Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 5
DV. LAUGARDAGUR 7. JULI1984. 5 lón L teflir á sterku móti íEsbjerg A mánudag hefst órlegt alþjóðlegt skákmót í Esbjerg á Jótlandi, svonefnt „Noröursjávarskákmót”, og verður Jón Arnason þar meðal þátttakenda. Mótiö yerður allsterkt eða af 10. styrkleika- Elokki FIDE, meöalskákstig keppenda 2483 stig. Auk Jóns taka þátt í mótinu stór- meistararnir Miles (2565) og Mestel (2545) frá Englandi, Csom (2500), Ungverjalandi, og Lars Karls- son (2500), Svíþjóð, alþjóðlegu meistar- amir og „undrabömin” Nigel Short (2510), Englandi, og Curt Hansen (2505), Danmörku.SviinnWiedenkeller (2460) og dönsku alþjóðlegu meistar- amir Jens Kristiansen (2445), Erling Mortensen (2445), Ole Jakobsen (2435) og Jens Ove Fries Nielsen (2380), — stigatala innan sviga. Til þess að ná áfanga að stór- meistaratitli þarf 7 1/2 v. af 11 mögulegum. Mótinu lýkur 21. júlí. -JH. KVÖLD- OG HELGARÞJÓNUSTA. LYFTUBÍLAR. f Djúpuvfk—annar þeirra flúinn til útlanda? Sölumennimir hlutu eins árs fangelsi fyrir stórfelld fjársvik—seldu verðlausa síldarverksmiðju Sakadómur Reykjavíkur hefur dæmt „sölumennina” Edvard Lövdal og Sigurð örn Ingólfsson í eins árs fang- elsi fyrir stórfelld fjársvik. Dóminn kvað upp Gunnlaugur Briem yfirsaka- dómari. Edvard Lövdal hefur þegar áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. Síöast þegar fréttist hafði hins vegar ekki náðst í Sigurð Öm til að birta honum dóminn því að hann hefur ekki verið á landinu að undanfömu og virðist vera sestur að íKanada. I dómskerfinu eru menn ekki vissir um hvort Sigurður örn er að flýja und- an réttvísinni eða hvort hann muni snúa aftur til Islands og taka út refs- ingu sína. Ekki náðist í lögmann hans, Guðmund Ingva Sigurðsson, til að spyrja hann um málið. Sölumannamálið svokallaða er eitt af umfangsmeiri fjársvikamálum síð- ari ára. Fjöldi borgara hefur orðið fyr- ir fjárhagstjóni vegna viöskipta við þessa tvo menn, margir verulegu t jóni. Málið kom fyrst til kasta Rannsóknar- lögreglu ríkisins fyrir fjómm árum, í júní 1980. Þá kæröi verslunarmaður í Borgarfirði Edvard Lövdal og taldi hann hafa svikið af sér hartnær 30 milljónir gamalla króna. Eftir viðamikla rannsókn var ákæra gefin út í ágústmánuöi 1981. Edvard og Sigurður öm voru ákæröir fyrir fjár- svik og skjalafals og Edvard auk þess fyrir skilasvik. Það hefur tekið Saka- dóm tæp tvö ár að kveða upp úrskurð í málinu. Það gæti tekið Hæstarétt annan eins tíma að kveða upp sinn úr- skurö. Svikin fólust einkum í því að blekkja út víxla frá ýmsum mönnum. Víxlam- ir voru síöan notaðir til margháttaðra viðskipta, svo sem bílaviðskipta. Edvard og Sigurður stóðu þannig að eða áttu hlut að kaupum á um einum tug bila. Sem dæmi um hvernig farið var að má nefna að í apríl 1980 blekktu félag- amir mann af Akranesi til að selja og skrá á nafn annars manns nýja Toyota-bifreið. I stað bílsins fékk selj- andinn þrjá víxla sem þeir Edvard og Sigurður höfðu látið félaga sinn, sem var eignalaus, samþykkja í nafni og sem prókúruhafi fyrir Kamb hf. Það fyrirtæki höfðu Edvard og Sigurður „keypt” og átti það verðlausar vélar í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpuvík á Ströndum. Tæki hinnar verðlausu verksmiöju seldu þeir fyrir 130 milljónir gamalla króna með því að beita tvo aðra menn blekkingum. Verð verksmiðjunnar var greitt með víxlum. Helmingur víxl- anna fannst undir rúmdýnu Edvards eftir ábendingu hans. Nokkrir verslunareigendur víða um land urðu fyrir barðinu á „sölu- mönnunum” en einmitt vegna þeirra viðskipta er þessi nafngift komin. „Sölumennimir” notuðu illa fengna víxla, sem auk þess voru komnir frá einstaklingum sem á engan hátt voru borgunarmenn til að greiða vörur sem þeir höfðu fengið frá verslununum. -KMU. Gamla sildamerksmiðjan i Djúpuvik á Ströndum. NISSAN CHERRY Nissan Cherry kom best út _ 26. 5- Danska tlmaritið, Penge & | Piivatökonomi, sem gefið er út af Böi*sen, gerði víðtæka könnun á því hvaða bíll kæmi best út i rekstri 1 væri miðað við þriggja ára tímabil, i 45 þúsund km akstur. í sínum verðflokki kom Nissan Cherry út sem sigurvegari með meðaltalsútgjöld 3,90 kr. á kílómetra og í annað sæti kom Nissan Sunny með 4,07 kr. á km. Næstir í rööinni voru meðal annarra Ford Escort, Opel Kadett, Mazda 323, Toyota Corolla, Fiat Ritmo ES og VW Golf. ÞÚ GETUR VARIÐ PENINGUNUM ÞÍNUM VEL OG KEYPT NISSAN. ÞÁ ERTU ÖRUGGUR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.