Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 7
Miki! óánægja með hið nýja leiðakerf i SVK: Hið nýja ieiðakerfi Strætisvagna Kópavogs þykir gefast heidur illa. .{'Sfil IJOI .V HUOAQHASITAJ VQ DV. LAUGARDAGUR 7. JOLI1984. Mikil óánægja er nú með hið nýja leiðakerfi Strætisvagna Kópavogs, bæði hjá farþegum og vagnstjórum, en þessu kerfi, sem kallað er sumarkerfi, var komið á þann 9. júní sl. Með því var þjónusta SVK skorin niður um 50%, það er vagnarnir ganga nú á hálf- tíma fresti í stað 15 minútna áður. Að vísu er nú fariö að bæta aukavögnum inn á háannatímum en þá hefur þetta nýja kerfi yfirleitt farið allt úr böndun- um að sögn viðmælenda DV. ,,Við höfum orðið áþreifanlega varir við óánægju, farþegar okkar hafa látið í sér heyra enda hafa komiö upp ákveðnir gallar á kerfinu,” sagði Karl Arnason, forstöðumaður SVK, í sam- tali við DV er við spurðum hann um málið. „Við vorum svo seinheppnir að á sama tíma og breytingin skall á breytt- ist vinnutimi skrifstofufólks, það hóf vinnu kl. 8 i staö kl. 9 en þaö er sjáan- legt aö sá tími sem sumarkerfið á að gilda á, júní, júlí og ágúst, er of langur. Júní mætti f alla út,” sagöi hann. I máli Karls kom ennfremur fram að bætt hefði verið inn í kerfið aukavögn- um á mestu álagstímunum, þ.e. á milli kl. 7 og kl. 9 á morgnana og milli kl. 16 og kl. 19 síödegis. Það hefði þó ekki gef- ið nægilega góða raun þar sem kerfið væri viðkvæmt og ætti til að riðlast við þetta. Bæjarráð og bæjarstjóm hafa f jallað um þetta mál og samþykkti bæjarráö að breyta ekki kerfinu heldur að flýta því að vetrarkerfið kæmist aftur í gagniö og verður það nú 15. ágúst í stað 1. sept. Jafnframt var samþykkt að Vélamiðstöðin, sem er rekstraraðili SVK, tæki kerfið til gagngerrar endur- skoðunar til að athuga með úrbætur á því. Sverrir Kristinsson vagnstjóri sagði í samtali við DV að hann hefði unnið í 10 sumur hjá SVK eftir þremur kerfum og væri þetta hið versta þeirra. Nú tæki það farþega úr Kópavogi allt upp undir 45 mínútur að komast í bæinn á vissum timum í stað þeirra 20—25 minútna sem það tók með vetrarkerf- inu. Spamaður er aðalástæða þess að ferðir og þjónusta SVK var skoríanið- ur en hjá Kristjáni Guðmundssyni bæjarstjóra kom fram að á síðasta f járhagsári hefði Kópavogsbær borgað 9 milljónir með rekstri SVK. „Við höfum verið að bæta í brestina á kerfinu og erum að vona að þetta sé aðlagast,” sagðihann. ,,Skerðingin mæltist illa fyrir enda var viss tregða í kerfinu til að byrja með, þaö gekk ekki upp. Við höfum fengiö athugasemdir og tillögur frá bæði fulltrúum farþega og vagnstjór- um og erum að athuga þær. Við mun- um svo yfirfara allar hugmyndir þannig að þær séu hafðar tU hiiðsjónar er við breytum aftur yfir í vetrar- kerfi,”sagðihann. -FRI POLYTAR SHAMPOO Einstaklega árangursríkt gegn: flösu feitu hári Psoriasis exemi Reynið og sannfær- ist. Fæst í apótekum. HERMES HF. Háaleitisbraut 19 Símar: 32188 - 31240 KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20 SÍMI686633 RENAULT mest selda bílategundin í Evrópu STOR RENMLEGUR RENAULT 9 Akstursgeta er lykilorðið fyrir Renault 9. Að baki glæsilegs útlits liggur áralöng hönnunar- og rannsóknarvinna. Renault 9 er kjörinn fjölskyldubíll, rúmgóður, sparneytinn, traustur en samt ódýr. Verð frá kr. 292.000.- Renault 9 er framhjóladrifinn og hefur sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli, sem gerir hann öruggan í 'akstri á vegum og við erfiðar aðstæður. Renault 9 er fáanlegur með 4 mismunandi vélum, 4-5 gíra eða sjálfskiptur. eyðsla R9TC 48DIN 5,41 R9GTL . 60DIN 5,41 R9 GTS 72 DIN 5,41 R9 Autom. 68DIN 6,31 Renault 9 sameinar kosti „lítils bíls" hvað varðar lipurð og sparneytni og „stórs bíls“ hvað útbúnað og útlit varðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.