltann en leiknum lauk með sigri Keflavíkur,
eitt mark gegn engu. Hór vargreinilega eitthvað stórt iuppsiglingu.
Fyrsti lax sumarsins som veiddist
i Elliðaánum vó 11,5pund. Það var
borgarstjórinn i Reykjavik, Davið
Oddsson, sem að venju hóf veið-
ina, i þetta sinn á hvítasunnudag.
Veiddi Davíð sex laxa þá morgun-
stund sem hann var við Elliðaárn-
Á þriðjudagskvöld kom upp eldur i fiskimjölsverksmiðjunni á Suðureyri við Súgandafjörð. Þetta er i
annað sinn á tæpu ári sem eldur kemur upp i verksmiðjunni. Milljónatjón varð af völdum brunans en
engin slys á mönnum.
Farþegarnir i bresku risaþotunni gistu eina nótt á íslandi. Hér sjást
nokkrir þeirra á Hótel Stað áður en þeir héldu för sinni áfram á áfanga-
stað með leiguvól.
Askenazy fjölskyldan kom til Islands sl. laugardag og feðgarnir Stefán
og Vladimir spiluðu á listahátiðinni við mikla hrifningu gesta.
Á myndinni eru Dmitri Þor, Nadia Liza, Vladimir, Stefán, Alexandra
Inga, Sonja Edda og Þórunn Askenazy við komuna til Keflavikur.